30. júlí 2009
Andleysi
Ég er búin að vera hrikalega andlaus eitthvað allan júlí - veit ekki hvort þetta er bara almennt orkuleysi (dregst varla út fyrir dyr) eða hvort þetta er "haustlægðin" mín komin óvenju snemma útaf lélegu dönsku sumri. Ég er allavega orðin hundleið, bæði á andleysinu, orkuleysinu og sjálfri mér almennt. Mun sparka í eigið rassgat um leið og ég hef orku til að lyfta löppinni...
17. júlí 2009
Flæðirit fyrir þá sem ekki geta haldið sér saman á ögurstundu...
Ég veit fátt verra en fólk sem reynir að halda uppi samræðum við mig þegar ég er að einbeita mér að einhverju allt öðru. Og ef það sem kemur út úr þeim er svo algerlega óviðeigandi í ofanálag... aaarhg! Tekur mann alveg úr stuði :o(
Ég er að spá í að prenta þetta út og afhenda næsta bólfélaga - ef ég kefla hann ekki bara...
Góða helgi ;o)
Ég er að spá í að prenta þetta út og afhenda næsta bólfélaga - ef ég kefla hann ekki bara...
Góða helgi ;o)
14. júlí 2009
Ég vissi það!
Breskir vísindamenn hafa komist að því að kettir eru búnir að þróa sérstakt mal til að fá sínu framgengt hjá manneskjum. Ekki það að kattaeigendum um allan heim hafi ekki (að einhverju leyti allavega) verið búið að gruna þetta lengi, en nú er það sannað svart á hvítu. Haldiði ekki að litlu lúsablesarnir séu ekki búnir að fatta að ef þeir mala á vissri tíðni (sem er svipuð tíðni og í ungbarnagráti) eru dósaupptakararnir þeirra mun fljótari að stökkva til og gera eins og til er ætlast...
Þeir nota þetta víst aldrei sín á milli blessaðir. Þar hafiði það svart á hvítu - þú getur kallað þig "eiganda" þar til þú ert blá/r í framan en það er kötturinn sem stýrir leiknum ;o)
Meira hér
Og sjálf vísindagreinin hér

8. júlí 2009
The Bitch is back...
Komin aftur til Danaveldis eftir góða, en stutta (fannst mér), dvöl á eldgamla Ísafoldi. Danmörk tók á móti mér með 29 gráðum og rakavegg sem gerði að verkum að ég var gegnvot af svita áður en ég var komin í gegnum “ranann” frá flugvélinni inn í flugstöð. Laugardagurinn var álíka slæmur og ég er eiginlega hissa að ég andaðist ekki! Sem betur fer var það síðasti hitabylgjudagurinn og ég hef aldrei verið jafnsæl yfir að sjá veðurspá upp á skúraveður í heila viku...
Er annars bara að reyna að höndla grákaldan veruleikann aftur, enda orðin svo ofdekruð eftir fríið að það hálfa væri nóg...
Það bíður mín tonn af þvotti í þvottakörfunni og hellingur af pósti sem á eftir að ganga frá, en mér hefur enn ekki tekist að finna nennuna – og ég er heldur ekki að meika að þurfa aftur að sjá um innkaup og matargerð! Svo það ég hef lifað á Cherioos pakkanum sem ég smyglaði með mér, en nú er hann búinn og ég neyðist víst til að herða mig upp á eftir og versla í matinn (síðasta tilraun endaði með 2 undanrennum – það var allt sem ég hafði ímyndunarafl í!).
Veit einhver um ódýran einkaþjón og kokk?

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)