18. desember 2008

Það er óðum að styttast...

...í jólafríið. Fer beint úr vinnunni útá flugvöll á morgun og er mest hrædd um að ég gleymi að fara í kuldaskónum (og verði blaut og köld á löppunum öll jólin!). Er annars með búin að skrifa minnislista dauðans til að hjálpa mér að pakka niður í kvöld og það eru 99.9% líkur á því að ég gleymi svo að taka blessaðan listann með mér heim á eftir (það er yfirleitt þannig með alla innkaupalist og minnismiða sem ég skrifa - ég næ næstum aldrei að nota þá!). Ég er samt alltaf jafn bjartsýn og held áfram að skrifa þá...
Hlakka hrikalega til að komast í frí - er rústir einar eftir stress síðustu 2 mánaða.
Held ég ætti að heyra í Hörpunni hvort hún hefur tíma til reyna að hnoða eitthvað af vöðvabólgunni minni burt fyrir jólin - og svo er planið að liggja sem mest í bleyti í baðkarinu hennar mömmu og sjá hvort ekki slaknar eitthvað á manni...
Svo á að kíkja á félagslífið í Sódómu á laugardaginn með hollendingnum fljúgandi - verður örugglega fróðlegt því það er ár og öld síðan ég prófaði djammið í 101 síðast. Og svo liggur leiðin norður milli jóla og nýárs - gleði gleði!

Sjáumst vonandi sem flest á Fróni - þið hin verðið bara að koma hingað í heimsókn á nýja árinu!

14. desember 2008

Alltaf jafn bláeygð

Síðasta vika var ansi erfið. Á miðvikudaginn fékk ég að vita að deildin mín yrði leyst upp og ég og samstarfsfólkið mitt yrðum send í allar áttir innan fyrirtækissins. Ég veit ósköp vel að á þessum síðustu og verstu tímum má maður vera þakklátur fyrir að halda vinnunni (það var einn úr deildinni sem var sagt upp), en þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og ég hef verið í hálfgerðu sjokki síðan. Minn helmingur af deildinni hefur nefnilega verið afar samrýmdur og góður hópur og í raun og veru verið "fósturfjölskyldan mín" hér í Köben. Og nú er búið að splundra okkur. Það á eftir að taka sinn tíma fyrir mig (og restina af deildinni) að komast yfir það, en það er ekkert að gera nema reyna að gera gott úr því sem orðið er og hugga mig við að ég fæ þó 3 af gömlu félögunum með á nýja staðinn.

Svo var julefrokost á föstudaginn - ég verð að segja að það var erfitt að finna djammstuðið fram, en það tókst nú samt og ég skemmti mér alveg ágætlega - þ.e.a.s. þangað til að það rann upp fyrir mér að ég var að fá viðreynslu úr óvæntri og afar óvelkominni átt. Líklega hefði skarpari manneskja séð hættumerkin fyrr - en ég var alveg grunlaus þar til viðkomandi náði mér út á dansgólfið og ég mátti virkilega hafa mig alla við til að tryggja að hann héldi höndunum á nokkurnvegin þolanlegum stöðum (ég hefði nú kosið að hann héldi höndunum fullkomlega fyrir sig). Urggh - ég fæ enn hroll við tilhugsunina! Lét mig hverfa um leið og ég slapp af dansgólfinu - er næstum viss um að það heyrðist "púff" þegar ég gufaði upp! Tók Taxa heim og lenti svo í einum af þessum hálfcreepy bílstjórum sem eru bara alltof forvitnir um einkahagi mans - enda var mér allri lokið þegar ég var loksins komin heim.

Akkúrat núna er ég ekki frá því að ég öfundi lesbíurnar - ætli það sé of seint fyrir mig að skipta um lið? Er hægt að fara á bréfanámskeið? Eða finna góðar handbækur?
Karlmenn eru allavega komnir á hilluna næstu vikur/mánuði/ár.

9. desember 2008

Retrógella

Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki beinlínis tekið endurkomu eighties-tískunnar fagnandi. Kúkalabbabuxur (sem heita gulrótarbuxur hér), grifflur, legghlífar, samfestingar og arabaklútar eru hlutir sem ég hélt að kæmust aldrei aftur í tísku (ég meina – almáttugur minn, flest okkar sem voru táningar á þessum árum erum enn að leita upp og brenna öll sönnunargögn um að við höfum verið fórnarlömb þessarar tísku!). En það hlaut að koma að því að EITTHVAÐ gagnlegt kæmi út úr þessari retróbylgju – ég fann mér loksins nýtt úr! Haldiði ekki að Casio hafi endurútgefið gömlu 80’s tölvuúrin og ég fann mér lítið og sætt dömuúr sem er lifandi eftirmynd gamla Casioúrsins sem ég gekk með gegnum allt DuranDuran tímabilið. Gleði gleði!!! Og það var ekki seinna vænna – gamla úrið er búið að vera með hjartatruflanir síðust 3 mánuði og andaðist endanlega einhverntíman í nótt. Nýja úrið kom með pósti í morgun. Perfect timing!

Og svo er ég með þessum innkaupum líka orðin "übertrendy" - hver sagði að tími kraftaverkanna væri liðinn?

7. desember 2008

Post-London

Ég er eiginlega of löt til að blogga núna – enda fyrsti dagurinn í langan tíma sem ég má vera að því að slappa af. Svo þetta verður örstutt samantekt:

Eldhús = næstum tilbúið, vantar bara Skúla rafvirkja til að tengja ljósin.

London = var náttúrulega æði, en hafði bara alltof lítinn tíma til að njóta borgarinnar. Næst þegar ég fer þangað verður það í alvöru frí! Kannski myndir seinna í vikunni. Varð mér næstum til skammar á Stanstead flugvellinum því ég starði svo á unga manninn sem sá um gegnumlýsingarbandið - hann hefði getað verið litli bróðir Rupert Penry-Jones. Var drullusvekkt yfir að það var ekki hann sem leitaði á mér þegar málmleitarhliðið pípaði (Verð að muna að kaupa mér einn brjóstahaldara ÁN spanga! - dauðþreitt á að vera áreitt kynferðislega í hvert skiptið sem ég flýg).

Jólaföt fyrir Julefrokost = endaði með að kaupa “peysukjól” í Oasis – í hálfgerðri örvæntingu. Slepp við plan B sem var að fara í svörtum ruslapoka með jólaseríu sem belti. Er núna að safna kjarki til að máta kjólinn aftur hérna heima og taka ákvörðun um hvort ég nota buxur undir eða hvort ég læt mig hafa að sýna leggi. Ég spái að það endi með buxum eins og alltaf – mér finnst ég alltaf nakin ef ég er á sokkabuxunum :o(

Tæpar 2 vikur fram að jólafríi - en ég sé líka fram á að þessar tvær vikur verði ansi strembnar! Klikkað að gera í vinnunni og svo á enn eftir að redda 100 "smáhlutum" fyrir fríið... og það eru alltaf smáhlutirnir sem reynast tímafrekastir ekki satt? Enn að leyta að jólaskapinu mínu - ég hlýt að hafa pakkað þvi niður einhversstaðar!

30. nóvember 2008

Síðasta útkall

Lifði af viku dauðans og er næstum orðinn stolltur eigandi nýs eldhúss (með skápa á réttum stöðum!) – vantar samt herslumuninn og því á ég alveg eins von á þvi að það ryðjist inn iðnaðarmenn fyrir allar aldir í fyrramálið. Er ekkert sérstaklega kát yfir því vegna þess að ég var svo bjartsýn að halda að ég gæti unnið aðeins hér heima fyrir hádegi og náð að græja mig fyrir ferðalagið í rólegheitum. Það eru nefnilega minna en 20 tímar í Lundúnarferð og ég er rétt byrjuð að pakka niður. Flugmiðar, passi og peningar eru allavega komin niður í handtöskuna – ef bara það er á sínum stað má bjarga sér!
Fötin sem ég ætlaði að taka með hanga blaut á þvottasnúrunni – skipulagningin hjá mér hefði kannski getað verið aaaaðeins betri! En það hlýtur að þorna í nótt – svo er bara að fleygja tuskunum í töskuna og loka.

