14. desember 2004

Hjáááááálp!

Mig vantar klón - nei tvo klóna - nei andsk... höfum þá þrjá; einn fyrir hvert prófverkefni - þá ætti ég kannski möguleika á að ná prófunum! Og ég gæti sofið fram á fimmtudag...
Stressið er að fara með mig - geng um eins og uppvakningur, bæði í útliti og viðmóti þar sem heilastarfsemin er lömuð af svefnleysi. Varð enn einu sinni andvaka í nótt - gafst upp eftir að hafa reynt að sofna í 3 tíma og fór á fætur. Komst svo að því að ég var of þreytt til að geta lesið (augun gátu ekki fókusað) svo ég gerði það sem hver heilbrigð manneskja myndi gera andvaka klukkan hálf-fjögur á þriðjudagsmorgni og bjó til rottu í þrívídd. Gamalt húsráð við svefnleysi. Á svo að mæta í viðtal hjá einum af kennurunum mínum klukkan níu í fyrramálið og ræða við hann um prófritgerðina mína - ef ég næ ekki að sofa í nótt verður það líklega með eindæmum gáfulegt samtal. :o( Til að kóróna allt fæ ég heldur ekki að sofa út á fimmtudagsmorguninn eins og ég hafði búist við, heldur þarf að mæta í verkefnavinnu sem stendur líklega fram eftir degi. Svo í staðinn fyrir að sofa út og taka mér svo góðan tíma í að gera mig klára fyrir Julefrokost mun ég mæta ósofinn og úthauguð og eflaust í fötunum úthverfum í teitið. Æði - verð aðal gellan á staðnum! AAAARGH! Vantar geðheilsufrí....

8. desember 2004

Earth to Elva

Ég biðst afsökunar á þessari löngu fjarveru minni og vil nota tækifærið og segja að orðrómurinn um að geimverurnar hafi loksins komið að sækja mig á afmælinu mínu er ekki réttur! Og ég hef heldur ekki þurft þennan tíma til að jafna mig á timburmönnum. Ástæðan fyrir því að ég hef ekki bloggað er a) það er búið að vera brjálað að gera í skólanum og b) það hefur ekki nokkur skapaður hlutur gerst sem er þess virði að skrifa um - því miður. Líf mitt þessa dagana er álíka spennandi og að horfa á málningu flagna - það eina skemmtilega sem er framundan eru 2 julefrokost og mér tekst meira að segja að gera það að stressvaldi. Hlutir eins og fataval eru t.d. að valda mér magasári og ég er svo langt leidd af stressi að ég virkilega hugsa út í það að julefrokostarnir taka tíma frá lærdómi! Er þetta hægt? Síðan hvenær fór nám að vera mikilvægara en skemmtanir? Er ég virkilega orðin svona gömul? Ég hef áhyggjur af þessu, ég verð bara að segja það... Vona svo bara að það verði gaman - ég þarf virkilega á góðu djammi að halda núna! Hef ekki virkilega slett úr klaufunum síðan.... ja - sleppum því. Það er allavega orðið nokkuð síðan! Komin tími á þá gömlu....

