Og allt í einu eru jólin á næsta leiti og meira en mánuður síðan ég bloggaði síðast - uss hvað ég er léleg. Ég varð eldri í lok nóvember eins og vanalega - en ekkert vitrari, eins og vanalega...
Átti fína afmælishelgi með vinunum frá stúdentagarðinum, ósköp notalegt bara. Svo kom desember og það varð brjálað að gera í vinnunni því það voru hlutir sem þurftu að klárast fyrir jólafrí - en ég tek allavega frí!
Og reyndar er fríið byrjað, því ég er núna að drepa tímann áður en ég legg af stað til Leuven með næturlestinni. Verð að dröslast með stóru ferðatöskuna því jólagjafirnar (bæði mínar og Dóu) fylla hálfa tösku svo ég fíla mig eins og alvöru jólasvein(ku). Þetta er annað skiptið mitt með næturlestinni og í þetta skiptið er ég í "sitjandi" vagni (ekki með svefnbekk) með 5 öðrum. Guð hvað ég vona að það verði ekki hópur af unglingum eða barnafjölskylda!
Er ansi hrædd um að ég muni líta svona út í fyrramálið þegar ég næ til Leuven - en ætli það lagist ekki með smá lúr og svo helling af kaffi á eftir. Hef grun um að Dóa muni reyna að koma bjór í mig en ég er enn ekki búin að jafna mig eftir jólagleðina síðasta föstudag svo það verður ekki létt! En ætli henni takist það ekki á endanum - það væri þá ekki í fyrsta skiftið ;o) Gleðileg jól elskurnar!
21. desember 2011
15. nóvember 2011
Hmmm....
Og þá er ég loksins komin með innleggin og almáttugur hvað það er hrikalega óþægilegt að ganga með þau! Ímyndið ykkur golfkúlur undir ristinni og þá getið þið nokkurn vegin skilið hvernig það er. Stoðtækjafræðingurinn sagði að það myndi taka svona 2 vikur að venjast þessu - á meðan hökti ég um eins og áttræð kona sem hefur fengið aaaaaðeins of mikið sherrý með kvöldkaffinu. Er ekki laust við að það læðist að mér sá grunur að hér sé bara verið að lækna verkina með að draga athyglina frá þeim...
10. nóvember 2011
5. nóvember 2011
Hotel California
Er í hótelherbergi á Austurbrú - í sjálfskipaðri útlegð. Þorskhausinn sem er fluttur inn í íbúðina við hliðina á mér er nefnilega að halda partý. Eiginlega ætlaði ég að vera heima og þrauka þetta bara, en þegar ég kom heim um kl. 13 í dag var músíkin byrjuð nógu hátt til að það var engin leið að leiða það hjá sér. Um klukkan 15 var ég tilbúin að stinga göt á hljóðhimnurnar mínar með gaffli til að losna við að hlusta á þetta leiðinda glamur sem þau kalla tónlist. Og þar sem þau voru greinilega samt bara að taka til og gera klárt fyrir partýið gat ég reiknað út að hávaðinn myndi margfaldast eftir sem liði á kvöldið og ég myndi enda með að taka kjötsaxið mitt með yfir og kljúfa manninn í herðar niður... Svo ég fór á netið, bókaði mér hótelherbergi, henti tannbursta náttfötum, bók og Ása mínum niður í tösku (passaði upp á að það væri nettenging í herberginu að sjálfsögðu)og stakk af. Ég sleppi því frekar bara að kaupa mér nýja skó - geðheilsan gengur fyrir! Og svo mun ég vonast eftir að fíflið verði svo fullur að hann detti út af svölunum í nótt. Það er engin lyfta og dyrnar þröngar svo íbúðin hans er ekki hjólastólavæn ;o)
Myndalegi útlendingurinn í móttökunni var ægilega hrifin af nafninu mínu og fannst þetta eins og tekið út úr Tolkien bók. Ef ég væri týpan sem flörtaði væri ég nú á barnum að stytta honum stundir í vinnunni - en í staðin er ég komin í náttfötin og er að gera mig klára í að lesa aðeins áður en ég fer að sofa bara. Sorglegt en satt!
