17. janúar 2011

Same shit - different year

Og svo er komið árið 2011 og allt er við það sama - ég er enn húðlöt og geri ekkert annað en vinna og glápa á sjónvarp og það er takmarkað hvað maður getur bloggað um það.
Átti annars ágætis hátíðir - fjölþjóðlegt aðfangadagskvöld þar sem ég brilleraði í eldhúsinu og gamlárskvöld sem var rólegra en ég hefði kosið því ég var of lasin til að vera á meðal fólks. En annars náði ég að slappa vel af - lesa, pússla, glápa á sjónvarp og jafnvel aðeins út að labba líka í nýárssólinni. Dóan kom við á leiðinni til Belgíu og við áttum lata helgi hér, mjög næs allt saman. Það kom asahláka hér um helgina og snjórinn er allt í einu næstum horfinn og greyið fuglarnir virðast halda að það sé að koma vor! Ég sver að ég sá bjartsýnan skaða í gær sem var byrjaður á hreiðri! það er nú svona 2 mánuðum of seint - meira að segja fyrir skaða og krákur (gera hreiður snemma til að geta fóðrað ungana sína með eggjum og ungum annarra fugla).
En ég skil það svosem vel - er sjálf farin að telja niður í vorið og hækkandi sól. En ég hef allavega handboltann til að stytta mér stundir út janúar. Litla krumpaða þjóðarstolltið hefur afar gott af þessu og mig dauðlangar að skella mér í blátt og taka lestina til Svíþjóðar á laugardaginn. Nema mér takist að finna stað í Kaupmannahöfn þar sem Íslendigar sjá leikinn saman. Þið eruð náttúrulega velkomin að koma hingað og horfa á leikinn með mér ;o)

Og nú er leikurinn við Japan að byrja - Sayonara!