19. febrúar 2011
Gjafir eru gefandi
Var í stórri verslunarmiðstöð í dag að versla og vesenast - og það er í sjálfsögðu ekki í frásögur færandi, nema hvað ein af búðunum sem ég heimsótti var "Leikfangabúð" - fyrir fullorðna skiljiði. Var að redda afmælisgjöf (nei Dóa það var ekki þín - þótt það hafi nú hvarflað að mér að slá 2 flugur í einu höggi)og spáði svosem ekki mikið í þessu fyrr en ég kem út og horfist í augu við miðaldra mann sem greinilega hafði verið að gjóa augunum á þetta syndabæli með blöndu af spenning og skömm. Fjarsýnisgleraugun gerðu augun í honum stór en þau urðu enn stærri þegar ég birtist í dyrunum og hann varð eins og ugla. Það var fyndið í sjálfu sér. En svo kíkir hann niður á pokann í hendinni á mér (sem var alveg ógegnsær og ómögulegt að sjá hvað var í honum en forvitning var augljóslega að drepa manninn - svo ég gat ekki annað en sent honum mitt stærsta skítaglott þegar hann leit upp aftur. Honum varð svo mikið um að hann gekk á bekk - og þá gat ég ekki annað en skellihlegið! Og svo gekk ég mína leið og skildi ræfilinn eftir í algjöru fáti. Hápunktur dagsins :o)
12. febrúar 2011
Sæljónið lifir
Febrúar hefur að mestu leyti farið í að hósta upp lungum og lifur - lá í viku hér heima og er rétt komin á lappir aftur. Að sögn vinnufélagana hljómar hóstinn eins og sæljón - gerði náttúrulega dúndur fyrir sjálfsmatið. Ætla að hlífa ykkur við frekari sjúkratali og deila heldur með ykkur þessu dásamlega skipuriti:

see more Funny Graphs

see more Funny Graphs
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)