Átti annars fína helgi með Pernille minni – náðum meira að segja að skála fyrir afmælunum okkar í Strawberry daquiri , þótt við hefðum annars verið voðalega rólegar og settlegar á því. En við náðum að vinna upp alveg helvítis hellings uppsafnað slúður – sem var náttúrulega voða gaman :o)
Planið hafði reyndar verið að kíkja á sæta stráka – en þeir létu hvergi á sér kræla! Annað hvort var úrvalið óvenjulélegt eða við vorum bara alltof edrú. Eða einhver hefur kjaftað í þá að gamla paddan væri á kreiki í Köben og þeir hafa allir hlaupið í felur... Ég sé alveg fyrir mér hópa af ungum mönnum sitjandi skjálfandi á beinunum í myrkum kjöllurum hist og her í bænum!

En nú held ég að ég fleygi nokkrum sokkaleystum og naríum niður í tösku og svo held ég að ég setjist með einn jólatúborg fyrir framan imbakassann áður en ég skríð í bólið.

Kannski verð ég svo heppinn að iðnaðarmennirnir koma ekki fyrr en á þriðjudag, en ætli ég fari nú samt ekki framúr rúminu í birtingu til öryggis... Ef þeir koma áður en ég er búin að fá kaffi er dagurinn ónýtur! Ef ekki hjá mér – þá hjá þeim vesalingunum som komu á milli mín og koffíns!

25. nóvember 2008

Niðurrif

Eftir 3 daga á XML-námskeiði hefði ég eiginlega þurft að liggja í leti um helgina, en það var lítill tími til að slappa af því ég þurfti að pakka niður öllu í eldhúsinu mínu og gera klárt fyrir framkvæmdir. Gleði gleði...

Klukkan 7.15 í morgun stóð ég svo og maulaði morgunmatinn minn, rétt komin í fötin og enn hálf sofandi þegar dyrabjallan hringdi. Voru þar mættir iðnaðarmenn – hálf tíma á undan áætlun! Ég hélt það væri bara í þjóðsögum sem iðnaðarmenn mættu of snemma og ekki of seint! Enda hékk hakan á mér örugglega niður á bringu þegar ég opnaði dyrnar. Og þeir voru í þvílíkum vinnuham líka: þegar ég flúði húsið 10 mínútum síðar voru þeir þegar búnir að flá allar hurðir af eldhússkápunum og voru farnir að brjóta sjálfa skápana niður. Ég verð að viðurkenna að mér hrýs hugur við tilhugsuninni um ástandið í eldhúsinu mínu þegar ég kem heim á eftir...
Á morgun mætir svo nýr flokkur iðnaðarmanna til að byrja að byggja nýtt eldhús – og þótt að ég stórefist um að maður upplifi kraftaverk 2 daga í röð, held ég að ég stilli vekjaraklukkuna á 6.00 til öryggis. Þeir eru nefnilega með lykla að íbúðinni og mig langar ekkert að standa þarna á naríunum ef þeir skyldu mæta fyrr en áætlað! Sú uppákoma gæti minnt mikið á myndbrotið hér fyrir neðan:




(ég yrði snigillinn...) Juminn hvað mig hlakkar til að fá þetta allt saman afstaðið!

19. nóvember 2008

Til hamingju Hugh!

Eins og alltaf var fróðlegt að sjá niðurstöður "Kynþokkafyllsti karlmaður á lífi" útgáfu People Magazine. Ég verð að segja að það voru nokkuð margir tilnefndir sem ég er ekki alveg að fatta... en er afar sátt við vinningshafann!

Sjáiði bara þetta viðtal hér og segiði mér svo að hann eigi þetta ekki skilið blessaður!

17. nóvember 2008

Nýr sparigrís

Í ljósi breyttra efnahagsástæðna hefur Seðlabankinn nú látið endurhanna hinn klassíska sparigrís. Þið getið sótt nýja sparigrísinn í næsta útibú - mér skillst að þeir taki gömlu "búttuðu" módelin uppí...


14. nóvember 2008

Ég bara veit ekki...

... hvort ég get sætt mig við þessa samvinnu Chris og Timbaland - ég reyni, ég virkilega reyni en...

Aníhú - hér er nýja myndbandi hans Chris - það má alltaf setja á "mute" ;o)



Hann er enn flottur blessaður kallinn - ég er samt ekki enn alveg búin að fyrirgefa honum fyrir að hafa aflýst tónleikunum síðasta sumar!

13. nóvember 2008

Það hafðist!

Er nú stolltur handhafi flugmiða fram og tilbaka um jólin - svo er bara að krossa fingur og vona að Icelandair fari ekki á hausinn. Ég verð svo að segja ykkur að það er ekki bara íslenska bankakerfið sem er að fara í taugarnar á mér þessa dagana - það danska er líka að gera mér gramt í geði! Ég verð að viðurkenna að það er langt síðan ég hef þurft að þvælast um með pappírsávísun heima á klakanum - en ég man ekki betur en að ef maður fékk tékka í hendurnar gat maður leyst hann út í næsta banka, sama hvort maður var viðskiptavinur þess banka eða ekki. Hér máttu BARA leysa út tékka í ÞÍNUM banka - alveg sama hvaðan tékkinn kemur! Af hverju skil ég ekki - en þetta gerir að verkum að ég ligg með yfir 100.000 íslenskar hér í íbúðinni sem ég get ekki leyst út því bankinn minn er ekki með eitt einasta útibú hér á Sjálandi. Held ég hringi í stofnunina sem sendi tékkann á morgun og spyrji hvort það sé nú ekki möguleiki að fá þetta bara lagt beint á reikninginn minn í staðinn (svona þar sem við lifum á rafrænum tímum og þeir virðast ekki vera í neinum vandræðum með að taka við peningum FRÁ mér gegnum netbanka...). HHHRMPF!

Þetta var gremja dagsins - á ljósari nótunum má nefna að ég er að fara að baka jólasmákökur um helgina! Kannski fullsnemmt en þetta var eina helgin sem ég og Lydia vinkona gátum báðar, svo er bara að læsa kökudunkinn inni fram að aðventu...
Einn af nágrönnum mínum er reyndar komin í þvílíkan jólaham að mig grunar að þarna sé íslendingur á ferð - hann er búið að setja seríur (og engar 2 eins) á ALLT sem hægt er. Útkoman er hálf spaugileg svona af því að þetta er ein íbúð í heilli blokkarsamstæðu - jólabarnið sker sig úr! En ætli það vari nú lengi áður en það er bara mín íbúð sem er EKKI með seríur :o/ Djöfull líður tíminn hratt...

11. nóvember 2008

Með eða án flugmiða?

Eftir svefnlausar nætur, grandskoðun á fjármálunum mínum og harðan niðurskurð (farvel London og ljósar strípur...), beit ég á jaxlinn og pantaði miða heim (og til baka) um jólin. Til að spara mér smá pening bókaði ég gegnum norræna ferðaskrifstofu (var ódýrara en að kaupa beint frá Icelandair) og í hita augnabliksins var ég náttúrulega búin að steingleyma að sökum þjóðernis er ég náttúrulega stórhættulegur fjárglæframaður! Allavega var VISA-kortið mitt ekki að vekja fögnuð í kerfinu - fékk þau skilaboð að greiðslan hefði ekki farið í gegn því líklega væri ekki innistæða fyrir henni! Pöntunin virðist nú samt hafa verið gerð - með þeim skilaboðum að greiðslu verði að inna af hendi fyrir kl. 16 á morgun. Ég hef ekki grænan grun um hvort ég á að bíða og sjá hvort færslan fer í gegn á morgun - eða hvort ég á að reyna að hafa samband við ferðaskrifstofuna í fyrramálið og sjá hvort ég get borgað með öðrum hætti. Djöfull er ég þreytt á þessu bankarugli!