24. nóvember 2004

Aldurinn færist yfir

Danir hafa undarlega siði. Þegar einhleyp(ur) dani verður 25 ára koma vinir og vandamenn og kasta yfir hann/hana kanil og ef viðkomandi er enn ógift(ur) á þrítugsafmælinu er það pipar (og piparnum er ekki bara kastað yfir viðkomandi heldur allt sem hann/hún á líka. Ég geri ráð fyrir að þetta sé orsökin fyrir að við tölum um að fólk pipri. Nú hafa sambýlingar mínir uppgötvað yfirvofandi afmæli mitt og Rasmus og Zagal hafa hótað því að mæta með kryddbaukana - bæði kanil og pipar! Það versta er að ég trúi þeim alveg til þess!!! Úff, það var kannski ekki sérlega góð hugmynd að halda upp á afmælið hér á vistinni... Annars verður þetta lítið og huggulegt bara - hef ekki orku í að gera neitt stórskostlegt. Er búin að lofa að hitta Thomas minn Heath á föstudagsbarnum eftir skólann og skála - hann á líka afmæli þótt að tölurnar snúi öfugt (hann verður 23 - sniff sniff, vildi að ég gæti sagt það sama) - en svo held ég að ég taki mér lúr til að safna kröftum fyrir kvöldið. Ef það er ekki ellimerki - að þurfa að leggja sig til að orka föstudagskvöld, það er af sem áður var... Svo verður bara lítið og fámennt teiti hér í eldhúsinu og svo farið á vistarbarinn seinna um kvöldið. Það verður að minnsta kosti stutt fyrir mig að skríða heim ef ég drekk of mikið ;0) Vantar bara vinina að heiman (snökt!) - er bara ekki það sama án ykkar!

21. nóvember 2004

Nenni ekki neinu

Hvað gerir maður þegar maður á að vera að læra en bara nennir því ekki? Maður bloggar! Jafnvel þótt maður hafi svosem ekkert spennandi fram að færa. Ég lifði af föstudag dauðans - tókst að komast í gegnum að tala fyrir framan bekkinn með þurran munn og hjartað bankandi í hálsinum og hélt upp á það með því að fá mér bjór (með stelpunum sem fóru með mér til Noregs) í föstudagsbar lögfræðinema. Mundi eftir því þegar ég var að verða búin með fyrsta bjórinn að ég hafði bara sofið 4 tíma og ekki borðað síðan klukkan 9 um morguninn - enda rataði þessi bjór beint út í blóðið, þar sem hann hreiðraði glaður um sig og heimtaði félagsskap. Og eins og þið vitið á ég afskaplega erfitt með að segja nei ef ég er beðin fallega... Og eins og ég sannfærði sjálfa mig um skipti jú engu máli þótt ég væri hífuð og eldrjóð í kinnum - ekki eins og ég myndi hitta neinn sem ég þekki í lögfræðibarnum! Svo ég var enn rjóðari og sælli með lífið og alveg áhyggjulaus yfir baugunum undir augunum og úfnu hári - þangað til mér verður litið upp og sé helv... hvolpinn minn! Alltaf jafn heppinn hún ég :o( Ég er hins vegar blessunarlega afskaplega góð í að hagræða veruleikanum eins og hentar mér og ætla þess vegna að trúa því að hann hafi ekki séð mig í mannfjöldanum (lögfræðibarinn er STÓR) þar til annað kemur í ljós.
Ég verð svo að játa þá sorglegu staðreynd að tveir stórir bjórar voru nóg til að senda mig heim í rúmið - klukkan 18 á föstudegi! Partýdýrið ég...
Gerði heldur ekki neitt í gærkvöld - sat einn síðla nætur og horfði á Shaun of the Dead sem er gargandi snilld - bæði fyndin og spennandi - og var að lifa mig inn í gríðarlega spennandi atriði þegar skyndilega heyrist þvílíkur skarkali úr eldhúsinu (sem var mannlaust)! Ég missti eitt líf á staðnum og greyið gamla hjartað mitt missti úr nokkur slög en sökudólgurinn reyndist vera stáltafla sem hafði valið þennan tímapunkt til að hrapa niður á gólf. Sem ég segi með heppnina...
En nú verð ég að reyna að gera eitthvað gáfulegt (yeah right!) - Bless í bili.

18. nóvember 2004

Og enn ein vikan að verða búin...

Almáttugur - er vikan að verða búin? Og ég er ekki búin að gera nema helminginn af því sem ég ætlaði mér, þrátt fyrir að vera búin að vera eins og útspýtt hundsskinn alla vikuna! Tók mér samt smá pásu á mánudagskvöldið og fór á Bridget Jones marathon - báðar myndirnar í einni lotu! Mjög gaman! Er núna að reyna að undirbúa fyrirlestur um myndina Punch-drunk Love á morgun - á að reyna að sannfæra bekkjarsystkin mín (á dönsku) um að þessi mynd sé "klassísk Hollywood" mynd. Ef þið hafið séð hana getið þið kannski skilið af hverju ég er smáááááá vandræðum... En það verður ekki hjá þessu komist. Er að íhuga að skella mér með Kerstine á fredagsbar lögfræðideildarinnar á morgun - eftir svona viku á ég fjandakornið skilið bjór! Þarf hvorteðer að fara að hita mig upp fyrir föstudaginn í næstu viku ;o)
En nú er það lærdómurinn, vííííí!

14. nóvember 2004

Enn á lífi!

Jahérna - er svona langt síðan ég skrifaði síðast? Búið að vera svo brjálað að gera að dagarnir bara þjóta áfram. Hef samt náð að trappa mig aðeins niður andlega... bara aðeins samt ;o)
Hef annars ekki gert neitt merkilegt - var góð stelpa um helgina og fór ekkert á djammið. Fór samt í bíó í gær og sá The Incredibles, hún var bráðskemmtileg! Er samt svo heilaþvegin af skólanum að ég stóð mig ítrekað að því að velta mér upp úr tæknilegu hliðinni í staðin fyrir bara að slappa af og njóta myndarinnar.
Og talandi um þrívíddarmyndir - ég ætti líklega að snúa mér að heimavinnunni minni :o(
Ekkert gaman að vera ég núna!

5. nóvember 2004

Stressboltinn ég

Úff... þá er enn ein vikan að verða búin - og ég er líka búin á því! Hef verið í á útopnu alla vikuna og það náði hámarki í gær þegar ég var orðin svo utan við mig af stressi að ég hætti að skilja dönsku... kom sér ekki sérlega vel! Allar manneskjur sem reyndu að hafa nokkur samskipti við mig í gær eru eflaust sármóðgaðar (N. þar á meðal) - þótt það hafi alls ekki verið meiningin að vera dónaleg við einn eða neinn, var bara ekki að höndla daginn... Þið hafið eflaust lent í mér á svona degi einhvern tímann (og ef ég hef gleymt að biðja afsökunar þá - SORRÝ!).
En ég á sem betur fer frí í skólanum á morgun og ætla að gera heiðarlega tilraun til að slappa af annað kvöld - fer í bíó með Helle að sjá dönsku myndina "Oh happy day" og svo ætlum við að hitta Söruh og Håkon (sem á afmæli á morgun) í bænum í tilefni þess að jólabjórinn mætir formlega til leiks annað kvöld á bari og vertshús (sem þýðir frír jog/eða ódýr jólabjór út um allt). Kannski það dugi til þess að ég fái almennilegan nætursvefn nóttina eftir - nema ég drekki of mikið, því þá get ég ekki sofið :o( Oh well - krossið fingur fyrir mig á morgun.
Annars er ekkert sérstakt að frétta - tók mig til og ræddi við húsverðina í gær um það hvort ég gæti nú ekki fengið loftljós í herbergið mitt - og viti menn: þegar ég kom heim í dag beið mín ljósakróna og ljós... sem lá á náttborðinu mínu þar sem það er ekkert í loftinu til að hengja það í! Ég held í vonina að þeir hafi bara gleymt að taka með sér krók til að festa í loftið og komi þá kannski aftur á morgun til að ljúka verkinu - annars fer ég og skæli fyrir framan Kaspar þar til að hann gerir þetta fyrir mig (hann er svoddan elska ;o) ). Snillingurinn ég varð hinsvegar að tékka á því hvort ljósið virkilega virkaði - ekki góð hugmynd þegar maður heldur á ljósinu rétt fyrir framan nefið á sér (var heldur skærara enn ég átti von á) sá ekkert nema hvíta flekki næstu 2 mínútur - var eins og sena úr Jim Carrey mynd. Alltaf jafn bright ...

