Bara örstutt blogg svona rétt áður en ég fer í vinnuna... á föstudagskvöldi - oh joy!
Er virkilega bara að telja niður dagana fram að síðasta vinnudegi - get varla beðið!
Svo er julenissekvöld á vistarbarnum - dauðlangar að skella upp skotthúfu eftir vinnu og sjá hvort það eru einhverjir sætir jólaálfar á svæðinu (líklega full bjartsýnt - en maður veit jú aldrei) en enda að öllum líkindum í sófanum fyrir framan sjónvarpið eins og venjulega :o( Allir aðrir eru á kafi í prófverkefnum svo það er tvísýnt að ég geti tælt nokkurn með mér og ég þori ekki ein... yrði eins og lítið lamb í ljónagryfju!!! En mig langar ÚÚÚÚÚT! Að sýna mig og sjá aðra...
En ég skil ykkur eftir með smá gleðigjafa fyrir helgina - nýjan teaser fyrir Ice Age 2 (Scrat og hnetan hans klikka ekki) og svo teaserinn fyrir Pirates of the Caribbean 2 (Johnny vinur minn klikkar ekki heldur) og síðast en ekki síst X3 (Hugh... þarf ég að segja meira?) - njótið elskurnar!
9. desember 2005
5. desember 2005
Komin desember bara!
Og allt í einu er komin desember - bara sísona! Ég veit ég hef ekki bloggað lengi en ég hef verið önnum kafin, og svo les þetta hvorteðer engin... Nobody loves me and nobody cares! Annars lítið að frétta: er orðin oggolítið eldri og í bullandi afneitun yfir því, búin að segja upp helv... vinnunni og það er mikill léttir (fæ svo stresskast yfir peningamálum eftir jól). Átti afskaplega notalegan Julefrokost á laugardagskvöldið og afskaplega latann sunnudag undir sæng fyrir framan sjónvarpið.
Svo eru nákvæmlega 2 vikur í dag þar til ég fer heim...
Svo eru nákvæmlega 2 vikur í dag þar til ég fer heim...
6. nóvember 2005
gleði gleði
Jæja, það var náttúrulega hrikalega gaman í bænum á föstudagskvöldið og tók gríðarlega sjálfstjórn að yfirgefa liðið fyrir miðnætti og skríða heim í ból. Það var heldur ekki notalegt að fara á fætur klukkan 05.00 - fann vel fyrir því að það höfðu verið innbyrtir nokkrir jólabjórar... Er nú að velta því fyrir mér hvort ég sé merkt Tuborg fyrir lífstíð, því Tuborgjólasveinarnir böstuðu mig með Carlsberg jólasveinahúfu og gerðu sér lítið fyrir og skelltu á mig tattóveri sem ég næ ekki af! 2 sturtur og endalausir handþvættir hafa ekki haft nokkur áhrif... Hugga mig við að litirnir á tattóverinu passa við flest fötin mín þessa dagana - væri náttúrulega skelfilegt ef litasamsetningin væri ekki í lagi! Það versta er að þetta var áminning um hvað það getur verið gaman á djamminu - svoooooooooooo langt síðan ég hef komist í svona mikin ham, og nú langar mig ÚT! Sé samt ekki fram á neitt félagslíf á næstunni, er að vinna aftur næstu helgi og þar að auki eru allir sem ég þekki að berjast við ritgerðir og brjálaðan lærdóm fram að jólum... Verð víst að bíða eftir Julefrokost - hvenær sem það nú verður. Sniff sniff... (bugast af sjálfsvorkun og loggar sig af)
4. nóvember 2005
Snjókorn falla
Bara örstuttur póstur til að láta vita að ég er á lífi - varla þó. Er búin að vera að vinna eins og kleppari og reyna að kreista inn lærdómi inn á milli, svo það er bara stanslaust stress og læti. Í dag fellur svo snjórinn í Danaveldi - sem er af einhverjum ástæðum notað yfir fyrsta daginn sem jólabjórinn er seldur á börunum (kl. 20.59 nákvæmlega). Þessu fylgir mikið húllumhæ: jólaálfar af báðum kynum deila út fríum bjór um allan miðbæinn og Carlsberg og Tuborg hafa sína eigin skreytta strætisvagna keyrandi um, bara svo maður geti skellt sér á rúntinn og fengið frían bjór í leiðinni. Ég hef ákveðið að láta smámuni eins og þá að ég á að mæta í vinnu klukkan 6 í fyrramálið ekki stoppa mig og er núna á leiðinni í bæinn. Skál elskurnar - ég legg inn gott orð hjá jólasveinunum fyrir ykkur!
24. október 2005
Nýtt kommentakerfi
Sælinú,
ég veit að það er langt síðan ég bloggaði síðast en ástæðan er einfaldlega sú að ég er búin að vera að vinna eins og brjálæðingur undanfarið - til að safna fyrir flugmiðanum heim um jólin, skiljiði. Það er nefnilega farið að styttast ískyggilega í jólin - ég er þegar búin að fá boð í fyrsta Julefrokostinn minn í ár! Annars er ekki mikið að frétta af mér, fór út á djammið þann 14. - fyrsta djammið mitt í ár og öld... Stóð til að fara í "sex and the city" - veislu svo við vinkonurnar eyddum óratíma í að stríla okkur upp sem mest við máttum en svo var uppselt inn svo við enduðum á stúdentabarnum! Ímyndið ykkur 3 Astrópíur niðri í gamla Rósenbergkjallaranum og þá vitið þið hversu mikið við skárum okkur úr þarna inni. En þetta varð fínt kvöld samt sem áður - eftir að stúdentakjallarinn lokaði fórum við á bar læknanemanna (sem er opinn þar til barþjónarnir nenna ekki að vera lengur) og náðum að koma heim um sjöleitið á laugardagsmorgni - vel af sér vikið hjá gömlu konunum finnst mér. Fórum svo út og viðruðum timburmennina á laugardeginum, því veðrið var með ólíkindum gott - tók fullt af myndum og þær eru hér. Svo er ég búin að setja nýtt kommentakerfi hér á síðuna og þið megið endilega prófa það fyrir mig - svo ég viti nú hvort það virkar...
Annars er það bara lærdómur þessa vikuna til að bæta upp fyrir vanræksluna undanfarið og svo vistarpartý næstu helgi - er að spá í að detta hrottalega í það svona einu sinni - hef verið svo skelfilega góð stúlka þessi örfáu skipti sem ég hef farið út í haust að það er komin tími á að gera þetta með stíl í þetta skiptið! Það er allavega stutt að skríða í ból ef ég drekk of mikið ;o)

