29. ágúst 2005

Upp á himinháum hól

Hejsa!

Þá er Århus Festuge brostin á - ekki það að ég hafi tíma til að taka þátt í gleðinni að neinu ráði. Tók samt listagallerý-rúnt með Söruh á laugardaginn og fór svo og horfði á Johnny Deluxe á Dómkirkjutorginu um kvöldið og svo á kaffihús. Bara rólegt og notalegt. Prílaði svo upp á Himmelbjerget á sunnudaginn og litaðist um í Silkeborg. Hey - ég er bara búin að vera þrældugleg um helgina, svona þegar ég hugsa mig um! En nú er það bara vinna og vinna og vinna fram á sunnudag... See yah later!

25. ágúst 2005

Fatafrík

Ég er endanlega farin yfir um! Ég missti gjörsamlega stjórn á mér í dag - og nú er ég í hálfgerðu sjokki yfir þessu öllu saman. Og áður en þið farið að sjá fyrir ykkur limlestingar og annað slíkt, vil ég bara taka fram að eina fórnarlambið æðiskastsins var Visakortið mitt sem situr núna á borðinu og smá rýkur úr því. Ég gerði sumsé þau mistök að fara á búðarráp með Söruh - og fékk kaupæðiskast. Keypti kápu, peysu, tvo toppa og pils (já PILS) og há stígvél (nákvæmlega þau sömu og Dóa keypti hér síðasta haust). Veit ekki alveg hvað skeði - ætlaði bara að kaupa toppana! Eftir nokkra naflaskoðun er niðurstaðan sú að ég er ekki alveg að höndla það að búðirnar eru fullar af flottum fötum og ÉG PASSA Í ÞAU! Þetta er bara alveg nýtt fyrir mér - og ég bara stenst ekki mátið, held það sitji sú hugsun einhversstaðar aftarlega í heilanum að ég verði að nota tækifærið meðan það varir, þetta sé kannski eina skiptið á æfinni sem ég get klætt mig eftir tískunni. Kannski spilar það líka inní að ég er búin að vera með ljótuna undanfarið og það hjálpar alltaf að kaupa eitthvað fallegt - en fyrr má nú rota en dauðrota! Það er eins gott að ég vinni eins og brjálæðingur næstu vikurnar, til að borga Visareikninginn... En mér til málsbóta var þetta allt á rétt undir 10.000 kall, ekki svo hryllilegt - er það nokkuð? (Og þið ættuð bara að sjá mig í þeim ;o) Svona "naughty librarian" stíll yfir kellu.. tíhí)

21. ágúst 2005

betra seint en aldrei

Sælar elskurnar,
já það er orðið langt síðan síðast... sorrý! Lofa að fara að taka mig saman í andlitinu og blogga allavega einu sinni í viku framvegis. Verður reyndar afskaplega stutt blogg að þessu sinni, sökum tímaskorts. Svo... í fréttum er þetta helst: búin að fá vinnu og er bara að vinna eins og vitfirrt manneskja þessa dagana, búin að skila prófverkefni og bíð með öndina í hálsinum eftir að vita hvort ég stóðst prófið eða ei, hitti Dóu í Köben (myndir hér), fór á afmæli barsins (skulum ekki ræða það meir)og er núna bara farin að hlakka til að byrja í skólanum eftir 2 vikur. Þangað til er það bara vinna, vinna og meiri vinna.
Knús og kossar frá stresspöddunni.