5. desember 2010

Jólahvað?

Kerlinginn er orðin ári eldri - en alveg örugglega ekkert vitrari.
Átti fína afmælishelgi - fór og sótti Julie vinkonu á lestarstöðina og svo fórum við og hittum fleira fólk í afmælisbjór og spjall. Svo var það Harry Potter kvöldið eftir og mér fannst hún bara fín. En það tók svolítið á að vera umvafin fólki alla helgina og ég var ansi lúin á mánudaginn í vinnunni verð ég að segja. Maður er jú ekkert unglamb lengur...

Svo er bara komin desember og jólin nálgast með ógnarhraða. Ég er aldrei þessu vant BÚIN að kaupa (og pakka inn) allar jólagjafir í ár! Það er að segja þar til korter í jól þegar ég man eftir þessari einu manneskju sem ég gleymdi... Jólagjafirnar á klakann eru komnar í póst, það er búið að baka 3 sortir og kaupa Rosey Nosey og grænan túborg í megabaukum svo allt er klárt fyrir Dóuna sem á að lenda hér á fimmtudaginn ef veður leyfir. Það snjóar nebbilega ennþá - og danir eru ekkert sérstaklega góðir í að höndla snjó. Strætófyrirtækið tímir ekki að kaupa vetrardekk svo strætóarnir skauta hér um göturnar eins og stórar gular beljur á svelli. Lestirnar keyra með höppum og glöppum (mest glöppum samt) og þegar þær loksins koma eru þær svo fullar að maður stendur með andlitið grafið í handarkrikanum á einhverjum ókunnugum og ef maður er voðalega heppinn hefur viðkomandi notað svitalyktareyði og/eða farið í bað nýlega. Annars er spáin ágæt fyrir næstu helgi - bjart og kalt svo það ætti að vera fallegt í Tívolí ef okkur nú skyldi takast að komast á jólamarkað í ár (síðasta árs tilraun fór ekki aaaalveg eftir planinu - það var 2 fyrir 1 á jólabjór í nágreninu...)

Prófaði að skreyta á danska mátann áðan og setti upp hvíta seríu í eldhúsinu - hún fékk lof að hanga í nákvæmlega 5 mínútur og svo reif ég hana niður því mér fannst þetta svo hrikalega litlaust og leiðinlegt. Nú hangir þar gamla marglita jólaserían mín sem ég keypti fyrir vasapeningana mína 1986 og get örugglega ekki fengið nýjar perur í (er með svona skrúfperur). Það verður grátur og gnístran tanna þegar þessi sería loksins leggur upp laupana - hún er búin að fylgja mér í öll þessi ár og ég hef ekki tölu á íbúðunum sem hún hefur lífgað upp á.

Á svo eflaust eftir að bæta aðeins á skreytingarnar næstu vikuna - en bara að vera búin að fá eina seríu upp er búið að gera helling fyrir jólaskapið.
Ég held ég hafi aldrei náð að vera svona tímanlega í þessu bara - sko gömlu!

17. nóvember 2010

Heilsubælið í Herlevhverfi

Flest ykkar vita örugglega orðið að það er búið að vera læknavesen á mér undanfarið og nú síðast var það háls- nef- og eyrnalæknir sem fann hnúða í hálsinum innanverðum. Góðu fréttirnar eru að hann heldur að þetta sé bara vírus og ekki krabbi - vondu fréttirnar að hann vill fjarlægja þetta ÁN SVÆFINGAR. Svo ég þarf að mæta þann 30 og fá skorið (eða brennt) burtu þessa litlu hnúða í kokinu á mér bara með staðdeyfingu - veeeeeiiii...

Hugga mig við að hann sagði að þetta tæki ekki nema svona 15-20 mínútur. - Læknirinn segir að þessi vírussýking og svo hnúðarnir geti verið rót allra minna meina síðustu mánuðina. Vona að hann hafi rétt fyrir sér og nú sé þetta bara að verða búið og mér fari að batna. Hann bauð mér fyrst upp á að koma þann 26. nóvember en ég afþakkaði það pent þar sem ég hafði (ótrúlegt en satt) aðrar hugmyndir um hvernig ég ætla að eyða þeim degi. Verð með gest alla helgina og ég held ekki að ég verði sérlega skemmtilegur félagsskapur svona á meðan ég er að drepast úr verkjum eftir aðgerð.

En vonandi verður gamla orðin sjálfri sér lík fyrir jól - er orðin hundleið á þessu heilsuleysi.

