21. desember 2007
Á síðustu metrunum...
fyrir jólafrí! Alveg að verða búin í vinnunni - og svo er bara að rjúka heim og pakka niður því allra síðasta, krossa fingur og vona að allar samgöngur (strætó, metró, flug og flybus) verði á áætlun. Flýg heim í kvöld!
17. desember 2007
Allur blár og marinn...
Þá er maður fluttur enn einu sinni... fyrsta nóttin í nýju íbúðinni og ég vakna klukkan 04.27 og get ekki sofnað aftur - það byrjar vel! Reyndar á ég alltaf erfitt með að sofa á nýjum stað - en þetta er ekki besta leiðin til að byrja mánudag á!
Svo ég var mætt hér í vinnu hálf átta, eftir að hafa dólað mér á lappir eins hægt og mér var lífsins mögulegt. Er aum í öllum skrokknum eftir fluttingana - flutti af fjórðu hæð og aftur upp á þriðju (og hafið í huga að danir telja ekki jarðhæðina með...) og svo er ég að fara í nudd klukkan eitt! Ef ég á ekki eftir að hljóða eins og stunginn grís... Anýhú Þórir að koma á morgun og ég á eftir að finna eitthvað handa honum að sofa á ("nýi" sófinn minn er ca. 150 cm breiður svo ég held ekki að neinn muni sofa í honum) og ætli það væri ekki ráð að eiga eitthvað annað í ísskápnum en tómatsósu? Svo eru bara 5 dagar í heimferð...

10. desember 2007
Loksins komið í ljós...
...að ég FÆ 2 vikur í frí! Gleði, gleði! Svo nú get ég loksins farið að skipuleggja mig eitthvað! Og á þeim nótum: ef einhver veit um far norður yfir heiðar milli jóla og nýárs - endilega láta mig vita! Og sömuleiðis til baka eftir áramót...
Nú á ég "bara" eftir að reyna að ná í allt norðanfólkið mitt og komast að því hver vill hafa mig og hvenær...
Juminn hvað mig er farið að hlakka til að koma heim!

6. desember 2007
Er eðlilegt...
... að það sé meira áfall að takast á við nýjan gemsa en nýja íbúð? Eða endurspeglar það bara að ég er að flytja í 5. skiptið síðan ég eignaðist gamla gemsann(fyrir 4 árum síðan)? Eða er þetta bara enn eitt dæmið um að ég tek of miklu ástfóstri við einstaka hluti - mér líður hreinlega eins og ég sé að halda framhjá...
Það sem maður getur verið klikkaður!
Hollendingurinn fljúgandi lendir hér á morgun og verður nýtt sem andlegur stuðningur um helgina þar sem ég og fellingarnar mínar ætlum að gera síðustu örvæntingafullu tilraunina til að finna eitthvað að vera í á Julefrokost. Er komin á fremsta hlunn með að hætta við að fara - taka dramadrottninguna á þetta bara og neita að mæta nema ég finni rétta dressið...
Ég held kannski bara að það sé allsherjarstressið sem er að fara með geðsmunina þessa dagana - spurning hvort það virki aftur að drekka sig niður eins og í Amsterdam? Gæti allavega verið gaman að prófa :o) Ertu til Dóa?

2. desember 2007
Talið niður
Guð hvað mig hlakkar til að komast í jólafrí!
Fyrir utan að ég fæ færi á að hitta fjölskyldu og vini sem ég hef ekki sér ALLTOF lengi (næ samt ekki öllum því miður), þá er 1000 hlutir sem vonandi verða yfirstaðnir þegar ég loksins kemst í frí. Ekki bara flutningar og allt því fylgjandi, heldur verkefni í vinnunni (það á náttúrulega að klára 100 hluti þar fyrir áramót) og allavega tilfallandi uppákomur. Ef ég bara slepp við blæðandi magasár er ég nokkuð sátt... Mig vantar allavega 4 extra vikur í desember til að komast yfir allt sem ég þarf að gera!

