Ég er svo löt í dag að ég nenni varla að anda! Danir halda afmælisdaginn hennar Önnu minnar (og Kaspers míns) hátíðlegan svo ég er í fríi - sem er líklega eins gott því ég er haugur í dag. Það stendur poki með óhreinu taui úti við dyr og bíður eftir að komast í færi við þvottavél, en miðað við að hann hefur ekki færst úr stað síðustu 5 tíma má leiða að því líkum að hann verði að skríða út í þvottahús sjálfur...
Ætti að fara út og hreyfa mig eitthvað en það er kalt og skýjað og möguleiki á skúrum, svo kötturinn í mér neitar að setja loppu út fyrir dyr! Í staðinn er ég búin að hanga á Facebook, setja nýtt persónulegt met í Scrabble, hlusta á nýja músík og vaska pínulítið upp (bara pínulítið sko!) og drekka sem svarar til 18 espressóbolla af kaffi! Og ef ég gæti nú bara fundið og þaggað niður í litla leiðinda samviskubitinu sem tuðar einhversstaðar í undirmeðvitundinni væri ég bara alsæl með þetta allt saman. Ótrúlegt hvað maður getur gert sjálfri sér lífið leitt!
Annars lítið að frétta, á bara eina viku eftir í vinnunni fram að fríi. Sem verður reyndar ekki alveg jafn friðsælt og ég hefði kannski getað óskað mér, en það verður samt tilbreyting að vera ekki að vinna. Og svo styttist óðfluga í að ég komist á klakann og ég vona að veðurguðirnir brosi til mín loksins þegar ég kemst heim að sumarlagi. Síðustu 2 vinnudagarnir fara fram á Helsingjaeyri þar sem deildin mín á að halda einhverskonar "teymisdaga" - þar sem ég sit núna í markaðsdeildinni á ég alveg eins von á að þetta verði eitthvað hrikalega amerískt "nú ætlum við öll að kynnast hvort öðru og haldast í hendur" dæmi, en það kemur víst í ljós.
Góða helgi elskurnar - og munið að slappa af!