Þetta fékk kaffið til að frussast út um nefið á mér áðan :o)
21. október 2009
18. október 2009
Haustmyndir
Druslaðist út með myndarvélina í gær - sem gerði að sjálfsögðu að verkum að það dró fyrir sólina með það sama og hún lét varla kræla á sér fyrr en ég var komin inn aftur. En ég tók nú samt 2 myndir og bætti svo 2 við af svölunum þegar ég var kominn heim (sólin sá ekki við því sko!). Deili hér með ykkur haustinu í Herlev - og nágrönnum mínum hér í Kúmengarðinum. Klikkið á myndirnar til að sjá fulla stærð.
Úti í skógi.
Eitt af litlu vötnunum í nágreninu.
Nágrannarnir eru voða busy þessa dagana :o)
14. október 2009
Ok - ég er áhrifagjörn...
En ég stóðst ekki mátið að breyta blogginu - búin að vera að gæla við það lengi og gat ekki lengur haldið það út þegar ég sá að Dóa var búin að breyta sínu ;o)
Nennti nú samt ekki að eyða mikilli orku í það í þetta skiptið - langaði að fá meiri liti inn og það tókst allavega! Hins vegar held ég að ég hafi nú oft verið smekklegri... Ég varð uppiskroppa með þolinmæði áður en ég var orðin sátt - kannski ég lagi það seinna. Annars eru helstu fréttir þær að Lappi minn er endanlega dauður 6ára að aldri (er það ekki alveg 150 í tölvuárum?) og ég syrgi hann þrátt fyrir að hann hafi verið orðin óttalegt skar undir lokin. Ég hef aldrei verið fullkomlega sátt við vinnutölvuna - veit ekki hversu mikið það er sjálfri tölvunni að kenna og hversu mikið það er tölvudeild DBC að kenna. Það tekur korter að starta tölvunni upp og svo má maður ekki neitt... Svo ég held ég verði að bjarga geðheilsunni með að kaupa mér nýjan Lappa. Ligg núna yfir vefsíðunum og engist yfir því hvort ég eigi að kaupa litla krúttlega Notebook eða alvöru fartölvu með stóran skerm og hvort ég eigi að láta mig hafa Windows eða hvort ég eigi að kasta mér útí djúpu laugina og fá mér Linux-Lappa!
Decisions, decisions - ég enda örugglega bara með að labba inn í tölvubúð og kaupa mér aðra HP pavillion. Nýja útgáfu af gamla góða Lappa mínum og vona svo að ég verði jafn hamingjusöm með nýja viðhaldinu og ég var með því gamla...

11. október 2009
Verði ljós...
Er í kasti eftir að ég uppgötvaði að það er Next búð í Fields-verslunarsamtstæðunni ógurlegu. Ekki það að ég hef ekki komið í Fields í næstum ár (liggur yst úti á Amager sem gæti næstum alveg eins verið í Póllandi), og það getur vel verið að þetta sé álíka misheppnað og íslenska útibúið frá H&M, en ég læt mig dreyma!
Eitt af því sem ég læt mig dreyma um er að maður geti keypt (eða pantað inn) ljósakrónur frá Next því ég er ekki að fíla það sem IKEA og allar hinar stóru íbúðarkeðjurnar hér eru að bjóða uppá. Og mig vantar loftljós...
Mér til mikillar kátínu kom í ljós í dag þegar ég sýndi dönsku vinkonum mínum ljósin sem ég var að slefa yfir að þeim fannst ég kannski fulldjörf...
Svo ég ákvað að leggja 2 af uppáhöldudum mínum fyrir dómstól og þið megið kjósa hér við hliðina.
Valkostur A er Luna og það er efri krónan með 5 ljósum sem ég er að spá í.
Valkostur B er Kosmos sem ég er voða skotin í en stelpunum fannst full "speisað"

7. október 2009
Best gleymt og grafið?
Best að taka það fram að þessi póstur er ekkert skemmtilegur nema þú sért Spooks-aðdáandi og þá helst ein af þeim sem hefur gleymt að anda yfir Adam. You have been warned!
Anyhoo þið hinar Adam-grúppíurnar (þið vitið hverjar þið eruð) - this is for you!
Þar sem danska sjónvarpið er með eindæmum leiðinlegt þessa dagana lagðist ég í að skoða amerískar sjónvarpssíður til að athuga hvort það væri kannski von á einhverjum áhugaverðum nýjum seríum þaðan á næstu mánuðum. Datt m.a. niður í (ekkert sérlega jákvæða) umfjöllun um seríuna "The Forgotten" sem "skartar" gamla 80's jálknum Christian Slater. Það sem fékk mig til að staldra við var að þarna stóð að Rupert Penry-Jones hefði upphaflega átt að leika hlutverk Slaters og hefði meira að segja leikið í "Pilot" þætti fyrir seríuna. Mín á YouTube og hér er afraksturinn:
Æi þessi elska er ekki alveg að gera sig með Amerískan hreim... ;o)
Og þessi Pilot er bara skelfilegur - ég held að hann hafi bara mátt kalla sig heppinn að vera ekki hluti af þessu! Ég krossa fingur og vona að BBC hafi vit á að koma honum í góða seríu hið snarasta.

1. október 2009
Ég er ekki að standa mig ...
... í manni vikunnar - sorrý! Var að fatta að ég hef algjörlega vanrækt þann þátt bloggsins (og það er jú það sem þið komið til að sjá - viðurkennið það bara!)
Eftir nokkra umhugsun varð fyrir valinu leikari sem mér hefur reyndar aldrei fundist sætur - fyrr en hann fékk mig til að skellihlægja sem vond vampíra! Drengurinn var að fíla sig svo í hlutverkinu að ég gat ekki annað en haldið með honum...
Sem var örugglega ekki meiningin!
Annars sorglega lítið að frétta - minnisstæðasti atburður vikunnar var þegar klósettið mitt breyttist skyndilega í gosbrunn (sem betur fer var lokið á og náði lítið að slettast út fyrir). Við nánari athugun reyndust vera klóakmenn fyrir utan gluggann að vesenast eitthvað í lögnunum. Og þeir voru þarna að dunda sér í fleiri klukkutíma - sem hefði verið í lagi ef ég hefði ekki þurft að pissa...
Á endanum varð ég hreinlega að láta undan blöðrunni, en verð nú að viðurkenna að ég var hálf hrædd um að: a) það kæmi annar gosbrunnur á meðan eða b)ég myndi heyra skaðræðisöskur neðan úr lögnunum þegar einhver óheppinn klóakmaðurinn fengi sendingu í hausinn...
Svona er lífið spennandi í Kúmengarðinum þessa dagana.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)