28. nóvember 2007
Ekki ellidauð
...sama hvað kjaftasögurnar segja! Bara enn klikkað að gera á öllum vígstöðvum. Afmælishelgi var fín en tók á - mikið kjaftað, étið, drukkið og bakað (jólasmákökurnar maður!). Svo eru fréttir af húsnæðismálum því ég er líklega komin með nýja íbúð og nú standa fyrir dyrum flutningar eftir rúmar 2 vikur! Eins gott að ég náði aldrei að pakka almennilega upp - ætti ekki að vera mikið mál að pakka niður... Á svo bara eftir að finna út hvernig ég ætla að redda þessu öllu fjárhagslega en stóla á að þetta reddist - tek PollýÖnnuna á þetta bara!
Svo er farið að styttast ískyggilega í jólin - tek nett stressköst yfir því af og til, svona innámilli flutninga/fjármála/vinnustresskasta. Sé því ekki fram á að blogga mikið á næstunni - hef hreinlega ekki tíma og orku!
krossið fingur fyrir mig gæskurnar - ég þarf á allri góðri orku að halda þessa dagana.

21. nóvember 2007
Brjálað að gera!
... á öllum vígstöðvum! Af hverju kemur félagslífið mitt alltaf í flóðbylgjum? Löng tímabil þar sem er EKKERT að ske og svo allt í einu vika sem er fullbókuð! Ekki það að ég er afskaplega þakklát fyrir að eiga þó eitthvað sem heitir félagslíf, en juminn hvað það væri nú gott ef það kæmi aðeins jafnara...
19. nóvember 2007
Meiri Sweeney Todd
Sweeney Todd á MySpace - viðtal við Johnny, bakgrunnar og fleira!
Og ég þarf að bíða þar til í febrúar eftir að andsk... baunarnir sýni myndina!!!

17. nóvember 2007
16. nóvember 2007
15. nóvember 2007
Gleðifréttir fyrir alvöru konur!
Amerískir vísindamenn telja sig hafa sannað að alvöru konur (þ.e.a.s. konur með mjúkar línur og hold á réttum stöðum) séu ekki bara greindari en þær mjóu, heldur líka líklegri til að eignast greind börn!
Það er nú hægt að setja einhver spurningarmerki við rannsóknaraðferðirnar þeirra - en ég ætla að velja að taka þetta sem heilagann sannleik!
Hér er fréttin á BBC