Það beið mín pakki frá nammi.is á pósthúsinu og ég er útbelgd af harðfisk núna - mikið hriiiiikalega er hann góður! Jólaölinu verður komið fyrir einhversstaðar úr augnsýn svo ég falli ekki í freystinguna en annars lét ég duga að kaupa lakkrískurl í smákökubaksturinn. Það verða næstum alveg dönsk jól hjá mér í ár sumsé - en jólaölið og lakkrístopparnir sjá um að minna á eldgömlu Ísafold. Það er að segja ef mér tekst að eiga eitthvað eftir þegar jólin ganga í garð. Sjálfsstjórnin er eins og hjá þriggja ára þessa dagana - kannski ég sé bara farin að ganga í barndóm!

10. nóvember 2010

Fleiri góð svör...

Þessi prófsvör koma frá Pressunni, svo ég veit ekki hvort þetta eru raunveruleg svör eða hreinn skáldskapur - en þetta er fyndið engu að síður

"Elísabet drottning var meydrottning. Hún var frábær drottning. Þegar hún beraði sig fyrir framan her sinn æptu allir “HÚRRA” og lengi á eftir voru engir bardagar."

"Beethoven samdi tónlist þrátt fyrir að vera heyrnalaus. Hann var svo heyrnalaus að hann samdi háværa tónlist og var faðir rokksins. Hann fór í langar gönguferðir í skóginum, líka þegar allir voru að kalla á hann. Beethoven andaðist 1827 og lést síðar vegna þess."

"Egyptaland til forna var gamalt. Það var byggt sígaunum og múmíum sem öll skrifuðu með fornu letri. Þau áttu heima í Sara-eyðimörkinni. Veðurfarið í Sara er þannig að íbúarnir neyðast til að búa annars staðar."

"Móses leiddi hebresku þrælana að Rauðahafinu þar sem þeir bjuggu til ósýrt brauð en það er brauð án nokkurs innihalds."

"Móses fór síðan upp á Blásýrufjall (Mount Cyanide) til að sækja boðorðin tíu. Hann dó áður en hann komst nokkurn tíma til Kanada en boðorðin náðu að komast."

"Johann Bach samdi mörg frábær tónverk og átti fjöldann allan af börnum. Inn á milli æfði hann sig á gamalli piparmey sem hann geymdi uppi á háalofti. Bach dó frá 1750 til dagsins í dag. Bach var frægasta tónskáld í heimi og líka Hendel. Hendel var hálfur Þjóðverji, hálfur Ítali og hálfur Englendingur. Hann var mjög hávaxinn."

"Sir Walter Raleigh er sögupersóna vegna þess að hann fann upp sígarettur og fór að reykja."

"Jóhanna af Örk var brennd í kássu og tekin í dýrlingatölu af Bernard Show af ástæðum sem ég skil ekki. Það er enn vesen hjá Englendingum og Frökkum."

"Charles Darwin var náttúrufræðingur. Hann skrifaði Uppruna tegundanna sem var mjög löng bók. Fólk varð æst vegna hannar og fór í réttarsal til að athuga hvort hún væri rétt. Hann sagði svona nokkurn veginn að dagur Guðs væri ekki ekki bara 24 klukkutímar en án þess að hafa úr, hver gæti vitað það ? Ég næ þessu ekki!"

"Madman (madame) Curie uppgötvaði radióið. Hún var fyrsta konan til að gera það sem hún gerði. Fleiri konur hafa orðið vísindamenn síðan en þær gátu ekki fundið radióið því það var búið að því."

"Karl Marx var einn Marx-bræðra. Hinir þrír voru í kvikmyndum. Karl hélt ræður og kom byltingum af stað. Einhver í fjölskyldunni varð að vera í vinnu, finnst mér."

31. október 2010

Happy Halloween

Svo er október bara að verða búin og ég er ekki alveg að skilja hvert mánuðurinn fór. Svosem ekkert mikið að frétta af mér. Skrapp til Árósa yfir eina helgi til að drekka Asti og spá í spilin með stelpunum, voða notalegt. Annars bara vinna og vinna og sauma og vinna. Nóvember verður líklega alveg eins, svo það verður örugglega ekki mikið bloggað, því miður.

Til að bæta upp fyrir fréttaleysi fáið þið kisumyndbandið hér - hver hefði trúað að stórar kisur elskuðu grasker svona mikið?

5. október 2010

28. september 2010

Ég rétt næ einum bloggpóst í september, þetta er náttúrulega engin frammistaða!
En þessi mánuður er bara búin að líða voðalega hratt. Byrjaði náttúrulega á að skjótast til Búdapest, en það vitið þið öll nú þegar. Þessir borgarhittingar eru alveg að svínvirka hjá okkur Dóu - alltaf extra spenningur í hvort okkur takist nú að finna hvor aðra í borg sem hvorug okkar þekkir, en hingað til hefur það bara gengið fínt :o)
Svo er bara búið að vera vinna, vinna og vinna, ræktin, pínu félagslíf og jú - SAUMANÁMSKEIÐ! Gamla skráði sig nefnilega á saumanámskeið og nú fara öll mánudagskvöld í að reyna að læra að sauma... Voða huggulegt allt saman - við erum ca. 9 og mest byrjendur svo ég er ekki sú eina sem kann ekki að þræða saumavél! Búið að vera voðalega blautt og grátt svo ég hef ekki verið jafn mikið úti að njóta haustsins eins og ég er vön. Synd því þetta er yfirleitt voðalega fallegur árstími hér í Baunalandi. Tók þá ákvörðun í morgun (á meðan ég stóð og skalf og beið eftir strætó) að nú væri komin tími til að sætta sig við að sumarið er löngu búið og á morgun verður vetrarjakkinn tekin í notkun.
Ef ég passa í hann... er búin að vera voðalega dugleg að elda undanfarið - er í einhverju húsmæðrakasti greinilega (engar áhyggjur það líður hjá) og nota eldamennsku til að slaka á. Því miður fyrir vigtina mína er ég alveg ágætis kokkur þegar ég nenni svo mig kvíðir svolítið fyrir að máta jakkann.
Anýhú - allt gott að frétta hér í flatlendinu sumsé, en lítið fréttnæmt. Kannski Október verði meira spennandi (maður getur alltaf vonað).

27. ágúst 2010

Ugla sat á kvisti

Ég hef alltaf verið svolítið veik fyrir uglum - og ég held að ég sé loksins búin að fatta af hverju. Þær virðast jafn hroðalega morgunstyggar og ég:



þetta er nákvæmlega svipurinn og ég sé í speglinum á hverjum morgni - guð hvað ég skil hana!

19. ágúst 2010

Halelúja!

Ég elska Amazon.co.uk - eeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeelska þessa síðu!
Ekki aðeins hefur hún séð mér fyrir bókum og tónlist síðustu árin - nú bjargar hún
mér frá gúmmístígvélahöfuðverknum.
Í stuttu máli: ég fann styttri útgáfu af stígvélunum flottu (og dýru) á tilboði á Amazon og keypti þau náttúrulega :o) Kostuðu tæplega helmingin af því sem hin stígvélin kostuðu, svo ég er afar sátt með þessa málamiðlun.
Nú bíð ég bara spennt eftir pakkanum mínum (það mun að sjálfsögðu hætta að rigna um leið og ég fæ gúmmístígvél - en þá á ég þau í vor þegar næsta votviðristímabil skellur á)

Hmmm... varð skyndilega ljóst að það er líklega ekki sérlega góðs viti að gúmmístígvél eru það mest spennandi sem ég hef að ræða þessa dagana - mér til afsökunar er ég að vinna upp í 9-10 tíma á dag og hef ekki tíma til að eiga mér líf!
En ég held í vonina...

Hápunktur vikunnar verður að komast í klippingu á laugardaginn - vona að það sé sama stelpan sem þvær hár í þetta skiptið því ég dó næstum af ánægju í stólnum hjá henni síðast (án gríns - ég fékk meira út úr þessum hárþvætti en út úr síðasta... uh þið getið örugglega giskað hvert ég er að fara). En ég verð samt sátt bara ef ég fæ klippingu ;o)

10. ágúst 2010

Fastir liðir eins og venjulega

Einhverjir voru víst að senda pillur um fólk sem er hætt að blogga... ekki tek ég það til mín! Hér hefur svosem ekkert gerst síðan síðast búið að vera mikið að gera í vinnunni og svo asnaðist ég til að kaupa mér líkamsræktarkort. Búin að vera voðalega dugleg að mæta en mikið djöfull er þetta leiðinlegt! Og ekki hjálpar að þeir spila útvarpstöðina "the voice" stanslaust - ekki beinlínis minn tónlistarsmekkur! Eins og það sé ekki nógu slæmt að púla þótt þú þurfir ekki að hlusta á heilalaust danskt RnB (ekki það að það ameríkanska sé mikið skárri)eða óþolandi sumarsmelli. Eftir 40 mínútur er ég farin að íhuga að leggja hausinn á milli lóðanna hjá steratröllunum - heldur að fá heilann klesstan en að hlusta enn einu sinni á þetta t.d.
Ég held ég verði annaðhvort að fara að mæta með eyrnatappa eða kaupa mér einhverskonar hulstur fyrir ipodinn minn svo ég geti haft hann á mér.
Hmmm... hvað annað er að frétta? Jú ég fór og sá Inception og fannst hún bara fínasti sumarsmellur - en ekki neitt stórvirki í kvikmyndasögunni. Fólk sem heldur það horfir of mikið á "mainstream" myndir - það er ekkert í Inception sem hefur ekki sést áður á hvíta tjaldinu.
Og svo er ég búin að búa of lengi í Danmörku - ég uppgötvaði það þegar ég stóð í alvöru og velti fyrir mér hvort ég ætti að blæða tæpum 50.000 íslenskum á gúmmístígvél (af því að þau voru svo kúúúúúl - sjáiði bara)! Ég stóðst freistinguna og vantar enn gúmmístigvél en ætla að kaupa meira normalt par á réttlætanlegu verði.

