Það er óskaplega erfitt þessa dagana að reikna út í hverju maður á að vera, því veðrið sveiflast á milli 2 og 12 gráða, sólar og ískalds vinds. Maður er því alltaf annað hvort of mikið eða of lítið klæddur og ég verð að viðurkenna að skapið er svolítið eftir því þessa dagana. Hins vegar er daginn farið að lengja og það er jú hið besta mál. Reyndar skifta danirnir yfir í sumartímann aðfarnótt næsta sunnudags og ég er alltaf cirka viku að jafna mig, en þá verður orðið bjart þart til ca. 8 á kvöldin! Gleði gleði (ef veðrið bara skánar svo maður nenni að vera úti í birtunni.
Annars voða lítið að frétta - Belgíutúrinn gekk vel þótt veðrið þar hafi heldur ekki verið alveg upp á sitt besta. Hjálpaði afmælisstelpunni að halda uppi orðstýr islendinga á næturlífinu - gömlu konurnar voru ekki dauðar úr öllum æðum.
Lenti svo í algjöru vinnubrjálæði þegar ég kom heim en það versta er gengið yfir núna.
Er svo bara að telja niður í páskafríið - ég tek 3 vikna frí og boy oh boy hvað ég ætla að njóta þess. Veit ekki enn hvort ég fer til Árósa yfir sjálfa páskana eða hvort ég verð bara heima og slappa algjörlega af - það kemur í ljós. Eftir páska liggur leiðin til Vínar og Bratislava :o)
Varð litið í spegill einn daginn og uppgötvaði að ég var svört frá toppi til táar - og það er svo algjörlega ekki ég að ég rauk út og keypti mér rauða handtösku - og þar með fullkomna afsökun fyrir að finna mér nýja slæðu líka því ég á enga rauða...
Og ætli ég finni ekki afsökun fyrir eyrnalokkum líka - er ekki mikið fyrir fatakaup þessa dagana en aukahlutina passar maður alltaf í ;o)
Anyway - bara að láta vita að ég er enn á lífi, vildi óska að ég hefði eitthvað spennandi að segja en ég þyrfti að eignast eitthvað líf fyrir utan vinnu til þess.
*andvarp* Ef þið hafið brilliant hugmyndir um hobby sem myndi henta mér en samt inniheldur annað fólk - endilega komið með þær í kommentin.