15. desember 2006

Greyið jóli


13. desember 2006

You Are Dancer
Carefree and fun, you always find reasons to do a happy dance.
Why You're Naughty: That dark stint you had as Santa's private dancer.
Why You're Nice: You're friendly. Very friendly.

7. desember 2006

Uncyclopedia

Enginn tími til að blogga - en ef ykkur leiðist ættuð þið að geta skemmt ykkur yfir lýsingunni á Íslandi í the Uncyclopedia (paródía af Wikipedia). Góða skemmtun!

22. nóvember 2006

Bjór

Tók mér 5 mínótna pásu frá lærdómi og ákvað að nota tíman til sjálfsskoðunar, hver er ég, hvaðan kom ég, og hver er tilgangur lífs míns?

Hér er niðurstaðan:

You Are Heineken


You appreciate a good beer, but you're not a snob about it.
You like your beer mild and easy to drink, so you can concentrate on being drunk.
Overall, you're a friendly drunk who's likely to buy a whole round for your friends... many times.
Sometimes you can be a bit boring when you drink. You may be prone to go on about topics no one cares about.

Þá veit ég það - vill einhver með á barinn?

18. nóvember 2006

ný og endurbætt ég

Varð bara að gefa ykkur færi á að hlæja að þessu - ég þurfti að prufa þetta prógram fyrir lokaverkefnið :o)

Hér er sumsé minn persónulegi Avatar á Yahoo:

Yahoo! Avatars Australia & NZ

Geðveik gella - ekki satt? Það reyndist ótrúlegur hausverkur að berja þennan óskapnað saman - íhugaði reyndar að velja klappstýrubúning eða ekta hillbilly-slut klæðnað, bara fyrir ykkur - en þar sem tilgangurinn með að prófa þetta yfirhöfuð var að sjá hvort maður gæti skapað eitthvað sem líktist manni sjálfum reyndi ég að velja eitthvað sem ég mögulega myndi klæðast (ef ég væri 50 kíló). Það var reyndar mögulegt að velja "plus size" - en þá eru kostirnir afskaplega fáir og hrikalega ósmekklegir, svo ég valdi heldur smekklegra klædda anorexíusjúklinginn ;o)
Útkoman er rauðhærð bókasafns-barbí sem ekki líkist mér baun...

12. nóvember 2006

Vika dauðans

Ég er búin að ákveða að dagurinn í gær hafi verið síðasti dagurinn í viku dauðans.
Þessi ákvörðun er aðallega byggð á því að dagurinn í dag er búin að vera nokkuð normal - fyrsti slíki dagurinn í langan tíma. Það er náttúrulega möguleiki að ég hafi tekið út skammtinn fyrir daginn í dag, í gær - enda var sá dagur með eindæmum skrýtinn. Neibb, ég held ég haldi mig við þá kenningu að viku dauðans sé lokið - ég meika ekki tilhugsunina um annað.

Og bara svo þið skiljið af hverju ég meika ekki meir, tökum daginn í gær: byrjaði bara ljómandi vel - fór með Kasper og skoðaði íbúð sem við svo fengum á staðnum. Gleði gleði og allt það. Fékk Kasper svo til að setja mig af við "kaupfélagið" heima svo ég gæti keypt mjólk útá hafragrautinn minn. Á leiðinni heim frá búðinni síast hægt og rólega inn í hausinn á mér að það er einhver að hrópa á mig hástöfum. Þegar ég svo gái betur að, er það miðaldra kona sem gengur í sömu átt og ég hinumegin við vegin, æpandi og öskrandi. Henni var svo mikið niðurfyrir að ég náði ekki öllu sem hún æpti, en nóg til að heyra að hún kallaði mig þjóf og hafði langar kenningar um plastpoka og einhvern 200 kall sem ég átti sýnilega að hafa stolið frá henni. Þar sem ég hafði a: aldrei séð manneskjuna áður og b: ekki stolið nokkrum sköpuðum hlut valdi ég að láta sem ég heyrði þetta ekki og forðaðist að horfa á hana til að æsa hana ekki upp. Því miður var þetta laaangur vegur heim, en mér varð fljótlega ljóst að konugreyið var örugglega í geðhvarfakasti - hún æpti á allt og alla sem hún sá : þar með talið kyrrstæða bíla og smáfugla á grein... Ég verð samt að viðurkenna að ég var dauðfegin þegar hún var komin í góða fjarlægð frá mér - ég var skíthrædd við að hún myndi hreinlega ráðast á mig!

Nokkrum tímum seinna stend ég á gatnamótum - aftur alsaklaus djúpt í mínum eigin þönkum, þegar 2 bílar skella saman c.a. 10 metra frá mér. Ég var örþreytt, sársoltin og andlega búin á því eftir vikuna og ég held að það, ásamt hreinu sjokki hafi ollið því að þegar græni kallin birtist hélt ég bara mína leið yfir götuna eins og ekkert hefði gerst. Það var fyrst svona kílómetra seinna að það komst inní hausinn á mér að a)það hafði verið árekstur, b) ég var vitni og hefði kannski getað hjálpað löggunni að ná fíflinu sem keyrði yfir á rauðu og stakk svo af. Ég verð að viðurkenna að ég snéri samt ekki við - ég hreinlega hafði hvorki andlega né líkamlega orku til þess. En ég skammast mín samt óskaplega fyrir að hafa ekki hegðað mér eins og ábyrgri manneskju sæmir.
Ég eyddi restinu gærdeginum undir sæng - það var eini staðurinn þar sem ég gat verið sæmilega örugg um að vera óhullt fyrir umheiminum.

9. nóvember 2006

Drive-by póstur

Sælinú

bara örstutt til að láta vita að ég er á lífi! Lifði af jólabjórinn þótt það kvöld yrði lengra og dýrara en gert var ráð fyrir - gerði því miður ekkert af mér samt :o(
Enn engin íbúð en skoðaði holu dauðans á sunnudaginn - reyndist vera viðurstyggilega shabbý ljósmyndastúdíó og ég þori að veðja að myndirnar sem teknar voru þar eru ekki af þess slags sem hangir á vegnum hjá ömmu manns! Brr... var fegin að Kasper var með því kallinn sem sýndi íbúðina var bara creepy!
Annars bara stress dauðans - þarf að senda leiðbeinandanum 1. case study á mánudaginn og er ekki byrjuð að skrifa það svo nú verður bara tekið þvílíkt á því næstu daga = ekkert sem heitir helgi hjá mér. Geri því ekki ráð fyrir að blogga aftur fyrr en í næstu viku, en þið lifið það nú örugglega af...

Og svo að lokum - linkur í blogpóst um dömubindaauglýsingar, ég er greinilega ekki sú eina sem sér rautt...

3. nóvember 2006

föstudagur til fúsks

Shit! Ég er búin að eyða öllum deginum í húsnæðisleit! Það var ekki meiningin!
Ég sem ætlaði að skrifa svo mikið...
Það er óðum að renna upp fyrir mér að það er enn verra að finna húsnæði fyrir 2 en fyrir 1 hér í bæ - svo þetta verður harður slagur og mikið stress, svona af því að mig akkúrat vantar meira stress!

Er reyndar að spá í að reyna að tappa af stressinu í kvöld og nýta mér að útdeilt verður fríum jólabjór af sætum jólaálfum... Mér er nokkuð sama hvort það verður bjórinn eða álfarnir sem losa mig við stressið! (Maður getur alltaf látið sig dreyma...) Annars er það bara lærdómur um helgina - á ekki krónu svo ég fer heim í ból þegar fría bjórinn þrýtur - sem gæti orðið seint því Kasper skuldar mér þó nokkra fyrir að þrífa eldhússkápinn hans! (það reyndist meira verk en ég hafði reiknað með). Vandamálið er bara að ef ég ætla að innheimta verð ég að sitja með 15 rótarídrengjum - er dauðhrædd um að það sé svipaður söfnuður og SUS! Ætli bjórþorstinn muni samt ekki yfirvinna hræðsluna við jakkafataklædda pabbadrengi ;o)en í hreinskilni sagt myndi ég velja jólaálfana framyfir...