Góða nótt elskurnar og verið tillitsöm við nágrannana - þeir gætu átt kjötsax og ekki haft efni á hótelherbergi...

26. október 2011
Guð hvað ég skil hann
Bara smá vídeó í tilefni af því að ég er að fara í aðhald - ég sá sjálfa mig svoooo í litla gríslíngnum hér
18. október 2011
Haustið kom með sólina
Loksins loksins birti til í danaveldi - október er búin að vera alveg ágætur, kalt en mikið sólskin. Var lika komin tími á smá sól! Annars bara allt í góðu hér. Var mikið að gera í vinnunni í september en október hefur verið aðeins léttari og meiri tími til að vera svolítið sósíal.
Það var vinnustaðapartý í byrjun mánaðarinns og bjálfinn ég gugnaði á að skrá mig í Go kart med det samme og endaði í GPS ratleik. Þótt að liðið mitt ynni verð ég að viðurkenna að ég renndi oft löngunaraugum yfir í salinn við hliðina þar sem annar hópur af vinnufélögum var að skemmta sér konunglega í Go kart bílunum. Þriðji flokkurinn var í bowling-salnum, ég held líka að ég hefði skemmt mér betur þar. Allra verst er að við þurftum að fara í gengum þetta EDRÚ! Fengum fyrst kampavín eftir að leikjunum var lokið. Annars var þetta fínasta veisla bara, lenti með skemmtilegu fólki á borði og í "eldhúspartýi" eftir matinn (við sem ekki meikuðum danshljómsveitina söfnuðumst saman í mötuneytinu og kjöftuðum þar). Náði enn og einu sinni að sannreyna að það er ekki bara í kýrhausum sem margt býr - karlhausar eru enn undarlegri.
Svo kom Daði bróðir aðeins í heimsókn - gaman að því enda langt síðan við höfum haft tíma til að spjalla saman. Ákveðið áfall að átta sig á að "litli" bróðir er farin að grána líka - hvernig stendur á því þegar ég er bara 18?!?
Fór til fótalæknis og reyndist ekki fótbrotin heldur "bara" með skaðaðan stoðvef í löppinni og þarf að fara til stoðtækjafræðings og fá sérsmíðað innlegg til að reyna að minnka álagið á skaðann þegar ég geng. Hafði aldrei áður heyrt orðið "bandagist" (danska orðið yfir svona stoðtækjagúrú) og þar sem danska orðið "bandage" er sárabindi valdi heilinn minn að sýna mér svona gaur sem vefur inn múmíur. Læknirinn sem ég var hjá skildi ekkert í af hverju ég hló...
Annars ligg ég bara í Supernatural þáttunum (ekkert í sjónvarpinu) og les "Á milli trjánna" eftir Gyrði Elíasson - það er ekki bók fyrir fólk sem vill hafa upphaf miðju og endi á sögunum sínum!
Ekki samt láta það hræða ykkur frá bókinni, það eru fínir sprettir í henni (t.d. sagan "Horft af brúnni" sem fékk mig til að hlæja upphátt) og maður hefur bara gott af því að fá ekki allt matreitt ofan í mann alltaf.
Svo eru laufin að byrja að falla af trjánum og styttist í nóvember sem er undantekningalaust blautur, kaldur og vindasamur hér :(
Ég hugga mig við að mín bíða allavega tvennir tónleikar og ein leikhúsferð - ég ætla ekki að láta mér leiðast í vonda veðrinu!
25. september 2011
Bilun

Afsakid stafsetninguna en finn ekki islenska stafi å spjaldtølvunni. Vildi bara sina ykkur hvad gerdist thegar gamla fekk føndurkast i dag. 3 timum seinna ranka eg vid mer med bloduga fingur og thennan bunka - reyndar nådi eg ekki ed klåra rauda armbandid thvi eg var uppiskroppa med hjørtu... thetta er nåtturulega bilun!
7. september 2011
Á maður að reyna að sparka lífi í þetta blogg?