14. nóvember 2007
13. nóvember 2007
Spammarar eru réttdræpir
Eitt af því sem ég hata mest í lífinu er spampóstur – sérstaklega sá spampóstur sem kemur í formi hysteríska keðjubréfa sem eru vísvitandi samin til að hræða fólk í að senda þá áfram til allra vina og vandamanna. Ef ég nokkurntíma kæmi klónum í upphaflegu höfunda þessara bréfa yrðu viðkomandi afklæddir, makaðir í hunang og svo krossfesstir með höfuðið niður á meðan eldmaurar ætu þá lifandi. Bara svona til að byrja með. Akkúrat núna eru íslendingar á listanum – fíflið eða fíflin sem eru að dunda sér við að þýða hvern gamla “klassíska” gabb-póstinn á fætur öðrum yfir á íslensku og landinn er greinilega að éta þetta hrátt. Ég er búin að fá 4 mismunandi svona pósta frá 4 mismunandi manneskjum á síðustu dögum – nú síðast í morgun frá mömmu minni sem var yfir sig áhyggjufull yfir að ég fengi nú “life is beautiful” vírusinn (sem ekki er til) af því ég nota yahoo mail. Ég hef líka fengið viðvörun um að MSN ætli að fara að rukka (sá er búin að ganga á netinu síðan 2001) og að ákveðnir varalitir séu fullir af blýi (líka búin að væflast um netið í mörg ) og svo framvegis... Ég tek fram að hvorki mamma mín, né vinir mínir sem senda þetta áfram í góðri trú eru á dauðalistanum – það eru þeir sem vísvitandi nýta sér trúgirni fólks sem ég er reið við. Hins vegar vil ég nota tækifærið og biðja lesendur mína um 2 hluti. Í fyrsta lagi að tortryggja allan tölvupóst sem rekur hræðsluáróður og biður þig um að senda áfram til allra sem þú þekkir – í 99.9 % tilfella er þetta tómt kjaftæði og illgirnin ein (það er ekki bara verið að ljúga að þér og hræða þig/sjokkera þig að ástæðulausu – það er verið að biðja þig um bera lygina áfram í fólk sem þér þykir vænt um). Í öðru lagi – þótt þér finnist pósturinn trúverðugur – notaðu 5 mínútur til að tékka á netinu hvort þetta sé gabb áður en þú sendir póstinn áfram. Síður eins og Hoax-slayer, Urban Legends ásamt síðum eins og Symantec og McAfee eru góðir staðir til að tékka – bara setja inn nokkur aðal orðin (á ensku) úr bréfinu í leitarboxin á síðunum og sjá hvað gerist. Eða hreinlega googla þau ásamt orðinu hoax – það virkar yfirleitt vel fyrir mig. Ef maður getur ekki ellt þessa bjálfa uppi og lamið þá (það ætti nú reyndar að vera hægt að rekja slóðina á íslenska upphafsmanninn – ég myndi gefa mikið fyrir 10 mínútur ein með honum/henni) getur maður allavega látið vera að leyfa þeim að takast ætlunarverkið (að dreifa þessu rusli eins mikið og mögulegt). Færið mér höfuð spammarans... Sorrý - en ég VARÐ að fá þetta út úr sýsteminu!
12. nóvember 2007
Post-helgar trauma
Átti friðsæla helgi með heimilsstörfunum – sólin tók uppá því að skína inn um gluggana og allt í einu glitraði á kóngulóarvefi og ryk hér og þar sem ég hreinlega hafði ekki tekið eftir! Ekkert að gera nema þrusa Queens of the Stone Age í græjurnar, setja upp fínu tvílitu gúmmíhanskana og herða sig upp í að fjarlægja Shelob gömlu af skápnum svo ég kæmist í ryksuguna til að fjarlægja afkomendur hennar. Ég er samt viss um að einhverjar af áttfættu vinkonum mínum náðu að fela sig – ef ég þekki þær rétt verða þær farnar að gera sig heimakomnar áður en þessi vika er búin! Ekki veit ég á hverju þær lifa blessaðar – sé svotil aldrei flugur í íbúðinni (eftirá að hyggja er það kannski þessum 200 sambýlingum mínum að þakka?).
Annars bara leti og sjónvarpsgláp – það var greinilega einhver afar síðbúin Halloween stemning í danskinum því allar stöðvar kepptust við að sýna hrylling um helgina – gleði, gleði! Náði nokkrum klassískerum (Cat people, Alien og Aliens (2) og The Company of Wolves (sem ég sofnaði yfir – afar sýrð mynd)). Sem betur fer var Arachnophobia ekki ein af þeim – á nógu erfitt með fóbíuna mína eins og er. Er þó þakklát fyrir að mínir sambýlingar eru ekki alveg jafn líflegir og sambýlingarnir hennar Dóu - alltaf brjálað stuð þegar maður kveikir ljósin í Uilinstede!

9. nóvember 2007
Í augnablikinu eru allar línur uppteknar...
Heilinn minn pakkaði saman áðan og fór í helgarfrí – og skildi mig bara eftir! Ekki svo gott þegar það er einn og hálfur tími eftir af vinnunni. Ég er að reyna að einbeita mér – en það eina sem ég finn í hausnum á mér er svona lyftumúsík! Svona hræðileg dósamúsík eins og sálarlausar manneskjur velja að setja á biðlínur síma í fyrirtækjum... Fyrir tíma gemsans var ég oft í bráðri lífshættu ef ég var sett á bið því 10 mínútur af Kenny G var nóg til að fá mig til að reyna að hengja mig í símasnúrunni! Og núna er ég að yfirvega að saga af mér hausinn til að sleppa. Kannski ég ætti bara að fara að koma mér heim – eða allavega leita skjóls með kaffibolla í reykherberginu. Klukkan er jú alveg að verða þrjú...
8. nóvember 2007
Spurning dagsins
7. nóvember 2007
6. nóvember 2007
Escape from Amsterdam
Þá er maður komin til baka í gráan hversdagsleikann og situr með búnka af vinnu sem maður nennir eiginlega ekki að díla við... Voða gaman í Amsterdam – mikið labbað, mikið talað og mikið öl drukkið. Held ég hafi náð að bæta ærlega fyrir það hvað ég hef verið hrikalega þæg og góð undanfarna mánuði – enda var held ég komin tími til! Á eftir að sjá hvort eitthvað af myndunum lukkuðust – set þá link í þær seinna. Þið verðið bara að nota ímyndunaraflið þangað til ;o)
31. október 2007
Eftirlýsing!
Svona í tilefni yfirvofandi Amsterdam ferðar hafði ég hugsað mér að maður vikunnar að þessu sinni yrði Hollenskur - en eftir ítarlega (eða nokkuð ítarlega) leit á vefnum hefur mér ekki tekist að finna annað sýniseintak af Hollensku kyntákni en Rutger Hauer! Og ég NEITA að setja hann sem mann vikunnar! Hann er hreinlega of gamall greyið... Svo ég skora hér með á lesendur - sú/sá ykkar sem getur bent á flottan Hollenskan fola til að prýða síðuna næstu vikuna fær bjór að launum frá Pöddunni...
29. október 2007
Þar kom það...
Ég er búin að vera salíróleg yfir komandi helgarferð til Amsterdam - alveg þangað til áðan. Mitt í háalvarlegum pælingum í hvernig best sé að leysa horfin bil á milli orða i RIS formati laust skyndilega niður: "OMG! HVAÐA FÖT Á ÉG AÐ TAKA MEÐ!?!" og þar með er ég óstarfhæf næsta korterið meðan ég leita að pappírspoka til að anda í... Á hálfri sekúndu frá yfirvegaðri fagmanneskju yfir í taugaveiklaða barbídúkku í paníkkasti! Og ég sem hélt ég væri orðin svo þroskuð og kúl á því - þar brast sú sápukúla...
28. október 2007
Stóru spurningarnar
27. október 2007
Húmor eða hrylling?
John Cleese á afmæli í dag - 68 ára kallinn! Spurning hvort maður eigi að halda uppá daginn með Life of Brian í kvöld? Eða hvort maður eigi að fagna Halloween aðeins of snemma og leggjast í hryllingsmyndir - ég er með Company of Wolves og Chronos á náttborðinu.
Þori ég alein og yfirgefin?
Þori ég alein og yfirgefin?
25. október 2007
Maður vikunnar snýr aftur
Kjörklefanum hefur verið lokað og atkvæði talin: heil 75% vildu halda manni vikunnar. Í anda lýðræðisins hef ég því orðið við óskum kjósenda og tileinka mann þessarar viku Dóu litlu - bara vegna þess að ég er 99% viss um að hún er þessi 25% sem valdi "nei - þú hefur hvorteðer ekkert vit á karlmönnum"
24. október 2007
Morkinn miðvikudagur
Póstleysi síðustu daga stafar af hreinu andleysi - hef nákvæmlega ekkert að segja þessa dagana. Ekki af því að það sé neitt að - hef svosem átt ágæta viku þannig, en heilastarfsemin er bara í algjöru lágmarki og ég er enn að berjast við löngunina til að skríða í hýði og sofa fram til apríl. Það hlýtur að hafa slæðst skógarbjörn inn í ættartréið mitt einhversstaðar! Það myndi útskýra svo margt...
Svaf yfir mig í morgun - hef ekki hugmynd um hvort vekjarinn hringdi eður ei - en ég vaknaði allavega klukkutíma seinna en ég hafði ætlað mér og er nú algjörlega úti að aka; skrokkurinn og heilinn virðast vera í sitt hvoru tímabeltinu og vinna því ekki sérlega vel saman í augnablikinu. Þetta verður laaaaaaaaaaaangur dagur!

18. október 2007
Nýtt útlit
Kom að því að ég beygði mig fyrir Beta-blogger mafíunni og "staðlaði" bloggið mitt.
Aðallega vegna þess að ég hef ekki nennt að taka mig saman og búa til almennilegt sniðmát sjálf. Ég var búin að rusla svo mikið út í gamla kóðanum að það tók því varla að reyna að laga það - alveg eins gott að byrja aftur frá grunni. Og svo var ekki mögulegt að fá ýmis Widgets til að virka í gamla... og ég er sucker fyrir Widgets. Svo nú er ég komin með skelfilega stílhreint og pent blogg. Takið ykkur allavega hálfa mínútu og virðið það vel fyrir ykkur - ef ég þekki sjálfa mig rétt verð ég farin að tæta það í sundur innan næstu viku og eftir mánuð eða svo verður það orðið að ósmekklegum hrærigraut þar sem hlutum er kastað inn og eytt eftir geðþótta og nennu...

15. október 2007
mánudagsmæðan enn og aftur
Helgin þaut framhjá – og allt í einu er skollin á mánudagur aftur.
Það var menningarkvöld í borginni á föstudag, en ég var hreinlega of búin á því eftir vikuna til að njóta þess af viti. Fór þó aðeins niður í bæinn með vinkonu minni – en um tíuleytið var gamla konan alveg komin með nóg og fór heim að sofa!
Var svo í matreiðsluklúbb á laugardagskvöldið og stóð mig þó aðeins betur þar – held ég hafi skriðið í ból um ca. 4 leytið. Náði svo að hitta næstyngsta bróðurinn skelþunnann í gær – það var voða huggulegt enda næstum 1 og hálft ár síðan síðast (að ég hitti hann – hann hefur eflaust oft verið skelþunnur í millitíðinni). Ákveðið áfall þó hvað pjakkurinn er orðinn fullorðinn! Mér finnst ekkert voðalega langt síðan ég gat haldið á honum – myndi nú ekki reyna það í dag. Verður eflaust enn meira sjokk að hitta þann yngsta um jólin – ég er enn í afneitun yfir því að hann er kominn með bílpróf...

12. október 2007
Freaky friday
Póstaleysi síðustu daga stafar af miklu annríki á öllum vígstöðvum - og verður líklega viðvarandi næstu daga líka. Eins og alltaf er félagslífið ýmist í ökkla eða eyra - akkúrat núna í eyra sumsé!
Nota tækifærið og mæli með Ratatoille sem ég sá í gærkvöld - alveg hreint yndisleg :o)
Eigiði góða helgi elskurnar!

7. október 2007
Sweeney Todd
Það er kominn trailer fyrir Sweeney Todd!
Aaargh - alltof langt í þessa mynd! Held hún komi ekki hingað fyrr en í janúar... DAMN IT!

5. október 2007
Föstudagsfjör
Hversu þreyttur er maður ef það er algerlega óyfirstíganlegt verkefni að hita upp tilbúna súpu? Og hvað gerir maður á föstudagskvöldi ef það er nákvæmlega ekkert í sjónvarpinu - vídeóleigan er alltof langt í burtu (og buddan hálftóm hvorteðer), bók myndi krefjast meiri heilastarfsemi en maður ræður við og maður er búin að glápa svo mikið á tölvuskjá í vikunni að tilhugsunin um meira af svoleiðislöguðu veldur velgju?
Þetta eru spurningar sem mér finnst ég vera farin að spyrja sjálfa mig ansi oft - hvað varð um manneskjuna sem gat unnið 50-60 tíma á viku og var samt klár í djamm fram undir hádegi á laugardagsmorgnum? Hver býttaði henni út fyrir þennan þennan þreklausa kartöflusekk sem ég er orðin!
Er alvarlega farin að íhuga að taka Gerimax eða einhver önnur ellismellalyf í von um að fá smá orku tilbaka - en þangað til held ég að þetta verði enn eitt föstudagskvöld undir sæng með Animal Planet (þar sem ég enda allaf þegar það er EKKERT í sjónvarpinu). Meerkat Manor slær Guiding Light og allar slíkar sápuóperur út í undirferli, ástríðum og drama - og svo eru leikararnir líka mikið betri...

