31. október 2004

syfjaður sunnudagur

Keypti rósavínsflösku í dag - og núna situr hún í ískápnum og kallar á mig... reynir að sannfæra mig um að heimalærdómurinn yrði miklu skemmtilegri í félagskap með henni! Og það versta er að ég trúi henni alveg... Annars var helgin bara róleg og góð - of róleg og góð! Lærði ekki nærri jafn mikið og ég ætlaði mér og er nú með bullandi sektarkennd. En ég fór þó ekki á djammið! Þrátt fyrir að það væri nóg af tækifærum - hlýt að fá prik fyrir það.
Andsk... flaskan vann - og ég er ekki frá því að heimalærdómurinn sé bara þrælskemmtilegur í augnablikinu! ;o)

28. október 2004

Vika dauðans

AAAARGH! Þvílík vika - eins og mig grunaði er sælan búin í bili : hér eftir verður meira og minna stanslaus keyrsla í skólanum fram til janúarloka. Ég verð að sjálfsögðu löngu orðin Klepptæk fyrir þann tíma - er strax orðin svo stressuð að ég er hætt að sofa á nóttunni og lít þessa dagana út eins og aukaleikari í "Night of the living Dead". Æði...
Og eins og venjulega veldur stressið því að ég get ekki einbeitt mér að nokkrum sköpuðum hlut, akkúrat þegar ég þarf á einbeitningu að halda :0(

18. október 2004

Komin aftur á flatlendið

Jæja, þá er maður aftur komin á pönnukökuna sem þeir kalla Danmörk! Oslóarferðin gekk bara vel, en við vorum frekar óheppnar með veður: grátt og drungalegt megnið af tímanum og rigning síðasta daginn :o( Byrjuðum ferðina með að taka lest klukkan 6.14 frá Árósum - ég hafði ekki sofið nema 4 tíma nóttina áður og man satt að segja lítið eftir þessari lestarferð. Sigldum svo frá Frederikshavn (draugabær á norður-Jótlandi) með heljarinnar "ferju" (eða litlu skemmitferðaskipi - matsatriði), ásamt nokkur hundruð ellilífeyrisþegum sem virðast fara þessa ferð til að spila bingó og dæla peningum í spilakassa. Komum til Osló að kvöldi til og vorum orðnar dauðþreyttar, enda búnar að vera á ferðalagi í rúma 13 tíma. Farfuglaheimilið sem við vorum á fyrstu 2 næturnar reyndist hin versta búlla - þeir voru svo elskulegir að setja okkur í mismunandi herbergi og til að bæta gráu ofan á svart settu þeir okkur í blönduð herbergi þrátt fyrir að við hefðum allar beðið um að vera í kvennaherbergjum. Það var ekki svo slæmt hjá mér, en stelpurnar lentu í herbergi með ótrúlega krípí gaur frá Chile sem var að gera þær gráhærðar allan tímann sem þær voru þar. Við vorum annars bara hrikalega menningarlegar í þessari ferð og notuðum mest af tímanum til að skoða söfn og allt það sem túristarnir verða að sjá. Kíktum aðeins á barina á föstudagskvöldinu, en áfengisverð í Noregi er jafn slæmt og á Íslandi svo við létum vera að detta í það. Norsku karlmennirnir voru ekki að höfða til mín - sá ekki einn einasta mann í Osló sem var þess virði að snúa sér við fyrir! Eyddum síðustu nóttinni í Osló á mun betri gististað og tókum svo næturferju heim á laugardagskvöldinu ásamt nokkur hundruð blindfullum norðmönnum og dönum. Ég held ekki að ég geti lýst þeirri upplifun hér... var bara kostuglegt! En við höfðum haft vit á því að panta okkur káetu og ég fékk loksins aftur að sofa til sjós :o) Sé fram á að þurfa að búa á bát þegar ég er orðin stór - sef aldrei betur! Svo er maður komin aftur í grákaldan veruleikan - fríið búið og uppsöfnuð heimavinna sem bíður. Ég tók því miður bara með mér einnota myndavél og notaði hana ekki sérlega mikið þar sem það er ekkert gaman að taka myndir þegar allt er grátt - en þegar ég fæ myndirnar úr framköllun skal ég setja þær á netið. En nú er heimavinnan farin að garga á mig svo ég held ég láti staðar numið í bili.