31. október 2004

syfjaður sunnudagur

Keypti rósavínsflösku í dag - og núna situr hún í ískápnum og kallar á mig... reynir að sannfæra mig um að heimalærdómurinn yrði miklu skemmtilegri í félagskap með henni! Og það versta er að ég trúi henni alveg... Annars var helgin bara róleg og góð - of róleg og góð! Lærði ekki nærri jafn mikið og ég ætlaði mér og er nú með bullandi sektarkennd. En ég fór þó ekki á djammið! Þrátt fyrir að það væri nóg af tækifærum - hlýt að fá prik fyrir það.
Andsk... flaskan vann - og ég er ekki frá því að heimalærdómurinn sé bara þrælskemmtilegur í augnablikinu! ;o)

28. október 2004

Vika dauðans

AAAARGH! Þvílík vika - eins og mig grunaði er sælan búin í bili : hér eftir verður meira og minna stanslaus keyrsla í skólanum fram til janúarloka. Ég verð að sjálfsögðu löngu orðin Klepptæk fyrir þann tíma - er strax orðin svo stressuð að ég er hætt að sofa á nóttunni og lít þessa dagana út eins og aukaleikari í "Night of the living Dead". Æði...
Og eins og venjulega veldur stressið því að ég get ekki einbeitt mér að nokkrum sköpuðum hlut, akkúrat þegar ég þarf á einbeitningu að halda :0(

18. október 2004

Komin aftur á flatlendið

Jæja, þá er maður aftur komin á pönnukökuna sem þeir kalla Danmörk! Oslóarferðin gekk bara vel, en við vorum frekar óheppnar með veður: grátt og drungalegt megnið af tímanum og rigning síðasta daginn :o( Byrjuðum ferðina með að taka lest klukkan 6.14 frá Árósum - ég hafði ekki sofið nema 4 tíma nóttina áður og man satt að segja lítið eftir þessari lestarferð. Sigldum svo frá Frederikshavn (draugabær á norður-Jótlandi) með heljarinnar "ferju" (eða litlu skemmitferðaskipi - matsatriði), ásamt nokkur hundruð ellilífeyrisþegum sem virðast fara þessa ferð til að spila bingó og dæla peningum í spilakassa. Komum til Osló að kvöldi til og vorum orðnar dauðþreyttar, enda búnar að vera á ferðalagi í rúma 13 tíma. Farfuglaheimilið sem við vorum á fyrstu 2 næturnar reyndist hin versta búlla - þeir voru svo elskulegir að setja okkur í mismunandi herbergi og til að bæta gráu ofan á svart settu þeir okkur í blönduð herbergi þrátt fyrir að við hefðum allar beðið um að vera í kvennaherbergjum. Það var ekki svo slæmt hjá mér, en stelpurnar lentu í herbergi með ótrúlega krípí gaur frá Chile sem var að gera þær gráhærðar allan tímann sem þær voru þar. Við vorum annars bara hrikalega menningarlegar í þessari ferð og notuðum mest af tímanum til að skoða söfn og allt það sem túristarnir verða að sjá. Kíktum aðeins á barina á föstudagskvöldinu, en áfengisverð í Noregi er jafn slæmt og á Íslandi svo við létum vera að detta í það. Norsku karlmennirnir voru ekki að höfða til mín - sá ekki einn einasta mann í Osló sem var þess virði að snúa sér við fyrir! Eyddum síðustu nóttinni í Osló á mun betri gististað og tókum svo næturferju heim á laugardagskvöldinu ásamt nokkur hundruð blindfullum norðmönnum og dönum. Ég held ekki að ég geti lýst þeirri upplifun hér... var bara kostuglegt! En við höfðum haft vit á því að panta okkur káetu og ég fékk loksins aftur að sofa til sjós :o) Sé fram á að þurfa að búa á bát þegar ég er orðin stór - sef aldrei betur! Svo er maður komin aftur í grákaldan veruleikan - fríið búið og uppsöfnuð heimavinna sem bíður. Ég tók því miður bara með mér einnota myndavél og notaði hana ekki sérlega mikið þar sem það er ekkert gaman að taka myndir þegar allt er grátt - en þegar ég fæ myndirnar úr framköllun skal ég setja þær á netið. En nú er heimavinnan farin að garga á mig svo ég held ég láti staðar numið í bili.

