27. apríl 2007

The horse...

útgáfa snillingsins Dave Barry á muninum á körlum og konum

25. apríl 2007

flutningar nálgast

3 dagar fram að flutningum og ég er að fara á límingunum
100.000 hlutir sem þurfa að nást á næstu 2 dögum
100.000 hlutir sem geta farið úrskeiðis
Ég veit ég sagði það síðast líka, en í þetta skiptið er mér alvara: næst þegar ég flyt brenni ég heldur allt draslið!

Aaaaargh!

19. apríl 2007

chicken ghoststory

18. apríl 2007

súkkulaði

Enginn til að kyssa? Skiptir engu máli - ef maður bara á súkkulaði...


16. apríl 2007

Slepp við að tjalda

Jæja elskurnar
Þá er húsnæðiskrísan leyst - komin með íbúð í Köben! Hún liggur reyndar í útjaðri alheimsins, næstum eins og að búa í Grafarholti í RVK. Munurinn er svo bara að strætókerfi Köben er öllu öflugra en SVR - gengur strætó frá húsinu og niður í miðbæ á nokkurra mínútna fresti alla daga, svo ætli maður lifi ekki af. Þetta er líka rólegt og notalegt hverfi, sem er fínt fyrir mig til að byrja með. Strætóinn heim til mín keyrir gegnum Nørrebro (þar sem óeyrðirnar eru búnar að vera útaf Ungdómshúsinu) og ég verð að segja að ég held að ég hefði fengið svolítið kúltúrsjokk ef ég hefði t.d. ætlað að búa í því kverfi. En þetta er tímabundin leiga til 1. des. svo nú hef ég 7 mánuði til að komast að því hvort/hvernig mér líkar vinnan og stórborgin og svo hef ég meiri yfirsýn og tíma til að velja mér bústað næst. Aukabónus er svo að ég bý á 4. hæð svo ég sé fram á fagurskapaðan afturenda eftir nokkra mánuði ;o) Maður verður jú að sjá björtu hliðarnar...

Nýtt kerfi...

Þegar bókin leysti pergamentrúllurnar af hólmi... Bara snilld!


12. apríl 2007

grrr..

Ég er ekki að eiga góða viku. Haldiði ekki að það hafi loksins dúkkað upp umslag frá skólanum, hélt eitt augnablik að þarna væri loksins komið skírteinið sem ég er búin að vera að bíða eftir í röskar 6 vikur, en nei... Þetta var form sem ég þurfti að fylla út og senda inn svo ég gæti fengið skírteinið mitt. Það sem virkilega gerði mig reiða var að a)ef allir þurfa að fylla út svona form - er þá ekki eðlilegt að maður fái það í hendurnar þegar maður er búin að skila eða í það minnsta fá að vita að maður á að skila svona formi? og b) Allar upplýsingarnar sem ég var beðin um að fylla út (í handskrift) er nákvæmlega þessi skrifstofa með - og það í rafrænu formi. Danir eru ágætis fólk og allt það - en skrifræðið, og þá sérstaklega skrifræðið í stofnunum eins og háskólanum, er hreint með ólíkindum. Eini munurinn á Dönum og Ítölum þegar kemur að skilvirkni er að það er þó hægt að múta Ítölunum til að fá hlutina til að ganga hraðar fyrir sig. Danirnir virðast bara synda hjálparlausir í sjálfsköpuðu pappírsvíti. Grr...
Og íbúðarleitin er ekki að bæta skapið, þetta er eins og að reyna að finna hina frægu nál í heystakknum. Er núna búin að eyða heilmiklum tíma og orku í að redda mér fari og gistingu í köben til að skoða íbúð - en nú næ ég ekki í konubeygluna sem á íbúðina þrátt fyrir að við hefðum samið um að ég myndi hringja í dag til að ákveða tímann. Svo nú veit ég ekki hvort ég hef staðið í öllu þessu til einskis. Meira grrr... Ég er þreytt og stressuð og dauðleið á þessu veseni öllu - langar mest að slá þessu öllu upp í kæruleysi og stinga af á sólarströnd. Vill einhver með?

5. apríl 2007

páskafrí

Fyrsti dagur í páskafríi.
Vakna útsofin, teygi letilega úr mér í rúminu og fyllist gleði yfir tilhugsuninni um að liggja í leti restina af deginum. Horfi á sólargeislana streyma inn um gluggann og lýsa upp ruslið og rykið sem fyllir herbergið... fuck! Það versta við vorið er að birtan neyðir mann til að horfast í augu við hluti sem maður hefur (stundum bókstaflega) sópað undir mottuna - og það er annað hvort að hysja upp um sig sokkabuxurnar og gera hreint fyrir sínum dyrum eða kaupa virkilega dökk sólgleraugu og halda áfram að lifa í afneitun. Ég valdi fyrri kostinn - og tók 5 tíma hreingerningatörn. Ekki alveg það sem ég hafði planað í páskafríinu - en ég verð að segja að það er óskaplega næs að geta núna hreiðrað um sig fyrir framan imbann með geislabauginn hangandi yfir hausnum! Ef ég rannsakaði afkima sálarinnar gæti ég eflaust fundið fleiri hluti sem ég hef vanrækt og ætti að nota tækifærið til að gera eitthvað í, en það eru takmörk fyrir því hversu skynsöm og ábyrgðarfull ég get verið á einum degi - og ég tel mig hafa uppfyllt minn skamt í dag takk!
Sambýlingurinn er í einhverri fjölskylduveislu í myrkasta suðurjótlandi - svo ég hef (skínandi hreina) höllina fyrir mig (og imbakassann) - það eina sem mig vantar er súkkulaðistykki og þá verður lífið ekki mikið betra. Stundum er það kostur að vera einföld sál ;o) Góða Páska elskurnar!