Er í hótelherbergi á Austurbrú - í sjálfskipaðri útlegð. Þorskhausinn sem er fluttur inn í íbúðina við hliðina á mér er nefnilega að halda partý. Eiginlega ætlaði ég að vera heima og þrauka þetta bara, en þegar ég kom heim um kl. 13 í dag var músíkin byrjuð nógu hátt til að það var engin leið að leiða það hjá sér. Um klukkan 15 var ég tilbúin að stinga göt á hljóðhimnurnar mínar með gaffli til að losna við að hlusta á þetta leiðinda glamur sem þau kalla tónlist. Og þar sem þau voru greinilega samt bara að taka til og gera klárt fyrir partýið gat ég reiknað út að hávaðinn myndi margfaldast eftir sem liði á kvöldið og ég myndi enda með að taka kjötsaxið mitt með yfir og kljúfa manninn í herðar niður... Svo ég fór á netið, bókaði mér hótelherbergi, henti tannbursta náttfötum, bók og Ása mínum niður í tösku (passaði upp á að það væri nettenging í herberginu að sjálfsögðu)og stakk af. Ég sleppi því frekar bara að kaupa mér nýja skó - geðheilsan gengur fyrir! Og svo mun ég vonast eftir að fíflið verði svo fullur að hann detti út af svölunum í nótt. Það er engin lyfta og dyrnar þröngar svo íbúðin hans er ekki hjólastólavæn ;o)
Myndalegi útlendingurinn í móttökunni var ægilega hrifin af nafninu mínu og fannst þetta eins og tekið út úr Tolkien bók. Ef ég væri týpan sem flörtaði væri ég nú á barnum að stytta honum stundir í vinnunni - en í staðin er ég komin í náttfötin og er að gera mig klára í að lesa aðeins áður en ég fer að sofa bara. Sorglegt en satt!
Góða nótt elskurnar og verið tillitsöm við nágrannana - þeir gætu átt kjötsax og ekki haft efni á hótelherbergi...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli