22. janúar 2007

mánudagur

Mánudagur - veturinn loksins kominn til Árósa og ég er ekki að nenna að vera í vinnunni...

Í því tilefni fáið þið lista yfir 15 bestu afsakanir (raunverulegar) fyrir að mæta ekki í vinnuna - valdar af starfsmannastjórum í USA

1. Employee was poisoned by his mother-in-law.

2. A buffalo escaped from the game reserve and kept charging the employee every time she tried to go to her car from her house.

3. Employee was feeling all the symptoms of his expecting wife.

4. Employee called from his cell phone, saying that he was accidentally locked in a restroom stall and that no one was around to let him out.

5. Employee broke his leg snowboarding off his roof while drunk.

6. Employee's wife said he couldn't come into work because he had a lot of chores to do around the house.

7. One of the walls in the employee's home fell off the night before.

8. Employee's mother was in jail.

9. A skunk got into the employee's house and sprayed all of his uniforms.

10. Employee had a bad case of hiccups.

11. Employee blew his nose so hard, his back went out.

12. Employee's horses got loose and were running down the highway.

13. Employee was hit by a bus while walking.

14. Employee's dog swallowed her bus pass.

15. Employee was sad.

Er að spá í að prófa þessa með Buffalóinn á morgun!

13. janúar 2007

Einstein

Einstein fer á útsölu...

Snillingurinn ég ákvað að stytta mér leið gegnum verslunarmiðstöð um daginn (til að forðast rigningu). Var búin að gleyma útsölunum og brjálæðinu sem því fylgir, en lenti mitt inn í hóp af innkaupaóðu kvenfólki og barst hjálparlaus með straumnum inn í Vera Moda. Rak augun í hvíta peysu og, smituð af útsölubrjálæðinu sem lá í loftinu ákvað ég að skella mér á hana þar sem hún kostaði bara 600 kall. Reyfarakaup fannst mér og var afar stollt af þessari snjöllu fjárfestingu. Fór svo í peysuna í fyrsta skipti í dag og það liðu c.a. 10 sekúndur þar til ég reif hana af mér aftur - þegar ég kíki svo á miðann í hálsmálinu stendur 89% kasmír og 11% mohair = ull blönduð með ... meiri ull. Og hver er með brjálað ullarofnæmi? Svo snillingurinn þarf nú að fjárfesta í þykkum rúllukragabol ef hún ætlar að nota þessa peysu - og þarf sem lífið er óréttlátt mun rúllukragabolurinn líklega kosta meira en peysan! Svona fer þegar Einstein reynir að spara...

12. janúar 2007

lífsmark

Bara smá lífsmark í framhjáhlaupum - ekkert að frétta annað en vinna og vinna og vinna... Árósarbúar eru umvörpum að leggjast í flensu, hef sloppið hingað til en líst nú ekki vel á stöðuna þegar það liggur eitt fárveikt stykki í íbúðinni minni. Ég NENNI ekki að verða lasin - og sérstaklega ekki af einhverri ömurlegri kvefpest! Svo nú er að sjá hvort ég slepp af þrjósku einni saman.

Sá the Prestige um helgina - og var bara ánægð, fínasta afþreying og ekki skaðaði Hugh...

Engin plön fyrir helgina enda fæ ég ekki útborgað fyrr en á mánudag og á ekki bót fyrir boruna á mér - ætli ég reyni ekki að vera skynsöm og nota tímann í að skrifa atvinnuumsóknir? Tíminn er jú að líða skelfilega hratt og tilhugsunin um að standa uppi atvinnu- og tekjulaus ekki heillandi. ARGH - hvað ég væri bara til í að liggja á einhverri pálmaströnd næstu 3-4 vikur og bara slappa af í áhyggjuleysi...

4. janúar 2007

Gleðilegt nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár elskurnar!



er að stelast til að blogga - alein í vinnunni... Lappi minn er nefnilega veikur (var nægilega tillitsamur til að bíða eftir að ég var búin með ritgerðina áður en hann gafst upp), svo það verður ekki bloggað að heiman á næstunni... Þarf að fara með hann í viðgerð og síðast þegar það gerðist liðu 8 vikur þar til ég fékk hann aftur! :o(

En nóg um það - jólafrí gekk fínt, leti og át bara - enda ber ég þess merki... hvernig getur maður fitnað svona hratt?!? Þetta er engan vegin sanngjarnt!

Aarhus Universitet ákvað svo að bjarga mér frá janúarútsölunum með að borga mér ekki laun fyrr en 15. janúar - ef reynsla fyrri ára endurtekur sig verður ekkert eftir á útsölunum þá nema furðuleg föt í stærð XS. Hrmpf! Og í millitíðinni verður lifað á rúgbrauði og hafragraut... kosturinn við það er náttúrulega að eitthvað af jólamörnum gæti mögulega bráðnað. Segiði svo að ég sjái ekki björtu hliðarnar.

Náði að fara tvisvar í bíó um jólin - sá Ilminn og Happy Feet. Sú fyrri var góð - fylgdi bókinni næstum fullkomlega, en ekki alltaf "þægileg" að horfa á - bókin var jú heldur ekki "þægileg" að lesa... Varð hins vegar fyrir vonbrigðum með Happy Feet - flott grafík en það vantaði bara eitthvað í söguna... eða persónusköpunina ... eða eitthvað. Ætla svo á the Prestige um leið og ég fæ pening! Er að bæta upp fyrir lélega bíósókn síðustu 2 ár.

En vinnan kallar - mun reyna að uppfæra allavega einu sinni í viku - en það fer eitthvað eftir tíma og tölvuaðgengi er ég hrædd um. Ég vona að þið hafið öll komið heilu og höldnu gegnum áramótafagnaðinn og að nýja árið sé að fara vel með ykkur.