Ég veit að ég hef ekki verið sérlega dugleg að skrifa undanfarið, en það er svosem ekki sérlega mikið að frétta af mér. Ég vinn, ég sef (yfir mig) og ég ét... Af einhverjum ástæðum hef ég varla gert annað en éta síðan jól! Út að borða eða matarboð í hverri viku – enda blæs ég út eins og loftbelgur! Aaargh! Nú er mál að linni...
Vorið er að láta á sér kræla hér, fyrstu blómin eru búin að skjóta upp kollinum og komið brum á þónokkur tré og runna. Þetta er allt reyndar nokkrum vikum á undan áætlun og maður er hálfhræddur um að það fari illa ef veturinn skyldi nú finna uppá að sýna sig aftur (sem er alveg möguleiki). Það á reyndar að kólna í veðri næstu daga en í skaðabætur fáum við SÓL. Sólskin er af skornum skammti hér á veturnar svo það verður kærkomið! Svo planið fyrir næstu helgi er að klæða sig vel og vera eins mikið utandyra og mögulegt er :o) Safna freknum og kannski bræða smá mör í leiðinni...
1 ummæli:
Það er febrúar... við hér á klakanum erum hæst ánægð yfir að snjórinn skuli vera að þykjast fara !!
Oh væri til í brum og blómahnappa núna, býflugur og fuglasöng.. "lalalalaaaa"
Skrifa ummæli