12. október 2004

Níu tímar í brottför

Það eru níu tímar þar til ég legg af stað til Osló og ég var að enda við að setja nýtt persónulegt met í að pakka niður = 11,5 mínútur! Hef örugglega gleymt einhverju eins og ég er vön, en það reddast. Vistarpartýið var eins og ég bjóst við eitt það hrikalegasta fyllerí sem ég hef upplifað, sem sést líklega best á því að ég var ein af þeim allra mest edrú þegar klukkan var 3 að morgni. Sé eftir því núna að hafa ekki myndað eldhúsið daginn eftir - þvílíkt og annað eins...
Eini áhugaverði maðurinn á vistinni stóðst ekki fylleríis-prófið (var sumsé hundleiðinlegur með víni) og er þar með strikaður út af áhugalistanum. Þarf að finna mér annað áhugamál við tækifæri. Þetta er líklega allt fyrir bestu þar sem maður getur farið flatt á því að eiga við menn sem búa of nálægt - þá er afskaplega erfitt að komast hjá því að sjá þá aftur (hefur reyndar gengið ótrúlega vel hjá mér eftir síðustu ófarir). Hlakka til að bera norsku strákana saman við þá dönsku, en mér er reyndar sagt að þeir hafi allir þann leiða ósið að taka í vörina (vona að hér séu bara danskir fordómar á ferð). Annars er þetta menningarreisa, svo ég geri ekki ráð fyrir að fá tækifæri til veiða - en maður veit jú aldrei...

7. október 2004

Þá er ekki aftur snúið

Keypti farmiðana til Osló í dag - svo verður bara lifað á tekexi og vatni það sem eftir er mánaðarins! Ég fitna þá ekki á meðan (og þó - mér tekst það eflaust!). Fer ókristilega snemma næsta miðvikudag og kem aftur á sunnudagsmorgni. Bíð spennt! Er alveg farin að svitna yfir vistarpartýinu á laugardag, þegar ég kom heim í dag var búið að kaupa DRYKKJU-LÚDÓ! Fyrir þá sem ekki þekkja er það lúdó þar sem "leikmennirnir" eru skotglös og ef þú ert rekin heim eða lendir á stjörnu eða bara hvað sem er, þarftu að tæma úr glasinu þínu... Skiljið þið af hverju ég hef áhyggjur? Lifrin mín er í hnipri undir rifbeinunum, ýlfrandi af kvíða. Og það er ekki eini kvíðinn... ég þarf líklega að horfast í augu við mistök síðustu helgar á morgun - oh joy!
Er að spá í að skrópa bara ...

5. október 2004

Ferðahugur í minni

Helgin búin og timburmennirnir að mestu horfnir - þeir líkamlegu allavega. Er strax farin að kvíða fyrir næsta sunnudegi (þarf að muna að vera búin að kaupa verkjatöflur), því mannskapurinn hér er í óðaönn við að undirbúa vistarpartý næsta laugardag. Það er þvílíkur hamur í mínu fólki að ég held mér sé ráð að útbúa erfðaskrána mína - mun líklega ekki lifa þetta af. Svo er bara að krossa fingur og vona að mér takist að gera ekkert svaðalegt af mér í þetta sinn. Mér til mikillar furðu virðist ég ætla að komast hljóðlega frá síðustu helgi (7,9,13) - það hefur enginn sagt orð ennþá... Ef mér tekst að verða mér til skammar um helgina get ég huggað mig við það að ég legg líklega land undir fót í næstu viku og fer þá í útlegð til Noregs! Ekki ákveðið enn, en mig dauðlangar - hef aldrei komið þangað. Þetta kemur allt í ljós á næstu dögum. Í næstu viku er semsagt "efterårsferie"; vikufrí í skólanum sem er örugglega ætluð til heimanáms (fat chance!). Vííííííí!!!!

2. október 2004

Úpps!

Lifði af októberfest - maturinn var ætur, Tírólabandið kom skemmtilega á óvart, bjórinn flaut í stríðum straumum og það voru sætir strákar á svæðinu! Hegðaði mér gríðarlega vel framan af - en lenti svo í vondum félagsskap. Þó ég sé orðin gömul og gráhærð, þá er ég alltaf jafnbláeygð...
Gleymdi alveg að taka með í reikningin að þótt að ég væri ekki á veiðum, þá væri hægt að veiða mig! :os Hef mér til afsökunar að hér var þrautþjálfaður ungur maður á ferð, sakleysingi eins og ég átti mér aldrei neina von.
Úff... og svo er ég að fara aftur út eftir klukkutíma - en í þetta skiptið verður ekkert Tequila! Og engir menn! Og ég mun hegða mér vel! (hlýt allavega að geta staðið við 2 af 3).

1. október 2004

Það liggur ljóst fyrir...

Það liggur ljóst fyrir að guðunum er í nöp við mig (áhætta sem fylgir því að vera yfirlýstur trúleysingi)! Loksins þegar greddupaddan ég sé fram á að komast í færi við fleirihundruð unga og efnilega menn - hver haldiði að komi í heimsókn? Ójú, Rósa frænka - óboðin í ofurstuði!
AAAAAARRRRGH! Þetta bara er ekki sanngjarnt... en útskýrir ýmislegt varðandi síðustu daga hjá mér. En það verður sumsé lítið um veiðar hjá mér annað kvöld - BÖLVAÐ! Var búin að hlaða deyfilyfsbyssuna og bæta netið í háfnum.
Stóla á að íbúfen og bjór komi mér í gegnum þetta - en nú ætla ég að fara og skæla í koddan minn...