22. febrúar 2007

lasarus í leti

Sælinú

ekkert að frétta annað en að partýið gekk tíðindalaust fyrir sig - og ég meina algjörlega tíðindalaust... Spilaði kannski inn í að ég var hálfslöpp, enda vaknaði ég með bullandi hita og ógeð á sunnudeginum og hef meira og minna legið flöt í flensu síðan. Svo ég hef svosem ekkert að segja nema þið viljið fá nákvæmar sjúkdómslýsingar og annað álíka spennandi! Eins og þið hafið kannski heyrt snjóar nú í Danaveldi og ef maður tæki mark á fjölmiðlunum hér er þetta bara eins og ný ísöld, umferð er lömuð (enda allir á sumardekkjum), fólk treystir sér ekki út úr húsi og ætla mætti að heimsendir væri í nánd. Ég held að ykkur yrði nú skemmt ef þið sæjuð snjómagnið sem um er að ræða - allavega ykkur frá norður- og austurlandi. Ég er nú að vona að þetta standi ekki lengi samt þar sem ég er a) búin að sjá nægan snjó fyrir lífstíð b) búin að ákveða að það sé að koma vor. Mér er alveg sama hvað stendur á dagatalinu - mér finnst komið nóg af vetri og lýsi hér með yfir vori hvað sem allri snjókomu líður! Þetta er allt bara spurning um hugarástand...

17. febrúar 2007

Paging Jack Sparrow

þá er partýdagurinn mikli runninn upp - og ég vaknaði hálfköfnuð af kvefi! Frábært alveg - akkúrat það sem mig vantaði. Annars get ég frætt þá sem ekki vita að ég fer sem sjóræningjapía og þar sem mig langaði meira að líkjast Jack Sparrow en lifandi dauðu áhöfninni á Svörtu Perlunni ákvað mín að nota brúnkukrem til að slá á súrmjólkurlitinn. Eins og við var að búast er ég nú flekkótt eins og hlébarði, hugga mig við að sjóræningjapíur voru eflaust flekkóttar af skít hvorteðer svo þetta gerir bara gerfið eðlilegra. Á hinn bóginn lét ég loksins verða af því að fara í klippingu og litun - lagði útlit mit og framtíð algjörlega í hendur hárgreiðslukonunnar og ótrúlegt en satt er ég alsæl með árángurinn. Ég er allt önnur Elva :o) Er hins vegar afar stolt yfir að hafa náð að halda grímunni þegar ég heyrði upphæðina sem ég þurfti að borga fyrir - tókst að halda aftur af þessu.
Oh well - þetta er í fyrsta skiptið í næstum 4 ár sem ég er bæði lituð og klipt á stofu, hlýt að eiga inni að fá alvöru yfirhalningu.

Annars á ég erfitt með að æsa mig upp yfir þessu blessaða partýi í kvöld - hef einhvernvegin lúmskan grun um að ekkert eigi eftir að ganga eftir áætlun. Það hefur kannski eitthvað að gera með að Helle heldur um stjórnartaumana - sem þýðir að þótt við endum eflaust pöddufullar er ekki víst að það verði á réttum stað eða tíma (sem getur verið vandræðalegt ef maður er í grímubúning skiljiði). Svo þið megið gjarnan krossa fingur fyrir mig - ég þarf á allri góðri orku að halda...

13. febrúar 2007

og klár í næsta skandal...

Og er að verða klár í annan skandal um næstu helgi :o) Held ég sé loksins komin með búning - sýndi Kasper og miðað við skelfingarsvipin á honum er ég í góðum málum bara... Ætla að prófa þá kenningu að ef brjóstaskoran er nægilega mikið til sýnis tekur engin eftir bjórvömbinni... Læt ykkur vita ef það virkar!

óþekktarangi

náði loksins því háleita markmiði mínu að skandalisera um helgina - datt almennilega í það, endaði óvænt í eftirpartýi með vinsælustu hljómsveit danaveldis (er hærri en söngvarinn!) Og það voru fleiri áhugaverðir músikantar í partýinu...
Skemmti mér konunglega - nú þarf ég bara að ná að eyða myndunum í símanum hennar Helle...

8. febrúar 2007

myndir

Og ég tók mig til og setti nokkrar myndir í netalbúmið mitt...