12. október 2004

Níu tímar í brottför

Það eru níu tímar þar til ég legg af stað til Osló og ég var að enda við að setja nýtt persónulegt met í að pakka niður = 11,5 mínútur! Hef örugglega gleymt einhverju eins og ég er vön, en það reddast. Vistarpartýið var eins og ég bjóst við eitt það hrikalegasta fyllerí sem ég hef upplifað, sem sést líklega best á því að ég var ein af þeim allra mest edrú þegar klukkan var 3 að morgni. Sé eftir því núna að hafa ekki myndað eldhúsið daginn eftir - þvílíkt og annað eins...
Eini áhugaverði maðurinn á vistinni stóðst ekki fylleríis-prófið (var sumsé hundleiðinlegur með víni) og er þar með strikaður út af áhugalistanum. Þarf að finna mér annað áhugamál við tækifæri. Þetta er líklega allt fyrir bestu þar sem maður getur farið flatt á því að eiga við menn sem búa of nálægt - þá er afskaplega erfitt að komast hjá því að sjá þá aftur (hefur reyndar gengið ótrúlega vel hjá mér eftir síðustu ófarir). Hlakka til að bera norsku strákana saman við þá dönsku, en mér er reyndar sagt að þeir hafi allir þann leiða ósið að taka í vörina (vona að hér séu bara danskir fordómar á ferð). Annars er þetta menningarreisa, svo ég geri ekki ráð fyrir að fá tækifæri til veiða - en maður veit jú aldrei...

7. október 2004

Þá er ekki aftur snúið

Keypti farmiðana til Osló í dag - svo verður bara lifað á tekexi og vatni það sem eftir er mánaðarins! Ég fitna þá ekki á meðan (og þó - mér tekst það eflaust!). Fer ókristilega snemma næsta miðvikudag og kem aftur á sunnudagsmorgni. Bíð spennt! Er alveg farin að svitna yfir vistarpartýinu á laugardag, þegar ég kom heim í dag var búið að kaupa DRYKKJU-LÚDÓ! Fyrir þá sem ekki þekkja er það lúdó þar sem "leikmennirnir" eru skotglös og ef þú ert rekin heim eða lendir á stjörnu eða bara hvað sem er, þarftu að tæma úr glasinu þínu... Skiljið þið af hverju ég hef áhyggjur? Lifrin mín er í hnipri undir rifbeinunum, ýlfrandi af kvíða. Og það er ekki eini kvíðinn... ég þarf líklega að horfast í augu við mistök síðustu helgar á morgun - oh joy!
Er að spá í að skrópa bara ...

5. október 2004

Ferðahugur í minni

Helgin búin og timburmennirnir að mestu horfnir - þeir líkamlegu allavega. Er strax farin að kvíða fyrir næsta sunnudegi (þarf að muna að vera búin að kaupa verkjatöflur), því mannskapurinn hér er í óðaönn við að undirbúa vistarpartý næsta laugardag. Það er þvílíkur hamur í mínu fólki að ég held mér sé ráð að útbúa erfðaskrána mína - mun líklega ekki lifa þetta af. Svo er bara að krossa fingur og vona að mér takist að gera ekkert svaðalegt af mér í þetta sinn. Mér til mikillar furðu virðist ég ætla að komast hljóðlega frá síðustu helgi (7,9,13) - það hefur enginn sagt orð ennþá... Ef mér tekst að verða mér til skammar um helgina get ég huggað mig við það að ég legg líklega land undir fót í næstu viku og fer þá í útlegð til Noregs! Ekki ákveðið enn, en mig dauðlangar - hef aldrei komið þangað. Þetta kemur allt í ljós á næstu dögum. Í næstu viku er semsagt "efterårsferie"; vikufrí í skólanum sem er örugglega ætluð til heimanáms (fat chance!). Vííííííí!!!!

