24. nóvember 2009
13. nóvember 2009
Allt sem kemur konum til...
Búðin Fleggard sem liggur rétt handan við þýsku landamærin er nú komin með auglýsingarherferð sérmiðaða á konur - sem innihaldi allt sem komi konum til...
Dæmiði sjálfar dömur ;o)
Dæmiði sjálfar dömur ;o)
7. nóvember 2009
Ég vil heldur sofa ein takk!
Hmmm... ég hef víst vanrækt bloggið síðustu vikur. Það er svosem ekkert sérstakt að frétta af mér - eyddi síðustu helgi á málningarnámskeiði en var ekkert voðalega ánægð með kennarann (sem hafði gríðarlegt sjálfsálit en enga kennsluhæfileika). En það var svosem voða huggulegt að dunda sér með penslana heila helgi. Halloween nóttina var ég rétt að sofna þegar mér varð á að opna augun aðeins og tók eftir dökkum bletti á vegnum rétt fyrir framan nefið á mér sem ég var nokkuð vis um að ekki hafði verið þar áður. Mín útúr rúminu og kveikir á lampa og þarna situr könguló á stærði við íslenskan 100 kall. Hún var send út sjóleiðis með það sama en ég verð að segja að það var erfitt að sofna á eftir...
Reikna svosem með að það geti orðið erfitt að sofna í kvöld líka því ég ætla að horfa á hryllingsmyndina The Mist sem á að vera nokkuð svo sjaldgæft sem góð kvikmynd gerð eftir Stephen King bók. Vildi óska að ég hefði munað eftir að kaupa jólabjór, en ég á enn við sama gamla áfengisvandamálið að stríða (gleymi að kaupa áfengi). *andvarp*

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)