Annars les ég bara eins og brálæðingur, horfi af og til á imbakassann (búið að vera True Blood maraþon hjá mér undanfarið þar sem ég er bæði að horfa á seríu 1 og 3) og sef voðalega mikið (mig dreymir svo mikið þessa dagana að ég er alveg búin á því þegar ég vakna). Og dagarnir æða bara hjá - og verður komið haust áður en maður veit af.

Meira er víst ekki að frétta af mér - hafið það gott elskurnar.

24. júlí 2010

16. júlí 2010

Fótbolti

Ég veit að HM kláraðist síðustu helgi - en mér finnst þessi bara svo góður að hann varð að fá að koma með!

11. júlí 2010

Síðasti frídagurinn

Þrjár vikur búnar og 1. vinnudagur á morgun. Verð að viðurkenna að mig hlakkar ekki mikið til - en það er að miklu leyti út af veðrinu. Hér er búið að vera viðustyggilega heitt síðustu daga og á líka að slaga upp í 30 gráður á morgun. Lítið gaman að sitja við tölvu á svoleiðis degi. Annars er ég bara búin að slappa vel og rækilega af, lesa helling, hlusta á tónlist og dóla mér bara. Skrapp til Jótlands í nokkra daga og það var voðalega notalegt að vera aftur í Árósum - náði meira að segja að spila pool í fyrsta skiptið í 2 ár held ég bara. Fór með Julie vinkonu í Skandinavisk dyrepark og það eru myndir á flickrinu. Verð að viðurkenna að það var freistandi að hoppa í bað með ísbjörnunum en ég stóðst mátið. Held ég reyni að koma því þannig fyrir næsta ár að ég sé á Íslandi fyrstu vikurnar í Júlí - ég er ekki hönnuð fyrir svona hita!

23. júní 2010

Zambi

Ok - ég veit að ég hef svartan húmor, en ég get ekki að því gert, ég færi frekar að sjá þessa í bíó en Sex & the City 2

18. júní 2010

True Blood aðdáendur leynast víða

Komin í frí og sit og drekk bjór á meðan ég bíð eftir helgargestum og svo datt ég um vídeó sem fékk mig til að skellihlæja - en maður þarf líklega að vera True Blood aðdáandi til að finnast þetta fyndið.




“Oh Sookie, come and play on my team / we’ll do it in the daytime / Bill won’t know a thing.”

Það er dýrt kveðið...

13. júní 2010

Bara ein vika eftir

Og svo er ég komin í afar langþráð sumarfrí! það er búið að vera klikkað í vinnunni síðustu þrjár vikur - og ég meina klikkað! Ég hélt á tímabili að ég myndi enda á spítala af stressi en nú held ég að það versta sé búið. Við settum nýtt kerfi í loftið án þess að hafa tíma til að prófa það almennilega og það kostaði helvítis hellings aukavinnu við að díla við óvæntar uppákomur. En nú virðist vera að við séum búin að fanga og laga flest það sem fer aflögu, svo ég get farið í sumarfrí með góðri samvisku.
En til að fá ekki áfall yfir að slappa allt í einu af tóks mér náttúrulega að sjá til þess að ég verð önnum kafin fyrstu helgina í fríinu þar sem ég fæ gesti. En svo er planið að dunda mér hérna heima vikuna eftir, þrífa smá, láta laga lekann á baðinu, lesa góðar bækur og fara út að labba (ef veðrið verður þolanlegt). Svo sé ég bara til hvað ég geri restina af fríinu. Hef svosem engar áhyggjur af því að mér takist ekki að finna mér eitthvað til dundurs - ef ég þekki sjálfan mig rétt fljúga þessar 3 vikur hjá án þess að ég nái helmingnum af því sem mig langar til að gera.
Ætla bara rétt að vona að veðrið verði þolanlegt - þetta ætlar að verða ósköp slappt sumar hér í Danaveldi. Mér er svosem alveg sama þótt það sé ekki heitt, en þegar það er rigning og rok dag eftir dag er sumarið orðið alveg eins og veturinn bara.
Svo ég panta hér með rigningarlaust sumarfrí takk - ég hef unnið fyrir því!

