25. september 2011

Bilun


Afsakid stafsetninguna en finn ekki islenska stafi å spjaldtølvunni. Vildi bara sina ykkur hvad gerdist thegar gamla fekk føndurkast i dag. 3 timum seinna ranka eg vid mer med bloduga fingur og thennan bunka - reyndar nådi eg ekki ed klåra rauda armbandid thvi eg var uppiskroppa med hjørtu... thetta er nåtturulega bilun!

7. september 2011

Á maður að reyna að sparka lífi í þetta blogg?

Það er orðið ansi langt síðan - voðalega líður tíminn hratt. Ég held ég hlífi ykkur við löngum lista af hlutum sem mig minnir að hafi gerst síðan síðast og láti nægja að byrja eftir sumarfrí þegar ég kom út aftur. Eins og þið líklega hafið heyrt er þetta búið að vera næst blautasta sumar í danmörku síðan mælingar hófust fyrir 132 árum (eða eitthvað álíka), svo maður hefur ekkert verið mikið meira utandyra en nauðsyn krefur. Það er hjálpar svosem ekki að það er eitthvað að annarri löppinni svo ég er meira og minna hölt og er að fara í röntgen eftir 2 vikur til að tékka hvort ég hafi nokkuð brotnað svona bara upp úr þurru. Helvíti óheppilegt því ég á að byrja í Zumba í næstu viku, ætla að fara í fyrsta tímann allavega en svo verð ég að sjá til hvort ég get verið með.

Ég man allavega ekki eftir að hafa slasað mig en það er orðið svo langt síðan að ég fór að finna fyrir þessu að allt er mögulegt. Ég skrapp samt til Árósa eina langa helgi og er hrikalega stollt af að hafa farið upp í Regnbogann hans Ólafs Elíassonar og farið allan hringinn án þess að fara í paník eða enda á hnjánum af svima. Reyndar varð Julie vinkona að styðja við mig af og til því það komu nokkur svimaköst - en þetta var samt stórsigur.
Annars hefur innilokunin haft þær aukaverkanir að ég er hundleið á íbúðinni minni og er búin að nota alltof mikinn tíma í að skoða Ikea listann og plana smábreytingar. Ekkert brjálæðislegt, bara nýjar gardínur og svona. Við Pernille ætlum að skella okkur í Ikea einhverntíman í lok mánaðarins og ætli heimilisbrjálæðið renni ekki fljótlega af mér þegar ég er komin heim með dótið og þarf að koma því saman og á sinn stað. Einhvernveginn kæmi það mér ekki á óvart ;o)