Free Smiley Face Courtesy of www.FreeSmileys.org

10. nóvember 2008

Jólagjöf ljóskunnar

Hin fullkomna jólagjöf handa ljóshærða vinnufélaganum...

9. nóvember 2008

Jólunum er frestað!

... þeir fundu pabbann!

Nei - það eru íslensku flugfélögin 2 sem eru að setja strik í jólaplönin mín! Ákvað í sakleysi mínu að athuga með flugmiða heim og komst að því að verðið á miðunum var komið í tæpan 100.000 kall - ser er meira en helmingi meira en þegar ég gáði síðast. Eins og gefur að skilja varð ég ekki sérlega glöð - öll fjármálaplön mín fyrir næstu mánuði voru farin til helvítis og í hreinskilni sagt orðið afar óvíst að ég hefði efni á að koma heim um jólin. Þetta var lúksus sem ég var samviskusamlega búin að leggja fyrir og auka 50.000 kall er stór biti þegar maður er að borga 2 námslánum ofan í húsaleigu og aðra heimilisreikninga. Eftir mikil heilabrot og spekúlasjónir held ég kannski að ég geti reddað þessu - með að slaufa Lundúnaferðinni minni og spara á öllum sviðum (svo jólagjafirnar verða í minni kantinum í ár börnin mín - bara kerti og spil á línuna...). Samt óvíst hvort ég komist norður - verð bara að sjá til þegar ég er komin á klakann. EF ég kemst á klakann þ.e.a.s. - það kemur í ljós á næstu dögum.

Færið mér höfuð Jóns Ásgeirs og Björgúlfanna á silfurfati - ég vil drekka jólabjór úr tómum hausskúpum þeirra! Og búa til Bongótrommur úr hýðinu á Davíð... Ef þessi helvítis fífl og ásamt litlu "klónunum" þeirra hefðu ekki spilað Matador með alvöru peninga væri ég ekki alvarlega í hættu með að komast ekki heim til fjölskyldunnar um jólin. Svo ekki sé minnst á hvað það er nú gaman að þurfa að svara fyrir þetta á erlendri grund! Grrr...

Er ekki hægt að ákæra menn sem setja þjóðina á hausinn fyrir landráð?

7. nóvember 2008

Menn og brjóst...

Góða skemmtun og góða helgi!

1. nóvember 2008

Ég elska þennan mann!

þótt ég sé ekki viss um að Elton John deili hrifningu minni!



P.S. flottur bolur!

31. október 2008

Gleðilega hrekkjavöku!

Ligg heima með kvef og gæti auðveldlega hrætt lífið úr hverjum sem er án nokkurs farða eða búnings - allavega bregður mér sjálfri þegar ég lít í spegilinn! Glansandi augu og rautt nef er kannski fínt ef maður er Draugapi en ekki ef maður er kona!

Of slöpp til að gera neitt af viti, en of hress til að geta bara legið kyrr svo ég er að verða nett biluð hér heima. Hata að vera lasin!

Vona að þið eigið öll góða (og kveflausa) helgi - og munið að ganga hægt um gleðinnar dyr...


27. október 2008

Komin heim...

... eftir góða helgi í Árósum. Mikið borðað, drukkið og talað - gott að vera í góðra vina hópi. Ekki laust við svolitla nostalgíu, svona þegar maður kom á gömlu heimaslóðirnar! Lét stelpurnar tala mig inn á að kaupa mér rándýran nýjan vetrarfrakka - fæ enn andateppu þegar ég hugsa um verðið, en eeeeelska nýja jakkann minn! Maður má vera fínn á því stöku sinnum - er þakki? (ekki svara nema þið séuð sammála!) Þetta þýðir líklega að það verður ekki keypt ný kaffikanna, eða annað í íbúðina á næstunni - en ég eeeeeeeeeeeeelska nýja jakkann minn! (var ég búin að koma því að?) Ég get þraukað með espressókönnuna mína! (þið hélduð varla að ég ætlaði að lifa án kaffis?(finnst ykkur ekki þreytandi þegar fólk skrifar endalaust innan sviga?)) Hmmm... ég virðist vera komin á svefngalsastigið - það er annað hvort að fara í bólið eða hella sér uppá kaffi til að geta haldið sér vakandi fram að Prison Break. Svefn eða sætir strákar? Einhverntíman hefði það ekki einu sinni verið spurning...

22. október 2008

Ástin er blind

Greyið er álíka gáfulegt í ástarmálum og ég...

19. október 2008

Hreinn skepnuskapur

Síðustu viku hefur VH1 allt í einu tekið upp á því að sýna myndbandið hér aftur og aftur - ég skifti um stöð í sakleysi mínu og BÚMM! - eins og spark í magann!



Ég má ekki við þessu! Þetta er hreinn skepnuskapur! En ef ég þarf að þjást... ;o)

18. október 2008

Stundarbrjálæði

Eins og glöggir kannski sjá fékk ég kast og breytti blogginu mínu - þetta er víst að ganga þessa dagana. Einhvern vegin grunar mig samt að þetta hér útlit fái ekki að stoppa lengi - litasamsetningin er ekki aaaaalveg að gera sig finnst mér. Nenni bara ekki að djöflast meira í þessu í dag - so you're stuck with it! Mwuahahahah...
Uhh ég held kannski að ég ætti bara að fara í háttinn núna...

17. október 2008

16. október 2008

Skrítið

Ég er með lag á heilanum - svosem ekkert nýtt, en í þessu tilfelli er um að ræða samanbræðing (remix) af 2 popplögum sem mér fannst allt í lagi en ekkert spes hvert fyrir sig... og ofan á allt annað blanda af dönsku og þýsku poppi!

Bíð spennt eftir fréttum af frosti í helvíti!

14. október 2008

Afneitun

Gömul vinkona úr barnaskólanum dúkkaði upp á MSN í gær og spurði hvort ég væri nokkuð á leiðinni heim á næstu vikum. Ástæðan fyrir spurningunni reyndist vera 20 ára "reunion" gamla bekkjarins míns. Ég sagði henni að hún hlyti að vera að tala við vitlausa manneskju - ég er ekki nógu gömul til að eiga nein 20 ára reunion! Neibb, neibb, neibb...

Hvað annars er að frétta? Svíþjóð var hriiiiiiiiiiiiiiiiikalega falleg í haustlitunum, en ég var læst inni í fundarsal svotil alla ferðina, svo þetta var eiginlega bara hálfgerð pynting. Náði að hitta Daða bróður örstutt á laugardaginn – hafði ekki séð hann síðan um jól svo það var voða næs :o)

Ekki gaman að lesa blöðin eða horfa á fréttir síðustu vikuna – þjóðarstoltið mitt er marið og blátt...
Og ekki orð um það meir!

5. október 2008

Blah!

Ég loggaði mig inn og hafði hugsað mér að skrifa fyndinn pistill um mislukkaða tilraun mína til að komast á íshokkýleik í dag (já íshokký!)í fyrsta alvöru hauststorminum í ár, en þegar á hólminn var komið var ég fullkomlega andlaus. Ég gæti svosem líka reynt að segja frá Svíþjóðartúrnum sem ég er að leggja í á morgun og öllu hafaríinu sem er búið að ganga á undan - en aftur er ég andlaus. Ég gæti farið hamförum yfir komandi eldhúsframkvæmdum - en ég bara orka það ekki...
Eina ástæðan fyrir að ég loggaði mig ekki út aftur með það sama er að ég er að reyna að tefja tímann áður en ég neyðist til að fara að pakka niður - og ég meika bara ekki að taka ákvörðun um hvaða föt ég á að taka með!
Kjúklingurinn sem ég er búin að þýða upp lendir líklega í ruslinu því ég nenni ekki að elda, og allt annað gáfulegt sem var planað í dag verður örugglega ekki gert heldur. Ef ég gæti á annað borð haft mig upp úr sófanum myndi ég sparka í rassgatið á sjálfri mér en... ætli þið vitið ekki hvað kemur næst.

