Og allt í einu eru jólin á næsta leiti og meira en mánuður síðan ég bloggaði síðast - uss hvað ég er léleg. Ég varð eldri í lok nóvember eins og vanalega - en ekkert vitrari, eins og vanalega...
Átti fína afmælishelgi með vinunum frá stúdentagarðinum, ósköp notalegt bara. Svo kom desember og það varð brjálað að gera í vinnunni því það voru hlutir sem þurftu að klárast fyrir jólafrí - en ég tek allavega frí!
Og reyndar er fríið byrjað, því ég er núna að drepa tímann áður en ég legg af stað til Leuven með næturlestinni. Verð að dröslast með stóru ferðatöskuna því jólagjafirnar (bæði mínar og Dóu) fylla hálfa tösku svo ég fíla mig eins og alvöru jólasvein(ku). Þetta er annað skiptið mitt með næturlestinni og í þetta skiptið er ég í "sitjandi" vagni (ekki með svefnbekk) með 5 öðrum. Guð hvað ég vona að það verði ekki hópur af unglingum eða barnafjölskylda!
Er ansi hrædd um að ég muni líta svona út í fyrramálið þegar ég næ til Leuven - en ætli það lagist ekki með smá lúr og svo helling af kaffi á eftir. Hef grun um að Dóa muni reyna að koma bjór í mig en ég er enn ekki búin að jafna mig eftir jólagleðina síðasta föstudag svo það verður ekki létt! En ætli henni takist það ekki á endanum - það væri þá ekki í fyrsta skiftið ;o) Gleðileg jól elskurnar!
Pöddulíf
21. desember 2011
15. nóvember 2011
Hmmm....
Og þá er ég loksins komin með innleggin og almáttugur hvað það er hrikalega óþægilegt að ganga með þau! Ímyndið ykkur golfkúlur undir ristinni og þá getið þið nokkurn vegin skilið hvernig það er. Stoðtækjafræðingurinn sagði að það myndi taka svona 2 vikur að venjast þessu - á meðan hökti ég um eins og áttræð kona sem hefur fengið aaaaaðeins of mikið sherrý með kvöldkaffinu. Er ekki laust við að það læðist að mér sá grunur að hér sé bara verið að lækna verkina með að draga athyglina frá þeim...
10. nóvember 2011
5. nóvember 2011
Hotel California
Er í hótelherbergi á Austurbrú - í sjálfskipaðri útlegð. Þorskhausinn sem er fluttur inn í íbúðina við hliðina á mér er nefnilega að halda partý. Eiginlega ætlaði ég að vera heima og þrauka þetta bara, en þegar ég kom heim um kl. 13 í dag var músíkin byrjuð nógu hátt til að það var engin leið að leiða það hjá sér. Um klukkan 15 var ég tilbúin að stinga göt á hljóðhimnurnar mínar með gaffli til að losna við að hlusta á þetta leiðinda glamur sem þau kalla tónlist. Og þar sem þau voru greinilega samt bara að taka til og gera klárt fyrir partýið gat ég reiknað út að hávaðinn myndi margfaldast eftir sem liði á kvöldið og ég myndi enda með að taka kjötsaxið mitt með yfir og kljúfa manninn í herðar niður... Svo ég fór á netið, bókaði mér hótelherbergi, henti tannbursta náttfötum, bók og Ása mínum niður í tösku (passaði upp á að það væri nettenging í herberginu að sjálfsögðu)og stakk af. Ég sleppi því frekar bara að kaupa mér nýja skó - geðheilsan gengur fyrir! Og svo mun ég vonast eftir að fíflið verði svo fullur að hann detti út af svölunum í nótt. Það er engin lyfta og dyrnar þröngar svo íbúðin hans er ekki hjólastólavæn ;o)
Myndalegi útlendingurinn í móttökunni var ægilega hrifin af nafninu mínu og fannst þetta eins og tekið út úr Tolkien bók. Ef ég væri týpan sem flörtaði væri ég nú á barnum að stytta honum stundir í vinnunni - en í staðin er ég komin í náttfötin og er að gera mig klára í að lesa aðeins áður en ég fer að sofa bara. Sorglegt en satt!
Góða nótt elskurnar og verið tillitsöm við nágrannana - þeir gætu átt kjötsax og ekki haft efni á hótelherbergi...
Myndalegi útlendingurinn í móttökunni var ægilega hrifin af nafninu mínu og fannst þetta eins og tekið út úr Tolkien bók. Ef ég væri týpan sem flörtaði væri ég nú á barnum að stytta honum stundir í vinnunni - en í staðin er ég komin í náttfötin og er að gera mig klára í að lesa aðeins áður en ég fer að sofa bara. Sorglegt en satt!
Góða nótt elskurnar og verið tillitsöm við nágrannana - þeir gætu átt kjötsax og ekki haft efni á hótelherbergi...
26. október 2011
Guð hvað ég skil hann
Bara smá vídeó í tilefni af því að ég er að fara í aðhald - ég sá sjálfa mig svoooo í litla gríslíngnum hér
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