Anýhú - ég er farin heim að leggja mig fyrir átök kvöldsins (og með átökunum á ég við það gríðarlega verk sem það verður að sparsla þangað til ég lít þolanlega út - get your minds out of the gutter!)

Snjókorn falla... á allt og alla..

1. nóvember 2006

Snjór!

Það er grenjandi hríð úti - þegar ég heyrði að snjórinn myndi falla í þessari viku reiknaði ég að sjálfsögðu bara með að þeir meintu jólabjórinn eins og venjulega. Var þess vegna ekki sátt þegar ég þurfti að grafa mig niður í skápinn minn til að finna vettlinga og húfu í morgun og svo tók mig tvo tíma að herða mig upp í að fara út í ófögnuðinn! Já ég er orðinn úrkynjaður aumingji af dvölinni hér - en í hreinskilni sagt var ég þegar búin að sjá nægan snjó fyrir lífstíð þegar ég fór frá klakanum! Held að það hafi verið veturinn í Þórunnarstrætinu sem gerði útslagið - Anna og Guðrún muna eflaust vel eftir hinni endalausu baráttu við bílastæðið. En svona er lífið miskunarlaust (og hvítt og blautt í augnablikinu).

Annars er þetta stór dagur - ég fæ að vita hvort ég lendi í skuldafangelsi eða hvort bankinn sýnir mér miskun einu sinni enn (þori ekki fyrir mitt litla líf að opna tölvupóstinn minn núna því ég veit hreinlega ekki hvað ég á að gera ef þeir segja nei). Og svo þarf ég að gera það upp við mig hvort ég tek herbergið og dæmi mig þar með til að svelta næstu 2 mánuði. Geðheilsa eða matur? Spurning hvort vegur þyngra. Held ég velji geðheilsuna og stóli á að spikforðinn sem eftir er á mér dugi mér fram að jólum. Ó, og svo þarf ég bara að komast að því hvernig í andskotanum ég ætla að fara að því að gera greininguna sem ritgerðin mín byggist á - annars fellur öll fjandans spilaborgin um sjálfa sig.

Kannski ég ætti að hætta að eyða tímanum í þetta blogg og takast á við eitthvað af þessu? Krossiði fingur fyrir mig elskurnar - ég þarf á öllum góðum straumum að halda núna!

31. október 2006

kommentbøvl

Eins og þið kannskið sjáið er ég búin að fjarlægja commentin mín - af einhverjum ástæðum virkar nýja Blogger útgáfan ekki alveg nógu vel með Haloscan commentunum mínum, það var ástæðan fyrir að íslenskan datt alltaf út annað hvort í comments eða pósti - reyni aftur síðar

30. október 2006

snydt igen!

Svo ég litaði á mér hárið - rautt hélt ég - og endaði með rauðbrúnt - aftur! urgh! Ekki það að þetta er fallegur litur, en ég ætlaði jú að reyna að breyta til! Enn einu sinni hef ég tapað fyrir lubbanum á mér sem er sjálfráður sem aldrei fyrr :o(
Kannski ég prófi strípur næst...

Annars bara búið að vera brjálað að gera - fékk nýjan leiðbeinanda, og nú er bara harkan sex næstu 4 vikur! Fór og skoðaði herbergi niður í miðbæ (rétt hjá Bruuns Gallerí - gæti orðið dýrt spaug!)og er virkilega að vona að ég fái það en veit ekkert enn. Kerstine vinkona kom í heimsókn um helgina og þar sem veðrið var viðbjóðslegt var helginni eitt í vídeógláp og ofát, enda líkist ég hvítum flóðhesti með vindverki núna.
En var afskaplega notalegt að slappa aðeins af - held það hafi verið komin tími til.
En ætli ég verði ekki að fara að skríða í ból - vinna á morgun.
See yah!

26. október 2006

Að lita eða ekki lita...

Ein örstutt skoðanakönnun : ljóst, rautt eða brúnt?
Er að fara að lita á mér hárið á næstunni (til að fela gráu hárin skiljiði) og get bara ekki ákveðið mig! Er búin að vera með gamla góða rauðbrúna litinn í næstum ár núna og það er freistandi að breyta til, en veit bara ekki hvað ég á að velja!
Svo nú spyr ég ykkur sem hafið séð mig í öllum útgáfum: ljóst (ekki alveg ljóst - svona hungangslitur), rautt (kopar) eða halda mig við þennan gamla rauðbrúna?

(grunar einhvern að ég sé að nota þetta sem afsökun fyrir að hugsa ekki um alvarlegri mál ;o)?)

Og PS. er sultuvandamálið leyst?

25. október 2006

hormónaflæði

If I´ve got to suffer...
Datt inn á þessa síðu - átti í örgustu vandræðum með að kjósa og skilaði auðu á endanum...



Svona fer þegar það er ekkert í sjónvarpinu!

23. október 2006

og andlitslyfting

og svo varð ég náttúrulega að pilla við útlitið líka...
Á eftir að sjá hvernig þetta lítur út á 14 tommu fartölvuskjá - en virkar ok á borðtölvu... Þið megið gjarnan láta mig vita ef það fer allt í sultu á skjánum hjá ykkur - svo ég geti lagað það! Hvað segið þið? Betra eða verra en það var? Dauðlangar að gjörsamlega umbylta blogginu - en það myndi þýða svo djöfullega vinnu í HTML kóðanum (ef ég ætla að fá það sem ég vil)að ég bara legg ekki í það fyrr en eftir ritgerð allavega.

nýr blogger

hmm... flutti bloggið mitt yfir á Beta-útgáfuna og af einhverjum ástæðum virðist Beta litla ekki ráða við íslensku...
Ekki sérlega kát yfir því verð ég að segja!

20. október 2006

miðritgerðarkreppa

Ég held ég sé búin að finna upp alveg nýtt "heilkenni" - miðritgerðar-kreppa!
Það lýsir sér þannig að þegar maður er c.a. hálfnuð með ritgerð finnur maður grein sem fær mann til að finnast að það væri góð hugmynd að gjörbreyta fókus í ritgerðinni... Sem myndi náttúrulega þýða að það þyrfti að skrifa slatta uppá nýtt - sem ég hef varla tíma til... Á hinn bóginn myndi leiðbeinandinn minn örugglega fíla nýju línuna betur - finnast það passa betur við fagið... Og ég gæti kannski sloppið við að þurfa að gera "greiningu" - sem mig hefur drullu kviðið fyrir. Fuck! Ég hef ekki sálarorku í þetta - af hverju get ég ekki bara skrifað þessa andskotans ritgerð?! Mig langar heim í rúmið mitt og breiða sængina upp yfir haus og vera þar bara - haldiði ekki að ritgerðin hverfi þá bara úr lífi mínu? Maybe if I ignore it, it will go away...

18. október 2006

Fáguð!

Stjörnuspáin mín í mogganum í morgun:

"Fágun bogmannsins getur verið ógnvekjandi. Þú ættir að gera þér grein fyrir því að tiltekin manneskja sem lítur upp til þín, veit oftast ekki hvað þú ert að tala um."

Datt næstum út úr stólnum af hlátri - er ekki aaaaaaaaaalveg að sjá mig í þessu!
Og ég sem hélt að það væri bara lélega danskan mín sem væri að valda samskiptaörðugleikum - en það er sko bara af því ég er svo fáguð!


En elska stjörnuspá moggans - get næstum alltaf stólað á að spáin er svo langt úti að ég get ekki annað en hlegið, og það hefur bjargað mörgum gráum morgni.

13. október 2006

Smá skoðanakönnun

Mig langar bara að spyrja ykkur - notið þið skítugar borðtuskur til að "þerra af" skurðarbretti þegar þið eruð búin að nota þau? Er það bara ég sem fæ klígju við tilhugsunina um að nota svo sama bretti til að útbúa mat á? Stóð aðal sóðann á vistinni að þessu í morgun og gat ekki orða bundist - hann gat ekki alveg skilið vandamálið og vildi meina að þetta gerðu sko aðrir líka! Sem getur vel verið - og hér eftir mun ég ekki nota þessi bretti án þess að skrúbba þau allavega rækilega fyrst. Persónulega er ég bara stolt af að hafa ekki tekið skurðarbrettið af honum og stungið því upp í görnina á honum (þvers), því tilhugsunin um að hafa notað þessi bretti í trausti þess að fólk VASKAÐI ÞAU UPP var næstum nóg til að ég skilaði morgunmatnum í vaskinn. Ég veit ekki alveg hvernig ég ætla að meika þessa mánuði sem eftir eru í sambúðinni...