Ef einhver rekst á nennuna mína á þvælingi - viljið þið vinsamlegast pakka henni niður og senda hana heim til mín?

30. september 2008

Kunnuglegt!

29. september 2008

Hversu rauðhærð þarf maður að vera?

Spurning um að velja póstkassarautt næst þegar maður reynir að fela gráu hárin?

Allavega ef marka má þetta

Held ég sé reyndar búin að prófa allan litaskalan (af því sem hægt er að kalla "náttúrulegir! litir), og hef nú svosem ekki tekið eftir marktækum mun(m.ö.o - ekkert virkar!)...

25. september 2008

Johnny, Johnny, Johnny...

Þetta fær mig næstum til að þerra tárin sem hafa flotið samfleytt eftir að ég komst að því að Foo Fighters eru farnir í "pásu". Hann Johnny minn er greynilega ekkert að fara að taka sér hlé!

Vinnuveisla annað kvöld (er samt að íhuga að fara ekki því það er víst ætlunin að láta alla SYNGJA! Í 2 tíma!!!)

Svo er stefnt á hormónasvall með með Sweeney Todd og P.O.T.C. 3 á laugardagskvöldið. Spurning um að hafa slökkvitæki við hendina.

Ég held ég þurfi að fara að komast meira út á lífið...

24. september 2008

Uhm... ég held það sé eitthvað verulega bogið við þetta "tröllapróf"



Viðskiptajöfur


Þú ert nýjungagjörn, yfirveguð félagsvera.

Það fyrsta sem viðskiptajöfurinn hugsaði þegar Ólafur og Dorrit trúlofuðust var hvaða áhrif það myndi hafa á gengi íslensku krónunnar. Honum finnst Donald Trump vera svalur... líka peningaklemmur. Hann ætlar, er, var eða vildi að hann hefði verið í Versló - en ekki söngleiknum.



Viðskiptajöfurinn tekur ákvarðanir með heilanum en ekki hjartanu og þarf að hugsa sig um þegar einhver spyr hann: "Peningana eða lífið!?" Hann hefur stáltaugar og getur lagt allt undir og í framtíðinni verður viðskiptajöfurinn annað hvort moldríkur - eða staurblankur.



Það er toppurinn að vera í teinóttu.


Hvaða tröll ert þú?

8. september 2008

Íslenskt tilhugalíf?

6. september 2008

Allt á fullu...

á öllum vígstöðvum. Klikkað að gera í vinnunni og ef ég er ekki í vinnunni er ég með gesti. Á nokkra langþráða frídaga í næstu viku (samt færri en áætlað því ég VERÐ að fara í vinnuna allavega einn eða tvo daga)og þeir frídagar sem eftir eru fara að mestu í tiltekt/hreingerningu/þvott - oh joy! Það verður samt ekki hjá því komist því íbúðin er í rúst og óhreina tauið er farið að velta út úr þvottakörfunni. Er orðin sannfærð um að það er eitthvað á ferli undir rúminu mínu og það gætu hreinlega verið óhreinir sokkar sem eru búnir að vera þar svo lengi að þeir eru búnir að þróa siðmenntað samfélag og farnir að byggja pýramída! Svo það verður ekki hjá stórhreingerningu komist lengur - ef ég bíð of lengi verða þeir búnir að finna up stóreyðingarvopn eða (enn verra)rappmúsík. Ef ég er heppin hef ég samt nokkra tíma afgangs seinni partinn á fimmtudag - og af því að ég er asni tekst mér örugglega að finna eitthvað sem ég "bara verð að gera" í staðin fyrir að slappa af. Hvernig er hægt að vera eins löt og ég er í eðli mínu og samt geta ekki tekið sig saman og slappað af einn eftirmiðdag eða svo?!? Ég hef áhyggjur af þessu - ég verð bara að segja það! Svo markmið fimmtudagsins er: að komast aftur í samband við minn innri letihaug, kúra mig niður í sófann með góða bók og ekki gera nokkurn skapaðan hlut annað en að slappa af og láta mér líða vel! Og safna kröftum til að sinna næstu lotu af næturgestum...

21. ágúst 2008

Enn á lífi

Lítið bloggað undanfarið, enda dagarnir liðið hratt. Naut helgarinnar í botn, þótt það hafi verið stutt í hjartaáfall yfir handboltanum á laugardaginn. Vinnuvikan er að þjóta hjá þótt að mér sé svosem ekki að takast að gera neitt af viti – andlega fjarverandi þessa daga. Tókst að sýna stórmennsku í gær og ekki stríða dönunum þegar þeir töpuðu fyrir Króatíu eftir öll digurmælin! Er á fullu að reyna að plotta hvernig ég get séð eitthvað af leiknum á morgun – ekki séns að ég geti fókuserað á vinnuna á meðan strákarnir okkar slást við Spán. Tók mig saman í gær og ætlaði nú aldeilis að klára að þvo áður en Dóa kemur – en kom að læstum dyrum því þvottakortinu mínu hefur verið lokað af óútskýranlegum ástæðum! Á stefnumót við húsvörðinn eftir vinnu – ætla rétt að vona að hann geti reddað þessu á staðnum því annars verður Dóa litla að þurrka sér með viskustykki um helgina...

15. ágúst 2008

Alltaf í (hand)boltanum

Það styttist í ögurstund: Ísland – Danmörk á morgun. Ég á eflaust eftir að fara hamförum alein í sófanum mínum! Hér í vinnunni er búið að skiptast á stórum orðum um væntanlegar niðurstöður þessa leiks og ef strákarnir okkar tapa veit ég ekki hvort ég mæti í vinnuna á mánudaginn!
Þeir verða að vinna þetta!!! Litla þjóðarsálin mín er enn með marbletti eftir tapið á HM í fyrra og ég veit ekki hvort ég get afborið sjálfumglaða dani næstu vikurnar...

Juminn hvað ég gæti þegið félagskap (íslendinga) á morgun...

Áfram ÍSLAND!

14. ágúst 2008

þarna fengum við skothelda afsökun...

fyrir öllum njólunum sem maður féll fyrir í denn (svo lengi sem maður var á pillunni...)

Bíð eftir læknisfræðilegri útskýringu á njólunum sem maður fellur fyrir núna!

12. ágúst 2008

8. ágúst 2008

Eftir ömurlega rakann og mollulegan dag í gær, bætti kvöldið upp fyrir það með einni flottastu eldingalotu sem ég hef upplifað hér í Danaveldi – það var ekkert annað að gera í stöðunni en að slökkva á imbakassanum og standa við gluggann og horfast í augu við hvað maður er lítill og máttlaus í samanburði við náttúruna. Óumræðanlega fallegt og í sömu andrá ógnvekjandi.



Plan helgarinnar: stefnumót við Adam Carter í kvöld og svo snemma að sofa því laugardagsmorguninn fer í að gera hreint fyrir næsta helgargest. Spurning hvort við skellum okkur í bíó á nýju múmmíumyndina, verst hvað hún er bara búin að fá hrikalega vonda dóma... Kannski maður ætti frekar bara að fara aftur á Batman!

7. ágúst 2008

Svikari!

5. ágúst 2008

Spegill spegill herm þú mér...

Aftur ein í kotinu eftir góða helgi með örverpinu. Verð nú samt að viðurkenna að maður er örlítið lúin, enda tekur á að leika túrhest. Komst líka að því að ég kemst ekki með tærnar þar sem litli bróðir hefur hælana í fatainnkaupum! Þrátt fyrir að vera næstum helmingi eldri er ég greinilega enn bara amatör - hann gæti komist í landsliðið held ég.

Húsgagnasmíðum er líka lokið í bili – sem betur fer!
Er enn að velta fyrir mér hvort það hafi nú verið góð hugmynd að velja speglahurðir á skápana:

Kostur: ég er með 150x200 cm stóran spegil sem kemur sér vel þegar maður mátar föt
Galli: það fyrsta sem ég sé þegar ég sest upp í rúminu á morgnana er ég sjálf – nývöknuð! Brrr....