Það er orðið ansi langt síðan - voðalega líður tíminn hratt. Ég held ég hlífi ykkur við löngum lista af hlutum sem mig minnir að hafi gerst síðan síðast og láti nægja að byrja eftir sumarfrí þegar ég kom út aftur. Eins og þið líklega hafið heyrt er þetta búið að vera næst blautasta sumar í danmörku síðan mælingar hófust fyrir 132 árum (eða eitthvað álíka), svo maður hefur ekkert verið mikið meira utandyra en nauðsyn krefur. Það er hjálpar svosem ekki að það er eitthvað að annarri löppinni svo ég er meira og minna hölt og er að fara í röntgen eftir 2 vikur til að tékka hvort ég hafi nokkuð brotnað svona bara upp úr þurru. Helvíti óheppilegt því ég á að byrja í Zumba í næstu viku, ætla að fara í fyrsta tímann allavega en svo verð ég að sjá til hvort ég get verið með.
Ég man allavega ekki eftir að hafa slasað mig en það er orðið svo langt síðan að ég fór að finna fyrir þessu að allt er mögulegt. Ég skrapp samt til Árósa eina langa helgi og er hrikalega stollt af að hafa farið upp í Regnbogann hans Ólafs Elíassonar og farið allan hringinn án þess að fara í paník eða enda á hnjánum af svima. Reyndar varð Julie vinkona að styðja við mig af og til því það komu nokkur svimaköst - en þetta var samt stórsigur.
Annars hefur innilokunin haft þær aukaverkanir að ég er hundleið á íbúðinni minni og er búin að nota alltof mikinn tíma í að skoða Ikea listann og plana smábreytingar. Ekkert brjálæðislegt, bara nýjar gardínur og svona. Við Pernille ætlum að skella okkur í Ikea einhverntíman í lok mánaðarins og ætli heimilisbrjálæðið renni ekki fljótlega af mér þegar ég er komin heim með dótið og þarf að koma því saman og á sinn stað. Einhvernveginn kæmi það mér ekki á óvart ;o)

23. mars 2011
Vorið kom - og fór og kom og fer aftur á föstudaginn
Það er óskaplega erfitt þessa dagana að reikna út í hverju maður á að vera, því veðrið sveiflast á milli 2 og 12 gráða, sólar og ískalds vinds. Maður er því alltaf annað hvort of mikið eða of lítið klæddur og ég verð að viðurkenna að skapið er svolítið eftir því þessa dagana. Hins vegar er daginn farið að lengja og það er jú hið besta mál. Reyndar skifta danirnir yfir í sumartímann aðfarnótt næsta sunnudags og ég er alltaf cirka viku að jafna mig, en þá verður orðið bjart þart til ca. 8 á kvöldin! Gleði gleði (ef veðrið bara skánar svo maður nenni að vera úti í birtunni.
Annars voða lítið að frétta - Belgíutúrinn gekk vel þótt veðrið þar hafi heldur ekki verið alveg upp á sitt besta. Hjálpaði afmælisstelpunni að halda uppi orðstýr islendinga á næturlífinu - gömlu konurnar voru ekki dauðar úr öllum æðum.
Lenti svo í algjöru vinnubrjálæði þegar ég kom heim en það versta er gengið yfir núna.
Er svo bara að telja niður í páskafríið - ég tek 3 vikna frí og boy oh boy hvað ég ætla að njóta þess. Veit ekki enn hvort ég fer til Árósa yfir sjálfa páskana eða hvort ég verð bara heima og slappa algjörlega af - það kemur í ljós. Eftir páska liggur leiðin til Vínar og Bratislava :o)
Varð litið í spegill einn daginn og uppgötvaði að ég var svört frá toppi til táar - og það er svo algjörlega ekki ég að ég rauk út og keypti mér rauða handtösku - og þar með fullkomna afsökun fyrir að finna mér nýja slæðu líka því ég á enga rauða...
