21. september 2009
18. september 2009
Óheillakráka
Ég er bara ekki heppin þessa dagana. Ef ég væri ekki trúlaus myndi ég gruna guðina um að hafa tekið sig saman um að hrella mig. Ekki það að ég er svosem ekki ein um þetta þessa dagana, það er búið að ganga ýmislegt á í vinnunni og það er ekki (allt) mér að kenna! Tökum mánudaginn sem dæmi: við máttum öll bíða drjúga stund eftir að tölvurnar okkar ræstu sig um morguninn, og það varð fljótlega ljóst að eitthvað hafði farið úrskeiðis yfir helgina því öll kerfi gengu í hægagangi. Ég gat lifað með því. Svo kom í ljós að bærinn hafði náð að grafa sundur vatnslögnina í götunni svo við fengum skilaboð frá húsverðinum um að hugsa okkur vel um áður en við færum á klósettið því það væri ekki hægt að sturta niður! Óskemmtilegt, en ég gat lifað með því. En þegar ég komst að því að vatnskorturinn olli því að það var ekki hægt að fá kaffi í húsinu pakkaði ég saman og vann heima restina af deginum.
Það eru takmörk fyrir því hvað maður getur höndlað á mánudegi!
Annars lítið að frétta, klikkað að gera í vinnunni og búið að vera hið fallegasta haustveður síðan ég keypti regnkápuna... Helgarplanið er: stórhreingerning (og veitir ekki af) og að njóta veðurblíðunnar því veðurfræðingarnir segja að þetta séu síðustu góðu dagarnir í bili. Spurning um að hoppa upp í lest og fara í óvissuferð bara! Og þó, miðað við heppnina mína þessa dagana er það líklega að storka örlögunum.
Ég sé til hversu huguð ég er á morgun ;o) Góða helgi elskurnar!

6. september 2009
Haust í loftinu
Það er haust í lofti hér í Danaveldi, enda allt í einu komin september (bara sísona).
Búið að vera leiðinda skúraveður undanfarna viku eða svo, svo það er ómögulegt að klæða sig eftir aðstæðum (aðstæðurnar breytast stöðugt). Ég hef hins vegar verið afar ánægð með "Kálorminn", nýju rándýru regnkápuna mína. Ef þið furðið ykkur á nafninu getið þið séð hana hér (liturinn á myndinni er samt of daufur). Tek fram að ég keypti hana ekki út á útlitið - það er bara tær snilld að vera í henni því hún er næfurþunn og létt en algjörlega vatnsheld og með loftgötum undir höndunum svo maður sé ekki alveg soðinn. Nú vantar mig bara ný gúmmístígvél og þá er ég klár í danska haustregnið.
Annars lítið að frétta, Árósaferðin var voðalega hugguleg en fullkomlega skandalalaus. Svo er bara klikkað að gera í vinnunni og lítil orka til að hugsa um nokkuð annað. Fór nú samt og sá District 9 í bíó og skemmti mér vel - ekki mynd sem hentar öllum, en skylda fyrir sci-fi aðdáendur.
Vantar núna einhvern til að fara með mér á Inglorious Bastards - SKAL sjá hana í bíó.
Vinnupartý á föstudaginn og ég ætlaði eiginlega ekki að fara en vinnufélagarnir sögðu að þetta rólegheitalíf á mér væri að eyðileggja fyrir þeim glansmyndina af einhleypingjunum sem eru stanslaust að skemmta sér... Andskotans Sex and the City er búið að byggja upp fullkomlega óraunhæfar væntingar til einhleypra kvenna yfir þrítugt! Ég hef hvorki aðstæður eða orku í að djamma hverja helgi - er búin að liggja eins og slytti í sófanum meira og minna alla þessa helgi og ægilega sátt með það bara. Maður er orðinn svo gamall...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)