En það er of seint að skipta um skoðun – svo ég verð bara að læra að lifa með þessu (eða staulast með lokuð augun út úr svefnherberginu á morgnana). Ægilegur lúxus samt að geta loksins gengið frá öllum fötunum mínum + handklæðum, rúmfötum og öllu þessu drasli. Nú vantar mig bara hillur fyrir bækurnar mínar... og svefnsófa... og loftljós... oh crap! Hálf fáránlegt að vera að byrja aftur að byggja sér heimili næstum frá grunni á gamals aldri – og ég verð að viðurkenna að ég varla nenni þessu! Innst inni á ég voðalega erfitt með að venja tilhugsuninni um að ég sé ekki að fara að flytja aftur á næstunni – og ég stóð mig að því að pæla í hvernig væri best að skrúfa hlutina sundur aftur ÞEGAR ég flytti næst á meðan ég var að skrúfa þá saman! Svona er maður orðin skilyrtur!

Paddan – með lausa skrúfu...

31. júlí 2008

I - KEA

Fór hamförum í IKEA í gær og verslaði mér skápa, kommóðu og náttborð - í allt 500 tonn sem elskulegir vinnufélagar hjálpuðu mér að koma heim og upp %&**!~# tröppurnar.
Tók mig 3 tíma að setja saman kommóðuna í gærkvöld (enda svo mikið flykki að ég gat skriðið inn í stellið til að skrúfa) - og mikið var ég hamingjusöm yfir litlu skrúfvélinni minni! Af hverju í ósköpunum hef ég ekki eignast svona græju fyrr?!?
Hugsa til hryllings til allra þeirra bókahilla, skápa, osfrv. sem ég hef skrúfað saman með handaflinu einu saman - það hefur yfirleitt kostað blóð, svita og tár (án ýkja) og alltaf hef ég svarið þess dýran eið að gera þetta aldrei aftur!
En vopnuð skrúfvél var þetta næstum gaman... ég sagði næstum!
Krossiði fingur elskurnar - það bíður mín stór (ósamsettur)fataskápur þegar ég kem heim. Örverpið kemur í helgarheimsókn á morgun - og borgar fyrir gistingu með því að hjálpa mér að reisa skápferlíkið upp! Svo reikna ég með Tívólí, hafnarsiglingu og öðrum túristaskemmtunum um helgina - huggó bara!

knús og kreistur
Húsgagnasmiðja Baunarinnar

30. júlí 2008

FC Elva

Ég á mitt eigið fótboltafélag! Miðað við þessar markatölur held ég nú samt að það þyrfti að reka þjálfarann og kaupa nýja menn - er Ronaldo enn á markaðnum?

Áfram Elva!

29. júlí 2008

Framþróun

24. júlí 2008

Stelpuhelgi

Á maður að taka sig saman og skrifa alvöru bloggpóst? Það er bara voðalega lítið að frétta þessa dagana – ég vinn, villist reglulega í nýja hverfinu mínu, fer á kostum í “do-it-your-self” verkefnum á heimilinu (kemur sér vel að það er “bakkgír” á nýju bor/skrúfuvélinni minni), plotta ótímabært andlát strákskrattans á efri hæðinni (fólk sem heldur fyrir mér vöku á nóttunni er réttdræpt – svona er það bara!), velti fyrir mér hver það nú er sem ruslar svona til heima hjá mér (ekki getur það verið ég!), þríf skítinn eftir fyrri íbúa (frábær stefna hjá húsfélaginu að maður þurfi ekki að þrífa þegar maður flytur burt – nema maður sé náttúrulega að flytja inn...).
En – þegar klukkan er 15.30 er ég komin í helgarfrí og tek stefnuna á Vipperød, þar sem planið er að eyða helginni með stelpunum í algjörri afslöppun. Veðurspáin er svona:


Grill, rósavín í lítravís, Batman í bíó, pöbbarölt í Holbæk og 3 dagar af stelpuþvaðri – juminn hvað mig hlakkar til!




Góða helgi elskurnar!

21. júlí 2008

Lesið á milli línanna

Lauslega þýtt úr dönskum smáauglýsingum:

Bolabítur til sölu, borðar næstum allt og sérlega hrifin af börnum.
(og hvað fóðrar maður hann með ef maður er barnlaus?)

Tveggja manna tjald, notað einu sinni, fæst í skiptum fyrir barnavagn.
(Dýrkeypt að gleyma gúmmíinu um verslunarmannahelgi)

Vantar manneskju til að gæta hests, sem hvorki reykir né drekkur.
(veluppalinn hestur!)

Eftirlýsing: lítil hvít púðla. Fundarlaun. Geldur, eins og einn úr fjölskyldunni.
(það er einn í hverri fjölskyldu...)

Og að lokum ein úr einkamáladálkinum:

Ég er 27 ára karlmaður, því miður í fangelsi í augnablikinu. Alltaf heiðarlegur. Þú veist alltaf hvar þú hefur mig. (ég ætla ekki einu sinni að kommenta á þetta!)

10. júlí 2008

Reglurnar

Hinar gullnu reglur kvenna í leit að ást og hamingju!


1. Finndu þér mann sem fær þig til að hlæja
2. Finndu þér mann sem er með góða vinnu og kann að elda
3. Finndu þér mann sem er heiðarlegur
4. Finndu þér mann sem dekrar við þig og færir þér gjafir
5. Finndu þér mann sem er frábær elskhugi
6. Og að lokum – og þetta er AFAR MIKILVÆGT – sjáðu til þess að þessir 5 menn hitti aldrei hver annan!

9. júlí 2008

Góður!

8. júlí 2008

Burn after reading

Næsta mynd Cohen bræðra - Pitt og Clooney saman enn á ný - gleði gleði! (kemur nú samt ekki fyrr en í október hér í baunalandi - lööööng bið fyrir óþolinmóðar pöddur)

4. júlí 2008

Hann Tumi fer á fætur...

Hrökk upp við vekjaraklukkuna í morgun, var búin að lemja takkann á henni niður áður en ég eiginlega vaknaði. Skreið, haugúldinn og sveitt, út úr rúminu og undir sturtuna. Hálf hissa á því hvað ég var sybbin og þreytt, því ég hafði nú verið góð stelpa og farið snemma að sofa, en skellti skuldinni á að þetta eru búnar að vera 2 strembnar vikur og ekki skrýtið kannski að gamla hræið sé langþreytt orðin. Klæddi mig og gekk inní svefnherbergi til að opna gluggann aðeins og lofta út.
Undraðist yfir því að það var engu líkara en að sólin væri bara nýkominn upp – á þessum tíma árs kemur jú sólin upp um 4 leytið… Það læddist að mér illur grunur sem var staðfestur þegar ég leit á klukkuna : 5.00!!! Fíflinu mér hafði DREYMT að klukkan hringdi! Eina huggunin var að ég fattaði það þó áður en ég var komin út á stoppistöð, hefði getað orðið löng bið eftir vagninum! Skreið aftur upp í rúm og kúrði til klukkan 7 – en hefði nú heldur viljað fá órofinn nætursvefn!


30. júní 2008

Gleði - gleði!

Fyrir alla Joss Whedon aðdáendur : fara inn á http://www.drhorrible.com/ horfa á trailerinn - hugsa "What the F...?" - smella svo á linkinn "The Masterplan" og lesa yfirlýsinguna frá Joss....
Ég tel niður til 15. júlí!

26. júní 2008

Flutt!