Og ætli ég finni ekki afsökun fyrir eyrnalokkum líka - er ekki mikið fyrir fatakaup þessa dagana en aukahlutina passar maður alltaf í ;o)
Anyway - bara að láta vita að ég er enn á lífi, vildi óska að ég hefði eitthvað spennandi að segja en ég þyrfti að eignast eitthvað líf fyrir utan vinnu til þess.
*andvarp* Ef þið hafið brilliant hugmyndir um hobby sem myndi henta mér en samt inniheldur annað fólk - endilega komið með þær í kommentin.

19. febrúar 2011
Gjafir eru gefandi
Var í stórri verslunarmiðstöð í dag að versla og vesenast - og það er í sjálfsögðu ekki í frásögur færandi, nema hvað ein af búðunum sem ég heimsótti var "Leikfangabúð" - fyrir fullorðna skiljiði. Var að redda afmælisgjöf (nei Dóa það var ekki þín - þótt það hafi nú hvarflað að mér að slá 2 flugur í einu höggi)og spáði svosem ekki mikið í þessu fyrr en ég kem út og horfist í augu við miðaldra mann sem greinilega hafði verið að gjóa augunum á þetta syndabæli með blöndu af spenning og skömm. Fjarsýnisgleraugun gerðu augun í honum stór en þau urðu enn stærri þegar ég birtist í dyrunum og hann varð eins og ugla. Það var fyndið í sjálfu sér. En svo kíkir hann niður á pokann í hendinni á mér (sem var alveg ógegnsær og ómögulegt að sjá hvað var í honum en forvitning var augljóslega að drepa manninn - svo ég gat ekki annað en sent honum mitt stærsta skítaglott þegar hann leit upp aftur. Honum varð svo mikið um að hann gekk á bekk - og þá gat ég ekki annað en skellihlegið! Og svo gekk ég mína leið og skildi ræfilinn eftir í algjöru fáti. Hápunktur dagsins :o)
12. febrúar 2011
Sæljónið lifir
Febrúar hefur að mestu leyti farið í að hósta upp lungum og lifur - lá í viku hér heima og er rétt komin á lappir aftur. Að sögn vinnufélagana hljómar hóstinn eins og sæljón - gerði náttúrulega dúndur fyrir sjálfsmatið. Ætla að hlífa ykkur við frekari sjúkratali og deila heldur með ykkur þessu dásamlega skipuriti:

see more Funny Graphs

see more Funny Graphs
17. janúar 2011
Same shit - different year
Og svo er komið árið 2011 og allt er við það sama - ég er enn húðlöt og geri ekkert annað en vinna og glápa á sjónvarp og það er takmarkað hvað maður getur bloggað um það.
Átti annars ágætis hátíðir - fjölþjóðlegt aðfangadagskvöld þar sem ég brilleraði í eldhúsinu og gamlárskvöld sem var rólegra en ég hefði kosið því ég var of lasin til að vera á meðal fólks. En annars náði ég að slappa vel af - lesa, pússla, glápa á sjónvarp og jafnvel aðeins út að labba líka í nýárssólinni. Dóan kom við á leiðinni til Belgíu og við áttum lata helgi hér, mjög næs allt saman. Það kom asahláka hér um helgina og snjórinn er allt í einu næstum horfinn og greyið fuglarnir virðast halda að það sé að koma vor! Ég sver að ég sá bjartsýnan skaða í gær sem var byrjaður á hreiðri! það er nú svona 2 mánuðum of seint - meira að segja fyrir skaða og krákur (gera hreiður snemma til að geta fóðrað ungana sína með eggjum og ungum annarra fugla).
En ég skil það svosem vel - er sjálf farin að telja niður í vorið og hækkandi sól. En ég hef allavega handboltann til að stytta mér stundir út janúar. Litla krumpaða þjóðarstolltið hefur afar gott af þessu og mig dauðlangar að skella mér í blátt og taka lestina til Svíþjóðar á laugardaginn. Nema mér takist að finna stað í Kaupmannahöfn þar sem Íslendigar sjá leikinn saman. Þið eruð náttúrulega velkomin að koma hingað og horfa á leikinn með mér ;o)
Og nú er leikurinn við Japan að byrja - Sayonara!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)