11. október 2006

Chris

Varð bara að deila þessu vídeói með Blíðunni - njóttu elskan!

9. október 2006

Detti mér nú allar dauðar...

Og enn einu sinni tekur tilveran mín krappa hægri beygju án þess að gefa stefnuljós.

Yfirmaðurinn minn lét mig setjast niður í morgun og gerði mér tilboð sem ég held ég geti ekki hafnað - full vinna á bókasafnsfræðingslaunum í 2 mánuði. Valið sem ég stend fyrir núna er nokkurn vegin á þessa leið: a)koma heim 1. des., atvinnulaus (og án bótarétts!), peningalaus og húsnæðislaus. b)athuga hvort ég get fengið herbergið framlengt 2-3 mánuði til og þéna c.a. 500.000-550.000 (fyrir skatt). Held að bankinn minn yrði allavega glaður ef ég gæti borgað eitthvað af vöxtunum sem ég skulda...

Kannski ég sleppi við að selja úr mér nýrað! Bara kannski - ég er í svooo djúpum skít fjárhagslega að ég held ég verði að selja úr mér sálina bara... hlýtur að vera einhvers virði þótt krumpuð sé!

8. október 2006

Oh Rudolph!

Bara varð að deila þessu með ykkur - enn eitt heimskulegt próf á vefnum (mér leiðist - hvað annað get ég sagt?)

Hér getið þið tékkað á því hvaða DAUÐI merkismaður (eða kona) er sálufélaginn ykkar - minn var Rudolph Valentino! (ætla ekki að segja ykkur hverjir aðrir mér voru boðnir - brrr...)

þið getið prófað sjálf(ar) hér.

5. október 2006

Rakstur

Hef svarið þess dýran eið að hætta að taka mig til ÁÐUR en ég fæ kaffi á morgnana eftir að hafa kíkt í spegil áðan og uppgötvað að mér hefur tekist að skipta hárinu á mér nákvæmlega þar sem ég er mest gráhærð! Og svona áður en þið skammið mig fyrir að velta mér upp úr smáatriðum vil ég bara segja mér til varnar að ég má ekki við svona löguðu í dag - ég er á túr og lít nógu illa út fyrir þótt gráu hárin blasi ekki við!
Hrmpf! Og svo er gullfallegur (en kaldur) októbermorgun og mig langar ekki að sitja inni og rotna við tölvuna...
Ok - þá er sjálfsvorkunin komin út úr sýsteminu í bili.
Annars ekkert nýtt að frétta, bara sama gamla rútínan - því miður. Hér er loksins virkilega farið að vera haust og mér finnst alveg grátlegt að geta ekki verið meira úti að njóta þess - alltaf fílað haustið (það er veturinn sem ég þoli ekki). Ég hef reyndar aldrei náð að venjast því að hér eru tré varasöm á haustin - minnsta vindkviða getur valdið því að maður fær ávexti og hnetur í hausinn (og það er aaaafar óþægilegt - svo ekki sé minnst á niðurdrepandi að heyra tómahljóðið í hausnum). En ég fíla litina á laufinu og síðustu haustblómin hér eru í fullum skrúða... (djúpt andvarp) - ég er kannski bara klikkuð en þetta er sá árstími sem mér finnst rómantískastur. Held ég reyni að gera meðvitað átak í að gefa mér meiri tíma til að fara í gönguferðir - held að bæði líkami og sál hefðu gott af því þessa dagana.

En skyldan kallar - hér er einn lítill hlekkur i kveðjuskyni: Af hverju karlmenn ættu að raka sig.

1. október 2006

persónuleikapróf...

Lagðist í naflaskoðun um helgina en fann ekkert nema ló...
Og hvað gerir maður þegar eigin innsæi klikkar? Leitar á náðir Internetsins og nýtir sér hin sérhönnuðu sálgreiningartæki sem þar finnast. Hér eru svo niðurstöðurnar:

You are
What Rejected Crayon Are You?


Þetta er akkúrat liturinn á peysunni sem ég myndi kaupa ef ég ætti krónu - spooky...

og

You're an Expert Kisser
You're a kissing pro, but it's all about quality and not quantityYou've perfected your kissing technique and can knock anyone's socks offAnd you're adaptable, giving each partner what they craveWhen it comes down to it, your kisses are truly unforgettable
What Kind of Kisser Are You?


Nákvæmlega það sem mig grunaði... Er það ekki týpískt fyrir óréttlæti heimsins að heimsklassakyssari eins og ég fæ ekki færi á að njóta mín? Ég er greinilega að sóa hæfileikum mínum! Ætti að vera úti að kenna öðrum listina...

En akkúrat núna neyðist ég víst til að horfast í augu við grákaldan veruleikann og halda áfram við lærdóminn - see yah!

P.S. Ætti líklega að vara við að það þurfti svolítið pillerí við HTML kóðan til að niðurstöðurnar birtust rétt á síðunni - bara svona ef þið ætlið að setja á ykkar eigin síður!

29. september 2006

örpóstur

sælinú,

bara örstuttur póstur (er að stelast í vinnunni) - ekkert að frétta úr skotgröfunum, lærdómur og vinna eins og venjulega. Er orðin svo heilaþvegin að ég veit varla hvaða dagur er - allir dagar hvorteðer meira og minna eins...
Held ég verði að fara að gera heiðarlega tilraun til að sletta úr klaufunum áður en ég drabbast alveg niður!
Fer nú samt eftir því hvort og hvenær ég fæ útborgað :o( Vantaði 40 tíma á síðasta launaseðli og það munar sko um minna!) Notaði síðustu aurana mína til að kaupa afmælisgjöf handa einni bróðurómyndinni í gær og ef ég fæ ekki útborgað í dag verð ég að lifa á poppkorni og vatni yfir helgina (ja eða bjór - hann þarf ég ekki að borga fyrr en um mánaðarmót...) Það er eins gott að drengurinn verði ánægður með gjöfina!
Átti ekki fyrir korti líka, svo hann fær eitthvað frumsamið listaverk - verður eflaust verðmætt seinna þegar ég er orðin fræg. Hefði líklega bara átt að láta listaverkið duga sem gjöf! Hann hefði eflaust orðið svooooooo glaður...

24. september 2006

Einn af þessum dögum

Það er einn af þessum dögum. Þessum dögum sem er alltof mikið af undanfarið. Þessum dögum sem ég sit og stari á tölvuskjáinn án þess að sjá hvað á honum stendur eða hafa hugmynd um hvað ég geri næst. Og þegar ég reyni að ná sambandi við heilan á mér fæ ég bara lyftumúsik - það er nákvæmlega ekkert að ske þarna uppi! Getur maður fengið athyglisbrest á gamals aldri eða ætli ég hafi alltaf haft hann og sé bara að versna? Ég er allavega að verða viss um að þetta er ekki eðlilegt - allir eiga sína slæmu daga en þessi viðvarandi skortur á einbeitingu er farin að valda mér áhyggjum satt best að segja. Lumar einhver á töfralausn? Ef svo er, endilega deilið henni með mér svo ég geti klárað þessa andsk... ritgerð og haldið áfram með líf mitt!

22. september 2006

föstudagur enn einu sinni

Og allt í einu er komin föstudagur enn og einu sinni! Hvert fór þessi vika eiginlega?
Skellti mér í bíó í gær og sá teiknimyndina Monster House Skemmti mér konunglega - enda myndin gerð fyrir stór börn með svartan húmor. Planið fyrir kvöldið? Þvottahúsið - já, það jafnast ekkert á við að eyða föstudagskvöldi í að þvo þvott! Annars verð ég að viðurkenna að ég er bara nokkuð sátt við það, aldrei þessu vant - er enn ekki búin að jafna mig alveg eftir þynnkuna síðustu helgi...
Svona er maður orðin gömul og lasburða!
Annars bara lærdómur og leiðindi - nema ég skelli mér á bátasýningu með Kasper á sunnudaginn, það hljómar einhvernvegin mun betur að dunda sér við höfnina í 23 stiga hita og sól en að hýrast inni á loftlausri skrifstofu við tölvuskjáinn. Kannski er það bara ég...

20. september 2006

micropóstur

Bara örstuttur póstur til að láta vita að ég ER á lífi - bara búið að vera mikið að gera á öllum vígstöðvum. Ekkert sérstakt að frétta - átti góða helgi (fyrir utan skelfilega þynnku á sunnudaginn - hvenær læri ég að drekka ekki rauðvín?) Splæsti á mig klippingu og líkist núna búttuðum púðluhundi - en það ætti varla að skaða mig í ástarmálunum (ef einhver væru) því eins og fjölmiðlarnir hér hafa mikið fjallað um undanfarið er kynlíf með dýrum LÖGLEGT í Danmörku!!! Fékk áfall þegar ég komst að þessu - dýraverndarsamtök hér eru sem betur fer að þrýsta á að þetta verði lagað sem fyrst, enda get ég ekki skilið hvernig einhverjum finnst þetta ekki vera slæm meðhöndlun á dýrum. Hreint ógeð!
En hvað um Það - ritgerðin bíður, mun uppfæra síðuna almennilega á morgun eða hinn...
Stórt knús til ykkar allra frá stressboltanum í danaveldi.

13. september 2006

útlegðin framlengd

Jæja dömur og strumpar!
Aldrei þessu vant eru bara stórfréttir úr pöddulandi. Fréttin er sú að ég verð lengur en á horfðist í Baunalandi. Kemur ykkur kannski ekki jafn mikið á óvart og mér - en ég hélt í hreinskilni sagt að ég væri að koma heim næstu mánaðarmót hvort sem mér líkaði betur eða verr, enda sá ég fram á að vera bæði atvinnu- og húsnæðislaus fyrsta október. Á mánudaginn mætti hins vegar stelpan sem ég hef verið að leysa af í vinnunni (hún var í barnseignarleyfi) og tilkynnti að hún kæmi ekki til baka eftir mánaðarmót. Það gerði svo að yfirmennirnir mínir meira og minna grátbáðu mig um að athuga hvort ég gæti ekki verið aðeins lengur, mér var meira að segja boðið að búa heima hjá annarri þeirra ef mér yrði hent út af vistinni!
Svo ég hringdi til stúdentagarðanna og er nú búin að fá leyfi til að búa í herberginu mínu til 30 nóvember. Svo áætluð heimkoma er nú um 1. desember. Fyrir mig er þetta mikill léttir að því leiti að ég á þá séns á að klára helvítis ritgerðina áður en ég kem heim - ég er búin að hafa miklar áhyggjur af því að ef ég færi að vinna fulla vinnu (sem ég yrði að gera heima til að lifa af) myndi ég líklega aldrei ná að klára þetta. Og ég er búin að eyða svo miklum tíma og peningum í þetta nám að það væri hreinlega grátlegt að klára svo ekki síðasta stykkið.
Hins vegar verð ég að viðurkenna að ég var líka farin að hlakka til að hitta vini og vandamenn - er drullusvekkt yfir að missa af útskriftinni hennar Dóu t.d. Og verð að bíða lengur eftir að komast að því hvort Anna getur fengið mig til að líkjast Marylin Monroe... Ég hef stórar væntingar skiluru Anna mín!
Það verður þá bara enn meira að bæta upp fyrir þegar ég loksins skila mér á klakan - uppsöfnuð afmæli og útskriftir sem þarf að drekka fyrir á einu kvöldi!

Vona að enginn verði fúll við mig...

10. september 2006

júnkublogg

Piparjúnkur Íslands sameinist!
Bara verð að vekja athygli einhleypra meyja á nýju bloggi http://junka.bloggar.is/
Hér er einstaklega fágaður félagskapur á ferð og mér er lofað inngöngu af formanninum þegar ég kem heim, enda ekki verið við karlmann kennd síðan á síðustu ísöld (ef þið hafið ekki myndir getið þið ekki sannað annað ;o) )
Hlakka til félagsfundanna...

6. september 2006

alltaf í boltanum

Ísland - Danmörk í kvöld. Danirnir hafa verið nett áhyggjufullir yfir þessum leik undanfarið og blöðin varað við að vanmeta "litlu eyjuna í norðri". Ekki séns að ég nenni að horfa á leikinn - en tékka kannski á honum annað veifið, aðallega svo ég geti farið út í sjónvarpsstofu og pirrað danina ef við skyldum nú komast yfir...

Segið svo að ég sinni ekki mínum þjóðernisskyldum!

Áfram Ísland

4. september 2006

eins og vörtusvín í gaselluhópi

Lét mig hafa að mæta í bæinn á föstudagskvöldið og meira að segja skildi hauspokann eftir heima (gegn betri vitund)- var búin að mæla mér mót við Helle og fann hana með hópi af fólki sem ég kannaðist ekkert við, en hvað um það - bjórinn flaut í stríðum straumum og ég var allavega komin út úr húsi. Það var svo fyrst c.a. 1 tíma seinna sem einhver nýkomin einstaklingur spyr mig: "eruð þið öll í BP?" "BP?" spyr paddan í sakleysi sínu - "já - mér skillst að þetta sé BP hittingur hér". Og í gegnum ölþokuna rann upp fyrir mér ljós... Mér leið eins og gyðingi sem uppgötvar að hann er staddur á árshátíð Gestapó - BP stendur fyrir Beautiful People sem er danskur netklúbbur sem montar sig af að vera sá mest aðlaðandi á netinu. Maður fær ekki inngöngu nema að aðrir meðlimir mæli með þér og samþykki - með öðrum orðum æðsta musteri egóflipparans. Ef ég hefði ekki verið vandlega njörfuð niður á langborði dauðans hefði ég hlaupið veinandi út - en varð að láta nægja að drekkja sjokkinu í meiri bjór. Enda þynnka dauðans á laugardag. Og sunnudag. Er jafnvel ekki frá því að það votti enn fyrir smá...

1. september 2006

pizzaface í partýfíling

Svei mér þá ef ég á ekki séns á félagslífi þessa helgina - og bara mánuður síðan síðast! Hvernig á maður að lifa af þessa iðandi hringekju sem skemmtanalífið mitt er?
Því miður eru tilefnin frekar neikvæð í 2 tilfellum - kveðjubjór á föstudagsbarnum á eftir því Cecilia er að flytja til Kaupmannahafnar og ég sé hana líklega ekki meir...
Og kveðjukvöldverður annað kvöld fyrir Kaspar sem er að flytja til Þýskalands - á eftir að sakna hans hrikalega þar sem hann hefur gengt hlutverki "stóra bróður" míns síðustu 2 ár (það ætti líklega að segja mér eitthvað að mikið yngri manneskju finnst þörf á að passa að ég fari mér ekki á voða - en ég er afskaplega góð í að hundsa svona "hint"). Og svo er ég boðin í stóra garðveislu í kvöld hjá einhverjum 3 gaurum sem ég hef aldrei hitt... Þetta er víst árlegur viðburður með fullt af fólki, og það væri kannski ágætt að druslast út úr húsi og hitta nýtt fólk og víkka sjóndeildarhringinn aðeins - enda ekki vanþörf á! Hins vegar hittist á að sjálfstraustið er ekki beinlínis í botni í dag - það býr feitur og bólugrafinn fílamaður í speglinum mínum þessa dagana og mér hefur ekki tekist að flæma hann burt. Svo planið hljómar svona: mæta á föstudagsbarinn á eftir og taka 2-3 bjóra með Cecilie og stelpunum, og sjá hvort blessaður bjórinn nær að drekkja kompleksunum og koma mér í djammfíling. Þá er aldrei að vita nema paddan litla skelli sér út í óvissuna og máli bæinn bleikan. En það kemur allt í ljós... Góða helgi elskurnar!

