27. janúar 2010

Nenni þessu ekki lengur

Neibb - bara nenni ekki að hafa vetur meira. Sem gamall Akureyringur get ég bara ekki sætt mig við að öll umferð lamist ef það falla nokkrir sentimetrar af snjó og ég er þreytt á kuldabolanum sem hefur vaðið uppi hér undanfarnar vikur. Þetta er víst kaldasti janúar í 23 ár. Veeeiiii... hrmph!

Jú - og það hefur loksins verið svolítið gaman að vera Íslendingur síðan um helgina. Litla krumpaða þjóðarstolltið lét kræla á sér og ég hef brosað blítt framan í danina sem eru enn að jafna sig.


Annars helst að frétta að það eru planlögð stórinkaup á morgun - nánar tiltekið á að versla nýjan 37" flatskjá. Verða þokkaleg viðbrigði frá 14" túbusjónvarpinu mínu - er með myndina Public Enemies tilbúna til að vígja nýja skjáinn.
Þ.e.a.s. ef ég næ ekki heim nógu snemma til að sjá seinni hálfleikinn á morgun! Danir eru innilega að vona að Norðmennirnir vinni okkur - það er ekki laust við að þeim hrjósi hugur við að þurfa kannski að eiga aftur við okkur í undanúrslitum :o) Greyin...
Þeir unnu Norðmenn á síðustu sekúndunum og ef ykkur langar að læra að bölva á norsku er hreinlega dásamlegt að lesa þessa norsku blogglýsingu á leiknum Ég vona að við gerum greyið jafnbrjálaðan á morgun.
Áfram Ísland!

17. janúar 2010

Í hýði

Ég er búin að liggja í hýði alla helgina - það er búið að vera kalt og grátt og ég hef bara ekki fundið neitt sem er svo mikilvægt að það sé þess virði að fara út í þetta. Ég get þolað kalt eða grátt - en ekki bæði saman!
Annars er svosem ekki mikið að frétta - bara vinna og vinna og vinna...
Vinnufélögunum var mikið skemmt þegar þeir urðu vitni að samtali (reyndar bara minni hlið af samtalinu) við kúnna sem ekki einu sinni vissi hvað vafrari er en ætlar að fara að stunda flóknar leitir og flutning af gögnum á milli kerfa. Kemur það ykkur á óvart að ég neitaði að gefa honum beina símanúmerið mitt? Krossa fingur og vona að næst þegar hann hringir verði það ekki á fimmtudegi (þegar ég á notendaþjónustuvagt).
Svo hef ég verið að reyna að taka mig saman og breyta aðeins hér heima - keypti yfirbreiðslu á litla snjáða sófann minn, en mér til mikillar undrunar finnst mér sófinn eiginlega passa verra inn í stofuna þegar hann er svartur en þegar hann var túrkísblár. Kannski ég ætti frekar að finna aðra yfirbreiðslu í lit bara - eða bíða og sjá hvort ég venst þessu svarta. Og jú - ég fór og keypti mér vínhillu því það rúlluðu um vínflöskur í eldhússkápunum og þær voru að þvælast fyrir mér. Keypti bara ódýra litla hillu fyrir 6 flöskur sem maður þurfti svo sjálfur að setja saman og fylgdu engar leiðbeiningar. Að sjálfsögðu varð einn hlutur aflögu þegar ég var búin og ég get bara ekki skilið hvar hann ætti að passa inn. Og hillan virkar svo ég er búin að ákveða að einhvers staðar í verksmiðjunni sem framleiðir þessa græju situr fæddur sadisti sem laumar auka pörtum í kassana og skemmtir sér við tilhugsunina um allar vesalings manneskjurnar sem verða gráhærðar yfir að geta ekki fengið draslið til að passa...

10. janúar 2010

Alltaf gaman að sjá gamla vini

Fór út að borða og í bíó með gömlum vinum í gær - voða gaman góður matur, góð mynd (Sherlock Holmes - fínasta popogkók-ræma) og góður félagskapur. Lagðist svo fyrir framan imbakassann og þar dúkkaði upp annar gamall kunningi:



Held ég verði að halda auga með Torchwood framvegis - miðað við endan á þættinum á Kapteinn Hart eftir að snúa aftur...

8. janúar 2010

Helv... hollenskar kvefbakteriur

Já, ég virðist hafa tekið með mér laumufarþega frá Hollandi. Það er greinilega heill her af kvefbakteríum að halda heljarinnar partý í hausnum á mér. Voða gaman hjá þeim en lítið gaman hjá mér. Gerði mitt besta til að taka mig til fyrir vinnuna í morgun en yfirmaðurinn minn sendi mig næstum beina leið heim aftur með orðunum "það er skelfing að sjá þig". Gerði náttúrulega glimrandi hluti fyrir sjálfsmyndina eða þannig. Svo nú ligg ég undir sæng í sófanum og er enn of aftur að sannreyna að sjónvarpsstöðvar í Danmörku senda bara rusl út á daginn. Ég held það sé spurning um að skella teiknimynd í spilarann bara, kúra mig undir sængina og vona að versta kvefið gangi yfir fyrir morgundaginn - ég á pantað í mat og bíó annað kvöld!
Heimsku kvefpöddur..

5. janúar 2010

Gleðilegt nýtt ár!

Það var ekki hægt að hafa haustlitina lengur - svo það er tímabundið áramóta "lúkk" með þessari fínu flugeldamynd sem er fengin að láni frá srivera á flickr

Nýársheitið er að blogga aðeins oftar - var alltaf á leiðinni að blogga í desember en það varð aldrei neitt úr því. Átti annars góð jól með bróður og löt áramót með Dóunni í Amsterdam. Fór út með helling af gjaldeyri en kom ekki heim með neitt annað en eitt stykki ost og hálsbólgu (og hún var ókeypis). Hér í danaveldi er skítkalt og í Jótlandi er allt að verða vitlaust út af því að það snjóar - ég get ekki annað en hrist hausinn því viðmiðin á "stórhríð" eru talsvert önnur en heima!

Reyndi að druslast með jólahvapið og slæmu samviskuna í leikfimi í dag - en haldiði ekki að kennarinn hafi skrópað! Gat ekki varist þeirri hugsun að hlutverkin hefðu heldur betur snúist við *hóst hóst*.

Ætla rétt að vona að þetta sé ekki vísbending um hvernig restin af árinu verður.

Annars er plan vikunnar að komast aftur í gang í vinnunni, losna við helv... hálsbólguna og svo á að fara út að borða og í bíó á laugardaginn.

Búin að sjá bláu geimstrumpana svo nú er það Skerjalákur og co. Á ekki von á neinum stórkostlegum söguþræði en er viss um að þetta er fínasta vitleysa og ef ekki dugir sýnið af Robert Downey jr. handjárnuðum við rúmið örugglega til að halda mér lukkulegri restina af kvöldinu ;o) Það þarf svo lítið til að gleðja mig!

Og meira er ekki búið að plana af þessu ári - restin verður bara að koma í ljós...