28. maí 2010

Home alone

Komin aftur til Kaupmannahafnar eftir ánægjulega Belgíuför - takk enn og aftur fyrir mig Dóa mín! Sól og blíða, belgískar vöflur og tilraunir með Belgískan bjór sem ég verð að viðurkenna að er flestir í of miklum steraflokki fyrir mig. Hef aldrei áður setið með bjórkort með yfir 250 sortum og þurft að rembast við að finna einhverja undir 8%. Leuven var voðalega hugguleg - og Brussel notalegri en ég átti von á. Samt voða þakklát fyrir að Leuven liggur í flæmska hlutanum því Hollenskan finnst mér mun skiljanlegri en helv... franskan! Við stöllur náðum að túrhestast þó nokkuð, versla pínu (ég fann mér sandala sem líkjast Birkenstock sem hafa verið "pimpaðir upp" - þægindi og bling í einum og sama pakka!) og kjafta helling. Það eru nokkrar myndir hér. Heimferðin varð öllu meira spennandi en ég hafði áætlað þar sem mér tóks að missa af næturlestinni. Náði að sjá fyrir mér að ég yrði að væflast um í reiðuleysi alla nóttina á lestarstöðinni í Köln, en Deutche Bahn tók á sig alla ábyrgð og reddaði mér þessu líka ágæta (Sheraton) hóteli við hliðina á lestarstöðinni og miðum heim daginn eftir. Ég ætla ekki að segja ykkur hvað ég er fegin að ég reyndi ekki að halda áfram um nóttina því ég hefði örugglega endað með að vaka í 36 tíma. En ég náði heim á endanum og er bara búin að vinna eins og vindurinn síðan. Jú og fara út með starfsmannafélaginu, bara svona til að trappa mig niður. Planið fyrir helgina er tiltekt, þrif og þvottur! Ekki veitir af... Ég veit ekki hver ruslaði svona til á meðan ég var að heiman en það þarf að taka ærlega til hendinni. Góða helgi gæskurnar!

18. maí 2010

The triumph of hope over experience

Tók mig til á sunnudaginn og keypti mér saumavél. Þá fyrstu sem ég hef nokkurntíman átt. Alveg síðan í barnaskóla hef ég þjáðst af saumavélafælni vegna þess að ég gat aldrei nokkurntíma lært að þræða vélarnar og eyddi því heilu og hálfu handavinnutímunum í að bíða eftir að kennarinn mætti vera að því að hjálpa.
Mér fannst alltaf meira gaman í smíði!
En ég dröslaði gripnum heim og auðvitað voru myndirnar í leiðbeiningunum vita gagnslausar - ég held að það sé í lögum einhversstaðar að þeir sem teikni leiðbeiningamyndir megi alls ekki undir neinum kringumstæðum teikna hlutina eins og þeir eru í raun og veru. Það tók heilan klukkutíma - 3.000 blótsyrði á 3 tungumálum slatta af svita og 2-3 hrein bræðisköst að þræða vélina en það hafðist þó á endanum og var haldið upp á það með viðgerð á koddaveri. Sko ofurhúsmóðurina!
Nú er frúin svo montin að hún íhugar að skella sér á saumanámskeið í haust - þótt ég held ég muni nú halda mig við það allra einfaldasta. En það væri nú gaman að geta saumað sér pils eða einfaldan skokk - ég hlýt að geta lært það!
En ekki alveg á næstunni.
Styttist í Belgíuför - er búin að ná mér í ferðahandbók og veit nú að til að panta kranabjór biður maður um: "une chope" í frönskumælandi hlutanum og "een pintje" í flæmska hlutanum. Svo ég er klár í slagin og hlakka mikið til...
Út vil ek!

11. maí 2010

Hver stal vorinu?

Ég er hundfúl - hvar er vorið mitt? Það er grátt og kallt og næturfrost og þar sem húsfélagið er búið að loka fyrir hitann (af því að það er vor) sef ég enn undir 2 sængum. Í miðjum maí!!!
Eini ljósi punkturinn er að ég er hvorteðer að vinna svo mikið að ég fengi ekkert útúr góðu veðri.
Annars lítið að frétta - þrátt fyrir vinnubrjálæðið hefur aðeins lifnað yfir félagslífinu eftir að daginn fór að lengja. Náði meðal annars að sjá Iron Man 2 og skemmti mér alveg hrikalega vel. Held mig hafi vantað að sjá hluti sprengda í loft upp ;o) Voða gott að komast út og hitta aðra en vinnufélagana - maður neyðist til að rifja upp hvernig maður talar um annað en nördaða hluti.
Svo er mín að fara í strípur á föstudaginn - er svo þreytt á gráu hárunum að nú á að reyna að fela þau innan um ljósar strípur. Nýr hárgreiðslumaður svo ég er hálf nervös en Fanney mín mælti með honum svo ég verð bara að treysta á hana.
Svo styttist í Belgíu bara - og af því tilefni er maður vikunnar sérstaklega tileinkaður Dóu minni - njóttu elskan! ;o)

20. apríl 2010

Póst-páska öskuskýsandleysi

Sorrý!
Er ekki að hafa mig í bloggið þessa dagana - bara statusuppfærslur á fjésinu eru mér næstum ofviða. En nú geri ég heiðarlega tilraun til að ná alla vega einni færslu í apríl. Páskafríið var frábært þótt ég næði ekki að sjá alla sem mig langaði að sjá og suma bara í mýflugumynd. Heiðurshjónin í Fellshlíð sáu vel um okkur systkynin og veðrið hegðaði sér aldrei þessu vant næstum eftir pöntun bara - ég fékk minn snjó og það var hriiiiiiiiiiiiiiiiiikalega gaman að komast á sleða eftir öll þessi ár. Er samt voðalega fegin að ég komst hingað út fyrir ösku því annars væri að saxast á sumarfríið mitt núna! Það eru nokkrir af vinnufélögum mínum fastir hingað og þangað um heimsbyggðina og ég hef nokkrum sinnum verið spurð hvort þetta eldgos fari nú ekki að hætta. Ég hef svarað að eldfjöll séu eins og kettir og geri nákvæmlega það sem þeim þókknist þegar þeim þóknist. Á meðan hef ég heyrt allar mögulegar nauðganir á orðinu "Eyjafjallajökull" - og einn hárréttan framburð! (frá Dana - alveg afrek)
Annars er lítið að frétta - klikkað í vinnunni náttúrulega en gengur svosem ágætlega (miðar alla vega áfram, sem er alltaf gott). Vorið er komið, það grænkar með hverjum deginum og hitastigið skríður upp í 2 tölustafi en það er samt drullukalt! Helv.. danski raki. Fór út að skoða grasið þar sem það grær í gær og heilsaði upp á nágrannana - ég vennst aldrei að sjá lítil lömb með langa hala! Íkornarnir voru í rómantískum hugleiðingum og léku listir sínar í trjánum og stöku runnar eru farnir að blómstra þótt að hér komi enn næturfrost af og til.
Búin að kaupa mér nýja gönguskó og um leið breyttist veðurspáin í rigningu og/eða slydduél næstu daga - en það hlýtur að birta til á endanum.
Hafið það gott á meðan elskurnar.

24. mars 2010

Swish it up!

Ég hef verið að horfa svolítið á Glee undanfarnar vikur - þetta er ekki sería sem ég VERÐ að sjá hvern þátt af, en ég hef svolítið gaman af henni. Einna mest hef ég gaman að "illkvendinu" Sue Silvester sem á næstum allar bestu línurnar í þættinum og ég bara varð að deila þessu snilldarverki með ykkur - Sue er þreytt á "The sneaky gays" og vill fá góðu gamaldags drottningarnar sem eru: “so flaming they can be seen from space.”



(Jane Lynch sem leikur Sue er víst sjálf lesbísk og hefur örugglega haft mjög gaman að því að hæðast að þessari týpu)

14. mars 2010

Lidt for lækker (aðeins of flottur)

Hér í baunalandi er ein af líkamsræktarstöðvunum í gang með auglýsingaherferð sem gengur út á að guttarnir verða svo flottir að þeir verða að grípa til róttækra aðgerða til að tóna aðdráttaraflið niður.








Hvað finnst ykkur?

10. mars 2010

Vorið beygði til vinstri...

Og tók stefnuna á Ísland. Hér er enn skítakuldi og snjór! Krákurnar eru samt bjartsýnar og farnar að byggja hreiður á fullu með tilheyrandi hávaða (krákur eru félagslyndar og oftast finnur krákuhópur sér nokkur hávaxin tré hlið við hlið og svo eru upp í 10 hreiður í hverju tré). Ég hins vegar neita að trúa á vorið fyrr en vorblómin láta á sér kræla og ég hef ekki séð nein enn. Búið að vera klikkað að gera og ég er enn ekki búin að komast á Alice in Wonderland - það verður víst fyrst þann 23. *andvarp* Tók skottúr til Árósa um helgina, verð á námskeiði í Hillerød næstu 2 daga og fer á fund í Esbjerg þann 22. Ég eyði með öðrum orðum talsverðum tíma í lestum þessa dagana og þótt að þetta sé þægilegur ferðamáti er það (eins og allt annað) freeeeeeeeeeeeeeeeekar einhæft til lengdar. Og svo er það flugvél þann 27. - almáttugur hvað þetta líður allt hratt!
Afsakið mig á meðan ég fæ stresskast...

