28. nóvember 2007

Ekki ellidauð

...sama hvað kjaftasögurnar segja! Bara enn klikkað að gera á öllum vígstöðvum. Afmælishelgi var fín en tók á - mikið kjaftað, étið, drukkið og bakað (jólasmákökurnar maður!). Svo eru fréttir af húsnæðismálum því ég er líklega komin með nýja íbúð og nú standa fyrir dyrum flutningar eftir rúmar 2 vikur! Eins gott að ég náði aldrei að pakka almennilega upp - ætti ekki að vera mikið mál að pakka niður... Á svo bara eftir að finna út hvernig ég ætla að redda þessu öllu fjárhagslega en stóla á að þetta reddist - tek PollýÖnnuna á þetta bara!
Svo er farið að styttast ískyggilega í jólin - tek nett stressköst yfir því af og til, svona innámilli flutninga/fjármála/vinnustresskasta. Sé því ekki fram á að blogga mikið á næstunni - hef hreinlega ekki tíma og orku!

krossið fingur fyrir mig gæskurnar - ég þarf á allri góðri orku að halda þessa dagana.

21. nóvember 2007

Brjálað að gera!

... á öllum vígstöðvum! Af hverju kemur félagslífið mitt alltaf í flóðbylgjum? Löng tímabil þar sem er EKKERT að ske og svo allt í einu vika sem er fullbókuð! Ekki það að ég er afskaplega þakklát fyrir að eiga þó eitthvað sem heitir félagslíf, en juminn hvað það væri nú gott ef það kæmi aðeins jafnara...

19. nóvember 2007

Meiri Sweeney Todd

Sweeney Todd á MySpace - viðtal við Johnny, bakgrunnar og fleira!

Og ég þarf að bíða þar til í febrúar eftir að andsk... baunarnir sýni myndina!!!

17. nóvember 2007

Prik

Menn fá prik fyrir að færa mér blóm og jafnvel fleiri fyrir súkkulaði - en maður sem færir mér BBC leiklestur af 5 Terry Pratchett bókum fær fullt hús stiga! Og jafnvel bónus stig ofaní...

16. nóvember 2007

Lifted

Enn ein snilldin frá Pixar!


Pixar - Lifted - More free videos are here

15. nóvember 2007

Gleðifréttir fyrir alvöru konur!

Amerískir vísindamenn telja sig hafa sannað að alvöru konur (þ.e.a.s. konur með mjúkar línur og hold á réttum stöðum) séu ekki bara greindari en þær mjóu, heldur líka líklegri til að eignast greind börn!

Það er nú hægt að setja einhver spurningarmerki við rannsóknaraðferðirnar þeirra - en ég ætla að velja að taka þetta sem heilagann sannleik!

Hér er fréttin á BBC

14. nóvember 2007

Martröð bíleiganda!

13. nóvember 2007

Spammarar eru réttdræpir

Eitt af því sem ég hata mest í lífinu er spampóstur – sérstaklega sá spampóstur sem kemur í formi hysteríska keðjubréfa sem eru vísvitandi samin til að hræða fólk í að senda þá áfram til allra vina og vandamanna. Ef ég nokkurntíma kæmi klónum í upphaflegu höfunda þessara bréfa yrðu viðkomandi afklæddir, makaðir í hunang og svo krossfesstir með höfuðið niður á meðan eldmaurar ætu þá lifandi. Bara svona til að byrja með. Akkúrat núna eru íslendingar á listanum – fíflið eða fíflin sem eru að dunda sér við að þýða hvern gamla “klassíska” gabb-póstinn á fætur öðrum yfir á íslensku og landinn er greinilega að éta þetta hrátt. Ég er búin að fá 4 mismunandi svona pósta frá 4 mismunandi manneskjum á síðustu dögum – nú síðast í morgun frá mömmu minni sem var yfir sig áhyggjufull yfir að ég fengi nú “life is beautiful” vírusinn (sem ekki er til) af því ég nota yahoo mail. Ég hef líka fengið viðvörun um að MSN ætli að fara að rukka (sá er búin að ganga á netinu síðan 2001) og að ákveðnir varalitir séu fullir af blýi (líka búin að væflast um netið í mörg ) og svo framvegis... Ég tek fram að hvorki mamma mín, né vinir mínir sem senda þetta áfram í góðri trú eru á dauðalistanum – það eru þeir sem vísvitandi nýta sér trúgirni fólks sem ég er reið við. Hins vegar vil ég nota tækifærið og biðja lesendur mína um 2 hluti. Í fyrsta lagi að tortryggja allan tölvupóst sem rekur hræðsluáróður og biður þig um að senda áfram til allra sem þú þekkir – í 99.9 % tilfella er þetta tómt kjaftæði og illgirnin ein (það er ekki bara verið að ljúga að þér og hræða þig/sjokkera þig að ástæðulausu – það er verið að biðja þig um bera lygina áfram í fólk sem þér þykir vænt um). Í öðru lagi – þótt þér finnist pósturinn trúverðugur – notaðu 5 mínútur til að tékka á netinu hvort þetta sé gabb áður en þú sendir póstinn áfram. Síður eins og Hoax-slayer, Urban Legends ásamt síðum eins og Symantec og McAfee eru góðir staðir til að tékka – bara setja inn nokkur aðal orðin (á ensku) úr bréfinu í leitarboxin á síðunum og sjá hvað gerist. Eða hreinlega googla þau ásamt orðinu hoax – það virkar yfirleitt vel fyrir mig. Ef maður getur ekki ellt þessa bjálfa uppi og lamið þá (það ætti nú reyndar að vera hægt að rekja slóðina á íslenska upphafsmanninn – ég myndi gefa mikið fyrir 10 mínútur ein með honum/henni) getur maður allavega látið vera að leyfa þeim að takast ætlunarverkið (að dreifa þessu rusli eins mikið og mögulegt). Færið mér höfuð spammarans... Sorrý - en ég VARÐ að fá þetta út úr sýsteminu!