fashion victim

Ég sleit sambandi um jólin. Eftir næstum 18 mánuði saman neyddist ég til að viðurkenna að ég og hvíta H&M skyrtan mín pössuðum ekki saman lengur og að það var komin tími til að leiðir skyldust. Þetta var ekki auðveld ákvörðun - ég var enn hrifin, en þetta gekk bara ekki... Svo ég hef (eftir nokkrar vikur af að syrgja) mátað 100 hvítar skyrtur undanfarið án þess að finna HINA EINU RÉTTU. Þ.e.a.s. þar til í gær. Álpaðist inn i Vila og þarna hékk hvít skyrta með rétta hálsmálið og ermarnar og sniðið... mátaði, féll flöt og keypti. Og nú veltið þið eflaust fyrir ykkur af hvurju í andskotanum ég er að eyða tíma ykkar í þetta bull - og ég spyr til baka: eru einhverjar líkur á að það sé ekki eitthvað bogið við skyrtuna fyrst ég fjárfesti í henni? Ég kom sumsé heim lukkuleg með fengin, en um leið og ég tek hana upp úr pokanum sé ég að brjóstvasarnir eru bæði misstórir og misháir! Hvernig það fór fram hjá mér meðan ég mátaði hana er mér hulin ráðgáta - en þetta er ekki bara spurning um millimetra : það er eins og Picasso hafi hannað vasana! Og þar liggur hundurinn nebbilega grafin - ég varla þori að storma inn í Vila og kvarta því ég sé alveg fyrir mér uppstrílaðar afgreiðslukonurnar stara á mig með blöndu af vorkun og fyrirlitningu áður en þær útskýra að þetta á að vera svona... Nýjasta tíska? Hvað veit ég?

5. febrúar 2007

Fastelavn...

Hjáááálp!

Drakk of mikið á laugardagskvöldið og samþykkti í ölæðinu að mæta í fastelavnspartý með BP-liðinu! (BP = Beautiful People, hef minnst á þau áður - ekki alveg minn uppáhaldsselskapur...). Svo nú hef ég 2 vikur til að finna upp á búning AARGH! Eins og staðan er í dag hef ég eftirfarandi valkosti: Djöfull, Norn, Sígauni eða Katólsk skólastelpa. Veit ekki hvað í andsk... ég á að velja. Kannski bara brúnan pappírspoka á hausinn? Annars er ég á leið í andlitsmeðferð á morgun og er með krossaða fingur að greyið manneskjan geti framkvæmt kraftaverk. Og er að spá í að panta mér tíma á hárgreiðslustofu og athuga hvort hægt er að gera einhverjar umbætur á fuglahreiðrinu á hausnum á mér. Ef þið hafið ekki náð að lesa á milli línanna er sjálfmyndin ekki upp á sitt besta þessa dagana - svo tilhugsunin um að eyða kvöldi innan um súperegóin í BP er bara SCARY! Kannski ég ætti bara að fara sem uppvakningur - þá þarf ég ekki einu sinni að mála mig...

2. febrúar 2007

its alive

Var að uppgötva að ég hef víst ekki bloggað í ár og öld - sorrý
Af einhverjum ástæðum flýgur tíminn bara áfram núna. Myndi kannski skilja það ef ég væri að gera eitthvað sérstakt, en ég vinn og sef... og stressa mig yfir framtíðinni, en annars er nákvæmlega ekkert að ske hjá mér!

Tók afar nærri mér að þegar loksins kom að því að ég fékk að sjá Íslenska landsliðið spila á HM voru það eintómir tapleikir - littla krumpaða þjóðarsálin mín mátti ekki við þessu. Ef það er einhver huggun fyrir landann er rostinn í dönunum öllu lægri eftir leikinn við pólverja í gær - fengu smá "reality check" eftir að vera í huganum komnir með bikarinn í hendurnar. Svo góðir eru þeir ekki greyin - ef ég á að vera alveg hreinskilin.

Yfirmennirnir mínir buðu mér að vera mánuð í viðbót og ég ætla að taka því boði - ekki sérlega erfitt að velja á milli þess að vera atvinnulaus eða hafa tekjur. Allavega ekki fyrir mig... Svo ég er með vinnu út mars núna. Og nei það er ekkert komið í ljós hvað verður eftir það.

Ég hef enn ekki náð að standa við áramótaheitið um meira félagslíf - en mér til varnaðar strandar mest á því að nú eru það allir aðrir sem eru of uppteknir/andfélagslegir til að gera nokkurn skapaðan hlut. Ég er t.d. að fara "út" í fyrsta skiptið á laugardagskvöldi síðan ég veit ekki hvenær - og vitið þið hvað ég er að fara að gera? Spila með stelpunum. Svona er ég nú búin að kasta mér í spillinguna og djammið. Hmm... þetta er hrikalega neikvæður póstur eitthvað, það var ekki meiningin. Held að rigningin sé að fara í skapið á mér - eða bara að það sé orðið of mikið blóð í koffínstraumnum. Þið verðið bara að afsaka þetta.

Og stóru plönin fyrir kvöldið í kvöld... Ég og Johnny... alein...
Þar sem skandinavísku sjónvarpstöðvarnar eru klárlega búnar að ratta sig saman með bareigendum og sýna ekkert annað en leiðindi á föstudagskvöldum er ekkert annað um að velja en að slökkva á imbanum og róta í dótinu sem leynist á tölvunni. Fann 2 fyrstu þættina af 21 Jump Street og ætla að skemmta mér yfir þeim í kvöld. Gerast 15 ára á ný og slefa yfir skelfilega ungum Johnny Depp og láta lélegan leik og vond plott mig engu skipta...

Chiao elskurnar - ég held á vit nostalgíunnar...