26. febrúar 2010

Það finnast tvenns konar týpur...


ég hef kannski haft þessa áður - en þið hljótið að lifa það af því þetta er klassík ;o)

21. febrúar 2010

Bad hair day

Aumingja Rupert minn - fötin fara honum vel, en hárið...



Ég datt næstum út úr sófanum af hlátri! :o)

17. febrúar 2010

Halløj...

Það er enn líf í gömlu - bara voðalega lítið að frétta. Ennþá allt á kafi í snjó og þar af leiðandi er ég enn í hýði og rétt skreiðist á milli vinnu og heimilis. Ég vil fara að fá vor takk - NÚNA!
Nýa viðhaldið, Hr. Philips, er búin að reynast mér vel í kuldanum - verst að dönsku sjónvarpsstöðvarnar senda ekkert nema rusl :o( En nú er það allavega rusl á stórum skjá! Verð nú samt að segja að ég fékk ekki eins mikið út úr Public Enemies og ég hafði vonað því myndin er bara ekki sérlega góð... En hey, það dró úr sársaukanum að Johnny var mikið á skjánum.
Annars bara nóg að gera í vinnunni - ekki minnst hafa notendaþjónustuvaktirnar verið örvandi! Í dag mátti vinnufélagi minn díla við manninn með skökku fingurnar (eftir að hún hafði reynt að hjálpa honum skrifaði hann til baka að hann hefði líklega bara slegið á vitlausa takka því fingurnir á vinstri hendi væru skakkir síðan hann sagaði í þá...) og manninn sem vildi vita hvort síðan okkar virkaði með HP jetdesk prentaranum hans... Ég á vaktina á morgun - guð má vita hvaða snillingar bíða mín.
Til að vera alveg sanngjörn eru margir notendurnir okkar bráðgreint fólk sem skrifar ekki nema það virkilega sé eitthvað sem ekki virkar - en af og til lendi ég í fólki sem mig langar mest að biðja um að fara á grunnnámskeið í tölvunotkun áður en það sest aftur við skjáinn. Ég er búin að segja yfirmanninum mínum að fyrr eða síðar eigi ég eftir að móðga einhvern hroðalega - en hún vill samt ekki leyfa mér að komast undan notendaþjónustunni! I gamla daga var ég vön að fara út og reykja eina rettu áður en ég dílaði við þá verstu - hvað í andskotanum gera reyklausir í svona tilfellum?

27. janúar 2010

Nenni þessu ekki lengur

Neibb - bara nenni ekki að hafa vetur meira. Sem gamall Akureyringur get ég bara ekki sætt mig við að öll umferð lamist ef það falla nokkrir sentimetrar af snjó og ég er þreytt á kuldabolanum sem hefur vaðið uppi hér undanfarnar vikur. Þetta er víst kaldasti janúar í 23 ár. Veeeiiii... hrmph!

Jú - og það hefur loksins verið svolítið gaman að vera Íslendingur síðan um helgina. Litla krumpaða þjóðarstolltið lét kræla á sér og ég hef brosað blítt framan í danina sem eru enn að jafna sig.


Annars helst að frétta að það eru planlögð stórinkaup á morgun - nánar tiltekið á að versla nýjan 37" flatskjá. Verða þokkaleg viðbrigði frá 14" túbusjónvarpinu mínu - er með myndina Public Enemies tilbúna til að vígja nýja skjáinn.
Þ.e.a.s. ef ég næ ekki heim nógu snemma til að sjá seinni hálfleikinn á morgun! Danir eru innilega að vona að Norðmennirnir vinni okkur - það er ekki laust við að þeim hrjósi hugur við að þurfa kannski að eiga aftur við okkur í undanúrslitum :o) Greyin...
Þeir unnu Norðmenn á síðustu sekúndunum og ef ykkur langar að læra að bölva á norsku er hreinlega dásamlegt að lesa þessa norsku blogglýsingu á leiknum Ég vona að við gerum greyið jafnbrjálaðan á morgun.
Áfram Ísland!