12. nóvember 2007

Post-helgar trauma

Átti friðsæla helgi með heimilsstörfunum – sólin tók uppá því að skína inn um gluggana og allt í einu glitraði á kóngulóarvefi og ryk hér og þar sem ég hreinlega hafði ekki tekið eftir! Ekkert að gera nema þrusa Queens of the Stone Age í græjurnar, setja upp fínu tvílitu gúmmíhanskana og herða sig upp í að fjarlægja Shelob gömlu af skápnum svo ég kæmist í ryksuguna til að fjarlægja afkomendur hennar. Ég er samt viss um að einhverjar af áttfættu vinkonum mínum náðu að fela sig – ef ég þekki þær rétt verða þær farnar að gera sig heimakomnar áður en þessi vika er búin! Ekki veit ég á hverju þær lifa blessaðar – sé svotil aldrei flugur í íbúðinni (eftirá að hyggja er það kannski þessum 200 sambýlingum mínum að þakka?).
Annars bara leti og sjónvarpsgláp – það var greinilega einhver afar síðbúin Halloween stemning í danskinum því allar stöðvar kepptust við að sýna hrylling um helgina – gleði, gleði! Náði nokkrum klassískerum (Cat people, Alien og Aliens (2) og The Company of Wolves (sem ég sofnaði yfir – afar sýrð mynd)). Sem betur fer var Arachnophobia ekki ein af þeim – á nógu erfitt með fóbíuna mína eins og er. Er þó þakklát fyrir að mínir sambýlingar eru ekki alveg jafn líflegir og sambýlingarnir hennar Dóu - alltaf brjálað stuð þegar maður kveikir ljósin í Uilinstede!

9. nóvember 2007

Í augnablikinu eru allar línur uppteknar...

Heilinn minn pakkaði saman áðan og fór í helgarfrí – og skildi mig bara eftir! Ekki svo gott þegar það er einn og hálfur tími eftir af vinnunni. Ég er að reyna að einbeita mér – en það eina sem ég finn í hausnum á mér er svona lyftumúsík! Svona hræðileg dósamúsík eins og sálarlausar manneskjur velja að setja á biðlínur síma í fyrirtækjum... Fyrir tíma gemsans var ég oft í bráðri lífshættu ef ég var sett á bið því 10 mínútur af Kenny G var nóg til að fá mig til að reyna að hengja mig í símasnúrunni! Og núna er ég að yfirvega að saga af mér hausinn til að sleppa. Kannski ég ætti bara að fara að koma mér heim – eða allavega leita skjóls með kaffibolla í reykherberginu. Klukkan er jú alveg að verða þrjú...

8. nóvember 2007

Spurning dagsins

Hversu gáfulegt er að setja upp skilti sem á stendur "búðarþjófnaði verður harðlega refsað" ef maður selur S&M græjur?

7. nóvember 2007

Skil hann svo vel...

Smellið á myndina til að fá hana stærri

6. nóvember 2007

Escape from Amsterdam

Þá er maður komin til baka í gráan hversdagsleikann og situr með búnka af vinnu sem maður nennir eiginlega ekki að díla við... Voða gaman í Amsterdam – mikið labbað, mikið talað og mikið öl drukkið. Held ég hafi náð að bæta ærlega fyrir það hvað ég hef verið hrikalega þæg og góð undanfarna mánuði – enda var held ég komin tími til! Á eftir að sjá hvort eitthvað af myndunum lukkuðust – set þá link í þær seinna. Þið verðið bara að nota ímyndunaraflið þangað til ;o)