2. október 2004

Úpps!

Lifði af októberfest - maturinn var ætur, Tírólabandið kom skemmtilega á óvart, bjórinn flaut í stríðum straumum og það voru sætir strákar á svæðinu! Hegðaði mér gríðarlega vel framan af - en lenti svo í vondum félagsskap. Þó ég sé orðin gömul og gráhærð, þá er ég alltaf jafnbláeygð...
Gleymdi alveg að taka með í reikningin að þótt að ég væri ekki á veiðum, þá væri hægt að veiða mig! :os Hef mér til afsökunar að hér var þrautþjálfaður ungur maður á ferð, sakleysingi eins og ég átti mér aldrei neina von.
Úff... og svo er ég að fara aftur út eftir klukkutíma - en í þetta skiptið verður ekkert Tequila! Og engir menn! Og ég mun hegða mér vel! (hlýt allavega að geta staðið við 2 af 3).

1. október 2004

Það liggur ljóst fyrir...

Það liggur ljóst fyrir að guðunum er í nöp við mig (áhætta sem fylgir því að vera yfirlýstur trúleysingi)! Loksins þegar greddupaddan ég sé fram á að komast í færi við fleirihundruð unga og efnilega menn - hver haldiði að komi í heimsókn? Ójú, Rósa frænka - óboðin í ofurstuði!
AAAAAARRRRGH! Þetta bara er ekki sanngjarnt... en útskýrir ýmislegt varðandi síðustu daga hjá mér. En það verður sumsé lítið um veiðar hjá mér annað kvöld - BÖLVAÐ! Var búin að hlaða deyfilyfsbyssuna og bæta netið í háfnum.
Stóla á að íbúfen og bjór komi mér í gegnum þetta - en nú ætla ég að fara og skæla í koddan minn...

27. september 2004

Taka tvö

Ég var búin að skrifa heilmikin pistil í gær - ætlaði nú loksins að gera þetta almennilega - en um leið og ég ýti á publish post er mér fleygt út af netinu! Þið getið ekki ímyndað ykkur blótsyrðin (á þremur tungumálum minnst) sem flugu hér um herbergið, ég er ekki frá því að málningin á veggjunum hafi bráðnað á stöku stað! Svo þið verðið bara að sætta ykkur við stuttan og geðillan póst í staðinn að þessu sinni - reyni aftur þegar netsambandið hjá mér er orðið stöðugt á ný.
Annars er svosem ekkert að frétta - nema hvað ég fór í bíó í gær og sá Nóa Albínóa, og lá svo í þunglyndi í 3 tíma á eftir. Af hverju var enginn búin að vara mig við endinum?!? Ekki það að mér fannst myndin góð - ég er bara of viðkvæm sál...

23. september 2004

Og enn annað útlit!

þriðja útgáfa - aðeins sáttari við þessa! Svo er bara að sjá hvort mér hefur tekist að koma Commentakerfinu í gagnið...

22. september 2004

Aftur á byrjunarreit

Eins og kunnugir munu hafa tekið eftir hefur Pöddulíf aftur breytt um svip. Skýringin er sú að mér tókst ekki með nokkru móti að fá hitt sniðmátið til að gera það sem ég vildi og á endanum missti ég þolinmæðina (enda sá ég fram á að ég myndi aldrei ná að blogga - ég yrði of upptekin við að fikta í hmtl kóðanum). Svo nú er ég aftur komin á byrjunarreit - með síðu sem er álíka spennandi og bein útsending frá skákmóti :o( Svona er nú lífið miskunarlaust og napurt...
En þetta virkar allavega betur og kannski verður það til þess að ég druslast til að blogga af og til - ekki halda niður í ykkur andanum samt!

9. september 2004

prufa

svo er að athuga hvort síðustu breytingar hafa virkað - og íslensku stafirnir sjást í meginmálinu...