30. ágúst 2006

ný önn að byrja

Kennslan byrjaði aftur í síðustu viku hér í IT-Parken. Eftir rólegheitin í sumar er allt í einu fullt af fólki aftur. Það velta hér um nýir nemendur - það er hægt að þekkja þá á því að þeir ráfa um í stórum hópum í leit að réttu byggingunum (staðurinn er völundarhús svo ég hef fulla samúð með þeim). Og sum af gömlu andlitunum eru farin að sjást aftur. Það er, með öðrum orðum, ný önn að byrja og sú sérstaka stemning sem fylgir því liggur í loftinu. Og ég gæti bara grátið!
Ég er dauðöfundsjúk út í alla þá sem eru að byrja í tímum núna - alla þá sem eru að hitta skólafélagana aftur eftir sumarfríið, eða kynnast nýju bekkjarfélögunum sínum. Alla þá sem eru að byrja í nýjum og spennandi fögum og meira að segja líka út í þá sem eiga eftir að komast að því að nýju og spennandi fögin eru kannski ekki svo skemmtileg þegar á líður. Ég er sumsé ekki búin að fá nóg af því að vera í skóla, þótt að ég sé sko búin að fá nóg af að skrifa lokaritgerð!
Ég vildi óska að ég væri tvítug og rétt að byrja í háskólanum - og hefði vit á því að fá eins mikið út úr háskólalífinu og ég gæti á meðan það varir.
En það er víst ekki hægt að spóla til baka í þessari bíómynd - ég verð bara að reyna að sætta mig við endinn og vona að framhaldið valdi ekki of miklum vonbrigðum.

25. ágúst 2006

og annar til...

Og aftur er komin föstudagur - og ég er í NÁKVÆMLEGA sömu stöðu og síðast. Þið getið bara lesið síðasta póst aftur til að spara tíma og fyrirhöfn. AAAAARGH!
Markmið dagsins er að skrifa 2 síður - svo nú er bara að bretta upp ermar og ljúka því af sem allra fyrst - ekki það að ég hafi nokkuð betra að gera, en ég get kannski látið eins og ég eigi líf...

18. ágúst 2006

Föstudagsveiki

Það er undurfagur, heitur og sólríkur föstudagsmorgun og ég sit á skrifstofunni minni að farast úr sjálfsvorkun. Greyið ég að hýrast við tölvuna! Skítt með hungursneiðir, styrjaldir og aðrar hörmungar sem fólk um víða veröld glímir við, það hlýtur að vera hámark neyðarinnar að eiga að skrifa ritgerð á sólríkum föstudagsmorgni... Já, dramadrottningin er í essinu sínu í dag!
Sé fram á enn eina ömurlega tilbreytingarlausa helgi sem deilist milli ritgerðarskrifa og sjónvarpsgláps - og sú tilhugsun er nóg til að fá mig til að langa að detta hrottalega í það! Veit samt að jafnvel þótt ég myndi druslast út á lífið myndi ég að öllum líkindum láta mér leiðast jafnmikið við - sama gamla fylleríið, sömu gömlu staðirnir og sömu þreyttu pikkupplínurnar frá sömu leiðindatýpunum. Meira að segja djammið er rútína - og hvað er þá eftir?!?

Konungsríki mitt fyrir tilbreytingu... bara EITTHVAÐ nýtt!

Sorrý - en ég varð að fá þetta út úr kerfinu, nú held ég að ég hætti að væla ofaní kaffið mitt (vildi óska að ég hefði bjór að væla ofaní), taki mig saman í andlitinu og reyni að gera eitthvað af viti svo ég nái heim áður en þrumuveðrið sem var spáð í dag brestur á. Merkilegt hvað maður verður sáttari við að liggja fyrir framan sjónvarpið á föstudagskvöldi ef það eru þrumur og eldingar fyrir utan ;o)
Segiði svo að ég komi ekki auga á björtu hliðarnar...
Góða helgi elskurnar!

12. ágúst 2006

Kvikmyndadella

Var í sakleysi mínu að vafra um netið og hvað dett ég um? Nýja mynd með honum Hugh mínum Jackman - og Christian Bale! Hvernig stendur á að ég er fyrst að heyra um þetta núna?!?! Einhverntíman hefði ég vitað allt um þetta frá því að handritið að myndinni var samþykkt - ég eyði greinilega of miklum tíma í "gagnlega hluti" þessa dagana! :o(
Anyway - myndin heitir The Prestige og ef þið eruð jafn langt á eftir og ég ættuð þið að smella hér og sjá trailerinn - ég er allavega ákveðin í að þessa ætla ég sko að sjá í bíó þegar hún kemur! Hver vill koma með?
Annars er líka augnakonfekt á döfinni í kvöld - við stelpurnar á vistinni ætlum að leggja undir okkur sjónvarpsherbergið, borða snakk og íslenskt nammi (kærar þakkir Dóa)og horfa á The Libertine
Johnny Depp og súkkulaði... getur maður farið fram á meira?
Góða helgi elskurnar

10. ágúst 2006

ADD

Ég nenni ekki að vera ég í dag! Mig langar að vera einhver önnur - helst einhver önnur sem á fullt af peningum og getur leyft sér að eyða deginum í að versla sér föt!
Verslanirnar hér eru hægt og rólega að fá haustvörurnar inn og ég er farin að loka augunum og HLAUPA framhjá búðargluggunum. Þarf varla að taka það fram að ég hef ekki aflað mér neinna vinsælda með að hlaupa niður saklaust fólk - en það er erfitt að komast hjá því með augun lokuð skiljiði. Nýjasta dellan hjá mér er að mig langar í dökkbrún stígvél - með hæl og upp undir hné. Ég veit ekki alveg af hverju - ég á kannski eina flík sem stígvélin myndu passa saman með og það eru ca. 300 hlutir sem væru nytsamlegri EN MIG LANGAR SAMT! Held samt að það næsta sem verður keypt þegar/ef ég hef efni á fatakaupum verði nýjar buxur - skil ekki af hverju mig vantar alltaf buxur! Þvottavélin hlýtur að borða buxurnar mínar - eða fataskápurinn.
Fyrir utan það dreymir mig um:
Fallegt undirfatasett í einhverjum flottum lit (allt svart og hvítt hjá mér núna - gengur náttúrulega ekki)
fallega hvíta skyrtu (maður verður alltaf að eiga amk eina svoleiðis)
Bol eða skyrtu í nýja grænbláa litnum sem veður uppi hér í haust (meira grænleitur en bensínblái liturinn síðasta vetur - og JÁ ég ER svona áhrifagjörn ;o) )
Eitthvað fallegt í brúnu (til að passa við stígvélin sem ég hef ekki efni á að kaupa)
Nýjan Eyeliner - helst í dökkbláu (veit nákvæmlega hvaða liner ég vil en hann fæst bara ekki í Árósum - djö... skítapleis!)
Aðra gollu frá Zara - í einhverjum fallegum lit (gamla er svört)
Brad Pitt í engu nema rakspíra
Hata að vera blönk...

5. ágúst 2006

Fitandi félagslíf

Sælinú,

orðið langt síðan síðast en ég hef bara haft brjálað að gera - ekki bara í skólanum heldur hef ég allt í einu átt félagslíf líka! Kom engum meira á óvart en mér, en hef farið meira út úr húsi á einni viku heldur en 2 síðustu mánuði samanlagt held ég. Það allra skrítnasta er að það hefur haft jákvæð áhrif á ritgerðarskrif - það er að segja þegar ég hef kastað mér í skrif hef ég verið meira einbeitt og afkastameiri. Neikvæða hliðið er svo að það er greinilega fitandi að eiga félagslíf... er það ekki týpískt? Það er ekkert ókeypis í þessu lífi. Var á víkingahátið síðasta laugardag og grillveislu á eftir, svo átti barinn hér afmæli á þriðjudaginn og ég og Sarah þurftum að hjálpa til við að slátra þessum 200 lítrum af fríum bjór. Var reyndar minnt á ákveðið kvöld í Nýhöfn fyrir 2 árum, þar sem við sátum undir tjaldi í þrumum, eldingum og tilheyrandi vatnsflóði. Maður lætur jú ekki svoleiðis smáræði stoppa sig. Fór svo út að borða á fimmtudaginn á veitingahúsi þar sem maður má taka með eigin vín (akkuru er engin svoleiðis staður í Sódómu Reykjavík?)og þar sem ALLIR höfðu tekið með vínflösku (til öryggis skiljiði)endaði selskapurinn á að drekka flösku hver. Sem svo leiddi til þess að það var náttúrulega ekki annað að gera en að hella sér á djammið. Hélt mig líka heima í sófanum í gærkvöldi - algjörlega af frjálsum vilja í þetta skiptið!
En held að ég og samviskubitið mitt förum út núna og reynum að ganga af okkur bjórvömbina - sjáumst síðar.