11. október 2005
Bunny suicides
Ok... ég veit að sumum (nefnum engin nöfn, en fyrsti stafurinn er Dóa)á eftir að finnast ég með eindæmum kaldrifjuð, en ég er búin að sitja og flissa yfir sætum litlum kanínum með ótrúlega sjálfseyðingarhvöt og ég bara varð að deila þessu með ykkur. Tíhí...
4. október 2005
Beðið eftir jólasveininum!
Allt í einu er ég ákveðin í að vera góð og þæg - fram að jólum allavega! Ástæðan er hér við hliðina: 
Bíð spennt eftir jólasveininum og humma "Gefðu mér gott í skóinn..."
Annars er októberfest á föstudaginn, en ég efast um að ég fari vegna þess að:
a) Ég á ekki bót fyrir boruna á mér
b) Komst að því síðasta ár að októberfest eru stórhættuleg
c) Það er Panikfest um þarnæstu helgi sem mig langar eiginlega meira á
Svo er bara að sjá hvað verður...
Oh, og meðan ég man - vissuð þið að James Marsters verður fastagestur í seríu 5 af Smalville? Leikur ofurskúrk - ætli það sé ekki til of mikils mælst að vonast eftir breska hreimnum? Veit að ég og Blíðan verðum allavega límdar við skjáinn, slefandi af eftirvæntingu ;o)

29. september 2005
helv... klukkið
Er EKKI ánægð með Dóu í augnablikinu - litla kvikindið klukkaði mig og situr svo í sælli vissu um að ég er of langt í burtu til að valda henni líkamlegum skaða í hefndarskyni. Ég mun samt ná fram hefndum á endanum, ójá...
Svo ég hef gruflað og gruflað og reynt að finna 5 fullkomlega gagnslausar staðreyndir um mig og hér er svo niðurstaðan:
1. Ég átti upphaflega að heita Guðrún.
2. Ég fæddist með kolsvartan lubba!(Sem datt víst fljótlega af reyndar)
3. Alveg frá því að ég gat bent á hluti hefur uppáhaldsliturinn minn verið gulur.
4. Eyrun á mér eiga það til að hreyfast af sjálfsdáðum, ég get ekki hreyft þau með vilja.
5. Með aldrinum er að þróast hjá mér djúpstæð andúð á skartgripum á karlmönnum, hef ekki hugmynd um af hverju!
Þá vitið þið það elskurnar - vona að þetta hafi augðað líf ykkar til muna.
Mér til mikillar hrellingar hef ég engan að klukka - Dæsan og Veröld Valdimars hafa lagt upp laupana... nota hér með tækifærið og skora á þessa letihauga að hysja upp um sig sokkana og byrja aftur að blogga! Allir aðrir bloggarar sem ég þekki hafa þegar verið klukkaðir. Svo "that's all folks!" - skrifa aftur þegar ég hef eitthvað aðeins meira vitrænt að segja.

19. september 2005
Mánudagur dauðans
ég er rétt búin að loka augunum, finnst mér, þegar síminn hringir - 45 sekúndna algjör ringlureið ( þið vitið: hver er ég, hvar er ég, hvað er þessi geit að gera í rúminu mínu...?)áður en ég loksins finn gemsan á miðju herbergisgólfinu (ekki veit ég af hvernig hann lenti þar)- og svara. Elskulegur yfirmaður minn (hefur ekki fengið fullnægingu síðustu 30 ár og skapgóð eftir því)að biðja mig um að koma í vinnu - svara já vegna þess að ég er of nývöknuð til að geta fundið góða afsökun.
Halló mánudagur...
Halló mánudagur...
18. september 2005
september hálfnaður
Sælinú,
það er víst orðið þó nokkuð síðan síðast... sorrý! Það er bara ósköp lítið að frétta af mér þessa dagana. Skólinn er kominn í gang, mér til mikillar gleði - og svo er ég bara að vinna og vinna og vinna... Er búin að ná að fara á 2 föstudagsbari, sem er alveg afrek útaf fyrir sig - varð að taka þetta með trompi meðan ég gat, er að vinna næstu 2 helgar svo það verður ekkert félagslíf þá :o( Var annars prúð og góð eins og alltaf og get ekki sagt neinar afrekasögur af djamminu. Eða neinu öðru - dapurt en satt! Mér varð litið í spegil í gær (nokkuð sem ég reyni annars að forðast - það býr ófríður flóðhestur í speglinum mínum þessa dagana) og tók þá ákvörðun að skálma í klippingu í morgun. Hafði annars ætlað að halda út fram að mánaðarmótum, en ákvað að geðheilbrigði mitt sé peninganna virði. Hugsa að ég fari á íslensku stofuna hér í bænum til að reyna að tryggja að ég verði klippt eins og ég hef hugsað mér, því ég hef ekki getað fundið neina mynd sem ég get tekið með. Svitna við tilhugsunina um að enda með einhverja voðalega tískuklippingu sem ekki passar við fésið á mér og ég ræð ekkert við. En ég verð að taka sénsinn - það er annað hvort það eða raka allt af því ég er að missa vitið... Langar að skipta um lit líka, en það eru afskaplega misjöfn viðbrögð sem ég fæ hér þegar ég viðra þá hugmynd (og svo hef ég ekki efni á að láta lita á stofu hvort eðer). Svo ætli ég verði ekki ljóska eitthvað áfram. "Blondes have more fun" segja þeir - sannast ekki á mér þessa dagana...

4. september 2005
svo er það september
jahérna, komin september allt í einu...
Búin að vinna eins og brjálæðingur undanfarið, það eru því miður einu fréttirnar sem ég hef fram að færa af mér (sorglegt, ekki satt?). Svo byrjar skólinn hjá mér á þriðjudaginn og mig hlakkar virkilega til, er í einhverju óróleikakasti núna og bráðvantar að takast á við eitthvað nýtt (svona fyrst ég get ekki ferðast). Finnst ég í hálfgerðri rútínu núna - vinn, sef og horfi á sjónvarp í setustofunni. Ekki sérlega spennandi líf... Á svo frí næstu helgi svo ætli ég reyni ekki eftir fremsta megni að gera eitthvað af mér þá - hef ekki farið á alvöru fyllerí svo lengi að ég man ekki hvenær það var! Held samt að það hafi verið Júróvisjónkvöldið... var það ekki í maí? Svo það er komin tími á gömlu kerlinguna! Hef unnið fyrir því, á það skilið og engin skal taka það frá mér...

29. ágúst 2005
Upp á himinháum hól
Hejsa!
Þá er Århus Festuge brostin á - ekki það að ég hafi tíma til að taka þátt í gleðinni að neinu ráði. Tók samt listagallerý-rúnt með Söruh á laugardaginn og fór svo og horfði á Johnny Deluxe á Dómkirkjutorginu um kvöldið og svo á kaffihús. Bara rólegt og notalegt. Prílaði svo upp á Himmelbjerget á sunnudaginn og litaðist um í Silkeborg. Hey - ég er bara búin að vera þrældugleg um helgina, svona þegar ég hugsa mig um! En nú er það bara vinna og vinna og vinna fram á sunnudag... See yah later!

25. ágúst 2005
Fatafrík
Ég er endanlega farin yfir um! Ég missti gjörsamlega stjórn á mér í dag - og nú er ég í hálfgerðu sjokki yfir þessu öllu saman. Og áður en þið farið að sjá fyrir ykkur limlestingar og annað slíkt, vil ég bara taka fram að eina fórnarlambið æðiskastsins var Visakortið mitt sem situr núna á borðinu og smá rýkur úr því. Ég gerði sumsé þau mistök að fara á búðarráp með Söruh - og fékk kaupæðiskast. Keypti kápu, peysu, tvo toppa og pils (já PILS) og há stígvél (nákvæmlega þau sömu og Dóa keypti hér síðasta haust). Veit ekki alveg hvað skeði - ætlaði bara að kaupa toppana! Eftir nokkra naflaskoðun er niðurstaðan sú að ég er ekki alveg að höndla það að búðirnar eru fullar af flottum fötum og ÉG PASSA Í ÞAU! Þetta er bara alveg nýtt fyrir mér - og ég bara stenst ekki mátið, held það sitji sú hugsun einhversstaðar aftarlega í heilanum að ég verði að nota tækifærið meðan það varir, þetta sé kannski eina skiptið á æfinni sem ég get klætt mig eftir tískunni. Kannski spilar það líka inní að ég er búin að vera með ljótuna undanfarið og það hjálpar alltaf að kaupa eitthvað fallegt - en fyrr má nú rota en dauðrota! Það er eins gott að ég vinni eins og brjálæðingur næstu vikurnar, til að borga Visareikninginn... En mér til málsbóta var þetta allt á rétt undir 10.000 kall, ekki svo hryllilegt - er það nokkuð? (Og þið ættuð bara að sjá mig í þeim ;o) Svona "naughty librarian" stíll yfir kellu.. tíhí)
21. ágúst 2005
betra seint en aldrei
Sælar elskurnar,
já það er orðið langt síðan síðast... sorrý! Lofa að fara að taka mig saman í andlitinu og blogga allavega einu sinni í viku framvegis. Verður reyndar afskaplega stutt blogg að þessu sinni, sökum tímaskorts. Svo... í fréttum er þetta helst: búin að fá vinnu og er bara að vinna eins og vitfirrt manneskja þessa dagana, búin að skila prófverkefni og bíð með öndina í hálsinum eftir að vita hvort ég stóðst prófið eða ei, hitti Dóu í Köben (myndir hér), fór á afmæli barsins (skulum ekki ræða það meir)og er núna bara farin að hlakka til að byrja í skólanum eftir 2 vikur. Þangað til er það bara vinna, vinna og meiri vinna.
Knús og kossar frá stresspöddunni.

7. júlí 2005
panic attack
Arrrgh! Ég var að fá boð í partý! Kveðjupartý hjá hvolpinum mínum, hann er víst að fara til USA í hálft ár :o( Hver gaf honum leyfi til þess?!? Ekki ég... Og það er ekkert í fataskápnum mínum sem passar! Og ég þarf að lita á mér hárið. Og missa 200 kíló. Og fá lýtaaðgerð. Og nýjan persónuleika. Og ég hef rétt rúma viku til þess að koma þessu öllu í verk! Kannski ég feli mig bara undir rúmi í staðin...
5. júlí 2005
í vitnavernd
Okkur leiðist hér á ganginum. Það er sól og sumar og við erum öll of blönk til að gera nokkuð annað en að sóla okkur út í garði og láta hugann reika. Sjónvarpsstöðvarnar hafa sama háttinn á og heima á Fróni : sumarið er notað til að endursýna allt gamalt efni sem þeir geta grafið upp og um helgar skella þeir á öllum B- C- og D- bíómyndum sem þeir hafa fengið með ókeypis þegar þeir keyptu alvörubíómyndir í vetur. Þetta hefur ákveðnar aukaverkanir: við erum nýkomin úr prófum og heilarnir okkar eru enn ekki búnir að ná sér niður úr aukagírnum, svo að þessi skyndilegi skortur á áreiti leiðir til þess að heilarnir finna sér eitthvað að dunda við. Ég skellti mér til dæmis í könnunarleiðangur um borgina um daginn, og var heldur lengur fjarverandi en ég hafði hugsað mér. Þegar ég kom til baka var mér tjáð að sambýlingar mínir væru búnir að sjá í gegnum mig. Í fjarveru minni höfðu þau sumsé farið að velta því fyrir sér hvers vegna í ósköpunum ég hefði komið til Danmerkur í skóla. Eftir miklar vangaveltur var niðurstaðan sú að ég væri líklega hreint ekki sú sem ég segðist vera, heldur væri ég á flótta undan Mafíunni og hefði verið komið fyrir hér af Vitnaverndarprógrammi. Ég væri örugglega ekki íslendingur heldur, það væri bara klógt bragð - það hefði verið valið þjóðerni með tungumál sem engin skilur hvorteðer! Þau höfðu margar góðar röksemdarfærslur máli sýnu til stuðnings - allir þessir bræður sem ég tala um t.d., það er náttúrulega gefið mál að engin á svona mörg systkini. Þegar ég benti á að þau hefðu reyndar hitt einn þeirra var mér kurteislega bent á það tilbaka að hann líktist mér ekki nokkurn skapaðan hlut og væri líklega þjálfaður leikari sem vitnaverndin hefði sent til að styðja "gerfið". Eftir það gafst ég upp - enda var þeirra útgáfa af lífi mínu miklu meira spennandi en mín. Spurning hvort ég geti ekki höstlað út á þetta? "Mafían er á eftir mér, má ég fela mig í rúminu þínu?". Það má reyna það...
26. júní 2005
Lífsmark
Sælar dömur,
já ég veit að það er langt síðan síðast en ég hef ekki verið í miklu bloggstuði undanfarið. Ég fokkaði upp einu prófinu og það þýðir að ég fæ ekki námslánin mín, sem aftur þýðir að ég get ekki borgað bankanum. Ég hef þess vegna meira og minna bara verið í hreinum mínus síðustu vikur og það er lítið gaman að lesa blogg um svoleiðis. Þar fyrir utan er lítið að frétta, ég er að leita að vinnu (sem gengur bölvanlega) og að reyna að höndla hitabylgjurnar sem ganga yfir af og til. Dönunum finnst bara fyndið hvað ég á bágt um leið og hitinn fer yfir 23 stig, en ég er þreytt á því að fara í sturtu og skipta um föt tvisvar, þrisvar á dag! Ég er hreinræktaður íslendingur, sem þýðir að ég er afleiðing 1200 ára kynbóta með það að markmiði að lifa af kalt, þurrt loftslag en ekki hita og raka!
Sko! Sagði það, ekkert nema bölmóður þessa dagana. Lofa að blogga ekki aftur fyrr en ég hef eitthvað jákvætt að segja.
P.S. Ef einhver veit um hjartveikan milljónamæring sem á engin börn, endilega látið mig vita (já, ég er það langt leidd!)

31. maí 2005
Prófstress
Bara örstutt blogg til að láta vita að ég er enn á lífi (naumlega þó!). Er í prófum og það gengur vægast sagt ekki vel... Og svo ekki orð um prófin meir. Tók fullmikið á því á Júróvisjón - endaði með að láta mig hverfa úr partýinu um leið og úrslit lágu fyrir, Kerstine til mikilla vonbrigða þar sem hún hélt ég væri í þann mund að höstla ungan og myndarlegan Dana sem var á staðnum. Ég persónulega held að hún hafi stórlega ofmetið aðdráttarafl mitt - get ekki ímyndað mér að ég hafi verið sérlega aðlaðandi eins haugdrukkin og ég var... Eyddi stórum hluta nætur með herra Gustafsberg í staðinn - það verður langt þangað til ég drekk rósavín aftur. Allavega læt ég eina flösku duga næst! Svona er maður orðin léleg í drykkjunni. Hefði svosem líka mátt vita að Noregur og Moldavía myndu fá helling af stigum, en var enn þyrst þegar ég valdi mér lönd! Hef verið fyrirmyndarbarn síðan og mun vera þar til eftir 8. júní þegar prófin eru búin hjá mér - kannski ég verði búin að jafna mig nóg þá til að detta í það aftur ;o)
Sendið mér hlýjar hugsanir næstu 8 daga elskurnar - mér veitir ekki af!
Sendið mér hlýjar hugsanir næstu 8 daga elskurnar - mér veitir ekki af!
17. maí 2005
Letinginn
Sælinú! Enn einu sinni er ég að nota bloggið sem afsökun fyrir því að læra ekki. Ég er reyndar öll af vilja gerð - en heilinn bara neitar að taka þátt. Ég er búin að vera andlega fjarverandi síðustu tvo daga, algjörlega úti á þekju. Veit ekki hvort stressið er endanlega búið að bræða úr heilanum, eða hvort heilinn er bara farin í sumarfrí án þess að láta mig vita. Hver sem ástæðan er, þá er tímasetningin hræðileg!
Annars er allt við það sama - nema hvað ég er að reyna að kenna dönunum að meta Júróvisjón. Þessi grey hafa algjörlega misskilið tilganginn með Júróvisjón - halda virkilega að þetta snúist um músik! Ég er því búin að gera þeim ljóst að hér verði tekið júróvisjónpartý að íslenskum hætti (eða mínum hætti allavega) á laugardaginn - og að það sé skyldumæting. Ég mun kenna þeim að eeeeeeeeeeeelska þessa keppni hvort sem þeim líkar betur eða verr! Hef ekki náð að sjá alla keppendur en miðað við það sem ég hef séð er nóg af hræðilegum lögum og búningum að stóla á. Austantjaldslöndin bregðast manni ekki :o) Svo er að sjá hvort Ísland nær að skríða upp úr undanúrslitum - og Danmörk líka. Ég er allavega ekta íslendingur og bíð spennt eftir laugardeginum - og er viss um að Selma vinnur þetta auðvitað ;o)

12. maí 2005
fimmtudagsfiðringur
Halló, halló! Ég ætti líklega að játa það strax að eina ástæðan fyrir því að ég er að blogga núna er sú að ég á að vera að skrifa ritgerð... Það er glampandi sól og 18 °c hiti úti og ég bara NENNI EKKI! Langar að sitja úti með kaldan bjór! Skítalíf! Annars ætti ég ekki að vera að væla þetta - er að fara út í kvöld að drekka bjór hvorteðer, einn af vistinni er að flytja og við höldum óformlegt kveðjuhóf á "klúbbnum" í Viðskiptaháskólanum. Hef heyrt ógurlegar sögur af fimmtudagskvöldum þar, en stefni staðfastlega að því að ná síðasta strætó heim og að vera í formi til að læra á morgun. Svo er bara að krossa fingur og vona að það takist. Helgin verður svo bara lærdómur á lærdóm ofan - oh joy! Lýsi hér með eftir einbeitingunni minni: sást síðast á hröðum flótta fyrir 2 vikum síðan! Fundarlaun í boði (bíð uppá bjór næst þegar viðkomandi kemur í heimsókn).
7. maí 2005
Partypooper
Jahérna hér, enn einu sinni er liðið alltof langt síðan ég skrifaði síðast! Hvert fara dagarnir eiginlega? Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér, ekki minnst í félagslífínu af einhverjum örsökum. Var t.d. á Kapsejladsen (árleg "kappsigling" háskólans) sem var eins og venjulega frábær afsökun til að drekka bjór í sólinni um miðjan dag og skoða sætu strákana úr hinum deildunum. Sama kvöld var svo Tour De Chambre á ganginum mínum. Tour De Chambre gengur út á að hvert okkar velur þema fyrir herbergið sitt og bíður upp á drykk og skipuleggur leiki. Þetta var mjög gaman en hörð drykkja. Ég valdi að breyta herberginu mínu í ríki ísdrottningarinnar (viðeigandi, ekki satt?). Myndirnar eru komnar í framköllun og verða birtar hér (vandlega ritskoðaðar) þegar ég fæ þær til baka. Og svo er brjálað partý hjá Söruh í kvöld. Er reyndar ekki í neinu partýformi í augnablikinu, en tekst kannski að ná mér saman fyrir kvöldið. Akkúrat núna líkist ég og líður eins og einhverju litlu og loðnu sem vafraði út á umferðargötu á háannatíma. Spurning hvort að annar kaffibolli geti hjálpað. Ætla BTW að sækja um sem sjálfboðaliði á Hróarskeldu, líklega eini sénsinn minn á að komast þangað. Sakar ekki að prófa.... Sé ykkur síðar elskurnar.
28. apríl 2005
Hvolpaklúður
Halløjsa! Long time no see... Ég biðst afsökunar á þessari löngu fjarveru, en ég hef verið önnum kafin. Fyrst var jú Þórir bróðir í heimsókn - ósköp notalegt að fá hann, en ég uppgötvaði mér til mikillar skelfingar að ég átti í örgustu vandræðum með að tala móðurmálið mitt!!! Og ég sem hef alltaf gert grín að fólki sem kemur heim eftir eitt ár erlendis ótalandi. Svona hefnist manni fyrir. Hann bróðir minn yfirgaf mig svo á mánudaginn, 3 kílóum þyngri og með hryllilega flensu sem hann var svo elskulegur að taka með frá Fróni. Ég er því búin að liggja meira og minna með óráði síðustu daga - gleði, gleði. Skreið svo fram úr rúminu í dag til að fara á fund í skólanum, með sokkin augu og hor í nös og hvað haldiði? Þar er náttúrulega helv.... hvolpurinn, myndarlegri en nokkru sinni! Fyrsta skiptið í 5 mánuði sem ég sé hann og þá þarf ég náttúrulega að líta út eins og ófreskja! Mér varð svo mikið um að ég sniðgekk hann gjörsamlega. Þetta var líklega síðasta skipti sem ég sé drenginn og ég klúðra þvi gjörsamlega.
Ég er svoooooooo misheppnuð! Afsakið mig, ég þarf að fara og berja höfðinu við næsta vegg....
Ég er svoooooooo misheppnuð! Afsakið mig, ég þarf að fara og berja höfðinu við næsta vegg....
12. apríl 2005
Fatafrík
Bloggerinn hefur ekki verið vinur minn undanfarið - hann vill ekki leyfa mér að setja inn pistla!
En nú geri ég enn eina tilraun... Það er svosem ekki mikið af frétta af mér, hef verið svo þæg og góð undanfarið að ég veld sjálfri mér velgju (það gæti verið geislabaugurinn sem þrengir að hálsinum). Það versta er að það er hreint ekki með vilja að ég hef verið svona þæg, þar hefur farið saman að ég er: a) svo blönk að það býr könguló í peningaveskinu mínu, b) af einhverjum ástæðum algjörlega ófær um að komast í alvöru ham þegar ég loksins fer eitthvað út á lífið. Á sama tíma er ég samt að springa úr uppsafnaðri óþægð. Svona er lífið miskunarlaust og napurt...
Auk þess er ég að glíma við alveg nýjan kvilla - mín er nefnilega orðin fatasjúklingur á gamalsaldri!
Fatainnkaup hafa árum saman verið eitt það versta sem ég lendi í en nú er ég skyndilega farin að þræða fatabúðir mér til yndis og ánægju! (Og þunglyndis, þar sem ég hef ekki efni á að kaupa fötin sem mig langar í). Held að þetta stafi af því að ég er búin að uppgötva að ég er ekki lengur bundin við þá hryllilegu afkima í einstöku fatabúðum sem bjóða upp á "stórar stærðir" - sem þýðir yfirleitt flíkur sem líta út eins og þær hafi verið hannaðar og saumaðar í Seglagerðinni; i engu samræmi við hvað er í tísku og algjörlega sniðlaust í þokkabót (því feit hlýtur jú að þýða hnöttótt ekki satt?). Í fyrsta skiptið í 150 ár á ég sumsé möguleika á að fylgja tískunni :o) Þið getið samt alveg andað rólega - ég er ekki svo veruleikafyrrt að ég sé farin að troða mér í mjaðmabuxur og pínutoppa (brr...). En ég get allavega fundið á mig föt í tískulitunum ;o) Fékk reyndar sjokk um daginn þegar ég fór inn í Vero Moda með Söruh vinkonu og lét hana mana mig til að máta skyrtu og hún passaði! Mér hafði enn ekki dottið í hug að ég gæti mögulega komist í nokkurn skapaðan hlut í Vero Moda. Það versta er að nú dauðlangar mig í þessa skyrtu.... En nóg um það.
Annars er ég bara að búa mig undir innrás - Þórir bróðir er að koma á föstudaginn! Verður spennandi að vita hvort við systkinin lifum af rúma viku í einu herbergi. Ætla að nota tækifærið til að túristast aðeins - byrja á því að sjá Randers Regnskov (sem er búið að vera á planinu í eitt og hálft ár) og sjá svo til hvort við dettum niður á eitthvað annað skemmtilegt.
En nú er þurrkarinn eflaust að verða búin að japla á þvottinum mínum, svo ég verð að láta staðar numið - see yah guys!

31. mars 2005
Eftirpáskabömmer
Ég var búin að reyna áður að skrifa pistil - hafði skrifað gríðarlega greindarlegan dálk þar sem ég leysti öll helstu vandamál heimsins (hvað maður gerir ef flipinn brotnar af bjórdósinni, hvernig maður kennir karlmanni að setja setuna niður og endanleg lausn á slæmum hárdögum!) - en þegar ég reyndi að fá pistilinn birtann fór allt í klessu og pistillinn góði er gufaður upp. Svo þið verðið að sætta ykkur við tilgangslaust bull í staðinn. Sorrý.
Það er nefnilega ekki sérlega mikið að frétta af mér - páskarnir voru ósköp rólegir fyrir utan eitt óvænt fyllerí á laugardeginum sem svo aftur olli því að ég eyddi megninu af páskadegi í að óska þess að ég væri dauð. Milli þess sem ég lá á hnjánum og tilbað postulínsguðinn velti ég því fyrir mér hvort að manneskja með minn aldur og reynslu ætti ekki að vera búin að læra að blanda ekki saman ómældum lítrum af bjór með guð má vita hve mörgum skotum. Sumir eru bara tregari en aðrir. Og svo er ég að fara í heljarinnar afmælisveislu á morgun, en þar sem sunnudagurinn er mér enn í fersku minni hef ég svarið þess dýran eið að vera fyrirmynd annarra barna; drekka í hófi og hegða mér í alla staði eins og engill! En þar sem ég veit af fyrri reynslu hvernig svona plön geta farið hjá mér fór ég samt og keypti naríur í stíl við brjóstahaldarann sem ég verð í á morgun - maður veit jú aldrei....

20. mars 2005
habblaha!
"Næsta mánuð verður enginn skortur á fjöri og yndisþokka. Veislur, orlof, afþreying með smáfólkinu, ást og rómantík auka á gleðina í lífi þínu. " Svona hljóðaði stjörnuspáin mín í dag - ég bíð spennt! Velti því reyndar fyrir mér hvaðan yndisþokkinn á að koma; er það ég sem verð full yndisþokka, eða er það bara svona "free-floating" yndisþokki sem átt er við? Hef líka áhyggjur af þessu með "afþreying með smáfólkinu" - geri ráð fyrir að með smáfólki sé átt við börn og þau er ég blessunarlega alveg laus við. Átti með eindæmum rólega helgi, hér tók sólin upp á því að skína bæði í gær og í dag og ég notaði tækifærið til að labba mér til óbóta. Gleymdi alveg að taka með í reikninginn hvað sólinn gerir við krítkvíta vetrarhúð, svo núna er ég hálf-sólbrennd í framan og útsteypt í frekknum. Hrikalega sexý alveg. Það á víst að vera sól áfram næstu 2 daga svo það er eins gott fyrir mig að muna eftir sólarvörninni ef ég vil ekki enda eins og humar á litinn. Er í augnablikinu að reyna að herða upp hugann í að klára helv... skattaskýrsluna mína. Er reyndar ekki mikið mál - á ekkert nema skuldir, er bara svooooooooooooooo leiðinlegt! Þess vegna er ég að blogga þó ég hafi ekkert merkilegt fram að færa - bara til að fresta skattframtalinu um nokkrar mínútur... En ætli ég neyðist ekki til að bíta á jaxlinn og fá þessu aflokið núna - lofa að skrifa ekki aftur fyrr en ég hef eitthvað aðeins meira vitrænt fram að færa ;o)
19. mars 2005
og hana nú!
Vúps! Ég var búin að lofa sjálfri mér því að nú skildi ég hysja upp um mig sokkana og vera duglegri að blogga - og hvað gerist svo? Enn ein vikan skaust hjá og ég skrifaði ekki staf... En í hreinskilni sagt er ekkert að gerast hjá mér! Er lent í einhverju "timewarpi" - dagarnir bara fljúga hjá án þess að ég fái rönd við reist, hvað þá að ég geti nýtt þá til einhvers vitræns. Ég hef áhyggjur af þessu verð bara að segja það - ef þetta heldur áfram vakna ég bráðum upp áttræð og veit ekki hvað varð um síðustu 50 ár! Ein af ástæðunum fyrir að ég hef ekki gert mikið vitrænt er líklega veðrið (má alltaf kenna veðrinu um allt), því snjórinn er loksins að hverfa og ég fékk víðáttubrjálæði með það sama - hef verið eins mikið utandyra og ég mögulega get til að bæta upp fyrir heilan mánuð innandyra. Ég geri ráð fyrir að þið hafið allar séð beljum sleppt úr fjósi... Þessi belja er reyndar í gríðarlegri sálarkreppu akkúrat núna - þið vitið, glími við eitt af þessum hrikalegu tilvistarspursmálum sem allar konur lenda í einhversstaðar á lífsleiðinni : að kaupa eða kaupa ekki... Mér varð nefnilega á að ganga fram hjá H&M í dag og þessir andskotar eru örugglega búnir að koma upp risastórum ryksugum fyrir innan dyrnar. Það er eina útskýringin sem mér dettur í hug, því eina stundina var ég að labba framhjá í sakleysi mínu og þá næstu er ég skyndilega kominn inn í dömudeildina! Nú, fyrst ég var kominn inn gat ég alveg eins skoðað mig aðeins um... og svo rakst ég á hrikalega flotta kápu/jakka (erfitt að segja til hvort það er) og mig bráðvantar nýja þunna yfirhöfn þar sem fataskápurinn minn hefur náð að breyta gallajakkanum mínum í hústjald í vetur (hef hugsað mér að kvarta yfir skápnum við tækifæri - gerir undarlega hluti við fötin mín). Vandamálið er að jakkinn kostar tæpan 5.000 kall og ég á ekki bót fyrir boruna á mér. Svo ég hugsa með mér - tja, ég kemst hvorteðer ekki í þetta númer svo besta lækningin er bara að máta hann svo ég sjái að ég gæti hvoreðer ekki notað hann. En nei - helv... jakkinn smellpassar ekki bara, hann lætur rassinn á mér líta út fyrir að vera 2 númerum minni! Og nú spyr ég dömur mínar - eru ekki einhver lög einhvers staðar sem segja að: ef kona finnur flík sem lætur botnin á henni virðast minni, hefur hún fullan siðferðislegan rétt á því að kaupa þá flík (jafnvel þótt hún þurfi að nota VISA til þess?). Ég held að það hljóti að vera... ég þurfti að beita gríðarlegri sjálfstjórn til að ganga út úr búðinni án þess að kaupa jakkann, og ég er búin að hugsa um hann stanslaust síðan. Ég held ég sé ástfangin!
Helv... peningaleysi (grátur og gnístan tanna). Ég yfirgef ykkur nú til að skæla í koddann minn - hafið það gott elskurnar.
Helv... peningaleysi (grátur og gnístan tanna). Ég yfirgef ykkur nú til að skæla í koddann minn - hafið það gott elskurnar.
10. mars 2005
Hjælp!
Hvað er að gerast - er virkilega liðin heil vika síðan ég bloggaði síðast? Hvert fóru þessir dagar eiginlega :o/ ?!? Úff... það er bara hryllilegt hvað tíminn líður hratt núna. Hvað hef ég svo gert síðustu 7 daga? Látum okkur nú sjá... jú, það var auðvitað kvennakvöldið ógurlega á föstudagskvöldið - helvítis hellings stuð þar. Um 60 stelpur og 4 ungir (karlkyns) barþjónar og frítt vín frá 18.30 til 24.00 - getið þið ímyndað ykkur ástandið? Barþjónarnir voru allir klæddir sem "handiðnaðarmenn" - þið vitið, af því að allar menntaðar konur dreymir um að sofa hjá "macho" handiðnaðarmönnum.... Ég verð reyndar að gefa drengjunum prik fyrir hugrekki, því þeir máttu þola mikið áreiti þetta kvöld - ekki bara voru skyrturnar ítrekað rifnar af þeim um kvöldið heldur var einn vinsælasti drykkurinn á barnum "body shot". Fyrir ykkur saklausu sveitastúlkurnar sem ekki þekkið svona sukk og svínarí þá fer body shot svona fram (ef barþjónninn er karlkyns allavega) : Barþjónninn fer úr að ofan og setur salt á aðra geirvörtuna (eða báðar ef það eru 2 stelpur sem taka skot) og sítrónusneið öfugt í munninn. Viðkomandi viðskiptavinur sleikir svo saltið af, skellir í sig tequilaskoti og bítur svo í sítrónuna. Afar siðfágaður siður. Og nei - ég tók EKKI eitt einasta body shot. Fannst enginn af barþjónunum nógu freistandi ;o) Skömmu áður en karlpeningnum var hleypt inn á barinn kom svo strippari á staðinn, svona til að hita upp fyrir greyin. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ég sé strippara, en ég verð bara að viðurkenna að þetta kemur mér ekki til - mér finnst afskaplega fyndið að horfa á þá - en mónarnir mínir bara geyspa. Hafði miklar áhyggjur af því að það væri eitthvað af mér - en hef síðan gert skoðanakönnun hjá vinkonum mínum og flestar þeirra segja það sama og ég : niðurstaða mín eftir þessa rannsókn er að fyrir flestar konur er ber karlmaður (sem þær hafa aldrei séð áður) að dilla sér upp á sviði bara spaugilegur. Það kom svo ekki einn einasti álitlegi karlmaður inn á staðinn eftir miðnætti - mér var nokk sama, hafði tæmt að minnsta kosti 2 flöskur af hvítvíni um kvöldið og hafði ekki áhuga á neinu öðru en að dansa og skemmta mér. Fékk svo einn kokteil síðar um nóttina - og það var greinilega dropinn sem fyllti mælinn: allt í einu var mín dauðadrukkinn og tók þá vitrænu ákvörðun að koma sér heim í ból hið snarasta.
Laugardagur fór í þynnku - sunnudagur í stórhreingerningu dauðans og á mánudag mætti Rósa Frænka í heimsókn og hefur dundað sér við að murka úr mér líftóruna síðan. Gleði, gleði...
Þá vitið þið það elskurnar mínar - svona er lífið í hinni spilltu stórborg Árósum þessa dagana.

3. mars 2005
Snjór
Hef ég nokkurn tíma minnst á að mér er ekkert sérlega vel við snjó? Eða réttara sagt, mér er afskaplega illa við snjó. Nei segjum það bara hreint út : ég HATA snjó! Og nú er búið að vera snjór hér í 4 vikur :o( Er að bilast!!! Og það á að halda áfram að snjóa af og til næstu daga... AAARGH! Hvað hef ég gert til að verðskulda þetta? Hver er tilgangurinn í því að flytja sunnar í veröldinni ef ég er ekki einu sinni laus við þennan hvíta, blauta, kalda fjanda? Ég játa að þetta getur verið ósköp fallegt þegar er sól (eins og í dag) - en ég er hundleið á að komast ekki ferða minna óhindrað! Og að geta ekki verið eins mikið utandyra og mig lystir. Æði hér um eins og ljón í búri þegar það snjóar og ég kemst ekki út - held að allir hér verði líka voðalega fegnir þegar snjórinn loksins fer : bara til að losna við geðvonskuna í mér. Greyin littlu.
Annars er allt gott að frétta af mér - þegar ég er ekki að gera alla hér uppfrá brjálaða er ég að reyna að finna út úr hvað í ósköpunum ég á að skrifa lokaritgerðina mína um. Og ég er búin að fá skrifstofu til að vinna í - fór í dag með Jónasi bekkjarfélaga mínum sem deilir skrifstofunni með mér og við settum upp myndir og byrjuðum að koma okkur fyrir. Telst það ekki sem árangur útaf fyrir sig? Tel sjálfri mér trú um það...

27. febrúar 2005
I´m too old for this shit!
Sælinú. Er bara að skrifa til að drepa tíma áður en ég skríð í háttinn - ekkert í sjónvarpinu :o( Fór í partýið í gær og það var bara fínt - fyrir utan að það klístraðist utan í mig dauðadrukkinn og hundleiðinlegur dani sem reyndi að sannfæra mig um að líf mit yrði svo miklu miklu betra ef ég hefði karlmann til að stýra því!!! Þið getið rétt ímyndað ykkur hversu vel honum gekk að snúa mér til þeirrar trúar! Drakk reyndar heldur meira en ég hafði ætlað mér, en það var Kerstine að kenna því að hún vann "besta búninginn" og verðlaunin voru hellingur af áfengi á borðið okkar - og ég varð náttúrulega að fórna mér fyrir heildina og hjálpa til við að drekka þetta upp ;o). Skreið í ból um klukkan 4 í morgun og glaðvaknaði svo klukkan 8.00 - mér til mikillar hrellingar - og er búin að vera á fótum síðan. Hata þegar þetta gerist - ömurlegt að geta ekki sofið úr mér timburmennina. Og til að bæta gráu ofan í svart er ég með strengi í rasskinnunum :o( - og þið getið dregið hugsanirnar upp úr ræsinu! Þetta eru ekki strengir eftir samfarir! Skamm bara! Ég er með strengi vegna þess að ég var pínd til að HJÓLA! Hef ekki hjólað síðan 1998 held ég - enda hefur eflaust litið út eins og ég væri dauðadrukkin þegar við vorum á leiðinni í partýið. Kaspar heldur því reyndar fram að ég hafi hjólað mun beinna á leiðinni til baka - kannski hefur áfengið náð að rétta mig af ;o) En ég held ég láti mér vonbrigði síðustu 2 helga nægja og gefi upp öll áform um veiðiferðir - tek upp mína gömlu siði og flörta bara við bjórinn framvegis! Bjórinn bregst manni aldrei...
24. febrúar 2005
horny devil
Jahérna hér - er bara aftur að koma helgi? Hvert fór þessi vika eiginlega? En hvað um það -veiðiferð síðustu helgi var í alla staði misheppnuð (eins og flestar ykkar hafa þegar heyrt). Meiri hluti karlpeningsins var barnungur og óspennandi - hitti einn íslenskan strák sem var auðvitað ógeðslega fullur og hundleiðinlegur (svo við nefnum ekki ljótur). Það var reyndar annar íslendingur á svæðinu sem virtist vera í betra ástandi en ég talaði ekkert við hann. Þar fyrir utan var á staðnum gömul mistök sem þvældust fyrir mér allt kvöldið. Svo ekki reið ég feitum hesti frá þeirri veislu ;o) Nú er ég að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fara í "Fastelavns" partý annað kvöld með Kerstine. Fastelavn er reyndar löngu búið, en ég fór ekki í eitt einasta svoleiðis partý og fékk því aldrei að nota búninginn sem ég keypti í Osló. Þetta er því líklega einasti sénsinn sem ég hef til að nota hann hér. Á hinn bóginn er ég staurblönk og drullukvefuð (andsk... pest!) - sem ýtir ekki undir gleðskap hjá mér. Ætli ég prófi ekki bara búninginn í kvöld og sjái til hvernig ég fíla mig - aldrei að vita hvort ég kemst í ham ;o) Reyndar afskaplega viðeigandi búningur fyrir mig núna; svartir englavængir og svört horn = horny little devil...
Svo einhver svört föt (kannski svarta blúnduskyrtan?) og háir hælar og eldrauður varalitur. Haldiði ekki að það passi mér? Tíhí...
Svo einhver svört föt (kannski svarta blúnduskyrtan?) og háir hælar og eldrauður varalitur. Haldiði ekki að það passi mér? Tíhí...
17. febrúar 2005
Mónar á útopnu
Hormónar eru undarlegt fyrirbæri. Hér er ég með flensu (held ég verði að sætta mig við að ef 4 aðrar manneskjur á ganginum eru með sömu einkenni er ég ekki bara með letikast), hef varla af að skríða á milli rúms og sófa (c.a. 2 metrar) - höfuðpína, beinverkir, hálsbólga og nefrennsli : heila klabbið. Með öðrum orðum: ekkert virkar! Nema hormónarnir mínir - þeir eru í þrusustuði. Skil þetta ekki - en þetta er farið að valda mér verulegum áhyggjum. Var næstum búin að ráðast á Matthias greyið í kvöld og fleka hann í sjónvarpsherberginu, bara vegna þess að hann lyktaði vel (mjög, mjög vel reyndar)! Sem betur fer fékk ég akkúrat hnerrakast og náði að finna sjálfstjórnina aftur. Hef áhyggjur af þessu, verð bara að segja það... Nú veit ég ekki hvort ég á að hafa meiri áhyggjur af því að ég verði of lasin til að fara á Ástralíukvöld á bar skiptinemana um helgina - eða hafa áhyggjur af því að ég verði ekki of lasin til að fara og gera einhvern fjandan af mér! Damned if you do & damned if you don't. Held þó að það sé skárra að gera eitthvað af mér þar en hér á ganginum - þið skiljið hvað ég meina...
15. febrúar 2005
Letinginn lifir
Halløjsa!
Ætlaði að vera löngu búin að setjast niður og skrifa ferðasögu, en hef bara ekki haft mig í það - frekar en nokkuð annað síðustu daga. Mig er líka farið að gruna að enginn lesi þetta hvorteðer, fæ engin komment lengur á nokkurn skapaðan hlut... sniff sniff... Nobody loves me & nobody cares...
Þýskalandsferðin var annars frábær - bara alltof stutt! Mér tókst náttúrulega að fara á kostum í upphafi ferðar eins og mér er einni lagið. Ég vandaði mig svooooooooo við að gleyma ekki að pakka neinu og tókst það aldrei þessu vant. Mér tókst hins vegar að læsa ferðatöskunni og skilja lykilinn eftir heima. Það kom svo í ljós á Hotel Holliday Inn í Hamburg að litli hengilásinn sem ég hafði keypt á töskuna mína stóð fyrir sínu - það voru 5 starfsmenn hótelsins búnir að reyna í hálftíma með hinum ýmsu græjum áður en það tókst að saga hann sundur. Þið getið svo skemmt ykkur við að sjá fyrir ykkur hversu vandræðaleg ég var meðan ég fylgdist með...
Hamburg er annars ekta stórborg - við sáum náttúrulega ekki nema smápart þennan eina dag sem við vorum þarna. Fórum í siglingu á Alster sem er risastór andapollur í miðri borginni, og fórum og skoðuðum rússneskan kafbát - minnið mig á þann fjanda næst þegar ég kvarta yfir slæmri vinnuaðstöðu! Skil ekki hvernig menn héldu út að vera í þessum dollum mánuðum saman! Fórum líka upp í turninn á St. Michaelskirku (hefur gælunafnið Michel) - það var ekki góð hugmynd fyrir mig - hélt út c.a. 5 mínútur og svo varð ég að fara niður aftur. Annars var það sérstök upplifun að ganga um aðalgötur Hamborgar, þar liggja búðirnar hlið við hlið: Bulgari, Armani, Cartier, Prada osfrv., maður hefur ekki einu sinni efni á að kíkja inn um gluggana. Og út úr blæju-Porche og Bensum sem kosta nokkur árslaun stígur fólk með meiri peninga en smekk : konurnar sérkennilega appelsínugular (ódýrt brúnkukrem eða nýr og áður óþekktur kynþáttur?) og karlarnir þessi týpa sem heldur að peningar geti bætt upp fyrir skort á persónuleika (og hálsi). Eins og þið kannski getið lesið á milli línana féll ég ekki fyrir Hamburg - er ekki þessi stórborgartýpa held ég. Laugardaginn vorum við svo í Düsseldorf og það var mun meira að mínu skapi - minni borg með mikið af gömlum húsum og það var heldur ekki verra að Karneval var í fullum gangi og mikil stemning í loftinu. Dauðlangaði að skella mér í búning og fara á djammið! En við þurftum að keyra til Bonn um kvöldið svo við létum okkur nægja að fara út að borða og svo einn bjór á pöbbnum - bara rétt til að fá nasasjón... Bonn var líka mjög falleg, enda við bakka Rínar (eins og Düsseldorf), höfðum af að príla upp á Drachenfels (drekafjall - eftir drekanum Fáfni sem Sigurður Fáfnisbani drap). Bölvað puð - en útsýnið var frábært. Komum svo heim á mánudagsmorgni eftir níu tíma keyrslu heim gjörsamlega úthauguð en sátt.

3. febrúar 2005
Deutchland über alles...
Jahérna hér, þýskalandsferðin bara að bresta á! Legg af stað eftir 2 tíma... Var ég annars búin að minnast á að ég er að fara til þýskalands? Var búin að ákveða þessa ferð fyrir jól, en í öllu prófstressinu í janúar hef ég ekki haft neinn tíma til að hugsa um þetta, svo Kerstine og Kaspar hafa skipulagt allt saman. Ég verð að viðurkenna að það eina sem ég veit er að ég verð 2 nætur í Hamborg og eina í Düsseldorf og auk þess förum við til Bonn. Allt annað kemur bara í ljós... Hálfgerð óvissuferð fyrir mig :o) Fjármálin mín eru í molum og allt í hassi með LÍN en það stoppar mig ekki - hlýtur allt að reddast einhvernvegin. Passar til að það er karneval í Bonn á sunnudaginn (Fastelavn sama dag hér í Danaveldi) svo þetta ætti að verða þrælgaman, við munum víst taka þátt í að storma ráðhúsið (ekki spyrja mig af hverju).
Er nokkurn veginn viss um að mér hefur tekist að gleyma að pakka einhverju mjög mikilvægu eins og venjulega, en það kemur að sjálfsögðu í ljós þegar ég þarf á því að halda. Ég er allavega búin að pakka öllu því sem ég gleymdi þegar ég fór til Osló í haust, en ætli það sé ekki ráð að taka eina eftirlitsferð í ferðatöskuna áður en ég fer. Og æfa þýskuna! Ein Grosses Bier Bitte!

26. janúar 2005
Og svo er það félagslífið
Lifði af helgi dauðans - ég og Sarah bjuggum meira og minna í tölvuverinu og börðumst við að klára 3D myndina okkar fyrir hádegi á mánudegi, þar sem hóparnir áttu að sýna verkefnin sín. Það hafðist að klára þolanlega klukkan 6 á mánudagsmorgni, en það verður að segjast að það voru þreyttir tölvunördar sem skreiddust heim og lögðu sig aðeins. Myndin okkar reyndist hins vegar okkur til mikillar undrunar vera eitt af því besta sem var sýnt á mánudaginn :o)
Sko okkur!
Og nú er ég að njóta þess að eiga mér líf utan skóla - er að fara á "pub quiz" núna á eftir og svo ætlum við stelpurnar að hittast annað kvöld og fagna því að vera búnar með fjandans verkefnið.
BJÓR!!! Hef unnið fyrir honum, á hann skilið og enginn skal taka hann frá mér!
Sjáumst síðar...

21. janúar 2005
Hormónasjokk!
Ok, ég átti alveg von á því að það yrði hormónasjokk að fara á Oceans 12 en maður minn! Ég er enn að jafna mig... þetta var of mikið í einu fyrir kynsvellta konu eins og mig. Það var líklega eins gott að veðurguðirnir sáu mér fyrir kaldri sturtu þegar ég kom út - ég var meira að segja farin að horfa íhugandi á Rasmus greyið sem var svo óheppinn að sitja við hliðina á mér í bíóinu. Annars er það helst að frétta að ég hélt að ég væri komin með ofsýnir af völdum heimþrár áðan - leit upp í himininn á leiðinni út í þvottahús og þar blöstu við norðurljós!!! Sem gerist bara ekki hér - hlýtur að hafa verið eitthvað meiriháttar sólgos í gangi. En ósköp var nú notalegt að sjá þau. Ég er búin að sjá nýja nágrannann minn sem er ósköp myndarlegur ástrali - verst að hann er barnungur, varla byrjaður að raka sig held ég. Alltaf sama sagan...
En imbakassinn kallar - meira síðar.
En imbakassinn kallar - meira síðar.
19. janúar 2005
Loksins frjáls!
Hallúúúú....?!? Er einhver þarna úti? Mér líður eins og ég hafi verið sambandslaus við umheiminn mánuðum saman, þótt það hafi eiginlega bara verið 2 vikur. Jæja, þá eru prófin loksins búin og ég neita að ræða um þau. Ætla bara að láta eins og þau hafi aldrei verið. Afneitun er yndisleg....
En loksins get ég um frjálst höfuð strokið! Fyrsti dagur í frelsi og ég veit ekkert hvað ég á af mér að gera ... jú, víst veit ég það! Ég ætla að skombra niður í bæ og sjá hvort það eru enn einhverjar útsölur í gangi - hef alveg misst af þeim! Og svo ætla ég bara að dóla mér í rólegheitum, kannski kíkja á kaffihús eða jafnvel (gasp!) skella mér í klippingu (ekki veitir af). Svo er ég að fara í bíó með krökkunum á vistinni annað kvöld að sjá Oceans 12 (geri fastlega ráð fyrir kaldri sturtu á eftir) - en svo er það aftur að tölvuskjánum. Við náðum ekki að klára þrívíddarverkefnið okkar að fullu fyrir prófskil, en eigum að sýna myndina á mánudag svo við Sarah munum eyða helginni fyrir framan tölvuna (oh joy!) að hljóðsetja, klippa osfrv... En annars er almenn gleði í Pöddulandi núna! Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil....

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)