ég hefði átt að kaupa þennan...
24. janúar 2008
Neeeeeeiiii!
Ég var að komast að því að ég verð send í fangabúðir í mars! Eða ekki alveg. Fyrirtækið sendir víst allt starsfólkið hollum út á land (og stundum úr landi) í 2 daga á hverju ári “til að efla félagsandann” eða eitthvað þvíumlíkt. Mér skillst á vinnufélögunum að þetta sé annaðhvort voðagaman eða alveg hreint drepleiðinlegt – afar misjafnt milli ára. Vona að við verðum ekki sett í einhverjar hræðilegar hópeflisæfingar sem ganga út á naflaskoðun – ég haaaaaaaaaaaaaaaaaata svoleiðis!
Ég þori varla að nefna þáttakandalistann – eða þá staðreynd að við gistum eina nótt – sumir eiga eftir að tapa sér í hernaðaráætlunum ;o)

23. janúar 2008
Halelúja!
22. janúar 2008
16. janúar 2008
Trúboðinn Tom?
Ég veit enn ekki hvort ég á að hlæja eða gráta eftir að hafa séð þetta.
Það litla sem ég skildi af röflinu í karlinum var eiginlega bara scary - eins og allt trúarofstæki er í mínum eyrum og augum. Hins vegar er endirinn svo hrikalega vondur að ég gat ekki annað en hlegið!

15. janúar 2008
14. janúar 2008
"Skítadjobb"
Gott ráð ef þér leiðist svo í vinnunni að þú fyllist þunglyndi við tilhugsunina um að þurfa að mæta á morgnana:
1. Komdu við í næsta apóteki og kauptu endaþarms-hitamæli frá Johnson&Johnson
2. Opnaðu kassann og finndu leiðbeiningarnar
3. Einhversstaðar í tekstanum stendur: hver einasti hitamælir er persónulega prófaður af starfsfólki okkar.
4. Lokaðu augunum og endurtaktu 5 sinnum upphátt : Ég er fegin/n að vinna ekki við gæðaeftirlit hjá Johnson&Johnson!
Mundu að það er alltaf til vinna sem er verri en þín!

11. janúar 2008
10. janúar 2008
2 down 3 to go...
Og svo rauk annað nýárheit : Ná betri tökum á verslunarhegðun minni.
Fór á útsölu til að finna mér hlýju peysurnar sem mig sárvantar og kom í staðinn heim með þessa
Ég hef jafn mikinn sjálfsaga og api á amfetamíni!

9. janúar 2008
Same shit - different year...
Gleðilegt ár elskurnar!
Svosem ekkert að frétta hér úr landi bauna – bara grár hversdagsleikinn tekinn við aftur eftir sældarlífið í jólafríinu. Ég og samviskubitið mitt erum búin að taka okkur saman og erum að reyna að gera lítið úr okkur (þ.e.a.s. losa okkur við jólaspikið) – svo er að sjá hvernig það á eftir að ganga. Enn sem komið er hef ég allavega verið góð stelpa.
Var lítið gaman að koma heim í nýju íbúðina – finn einhvernveginn ekki hjá mér neina sérstaka löngun til að klára að koma mér fyrir. Samt finnst mér svosem heldur ekki aðlaðandi að búa í þessu flutningadrasli með bera veggi... Kannski tekst mér að taka mig saman í andlitinu um helgina og gera EITTHVAÐ til að laga ástandið. Held ég sé kannski bara enn að syrgja gömlu íbúðina – var svo ánægð þar að ég var enganveginn tilbúin til að flytja burt!
Hluti af vandamálinu er eflaust líka skortur á hillum og hirslum – ég hef hreinlega ekki neina staði til að setja draslið úr pappakössunum á. Held nú samt að ég verði að bíða með að bæta úr því þar til ég hef aftur einhvern sem getur hjálpað mér að drösla húsgögnum upp 4 hæðir!
Anýhú – Alveg ljóst að ég er þegar búin að brjóta fyrsta áramótaheitið : Hætta að skjóta hlutum á frest...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)