Ég er búin að vera með ljótuna á háu stigi undanfarið og ákvað loksins að gera eitthvað til að hressa mig við: lita upplituðu ullina á hausnum á mér. Og þar sem ég er búin að vera með sama litinn í meira en ár, ákvað ég að það væri komin timi á að prófa eitthvað nýtt og keypti skol sem lofaði fallegum ljósbrúnum lit...
OG NÚ ER ÉG SKOLHÆRÐ! Gamli klassíski íslenski sauðaliturinn - AAAARGH!
Sem betur fer átti ég kaldan bjór sem er núna að hjálpa mér að skola niður tárunum.
Er að fara í plokkun á morgun (annar liður í sjálfshjálparátakinu) og er núna alveg sannfærð um að hún muni plokka þar til ég líkist hræddum trúð! Það væri alveg kórónan á verkið.
Er annars að fara til Árósa á fimmtudaginn, í langt helgarfrí - held ég geti lofað að sætu strákarnir í Árósum (háskólabær - alltaf fullt af fallegum ungum mönnum)munu ekki eiga erfitt með að standast mig - því er nú fjandans ver og miður!
Ekkert annað að gera í stöðunni enn að hella sér í bjórinn um helgina - ekki að ég fríkki við það, en mér verður allavega andskotans sama!
Svo ef þið dettið í það um helgina megið þið skála fyrir aulanum í Árósum - kannski mér takist að verða svartur sauður áður en helgin er búin ;o)
17. ágúst 2009
9. ágúst 2009
Verslunarvíkingur
Ég fór tvær ferðir í bæinn um síðustu helgi til að kaupa mér brjóstahaldara. Laugardaginn kom ég heim með eina bók, sunnudaginn með föndurgræjur (er komin úr andleysi í ofurskapandi stuð)en engan brjóstahaldara. Svo ég lét mig hafa það að fara enn eina búðarferðina í gær - þrátt fyrir að hitinn slagaði í 30 gráður (ömurlegt að máta föt í svona hita). Og mér tókst ekki bara loksins að kaupa brjóstahalda, heldur kom ég heim með buksur, jakka og skyrtu í ofanálag. Veit ekki alveg hvað gerðist - minningarnar eru hálf óljósar, en það virðist hafa runnið á mig alvöru íslenskt verslunaræði! Vona bara að það hafi ekki verið froða við munnvikin...
Það er laaaangt síðan ég hef tekið svona syrpu - náði samt að bremsa mig af áður en ég keypti skó líka! Þarf ekki fleiri skó - en var samt næstum komin að kassanum með par af sandölum þegar berserksgangurinn fór að renna af mér.
Annars svosem lítið að frétta, hef lítið nennt að vera úti í hitanum en í staðinn dundað mér við að lesa skáldsögur eins og vindurinn, prjóna (af tómri sjálfspíningahvöt) og jafnvel teiknað aðeins (sem hefur ekki gerst lengi). Helgin fór að miklu leyti í að taka alla seríu 1 af Pushing Daysies (reyndar bara 9 þættir) og var því bara hin ánægjulegasta :o) Hef reyndar lúmskan grun um að allur þessi dugnaður minn í dundinu eigi rætur sínar í stóra pappakassanum með 400.000 ósorteruðum ljósmyndum sem bíður eftir að ég taki mig saman... Það er alveg með ólíkindum hvað maður getur fundið sér að gera ef það bíður eitthvað svona eftir manni.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)