Þórir kom og fór, og var svo elskulegur að hjálpa mér að mála í nýju íbúðinni á meðan hann var hér.
Ég er ægilega fegin – veit ekki hvort ég hefði hreinlega haft mig í þetta ein (og þó – ég hefði aldrei getað sætt mig við svefnherbergið eins og það var). Annars tókum við systkinin lífinu með ró enda bauð veðrið svosem ekki uppá mikla útivist. Við náðum þó skynditúr í dýragarðinn og smá ”sight-seeing” í Christianshavn og Kastellet. Hellti mér svo í að pakka niður um leið og bróðir var kominn út um dyrnar – gekk fljótt og vel fyrir sig enda 29. skiptið sem ég flyt eftir því sem mér reiknast til.
Gæti líklega pakkað niður í svefni…

Flutti svo í gær – með aðstoð jólasveinsins (nei ég er ekki að grínast - pabbi Pernille er atvinnujólasveinn), og góðra vinnufélaga. Nú liggur bara fyrir að gera báðar íbúðir hreinar (ég neita að drepa mig við hreingerningu á gömlu íbúðinni því hún var haugdrullug þegar ég fékk hana) og ganga berserksgang í IKEA svo ég geti tekið upp úr kössum, töskum og stórum svörtum ruslapokum sem liggja eins og hráviði um nýju íbúðina. Erfitt að pakka upp þegar maður hefur enga skápa eða hillur að setja hlutina í! Finn að mig klæjar í fingurnar að koma mér vel fyrir núna – hef meira og minna búið í pappakössum síðustu 5 ár og er orðin frekar þreytt á því. Svo nú stóla ég á að ég sé komin með framtíðarhúsnæði og kaupi mér húsgögn og jafnvel þvottavél líka! Það hefur sýna kosti að vera laus við allan meting þegar kemur að mublum og slíku – maður hefur efni á fleiri hlutum ef manni er alveg sama þótt það sé ekki það flottasta og dýrasta.

Eins og minni heppni er einni lagið passar akkúrat að það er verið að byggja stillasa við húsið og ég þarf að sætta mig við að húsið verður þakið iðnaðarmönnum allavega næstu 5-6 vikur. Í staðinn fæ ég helvíti flottar svalir þegar þetta er allt yfirstaðið – en mikið vildi ég óska að þeir hefðu bara verið búnir áður en ég flutti inn! Hlakka mikið til í ágúst að geta setið úti á fínu nýju svölunum með kaldann bjór eða rósavínsglas í góða veðrinu (ég er búin að ákveða að það verði gott veður í ágúst skiljiði). Hlakka jafnvel enn meira til að fá fataskáp! En áður en ég kaupi nokkurn skapaðan hlut þarf ég að fá gamla leigusalann til að borga mér trygginguna til baka – ég á svosem ekki von á neinu veseni, en maður veit jú aldrei fyrr en á reynir.

Og eftir vinnu ætlar mín að fá lánaðann bor og spreyta sig á að setja upp gardínur í svefnherberginu (í gærkvöld leysti ég málið með 1 strandhandklæði og nokkrum dagblöðum – ekki fögur sjón!).
Krossiði fingur fyrir mig elskurnar – þetta er ekki mín sterkasta hlið...

9. júní 2008

Mig vantar iðnaðarmann!

Fór og skoðaði nýju íbúðina í morgun og komst að því að mig sárvantar iðnaðarmann... eða tvo! Leigufélagið sem rekur íbúðirnar hefur þá frábæru stefnu að íbúarnir sjá að mestu sjálfir um viðhald og lagfæringar og 30 ár af handverksfötluðum aulum eins og mér hafa sett sín spor á vesalings íbúðina! Ekki batnar það ef ég fer að fikta við lagfæringar sjálf...
Það hjálpar heldur ekki að einföldustu hlutir eins og að setja upp ljós verða skyndilega með ólíkindum flóknir þegar: a) það er hvergi gert ráð fyrir loftljósum (danir virðast almennt ekki fatta þetta með að það geti verið praktískt að hafa ljósastæði í loftinu), b) þau fáu "ljósastæði" sem eru á veggjunum eru fullkomlega framandi fyrir lítinn íslending - í staðinn fyrir tvo víra sem bara skrúfast við samsvarandi víra í ljósinu eins og heima blasir við manni undarleg samskeyti sem ég hef ekki guðmund hvað á að gera við! Svo það er annað hvort að fjárfesta í milljón standlömpum eða leggjast á HandyDating.dk og sjá hvort ég get slegið tvær flugur í einu höggi!

6. júní 2008

Út vil ek!

Sólin skín og skín, helgin nálgast eins og óð fluga... og ég hef ekki hugmynd um hvernig ég ætla að eyða henni! Er það ekki sorglegt? Pernille er úti á sjó og allir aðrir í Jótlandi eða öðrum “útlöndum” og aldrei þessu vant er ég EKKI í stuði til að dunda mér ein. En lítið að gera við því... Kannski ég skelli mér bara alein til Svíþjóðar á morgun – Lundur kvað vera falleg borg...

1. júní 2008

Áfram ísland!

Úff það tók á að horfa á landsleikinn - og ekki hjálpaði að ég varð að horfa á þetta á sænsku stöðinni - svo þulirnir héldu náttúrulega með vitlausu liði ;o)
Púðinn sem ég hélt á verður líklega aldrei samur og nágranninn heldur líklega að það búi geðsjúklingur við hliðina á honum. Ég verð nú að segja að ég myndi hafa meiri áhyggjur af því ef hann hefði ekki vakið mig klukkan 8 í morgun með látum. Fíflið hafði greinilega boðið flokki af fullu fólki með heim úr bænum og ákveðið að sýna þeim nýja svefnherbergið sitt. Ég hefði orðið alveg klikkuð ef ég hefði ekki verið meira en útsofin - litla paddan sofnaði nebbilega klukkan 18.30 á laugardagskvöldið... Mér til afsökunar hafði þetta verið langur heitur dagur og ég ætlaði líka bara að leggja mig aðeins! Finnst ég samt hafa verið hálfsvikinn um eitt stykki laugardagskvöld - en á hinn bóginn hefur mig líklega vantað svefn eftir stressvikuna. Fór með Pernille út á Bakken sem er meira en 200 ára gamall lystigarður sem á djúpar rætur í hjörtum Kaupmannahafnarbúa. Voða gaman að sjá þetta loksins - og ekki skaðaði góða veðrið (í gær féll Danmerkurmet í sól - þessi maí var sá sólríkasti síðan mælingar hófust!) en ég verð nú samt að segja að í samanburði við Tívolí er Bakken meira miðaður við börn - en það er ókeypis inn og gamli trérússíbaninn er meira en nógu scarý fyrir mig! Sjáiði bara sjálf...



Nei ég fór ekki í hann - Pernille er jafnvel meiri gunga en ég ;o)

25. maí 2008

Hver, hvað, hvert?

Ég er að flytja til Herlev. Í næsta mánuði. Bara sísona.

Er tiltölulega róleg í augnablikinu - panikkastið kemur síðar...

23. maí 2008

Desperate housecats

18. maí 2008

Skapstór - ég?!?

Eins og þið glöggu manneskjur sjáið eflaust hefur síðan skipt um útlit. Þessi hamskipti eru búnar að vera á leiðinni lengi - en í staðin fyrir að vera ávöxtur langrar umhugsunar og fagurfræðilegra rannsókna er þetta nýja útlit afrakstur hreins bræðiskasts! Gamla skapalónið var að gera mig klikkaða því kóðinn var svo flókinn að það var næstum ómögulegt að breyta nokkru öðru en litunum. Og ég vil geta púslað með bloggið mitt eins og mér þóknast! Enda á bloggið örugglega eftir að fara í gegnum ört breytingaskeið á næstunni - þetta er bara bráðabirgðalausn. Einkennilegt að þrátt fyrir að helmingurinn af fataskápnum mínum sé í bláum tónum finnst mér ekki að blátt blogg passi mér... Voðalega getur maður verið skrýtinn!

Gullmolar...

Sjáiði bara hvað ég datt um á netinu...

9. maí 2008

Er ekki að koma helgi?

