23. mars 2009

halelúja!

Ég er aftur komin með net hér heima. Ekki það að ég hafði örugglega gott af pásunni - las heilar 3 bækur á þessari rúmu viku og hvíldi "músarúlnliðinn" minn aðeins. En verð að segja að ég er voða fegin að vera komin aftur í samband við umheiminn minn - og til að sýna ánægju mína ætla ég að deila svolitlu með ykkur (Dóa - þú gætir þurft að hafa kalt vatn við hendina)



Hef ekki grænan hvenær þessi kemur út - en bíð spennt!

19. mars 2009

Sambandslaus...

Á laugardaginn komst ég ekki á netið heima hjá mér. Tók því með ró, var með góða bók við hendina og var ekkert að stressa mig yfir þessu. Komst heldur ekki á netið á sunnudaginn – ekkert alltof ánægð með það, en ekkert stórmál. Nú er hins vegar fimmtudagur og ég er orðin ansi pirruð enda búin að eyða fleyri tímum í að reyna að finna vandamálið – prófa allar leiðbeiningar og “sjálfpróf” sem ég hef fundið og samkvæmt því er ekkert að! Routerinn virkar og tölvan virkar en ég fæ bara ekki *#!!**%&! netsamband! Ætla að gera enn eina tilraun til að endurstilla Windows uppsetningarnar í kvöld og ef það virkar ekki prófa ég að hringja til “þjónustulínu” TDC. Mest hrædd um að ég verði orðin svo fúl á þeim tímapunkti að það sjóði illa uppúr hjá mér ef þjónustufulltrúinn er ekki almennilegur. M.ö.o.: ef ég lendi á manneskju sem talar við mig eins og ég sé fimm ára og þroskaheft (“...ertu viss um að það sé kveikt á tölvunni?”), er hætt við að það verði óvænt eldgos í Herlev...
Fjarvera mín frá öllum samskiptaforritum síðustu viku eða svo er sumsé ekki mannfælni að kenna – tæknin er ekki bara að stríða mér heldur pynta mig þessa dagana.
Hlakka til að “sjá” ykkur online – vonandi innan skamms!

9. mars 2009

Fyrir Nathan Fillion aðdáendur

You know who you are! Fyrstu 13 mínúturnar af nýju seríunni hans, Castle.



Enjoy!

5. mars 2009

Partýdýrið ógurlega...

...er að pakka niður fyrir næstu djammferð! Ekki það að ég hefði alveg getað þegið smá bil á milli afmæla - er enn að jafna mig eftir að hafa hjálpað Dóu að halda uppá afmælið 2x á sama sólarhringnum! Gamlar hvað?!?
Voða gaman í Amsterdam - Cornellinn stóð ekki undir væntingum og verður í skammarkróknum allavega næstu mánuði - jafnvel árin ef hann tekur sig ekki saman!
Reykingabannið í Amsterdam kom mér frekar spánskt fyrir sjónir - skrýtið að vera inni á skemmtistað þar sem verið er að reykja jónur allt í kringum þig en bannað að kveikja í sígarettu! Og svo fer ég "heim" til Árósa eftir vinnu á morgun til að hjálpa Julie vinkonu til að sætta sig við 30 afmælið - fer líklega svona fram: "Hættu þessu væli krakkakrílið þitt og fáðu þér meira í glas!" Neita að hlusta á aldurskompleksa frá unglömbum... ;o)

Góða helgi elskurnar og ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera!