28. ágúst 2007
Mad Cat´s disease
Það er alltaf hægt að stóla á Uncyclopediuna ef manni leiðist. kattaeigendur ættu að geta glott að þessari færslu: Mad Cat´s Disease
27. ágúst 2007
Spike!
Fyrir okkur sem elskuðu Spike - viðtal við James Marsters Hann gæti víst alveg hugsað sér hlutverk í Gray's Anatomy (sem byrjar aftur á skjánum hér í kvöld YAY!) - hvað ætli Mc-Aukanafnið hans yrði? McSpikey? ;o)
24. ágúst 2007
23. ágúst 2007
22. ágúst 2007
Engar grensur
Mikið ofboðslega leiðist mér hvað fólk er orðið ónæmt fyrir því hvað á heima á almannafæri og hvað ekki. Sérstaklega er þetta orðið hrein plága í strætó þar sem fólk t.d. ræðir hástöfum einkalíf sitt og annarra í gemsann án þess að skeyta nokkru um hvort restin af farþegunum kærir sig um að vera pínt til að hlusta á þetta.
Í gær sat ég dauðþreytt í strætónum á leiðinni heim og reyndi að blokka úti parið sem sat fyrir aftan mig - eða réttara sagt stelpuna, því strákurinn kom varla inn orði. Ekki veit ég hvað hann hafði gert, en henni fannst fullkomlega eðlilegt að tjá honum og öllum strætónum þau ótal sálrænu og aðferðarlegu vandamál sem henni fannst að hann ætti við að stríða. Mig dauðlangaði að snúa mér við og benda henni á nokkur atferlisvandamál sem hún greinilega sjálf þjáðist af - en var of rög.
Það var hins vegar annar farþegi sem missti þolinmæðina á endanum og bað stelpufíflið að hlífa okkur hinum við þeirra einkamálum - mig langaði mest að klappa og hrópa "Heyr, heyr!" og ég er viss um að ég var ekki sú eina. Og þetta þaggaði niður í henni - allavega þangað til ég slapp út úr vagninum.
Konan sem tók af skarið er hetjan mín - vildi óska að ég væri sjálf duglegari að láta vaða þegar mér misbýður. Ef restin af okkur hættir að þjást í þögn er ég viss um að hægt væri að venja þá málglöðu af þessum andskota!

20. ágúst 2007
Síðasti frídagurinn
Jæja þá er fríið að verða búið!
Eins og flest ykkar hafið eflaust lesið lukum við Dóa ferðinni hennar með Tívolí og svo einum kveðjubjór á Nýhöfn - ég er búin að skella inn nokkrum myndum í viðbót hér.
Nokkrum tímum eftir að Dóa fór kom Sarah vinkona mín í heimsókn frá Árósum og um kvöldið skelltum við okkur út á lífið. Þar sem við vildum gjarnan vera á einhverjum rólegum stað þar sem við gætum setið og spjallað enduðum við á Temple Bar á Nørrebrogade. Þegar eitthvað var liðið á kvöld brá ég mér út fyrir til að fá mér sígarettu (jú reykingabannið er skollið á hér líka). Stóð þarna í mínum eigin þönnkum og það tók nokkrar mínútur að sökkva inn hjá mér að eitthvað var ekki aaaalveg eins og það átti að vera. Sný mér í hina áttina og þar standa 5 óeyrðabílar frá löggunni ásamt sjúkrabíl og á meðan ég stóð þarna og gapti mættu fleiri bílar með blikkandi ljósum og sírenum. Ég drap í sígarettunni og laumaði mér inn aftur í snatri. Það varð fljótlega ljóst að það voru mótmælaaðgerðir í gangi í götunni fyrir ofan - Ungdomshuset enn og einu sinni! Afleiðinginn varð sú að ég og Sarah (og allir aðrir á barnum) vorum föst inni á meðan átökin stóðu yfir. Það var hálf fjarstæðukennt að sitja þarna inni með bjór og horfa á lögreglumenn í fullum herklæðum með risastóra Schaeffer-hunda smala fólki niður götuna og sjá aðra koma sömu leið með handtekið fólk á milli sín. Þegar það versta virtist yfirstaðið tókum við sénsinn og yfirgáfum barinn - lögreglan stóð enn og lokaði veginum báðum megin við okkur en við fengum leyfi til að komast i gegn sem betur fer. Þeim hefur liklega ekki fundist við líklegar til að tilheyra mótmælendunum. Þetta ævintýri okkar jók nú ekki á löngun mína til að búa á Nørrebro - má ég þá heldur biðja um rólegheitin hér í Brønshøj takk! Held að Sarah greyið hafi ekki heldur fengið sérlega góða mynd af Kaupmannahöfn!
Ég var svo varla búin að fylgja Söruh í lestina daginn eftir þegar Kasper vinur minn hringdi og tilkynnti að hann væri í bænum - það þýddi náttúrulega bjór um kvöldið og svo bauð hann mér og Pernille á bátamessu í Tuborg höfn í gær. Ég er svosem engin sérstök bátamanneskja, en það var fróðlegt að sjá hvað maður gæti keypt ef maður ætti svona 20-80 millur sem maður vissi ekki hvað maður ætti að gera við!
Kasper var reyndar líka búinn að finna handa mér norskan skipaerfingja - en daðurkunnátta mín er svo ryðguð að ég reyndi ekki einu sinni að taka hann á löpp.
Ég þarf greinilega að taka mig saman ef ég ætla að verða alvöru "gold-digger" :o)
Ég verð að viðurkenna að þrátt fyrir að það sé búið að vera voða gaman síðustu 2 vikur var líka aaaaaaaaafskaplega ánægjulegt að loksins geta bara skriðið undir sæng með góða bók í gær og bara slappað af - held ég sé búin með félagslífs-skammtinn minn í bili! Svo tekur vinnan við á morgun aftur - ætli það verði ekki hálfgert áfall en maður lifir víst af...

14. ágúst 2007
Örstutt yfirlit
Hæhæ
hér kemur örstutt yfirlit yfir síðustu viku og ef þið gáið vel leynast jafnvel einhverjar myndir. Við bætum kannski við þetta seinna ef við nennum en þetta verður að duga í bili. Góða skemmtun!
Fimmtudagur - þrömmuðum um miðbæinn með hinum túristunum þar til við vorum gengnar uppað öxlum. Dóa varð á endanum að draga mig útaf strikinu þar sem ég veiktist af innkaupavírusnum. Tókum rúntinn á Nýhöfn "for old time's sake". Til að róa mig niður eftir innkaupakastið drukkum við bjór á Kultorvet í góða veðrinu og klukkan var orðin ansi margt áður en við náðum heim aftur.
Föstudagur - fórum i Fields - og ég var enn með svo mikinn móral yfir innkaupaæðinu daginn áður að ég kom tómhent út - örugglega eini íslendingurinn þann daginn sem ekkert verslaði. Út í bjór um kvöldið - voða gaman!
Laugardagur - minna gaman að vakna... Þunnur! Þegar við loksins skreyddumst á lappir og höfðum af að skríða út í kjörbúð lentum við í þrumuveðri og drukknuðum næstum á leiðinni heim (næstum sko). Fórum í bíó um kvöldið og sáum Harry Potter - fínasta mynd bara.
Sunnudagur - tekin stefnan á dýragarðinn. Voða gaman, fullt af ungum og veðrið gott. Enduðum samt með mun meiri göngu en við höfðum reiknað með og vorum alveg búnar á því þegar við vorum loksins komnar heim.
Mánudagur - skelltum okkur yfir Eyrarsund til Malmö - just because we could! :o)
Sætur bær, gargandi hiti og sænski bjórinn er bara alveg ágætur! Af efnahagslegum ástæðum völdum við samt að halda bjórdrykkju áfram sunnan brúar um kvöldið.
Þriðjudagur - Christiania og Christianshavn. Máttum náttúrulega ekki taka myndir í Christianiu, stoppuðum svosem ekki sérlega lengi heldur enda alltof heitt. Maður er þó samt loksins búin að sjá pleisið :o) Það er líka alveg þess virði að rölta um Christianshavn - margir þrælfallegir staðir. Vorum myndaðar i bak og fyrir af einhverjum gauk - komumst að þeirri niðurstöðu að líklega hefði hann verið að mynda hvítustu leggi sem hann hefði nokkurntíman séð (þ.e.a.s. mína). Eyddum kvöldinu í rúminu með Hugh Jackmann :o)
Miðvikudagur - rignig = leti :o)

8. ágúst 2007
Örnin er ... uh ekki lentur
Komin í sumarfrí! Yey! Og veðurspáin bara þolanleg næstu vikuna - vona að það rætist.
Dóan er einhversstaðar yfir Atlantshafinu núna - er búin að fela handjárnin og svipuna, láta hokkýliðið vita að það verður engin orgía í næstu viku og bera tómu áfengisflöskurnar út. Fékk reyndar vægt áfall yfir þvi að afrakstur síðustu 3 mánaða voru: 2 rósavínsflöskur og 2 litlar bjórdósir. Og ég fékk hjálp með að drekka rósavínið! Svona er nú ólifnaðurinn á þessum bæ - þótt ég reikni fastlega með að Dóa hjálpi nú eitthvað með að rétta úr statistikinni á meðan hún er hér :o)
Reikna ekki með að blogga mikið næstu 2 vikur - en það er þó aldrei að vita nema maður finni stund til að setja inn nokkrar myndir, ef ég get lært almennilega á myndavélina...
Ciao!

7. ágúst 2007
Brown-noser
Andartaki áður en ég andast úr hita kemur tölvupóstur um að forstjórinn hafi keypt ís á línuna - ég eeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeelska þennan mann!
Besti boss í heimi - allavega í dag :o)
Besti boss í heimi - allavega í dag :o)
Talið niður...
Síðasti vinnudagur fyrir sumarfrí og ég sver að tíminn stendur í stað!
Búin að vera hér í 3 óendanlega langa tíma og er í hreinskilni sagt bara að bíða eftir að komast heim - hef ekkert að gera og nenni ekki að byrja á neinu nýju verkefni núna!
Hvar er Fast Forward hnappurinn á þessu lífi?

6. ágúst 2007
sól og sumar
Glimrandi veður alla helgina - og ég held svei mér þá að ég hafi náð smá lit!
Ánægjulegt að fá loksins einhver not fyrir sumarfötin mín :o)
Ekki jafn ánægjulegt að sitja á heitri skrifstofu í dag :o(
Tékka reglulega á heimasíðu dönsku veðurstofunnar til að sjá hvernig veðrið verður næstu helgi - en í hvert skipti sem ég kíki hefur spáin breyst! Svo við Dóa verðum bara að bíða og sjá til - vonlaust að reyna að plana nokkuð fyrr en á fimmtudag kannski. Er nú samt að vona að Köben velji að sýna sig frá sinni bestu hlið megnið af dögunum allavega :o) Alltaf jafn bullandi bjartsýn...

2. ágúst 2007
Red Dawn
Á flakki um útnára veraldarvefsins datt ég um þetta og nostalgían helltist yfir mig!
Ég og vinkonur mínar sáum þessa mynd örugglega 15 sinnum og fannst hún ÆÐI!
Einhvern vegin grunar mig samt að það yrði talsvert öðruvísi að sjá hana í dag - held ekki að söguþráður eða frammistaða leikaranna hafi nú verið alveg í hæsta gæðaflokki. En þegar maður var 13 ára og gígaskotin í Charlie Sheen var manni alveg sama :o) Það væri kannski alveg þess virði að taka eina kvöldstund í að þessa mynd aftur - helst með nokkra lítra af bjór innanborðs - og a) sjá hvort maður nær að endurlifa gelgjuna eða b) grenjað úr hlátri yfir því hvað myndin er skelfileg...
En þetta fékk mig allavega til að setjast niður og semja lítinn lista:
8o's táningamyndir sem ég elskaði (og elska enn)- ekki í neinni sérstakri röð:
Better off Dead
The Breakfast Club
The Lost Boys
Say Anything
Back to the Future
Ferris Bueller's Day Off
Girls Just Want to have Fun
Cant Buy Me Love
8o's táningamyndir sem ég elskaði - en efast um að standist tímans tönn...
The Outsiders
Adventures in Babysitting
Just one of the guys
Karate Kid
Teen Wolf
The Heavenly Kid
Það vantar náttúrulega fullt af myndum á báða listana - þetta eru bara nokkur dæmi.
Það er fátt sem afhjúpar kynslóðarbilið jafn mikið og uppáhalds unglingamyndirnar manns!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)