28. júlí 2006

PMS

Passar ágætlega við síðustu viku hjá mér ;o)

8 Things PMS Stands For:

1. Pass My Shotgun

2. Perpetual Munching Spree

3. People Make me Sick

4. Provide Me with Sweets

5. Pass My Sweat pants

6. Plainly, Men Stink

7. Pack My Stuff

8. Potential Murder Suspect

21. júlí 2006

Svikin

Ég var svikin - SVIKIN segi ég ykkur! Bölvaðir veðurfræðingar - jafn áræðanlegir og pólitíkusar! Það er SÓL og viðurstyggilegur hiti og raki!!! Grrr....
Enn einn heitur dagur í helvítinu sem ég kalla skrifstofuna mína.
En hvað um það: fór að sjá Pirates of the Caribbean 2 í gær - náttúrulega tóm gleði! Var hins vegar afar skrýtið að koma út úr bíóinu klukkan 00.15 og það eru 24 gráður úti (samkvæmt hitamælinum á torginu) - manni leið eins og maður væri sjálfur einhversstaðar í Karíbahafinu! (Enginn Captain Sparrow samt - því miður). Ég er að spá í að sækja um hæli í ísbjarnargryfjunni í Scandinavisk Dyrepark þar sem þeir framleiða 5 tonn af snjó á hverjum degi. Fór þangað með Múttu í síðustu viku (hún var hjá mér eina viku - voða gaman)- æðislegt að sjá glaða ísbirni í dýragarði og það "up close and personal" (eins nálægt og maður getur sloppið frá með alla útlimi ;o) Það var heldur ekki leiðinlegt að sjá 7 ofvirka úlfaunga gera foreldra sína gráhærða. Fórum líka í Den Gamle By og til Skanderborg sem er ofboðslega fallegur smábær hér skammt frá. Fyrir utan alla útsýnistúrana innanbæjar.
En mín bíður víst heill hellingur að gera - verð að reyna að ná sem mestu áður en sólin byrjar fyrir alvöru að skína inn um gluggana hér og bræðir heillann í mér.
Later...

20. júlí 2006

Mér finnst rigningin góð

Gleði gleði! það er spáð regni á morgun! Og hitinn á að lækka niður i 25 stig!



Það er búið að vera gjörsamlega óbærilegur hiti hér síðustu daga.
Kannski ég eigi nú von um að lifa af eftir allt saman.
Syngið með mér:.



Mér finnst rigningin góóóóð...

14. júlí 2006

Tók prófið:

Do You Attract the Wrong Type of Men?

og þið getið skemmt ykkur yfir niðurstöðunum hér:

You're a strategic sister!

Strategic Sister who knows what she wants and how to get it. Go girl!

You have some excellent dating skills and a good, positive attitude which is a healthy way to go about finding a great love match. You probably have been in happy, solid relationships before and enjoyed them even though they weren't perfect. Now, you want to find the right, life or long-term partner for yourself and you're going the right way about it.

You know what you're looking for and can communicate effectively to quickly explore the possibilities. You've quite savvy and won't tolerate the wrong man for long. Looking your best on your quest for love boosts your self-confidence and self-esteem ? which only serves to make you come across as even more attractive. Just be careful not to come across as too forthright though should Mr Right come along. Retain an air of mystery and slowly unravel who you are and what your life is about, like a gorgeous layered chocolate being unwrapped.

Riiiiight...

27. maí 2006

timbur

Og svo fer litla paddan í smá bæjarferð og skilar sér fyrst heim um klukkan 15 daginn eftir - ekki dauð úr öllum æðum enn. En nú er það vídeó og nammi með timburmönnunum. Hafið það huggulegt elskurnar.

26. maí 2006

Post - júróvisjón

Úps! Er orðið svona langt síðan ég bloggaði síðast? Þetta er náttúrulega engin frammistaða! Látum okkur nú sjá - hefur nokkur skapaður hlutur gerst síðan síðast? Öhh? eiginlega ekki. Jú - það var náttúrulega Júróvisjón! Og það var talsvert öðruvísi en venjulega hjá mér. Í staðin fyrir að drekka mig fulla í góðum félagskap og gera grín að lélegri músík og enn verri klæðaburði, endaði ég niðri í nýja stúdentahúsinu ÖFUGU MEGIN VIÐ BARINN!
Hafði í einfeldni minni látið vinkonu mína tala mig inná að vera barþjónn hluta úr kveldi og hún hafði talið mér trú um að hér væri á ferðinni svona týpískur "föstudagsbar" sem er 3-4 tegundir af bjór og svo skot af og til. Það taldi ég nú að ég ætti að geta ráðið við þótt ég hefði aldrei verið barþjónn. Ég fékk þess vegna vægt hjartaáfall þegar ég mætti á staðinn og við mér blasir risastór og flottur bar sem er fullkomlega samkeppnisfær við hvaða Reykvískan bar sem ég hef komið inná. Ég og Sarah fengum 5 mínútna kennslu á kassa og kortavél og svo var okkur bara kastað útí djúpu laugina og þar tróðum við marvaðan í 3 tíma. Held reyndar að þetta hafi gengið stóráfallalaust - það kvartaði allavega engin við mig persónulega, en eftir að vaktinni lauk var ég enn edrú og svo búin á því að við fórum bara heim um 2 leitið. Það var ekki aaaaaaaaaaaalveg það sem ég hafði planað, enda var þetta fyrsta skiptið sem ég fer út á lífið síðan í byrjun MARS!
Mér er greinilega ekki ætlað að eiga neitt sem heitir skemmtanalíf í ár.
Og getur maður verið ekta íslendingur ef maður gefur ekki skýrslu um veðurfar? Þið ykkar sem hafið þurft að díla við snjó getið huggað ykkur við að sumarið varaði eina viku hér - síðan er búið að rigna og rigna og rigna og spáð meiri rigningu svo langt sem veðurfræðingar geta séð.
Ég er náttúrulega að reyna að sjá björtu hliðina á bleytunni - það verður að viðurkennast að það er mun auðveldara að sitja föst við tölvuna þegar regnið bylur á glugganum!
Annars á að hanga þurrt af og til í dag og Sarah og ég ætlum að freista gæfunnar og fara á útimarkað við höfnina seinnipartinn. Hversu mikið viljið þið velja að það kemur skýfall þegar við erum búnar að borga okkur inn?
Hvað meira get ég mjólkað út úr þessu endalausa tilbreytingarleysi sem ég kalla líf mitt? Tókst að fara í bíó um daginn - fyrsta skiptið í fleiri mánuði. Sá Match Point - ekki slæm mynd, en kannski full róleg fyrir mig og gerði heldur ekki góða hluti fyrir tiltrú mína á (karl)mannkynið.
Eins og hún væri mikil fyrir...

11. maí 2006

Hitaslagur

Ég er að sálast - sit með tunguna lafandi við tölvuna og reyni í örvæntingu að fá heilasellurnar til að virka. Heilasellurnar bera við sólstingi og gjörsamlega neita að gera nokkuð sem helst fyrr en hitastigið lækkar. Ég er alvarlega að íhuga að gefa lærdóm uppá bátinn í dag - eða í það minnsta að taka eins og eina fræðigrein með mér niður í grasagarðinn, leita uppi skugga undir snotru tré og sjá hvort heilinn kólnar nægilega niður. Með öðrum orðum - ég er Demitrius í dag (þið sem ekki lesið Discworld verðið bara geta hvað ég meina).
Það er víst allmennur frídagur á morgun, Store Bededag held ég að hann kallist - ég verð að viðurkenna að ég veit ekki hvort og þá hvaða íslenski helgidagur það er. Enda trúlaus andskoti. Veit heldur ekki hvað dagurinn gengur útá, en á óljósar minningar frá síðasta ári um að maður eigi að borða hveitibollur með smjöri um kvöldið - ekki spyrja mig af hverju! Helgin verður líklega bara lærdómur og vinna - sem betur fer á að kólna aðeins og þykkna upp svo það verður ekki alveg jafn hræðilegt að vera innan dyra. Ég veit að ég hljoma hræðilega vanþakklát en það eina sem ég fíla við svona heita sólardaga eru kvöldin - á dagana líður mér bara illa af hitanum. Ég er hreinlega ekki hönnuð fyrir svona veður! Eini ljósi punkturinn eru hálfnaktir stæltir strákar útum allt - kvarta ekki yfir því...

3. maí 2006

Sól skín í heiði

Miðvikudagsmorgun, sólin skín, fuglarnir syngja og ég sit inni á sjóðheitri skrifstofu og reyni að þrælast gegnum fræðigreinar... Oh joy!
Annars allt gott að frétta úr Pöddulandi - fór óvænt út á lífið á föstudagskvöldið og hafði bara gaman af, þótt ekki væri tekið hraustlega á því þetta skiptið.
Og á föstudaginn er náttúrulega hápunktur ársins: Kapsejladsen í Universitetsparken.
Í stuttu máli sagt er þetta svar háskólanema í Árósum við kappróðrum þeim sem stundaðir eru við Oxford. En þar sem við erum að tala um dani er stíllinn talsvert annar en hjá bretunum. Hinar ýmsu námsbrautir (og nokkrir fulltrúar frá öðrum skólum) keppa um "hið Gullna Bekken" (já - bekken eins og á spítölum). Reglurnar eru (að því að mér skillst): hvert lið hefur 5 meðlimi og liðin taka með eigin "bát" (lesist: eitthvað sem flýtur og er án vélarafls). Einungis einn liðsmaður má vera í bátnum í einu. Þessi eini liðsmaður á að róa yfir lækinn, drekka einn bjór eins hratt og hann getur og svo snúast 10 hringi um sjálfan sig áður en hann rær til baka. Markmiðið er að fá alla liðsmenn til baka fyrst. Það keppa 2 lið í einu og 2 fljótustu liðin fara í undanúrslit. Það þarf varla að taka það fram að þetta er hreinn og klár sirkus - en líka frábær skemmtun og afsökun fyrir að eyða föstudagseftirmiðdegi úti í sólinni með kaldan bjór í hendi - og ekki kvarta ég yfir því...
Svo er bara að krossa fingur og vona að veðurspáin standist.

29. apríl 2006

Konur eru líka menn

Hef fengið að heyra að það sé yfirborðskennt af mér að velja mann vikunnar út af flottum skrokki og hef bara eitt að segja við því: konur eru líka Menn...

28. apríl 2006

Seint og um síðir

Hmm... það gengur ekkert alltof vel að blogga vikulega - biðst afsökunar á því.
Svo hér kemur örstutt yfirlit yfir markverða atburði í apríl:

1. Fékk tilfelli einn föstudaginn þegar ég áttaði mig á að líklega yrði þetta 5. föstudagskvöldið í röð sem ég myndi sitja heima og horfa á Amerikan Idol - til að bjarga geðheilsunni var farið á föstudagsbar tölvunördanna í staðinn. Mæli eindregið með þessu ef sjálfsmatið er lágt - þegar maður er svo til eini kvenmaðurinn á staðnum fær maður óskipta athygli... Ástandið var reyndar orðið örlítið scary í enda kvölds - en fékk athygliverða kennslu í "the mating ritual of the nerds"

2. Fór í dagsferð til Álaborgar með Söruh rétt fyrir páska. Fórum í dýragarðinn - alveg magnað. Er núna yfir mig ástfangin: vandamálið er bara að draumaprinsinn er 200 kíló og önnur tegund... Týpískt mín heppni! Eftir dýragarðinn kíktum við aðeins á Jomfru Anne Gade sem er bara pöbbar og að mér skillst er stúdentaafsláttur á þeim öllum. Stefni hörð að því að prófa þá kenningu einhverntíman, en þar sem við þurftum að fara heim um kvöldið náðum við ekki að prófa pöbbarölt ala Álaborg.

3. Kom í óvænta örferð á klakan - eins og flest ykkar vita. Náði rétt að sjá smettið á nokkrum vinum og vandamönnum - ekki nóg samt! En það var ósköp notalegt... Verð samt að viðurkenna að það var ósköp gott að komast til baka í hitastig með 2 tölum og blómstrandi páskaliljum útum allt. Sorrý bara verð að monta mig!

Og nú er það bara lærdómur og leiðindi - sem ég ætti reyndar að fara að hella mér í. Ég er búin að marg sannreyna að lærdómurinn sér ekki um sig sjálfur - því miður!
Lofa að gera mitt besta til að það líði ekki svona langt þar til ég skrifa næst - ætla staðfastlega að reyna að eiga mér líf til að skrifa um!!!
En hafið það gott þangað til elskurnar - knús úr baunaveldi.

29. mars 2006

Vorið er komið

Sælinú,
jú það lifir enn! Eða svona nokkurn veginn - brjáluð vinnutörn síðustu 2 vikurnar hefur tekið sinn toll af gamla skarinu. Er grá og guggin og að drepast úr vöðvabólgu og fyrirtíðarspennu. Alveg æðislegt að líta í spegilinn þessa dagana. Annars er lítið að frétta, enda hef ég ekki haft tíma og tækifæri til að gera neitt af mér.
Enn að bíða eftir vorinu sem kannski er að koma - hitastigið hefur allavega lafað yfir frostmarki undanfarið og krákurnar eru á fullu við hreiðurgerð. Það lítur samt ekkert út fyrir að maður setji vetrarfötin inn í skáp á næstunni - kannski sem betur fer þar sem ég á næstum engin sumarföt sem passa
Ætla að ráða bót á því þegar ég fæ laun erfiðis míns í apríl...
Athugilir fastagestir taka kannski eftir því að í rammanum til hægri hafa verið gerðar smávægilegar breytingar. ER AÐ LESA hefur vikið fyrir MAÐUR VIKUNNAR - bið Blíðuna afsökunar á að stela hugmyndinni hennar, en staðreyndin er sú að ég les ekkert annað en skólabækur þessar vikurnar og ég vil heldur hafa myndir af flottum strákum en sömu bókaforsíðuna standandi mánuðum saman...
Svo ætla ég að bæta inn nýjum dálki: Í KÝRHAUSNUM - innihaldið verður bara að tala sýnu máli. Stefni sumsé eindregið að því að uppfæra síðuna minnst einu sinni í viku hér eftir - maður getur allavega reynt!

15. mars 2006

Enn á lífi

Enn á lífi - brjálað að gera, svo þetta verður stutt...

vildi bara deila þessari síðu með ykkur - hvenær ætli það komi íslensk svona síða?
Myndi spara tíma og fyrirhöfn...

En ætli skítkastið og persónuníðið færi ekki fljótt úr böndunum - en hugmyndin er góð engu að síður!

Hafið það gott elskurnar.

8. mars 2006

Bara varð að prófa þetta:

You Are 26 Years Old

Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.


Fékk vægt þunglyndiskast þegar við vorum á leiðinni í sumarbústaðinn og ég komst að því að á lestarmiðanum stóð : 2 börn og 1 fullorðinn - og ÉG var sú fullorðna!!!
Annars átti ég með eindæmum notalega helgi í sumarbústaðnum, fullt af góðum mat, góðu víni, og villtir hérar hoppandi um í snjónum fyrir utan. Hefði alveg getað hugsað mér að vera lengur, en svona er lífið... Og meðan ég man: hér eru myndir frá Moulin Rouge - þær verða ekki þarna lengi!

4. mars 2006

Post-Moulin Rouge...

Jæja... Moulin Rouge kvöldið reyndist... athyglivert - en ég held að ég tjái mig ekkert meira um það hér. Ég set kannski inn myndir seinna (ef þær standast ritskoðun), þó ekki væri nema bara til að þið getið skemmt ykkur yfir múnderingunni sem ég var í. Það þurfti 2 bjóra og heila hvítvínsflösku til að fá nægilegt hugrekki til að láta sjá mig í þessu! Og nú verð ég að drífa mig í að pakka niður - ég og timburmennirnir mínir erum að fara í sumarbústað. Í snjónum. 2 dagar í afslöppun og engin tölva... Akkúrat það sem mig vantar :o)
Sjáumst síðar.

28. febrúar 2006

stund milli stríða...

Og enn einn "drive-by" póstur svona í amstri hversdagsleikans.
Einu markverðu fréttirnar eru þær að ég dreif mig á djammið síðasta laugardag - loksins loksins. Var bara mjög gaman en gerðist svosem ekkert sem í frásögur er færandi. Komst þó að því að sökum æfingarleysis hafði ég gleymt nokkrum af þeim hlutum sem reynslan hafði áður kennt mér (hélt ég allavega). Svona atriði eins og :

1. Ekki blanda saman tegundum
2. Ekki drekka kokteila sem eru í neonlitum.
3. Ekki láta kengúrur plata þig til að stinga hendinni í magasekkinn...

Var ég annars búin að nefna að þetta var Fastelavnsbar? Ég klæddi mig reyndar ekki upp - á það inni á föstudaginn. Er búin að láta Söruh tala mig inná að fara á Panikfest með Moulan Rouge þema. Hef reyndar mínar efasemdir um að ég taki mig vel út sem frönsk vændiskona frá 18. öld og er að spá í að fara sem sófi í staðinn. Er þegar af réttri stærð og sköpulagi - eina sem vantar er að teipa einn skrautpúða einhversstaðar og þá er gerfið komið...
Og svo er það sumarbústaðarferð á laugardaginn - er á leiðinni út úr Árósum! Í heilar TVÆR nætur! Eins gott að njóta þess, þetta er síðasta fríið í fyrirsjánlegri framtíð. Ó ljúfa líf...

20. febrúar 2006

laumupóstur

Bara örstuttur póstur (er að stelast í vinnunni...) vegna þess að ég er með slæma samvisku yfir því hvað ég er löt að blogga. Það er bara afskaplega dapurlegt að reyna að blogga þegar maður hefur ekki frá neinu að segja. Hversu oft nennið þið að lesa að ég læri, sef og horfi á sjónvarp? Auglýsi hér með eftir meira spennandi lífi ef einhver vill býtta við mig - þótt ekki sé nema í 1-2 vikur.
Annars er ég alltaf að bíða eftir vorinu núna, í hvert skipti sem snjórinn bráðnar og birtir aðeins yfir ákveður mín að nú sé sko að koma vor! Og svo þegar snjóar aftur er ekki laust við að neðri vörin vobbli aðeins... Svona er þetta búið að ganga síðustu vikurnar - en nú er ég enn einu sinni búin að bíta í mig að vorið sé að koma, þrátt fyrir að það sé skítkald, grátt og gangi á með slydduhreti af og til. Ég rakst nefnilega á fyrstu vorblómin í gær - ósköp lítil og vesældarleg þar sem þau teygðu gulan kollinn upp úr krapinu - en yljuðu mér meira um hjartað en heilt haf af rósum. Veðurfræðingarnir geta haldið áfram að spá snjó og leiðindum - ég VEIT að vorið kemur bráðum...

4. febrúar 2006

komin febrúar

Jæja þá er janúar búin - og ekki sakna ég hans.
Ég veit að ég hef ekki bloggað lengi, en ég hef hreinlega ekki verið í skapi til þess - ég held að flest ykkar vitið hvers vegna. Síðustu 2 vikur hafa ekki verið sérlega skemmtilegar verð ég að segja. En verður maður ekki að vera bjartsýnn og vona að febrúar lumi kannski á einhverju ánægjulegu? Ekki það að það er ekki nokkur skapaður hlutur á döfinni hjá mér - bara vinna og skóli útí eitt. Mér er að vísu boðið í veislu í lok febrúar en held ég afþakki pent þar sem einu manneskjurnar sem ég kem til með að þekkja fyrir utan gestgjafana eru líklega manneskjur sem ég er ekkert sérlega áköf í að hitta... Of mikil hætta á afar pínlegum aðstæðum. Neita að útskýra þetta nánar. Annars er það synd - ég fór út á lífið fyrir nokkrum vikum síðan og áttaði mig þá á því að þetta var í fyrsta skiptið í marga mánuði sem ég hef virkilega farið á djammið (þ.e. drukkið og dansað og sleppt aðeins fram af mér beislinu). Er ég bara orðin svona gömul og ráðsett eða er það bara vegna þess að ég umgengst enga alvöru djammara lengur? (Lesist - Anna og Dóa eru ekki á svæðinu ;o))
Það er til dæmis laugardagskvöld núna og eina planið er að horfa á endursendingu frá Golden Globe verðlaunaafhendingunni - getið þið fundið spenninginn í loftinu?
Aaargh...

13. janúar 2006

Föstudagurinn 13.


Bara stóðst ekki mátið að blogga á föstudaginn 13. - ekki svo oft sem maður fær þessa yfirskrift. Þar sem ég ætti að vera löngu sofnuð verður þetta ekki langt, bara smá lífsmark... Annars er planið að horfa á hryllingsmyndir í kvöld og drekka rauðvín og hafa það (ó)huggulegt - aldrei að vita nema maður skelli sér aðeins á hryllingsbar hér á vistinni seinna ef maður þorir svo ekki að sofa einn...
Verð líka að deila þessu með ykkur svona í tilefni dagsins - góða helgi!

6. janúar 2006

Gleðilegt grátt hár!

Gleðilegt ár elskurnar!
Jæja nýtt ár kallaði á nýtt útlit... Vona að þessi útgáfa virki líka hjá þessum sérvitringum sem nota Mozilla
Og talandi um það - ég vil gjarnan fá að vita hvort maríuhænurnar mínar sjást í Mozilla (Svo þið getið nú dáðst að því að ég kann að opna Photoshop ;o) )
Viðurkenni fúslega að þetta er ekki sérlega frumlegt hjá mér en er bara of löt til að leggja mig fram núna - tek mig kannski til seinna þegar mig vantar afsökun til að læra ekki. Sarah og ég erum búnar að gera stríðsáætlun fyrir næstu 3 vikur og þegar því var lokið var nokkuð ljóst að við getum gleymt öllum væntingum um einka- eða félagslíf næstu vikurnar - verður alger bilun! Svo þið verðið að afsaka ef það verður lítið bloggað á næstunni - þið eruð þá ekki að missa af neinu spennandi.
Og talandi um spennu - hjartað mitt er í skammarkróknum! Stóð það að verki við að slá hraðar allt í einu - og ástæðan var rangur maður, á röngum tíma, í vitlausu húsi. Neita að taka þátt í svona vitleysu og er að íhuga að sækja um nýtt (og greindara) hjarta. Kannski er litla greyið reyndar bara örvæntingarfullt, enda lítið haft að dunda sér við síðustu mánuði.
Svo eru reyndar fréttir af vinnumálum - haldiði ekki að kerlingarnornin sem ég var að vinna fyrir hafi ekki hringt og spurt hvort hvort það væri nokkur leið að fá mig aftur? Lét aldrei þessu vant skynsemina ráða og í stað þess að segja henni að éta það sem úti frýs (sem var gríííííðarlega freistandi) sagðist ég myndi athuga málið EF nokkur skilyrði væru uppfyllt... Hún ætlar að hringja aftur eftir nokkra daga - en ég hef sterklega á tilfinningunni að ég fái allar mínar kröfur uppfylltar, henni virtist AFAR umhugað um að fá mig til baka. Verð að viðurkenna að ég fékk kikk út úr því að láta hana ganga á eftir mér... Mwuahahaha!
Svona er maður nú orðin andlega þroskaður...