20. maí 2009
Rafmagnað andrúmsloft
Klukkan korter yfir þrjú í nótt vaknaði ég við þvílíka brakið og lætin - herbergið mitt var eins og diskótek með strobeljós á fullu og ég hélt eitt andartak að móðurskipið væri komið til að sækja mig... Þetta reyndist vera eitt klikkaðasta þrumuveður sem ég hef upplifað hér, eldingarnar komu svo hratt að það varla náði að verða dimmt á milli og þrumurnar voru svo öflugar að gluggarnir nötruðu. Ég brölti út í stofu og reif allt úr sambandi því ég hef víst heyrt einhverntíman að ef það slær eldingu í húsið grillast öll tæki sem eru í sambandi. Svo skreið mín aftur í ból, tróð eyrnatöppum í eyrun, breyddi sæng yfir haus og steinsofnaði aftur í öllum djöfulgangnum! Ég hlýt að hafa verið illa þreytt. Er víst von á annarri svona lotu í nótt - en hins vegar þarf ég ekki að mæta í vinnuna í fyrramálið ;o) Kannski ég vaki bara og horfi á eldingashowið? Fátt betra til að minna mann á hvað maður er lítill og ómerkilegur í samanburði við náttúruöflin.
Að lokum smá gleðigjafi svona fyrir frídaginn á morgun - það er komin trailer fyrir Sherlock Holmes myndina hans Guy Ritchie! Því miður þurfum við líklega að bíða fram á næsta ár eftir henni - aargh!
Að lokum smá gleðigjafi svona fyrir frídaginn á morgun - það er komin trailer fyrir Sherlock Holmes myndina hans Guy Ritchie! Því miður þurfum við líklega að bíða fram á næsta ár eftir henni - aargh!
14. maí 2009
Save a horse - Ride a Cowboy
Þar sem ég er alveg andlaus þessa dagana verð ég enn einu sinni að láta nægja að deila því sem kætir mig...
Eftirfarandi atriði úr America's got talent fékk mig ekki bara til að brosa, ég fékk andskotans lagið á heilann í tvo daga! Njótið :o)
Eftirfarandi atriði úr America's got talent fékk mig ekki bara til að brosa, ég fékk andskotans lagið á heilann í tvo daga! Njótið :o)
7. maí 2009
1. maí 2009
Mr Booth, do you know what the penalty is for an overdue book?
Datt inn í þennan þátt af Bones í vikunni og hló mikið þegar Booth kom upp um bókavarðafantasíuna sína (sem sést í þessum trailer fyrir þáttinn)
Hann ætti bara að koma til mín (þótt ég geti nú ekki lengur sett hárið upp!)
Ég skal sko sýna honum hver sektin er fyrir að skila of seint :oP
Hann ætti bara að koma til mín (þótt ég geti nú ekki lengur sett hárið upp!)
Ég skal sko sýna honum hver sektin er fyrir að skila of seint :oP
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