17. janúar 2010

Í hýði

Ég er búin að liggja í hýði alla helgina - það er búið að vera kalt og grátt og ég hef bara ekki fundið neitt sem er svo mikilvægt að það sé þess virði að fara út í þetta. Ég get þolað kalt eða grátt - en ekki bæði saman!
Annars er svosem ekki mikið að frétta - bara vinna og vinna og vinna...
Vinnufélögunum var mikið skemmt þegar þeir urðu vitni að samtali (reyndar bara minni hlið af samtalinu) við kúnna sem ekki einu sinni vissi hvað vafrari er en ætlar að fara að stunda flóknar leitir og flutning af gögnum á milli kerfa. Kemur það ykkur á óvart að ég neitaði að gefa honum beina símanúmerið mitt? Krossa fingur og vona að næst þegar hann hringir verði það ekki á fimmtudegi (þegar ég á notendaþjónustuvagt).
Svo hef ég verið að reyna að taka mig saman og breyta aðeins hér heima - keypti yfirbreiðslu á litla snjáða sófann minn, en mér til mikillar undrunar finnst mér sófinn eiginlega passa verra inn í stofuna þegar hann er svartur en þegar hann var túrkísblár. Kannski ég ætti frekar að finna aðra yfirbreiðslu í lit bara - eða bíða og sjá hvort ég venst þessu svarta. Og jú - ég fór og keypti mér vínhillu því það rúlluðu um vínflöskur í eldhússkápunum og þær voru að þvælast fyrir mér. Keypti bara ódýra litla hillu fyrir 6 flöskur sem maður þurfti svo sjálfur að setja saman og fylgdu engar leiðbeiningar. Að sjálfsögðu varð einn hlutur aflögu þegar ég var búin og ég get bara ekki skilið hvar hann ætti að passa inn. Og hillan virkar svo ég er búin að ákveða að einhvers staðar í verksmiðjunni sem framleiðir þessa græju situr fæddur sadisti sem laumar auka pörtum í kassana og skemmtir sér við tilhugsunina um allar vesalings manneskjurnar sem verða gráhærðar yfir að geta ekki fengið draslið til að passa...

10. janúar 2010

Alltaf gaman að sjá gamla vini

Fór út að borða og í bíó með gömlum vinum í gær - voða gaman góður matur, góð mynd (Sherlock Holmes - fínasta popogkók-ræma) og góður félagskapur. Lagðist svo fyrir framan imbakassann og þar dúkkaði upp annar gamall kunningi:



Held ég verði að halda auga með Torchwood framvegis - miðað við endan á þættinum á Kapteinn Hart eftir að snúa aftur...

8. janúar 2010

Helv... hollenskar kvefbakteriur

Já, ég virðist hafa tekið með mér laumufarþega frá Hollandi. Það er greinilega heill her af kvefbakteríum að halda heljarinnar partý í hausnum á mér. Voða gaman hjá þeim en lítið gaman hjá mér. Gerði mitt besta til að taka mig til fyrir vinnuna í morgun en yfirmaðurinn minn sendi mig næstum beina leið heim aftur með orðunum "það er skelfing að sjá þig". Gerði náttúrulega glimrandi hluti fyrir sjálfsmyndina eða þannig. Svo nú ligg ég undir sæng í sófanum og er enn of aftur að sannreyna að sjónvarpsstöðvar í Danmörku senda bara rusl út á daginn. Ég held það sé spurning um að skella teiknimynd í spilarann bara, kúra mig undir sængina og vona að versta kvefið gangi yfir fyrir morgundaginn - ég á pantað í mat og bíó annað kvöld!
Heimsku kvefpöddur..

5. janúar 2010

Gleðilegt nýtt ár!

Það var ekki hægt að hafa haustlitina lengur - svo það er tímabundið áramóta "lúkk" með þessari fínu flugeldamynd sem er fengin að láni frá srivera á flickr

Nýársheitið er að blogga aðeins oftar - var alltaf á leiðinni að blogga í desember en það varð aldrei neitt úr því. Átti annars góð jól með bróður og löt áramót með Dóunni í Amsterdam. Fór út með helling af gjaldeyri en kom ekki heim með neitt annað en eitt stykki ost og hálsbólgu (og hún var ókeypis). Hér í danaveldi er skítkalt og í Jótlandi er allt að verða vitlaust út af því að það snjóar - ég get ekki annað en hrist hausinn því viðmiðin á "stórhríð" eru talsvert önnur en heima!

Reyndi að druslast með jólahvapið og slæmu samviskuna í leikfimi í dag - en haldiði ekki að kennarinn hafi skrópað! Gat ekki varist þeirri hugsun að hlutverkin hefðu heldur betur snúist við *hóst hóst*.

Ætla rétt að vona að þetta sé ekki vísbending um hvernig restin af árinu verður.

Annars er plan vikunnar að komast aftur í gang í vinnunni, losna við helv... hálsbólguna og svo á að fara út að borða og í bíó á laugardaginn.

Búin að sjá bláu geimstrumpana svo nú er það Skerjalákur og co. Á ekki von á neinum stórkostlegum söguþræði en er viss um að þetta er fínasta vitleysa og ef ekki dugir sýnið af Robert Downey jr. handjárnuðum við rúmið örugglega til að halda mér lukkulegri restina af kvöldinu ;o) Það þarf svo lítið til að gleðja mig!

Og meira er ekki búið að plana af þessu ári - restin verður bara að koma í ljós...