Eins og sum ykkar vita kannski er ég komin aftur heim frá menningarreisu til Amsterdam – ætlaði að vera löngu búin að blogga með laaaaanga ferðalýsingu en hef hreinlega ekki orkað það! Ferðin var góð – alltof góð – held ég hafi drukkið meiri bjór og borðað meiri mat á einni viku en það sem liðið var af árinu! Enda er búið að vera erfitt að takast á við hversdagsleikann aftur og ekki hjálpar að það er gargandi blíða hér i Baunalandi og hitinn á ekki sérlega vel við mig (þótt ég sé kuldaskræfa!). Ég hef verið svo dösuð að ég hef orðið að leggja mig eftir vinnu hvern einasta dag síðan ég kom heim.
Gamla konan alveg ónýt...
Hvítasunnuhelgin ætlar að vera heit og sólrík – stefnan er að smyrja sig inn í sólarvörn á morgun og fara með nesti og hvítvínsflösku í almenningsgarð eins og ekta hefðardömur. Af fyrri reynslu á ég þó alveg eins von á að þetta endi með árás maura/vespa/fyllirafta/einhverra annarra ógeðfeldra kvikinda – en maður heldur alltaf áfram að reyna :o)

Ætla að reyna að taka mig saman um helgina og leggja ferðamyndir á netið – sjáum til hvort það tekst!

Hafið það gott um Hvítasunnuna elskurnar

8. maí 2008

27. apríl 2008

Sunnudagsleti

Klukkan er 12.30 á sunnudegi og ég er búin að þrífa og versla - hvað í ósköpunum á ég að gera við restina af deginum?!? Ætti að druslast út að labba eða eitthvað en kláraði alla orkuna í þrifin. Myndi hringja í Pernille og lokka hana á kaffihús ef hún væri ekki í Prag (væri örugglega dauð úr öfund ef ég væri ekki sjálf að fara út eftir, öh, 2 daga! Kannski ég ætti að fara að pakka?!? Eða a.m.k. reyna að finna vegabréfið mitt... njah - ætli ég geymi það ekki fram á síðastu mínútu - eins og alltaf! Annars enda ég bara með að pakka alltof miklu niður ;o)

22. apríl 2008

Fyrir stelpurnar

Ein af uppáhalds Smack the Pony senunum mínum!

18. apríl 2008

OMG!

Áður en þið klikkið á linkinn Anna og Dóa - munið að það er bannað að myrða sendiboðann... og það eru smá Spooks spoilerar í fréttinni ef þið lesið of langt (held ég, veit ekki hvar þið eruð í seríunni - við erum að nálgast lok seríu 4 hér).
Dragið djúpt andann dömur - hér eru slæmu fréttirnar!

16. apríl 2008

Þetta verður sárt...



Þessi mynd er tilvalin sem sálfræðipróf - til að mæla hluttekningu (er það ekki íslenska orðið yfir "empathy"?).
Ég fæ verki í líkamsparta sem ég hef ekki - er það eðlilegt Dr. Dóa?

13. apríl 2008

Og aftur...

... er heil vika liðin og það kemur mér jafn mikið á óvart! Ég VERÐ að fara að fá mér líf! Það er ekki það að ég sé algjörlega drukknuð í vinnu, náði bæði að hitta Söruh og Pernille i vikunni en einhvernveginn þjóta dagarnir bara hjá og mér finnst þeir allir eins.
Náði reyndar einni nýrri upplifun í gær - átti mína fyrstu (og vonandi síðustu) ferð í "møntvaskeri" (hvað er íslenska orðið? "peningaþvottahús"? ) Þökk sé leigusalalufsunni minni hef ég ekki getað þvegið hér í rúmar 2 vikur og það verður víst fyrst um næstu helgi að það rætist úr því. Í millitíðinni hefur safnast upp illaþefjandi fjall af óhreinu taui og hér í lok vikunnar voru fatasamsettningarnar mínar orðnar æði frumlegar enda orðið úr litlu að velja í fataskápnum.

Ég veit að sum ykkar hefðu hlegið ykkur máttlaus ef þið hefðuð verið viðstödd þegar vesalings kona sem heyrði mig kvarta yfir þvottavélarleysi stakk upp á því að ég þvægi í höndunum! Viðstaddir sögðu eftirá að svipurinn sem hún fékk frá mér hefði verið ansi sérstakur. Enda hefði hún að mínu mati alveg eins getað stungið upp á því að ég gengi yfir glóandi kol! Þvo í höndunum - yeah right!
Ég hætti öllu slíku fyrir mörgum árum - ef ég álpast til að kaupa eitthvað sem á að handþvo fær það engu að síður að fjúka í vélina! Ef flíkin þolir ekki vélarþvott get ég alveg eins hent henni eftir notkun því ég veit að annars liggur hún á bottninum í þvottakörfunni það sem eftir er. Þá rogast ég nú heldur með 2 tonn af þvotti í möntvaskeriet...

6. apríl 2008

Hvert f'ór vikan?

Getur einhver sagt mér hvað varð af síðustu viku? Það var af renna upp fyrir mér að það er að koma mánudagur - AFTUR! Er búið að stytta vikuna? Er hún kannski líka sett á sumartíma? Ég er ekki að fatta þetta...
Líklegasta svarið er að vikan rauk hjá vegna þess að það er búið að vera klikkað að gera i vinnunni - ætla allavega að halda mig við þá skýringu í bili.
Verst finnst mér að helgin gufaði upp - eyddi svotil öllum deginum í gær í að finna mér þunna kápu fyrir vorið. Það var farið að renna ískyggilega upp fyrir mér að ég yrði í vondum málum þegar hitinn fer að skríða yfir 10 gráðurnar (sem hlýtur að fara að gerast bráðum). Eins og alltaf kom í ljós að búðirnar eru 4-6 vikum á undan veðrinu/veruleikanum og eru löngu búnar að losa sig við vorfötin og selja nú ekkert annað en ermalausa toppa og bikiní. Ég þurfti því að kemba yfirfullan miðbæinn í fleir tíma þar til ég loksins fann eitthvað sem uppfyllti þarfir mínar - en það hafðist. Finnst ég næstum eiga fálkaorðu skilið fyrir að hafa farið fram hjá Paradís-ís 2x án þess að bugast og leita huggunar í Ferrero Rocher-ísnum þeirra.
Hef grun um að allur apríl geti orðið álíka bilaður og síðasta vika svo það gæti orðið langt á milli blogga næstu vikur. Er ægilega fegin að ég hef eitthvað að hlakka til um mánaðarmótin!

1. apríl 2008

Gátan leyst?

Gat ekki annað en glott að þessari frétt á mbl.is - þarna er svarið kannski komið? Kannski maður ætti að reyna að teikna myndir handa drengjunum í staðinn?

Annars er helst að frétta að mér tókst að stöðva móður mína áður en hún bókaði hótelherbergi við Istedgade - muna það elskurnar mínar að ef þið finnið ódýrt hótel "í námunda við Tívólí" þýðir það oft: "hér leigjum við herbergi út í klukkutíma í senn - notaðir smokkar undir rúmum eru hluti af sérlegum sjarma þessa rótgróna hverfis..." Af öllum hverfum bæjarins er þetta það síðasta sem mamma manns ætti að sjá! Reyndar er Istedgade að verða "hip" - það eru farin að dúkka upp fín kaffihús og dýrar "design" búðir inn á milli hóruhúsanna og "leikfangabúðanna".
Ég hef nú ekki eytt miklum tíma þarna (sem kona einsömul á maður á hættu að fá afar athyglisverð atvinnutilboð á þessum slóðum) - en gat ekki annað en hlegið síðast þegar ég gekk fram á voða flotta (og dýra)skóbúð við hliðina á "leikfangabúð". Sá fyrir mér miðaldra pelsklædda frú sem ekki alveg gat ákveðið hvort hún ætti að blæða 10.000 kallinum á grænu stílettóskóna eða tuttugu tommu hrágúmmídelann í glugganum við hliðina... (decisions, decisions...)

31. mars 2008

Móðir allra mánudaga!

Er að eiga mánudag vítis! Eftir erfiðan dag í vinnunni neyddist ég til að hætta mér inn í stórmarkað á háannatíma (10. hringur helvítis). Þegar ég loksins kom þaðan út ákvað ég að taka strætó heim - og haldiði ekki að helv... strætóinn keyri á mig þar sem ég stend á gangstéttinni!?! Ég er ekki alveg að fatta hvernig ég slapp ómeidd (gætu nú alveg dúkkað upp nokkrir marblettir á morgun), en það var líklega spurning um 2-3 centimetra!
Ætla að vera hér uppí sófa undir sæng fram að miðnætti - tek ekki fleiri áhættur í dag! Hlýt að fara að verða búin með lífin mín níu...

29. mars 2008

Ummyndanir

Var að leika mér með Celebrity Morph og bara varð að leyfa ykkur að hlæja að þessu líka!

Eins og allir vita erum ég og Cameron Diaz jú næstum alveg eins...

MyHeritage: Family tree - Genealogy - Celebrity

Persónulegra finnst mér nú samt þetta hér betur heppnað:

MyHeritage: Celebrity Morph - Family tree search - Pedigree


Ég ákvað nú samt að hlífa ykkur við að sjá mig breytast í Keanu Reeves og til baka aftur - var ekki fagurt að sjá...

28. mars 2008

Er klukkan ekki að verða fjögur?

Löööööng vika loksins að verða búin og ég er að telja niður síðustu mínúturnar áður en ég sting af í helgarfrí.

Vildi bara nota tækifærið til að deila þessu með öllum þeim sem eru þreytt á að sjá myndir af fræga og fallega fólkinu!

Góða helgi gæskurnar!

24. mars 2008

Eftirfrísleti

Fríið að verða búið og ég er að kafna úr leti. Hef eiginlega ekki gert neitt annað en að sofa, éta, lesa og glápa á imbakassann allt fríið, enda veðrið verið ömurlegt og ekkert freistað manns að fara út fyrir dyr. Lét mig reyndar hafa það að skreiðast í bíó í gær - sá No country for old men og skemmti mér vel :o)
Ætti að vera að pakka niður fyrir starfsmannaferðina á morgun en nenni því bara ekki... ætti líka að druslast í sturtu en nenni því ekki heldur...
Er að kafna úr aumingjaskap!

En þessi aumingi á allavega miða á Chris Cornell 1. júlí!

21. mars 2008

Jarðsprengjukúrinn

18. mars 2008

Páskahúmor

17. mars 2008

Heilaklístur!

Sá myndina Music and lyrics á laugardaginn. Svosem fínasta afþreying - saklaus skemmtun sem fer inn um annað og útum hitt án þess að reyna á heilasellurnar. Ég vil þó vara við mögulegum aukaverkunum: lagið í fylgjandi vídeói hefur ekki stoppað í hausnum á mér í allan morgun!

14. mars 2008

Föstudagur

Loksins, loksins grillir í helgina og ég er enn á lífi...
Á stefnumót við þvottahúsið í kvöld (af einhverjum ástæðum eru vélarnar alltaf lausar á föstudagskvöldum) og svo á bara að fara snemma í ból. Það virkilega sorglega við þessa lýsingu er að ég er fullkomlega sátt við þetta! Mér til afsökunar vil ég þó benda á að ég er enn að jafna mig eftir veikindin og er stollt af að vera uppistandandi, hvað þá meira!
Á morgun stendur til að fara til Pernille, elda góðan mat og hafa það huggulegt (og kannski tekst mér jafnvel að draga hana með mér í bíó). Og ef veðurguðirnir miskuna sig yfir mig og skrúfa fyrir rigninguna ætla ég niður í grasagarðinn á sunnudaginn að skoða vorblómin sem springa út hvert af öðru núna þrátt fyrir spár um páskahret og næturfrost. Og svo er víst eitt stykki íbúð sem þarfnast þrifa...

Góða helgi elskurnar!

11. mars 2008

Upprisa

Fyrsti dagur í vinnu eftir flensu dauðans. Er enn upprétt, en hef svosem ekki gert margt gáfulegt í dag. Gengur vonandi betur á morgun. Gerði þau mistök að líta í spegil áðan og skil nú af hverju samstarfsfólk mitt er búið að vera að spyrja mig hvort ég sé viss um að mér sé batnað. Ég líkist einhverju sem drapst fyrir viku síðan. Gæti fengið hlutverk í hvaða zombie-mynd sem er.
Markmið þessarar viku – að lifa af, og ef mögulegt: fá eðlilegan húðlit aftur (grátt hefur aldrei klætt mig vel).

4. mars 2008

Árásarhneigð eða ást á villigötum?

úti er alltaf að snjóa...

Vetur konungur ætlar greinilega að kveðja með stíl - hér gengur á með éljum núna.
Annars átti ég góða helgi í Árósum þrátt fyrir stormaveður - mikið étið, drukkið og spjallað. Atonement fannst mér virkilega góð en er líklega ekki fyrir allra smekk.
Svo var Sarah hér á ferð í gær og ég fékk bestu pizzu sem ég hef fengið í danaveldi - en það hlýtur að hafa verið spaugilegt að heyra norðmann og íslending tala dönsku við ítalskan þjóninn :o)

Er búin að ákveða að vorið komi í næstu viku - sama hvað veðurfræðingar segja...

29. febrúar 2008

Meginlandið kallar!

Helgin að bresta á og ég á leið uppá meginland Evrópu - fyrsta ferðin mín "heim" til Árósa síðan ég flutti í óeirðaborgina ógurlegu. Hlakka til að slappa af í "sveitinni" í góðra vina hópi :o) Til stendur að fara og sjá Atonement í kvöld með stelpunum og svo síðbúið innflutningspartý/forskots-afmælispartý í piparsveinaíbúðinni hans Kaspers á laugardagskvöldið. Vona að þið eigið öll góða helgi - ég ætla allavega að njóta hennar í botn... (7,9,13)

23. febrúar 2008

Tíst

Enn ein sönnun þess að það þarf ekki mikið til að fá mig til að hlæja - ég horfði á þessa tvisvar og skellihló bæði skiptin! ALGJÖRT MÖST AÐ HAFA HLJÓÐIÐ Á!

21. febrúar 2008

Leiðindi

Hversu slæm þarf sjónvarpsdagskráin að vera til að maður íhugar í alvöru að horfa á American Top Model? VERULEGA SLÆM! Aaaargh - og ég sem hlakkaði til að liggja bara freðin fyrir framan imbakassann. Er með ágæta bók á náttborðinu en orka bara ekki að lesa núna. Nenni ekki að hanga á netinu því ég er búin að glápa á tölvuskjái í allan dag í vinnunni. Nenni ekki út því það rignir. Nenni ekki, nenni ekki, nenni ekki... Myndi fara bara í bólið núna ef ég nennti að verða svo andvaka í nótt...
Hvar er fast forward takkinn á þessu lífi?!?

18. febrúar 2008

Fylgdu hjartanu...

Ég hló eins og asni að þessari...

"¨Hér er planið, það er ekki beisið.."

Eins og svo oft áður fóru plön helgarinnar út um þúfur – ég hafði ætlað mér að dóla heimavið, þvo þvott, þrífa íbúð og fá hollan mat og góða hreyfingu. M.ö.o. vera fyrirmyndarpadda, svona til tilbreytingar. En nei... fyrst hringir Helle á föstudag og er óvænt komin í bæinn. Það endaði með allhörðum drykkjutúr sem aftur leiddi til jafnharðrar þynnku og meðfylgjandi ómennsku og sjálfsvorkun. Ég náði þó að þrífa í gær áður en Kasper birtist álíka óvænt – en það var líka það eina gáfulega sem ég gerði þessa helgi! En þetta var allt saman voða gaman – en ég þori heldur ekki að skoða bankareikninginn minn núna...

P.S.

Waynes World 2 Guðrún mín ...

15. febrúar 2008

Kvikmyndagetraun

Stel hugmyndinni hennar Dóu og set eina litla kvikmyndagetraun hér:

"The tiger I took care of with a can o' mace. But the shopkeeper and his son, that's a different story altogether. I had to beat them to death with their own shoes..."

Hvaða mynd? Og ekkert gúgl! Ég veit að flest ykkar hafa séð þessa mynd oftar en einu sinni...

Góða helgi!