3. október 2007
2. október 2007
Dagurinn í dag ætlar að vera óendanlega langur – og það þrátt fyrir að hafa byrjað vel með afmælismorgunmat (einn af vinnufélögunum er 60 ára í dag) og huggulegheitum. Eftir hádegi virðist ég hafa lent í einhverri annarri vídd þar sem klukkan bara stendur í stað...
Svo ég get alveg eins notað tímann til að bulla á blogginu. Þótt ég hafi nú svosem ekkert að segja!
Eða þó - svo einstaklega bar til í gær að ég horfði á “raunveruleika” sjónvarp – sem ég annars hata eins og pestina. En þetta var svona eins og bílslys – hryllilegt en maður getur ekki stillt sig um að kíkja. Þetta er nýr danskur þáttur sem heitir “það sem konur vilja” . Hugmyndin er afar einföld – 10 menn, sem telja sig vita hvað konur sækjast eftir í karlmanni, eru settir saman í eitt stórt hús og svo eru 3 konur (af einhverjum ástæðum allar fyrrverandi módel) sem eru dómarar. Í hverri viku er svo einn álfurinn sendur heim. Ég verð að segja að ég varð hálf þunglynd af að horfa á þennan þátt – ekki bara vegna þess að ég kannaðist alltof vel við of margar af “týpunum”, heldur vegna þess að um það bil helmingurinn voru strákpjakkar um 20 með þroska á við meðal pottaplöntu. Til að missa ekki alfarið trúna á karlkynið hef ég ákveðið að trúa því að þáttarstjórnendur hafi með vilja ekki endilega valið 10 mest frambærilegu mennina – því ef þetta voru þeir tíu bestu neyðist ég til að endurmeta kosti og galla þess að vera gagnkynhneigð!
Ok - tók mér reykingapásu (er í vinnunni) til að róa mig niður, og viti menn - gott ef ég fékk ekki örlitla von til baka... Það leynast kannski ágæt eintök inni á milli - sem bara hafa vit á að láta ekki hafa sig út í raunveruleikasjónvarp ;o)

30. september 2007
Alvöru njörður
Lifði af vikuna og er komin með vottorð uppá að vera alvöru njörður...
Staðurinn gæti reyndar líka skipt um markhóp og tekið að sér fólk sem vantar exstra hold á beinin - ég blés út eins og loftbelgur á þessum 5 dögum! Held ég neyðist til að bíta gras næstu 3 vikur til að jafna mig :o( Er virkilega til fólk sem getur borðað tvíréttaðan hádegismat með sósum og víni og öllu draslinu og ekki fitnað? Ef svo er: get ég fengið nöfnin og heimilisföngin hjá þeim svo ég geti sparkað í þau?!?
Annars er svosem ekkert að frétta nema hvað ég sá Mýrina á föstudaginn í bíó. Fannst hún ágæt svosem - en verð nú að segja að ég hef séð betri íslenskar myndir. Vöknaði þó létt um augu þegar Esjan kom í sjónmál... Guð hvað mig hlakkar til að koma heim um jólin og hafa fjöll í kringum mig aftur! Það er flatt í Árósum en Köben er jafnvel flatari!
Svo er það bara venjuleg vinnuvika sem tekur við á morgun - ég og túrbólurnar mínar ásamt nýju keppunum erum svosem ekkert alltof spennt... Er að spá í að mæta svona og bera því fyrir mig að mér hafi verið snúið til Islam á námskeiðinu. Leysir alla útlitskompleksa á einu bretti! Bið að heilsa ykkur í bili - þarf að finna mér lak og nál og tvinna...

27. september 2007
26. september 2007
extel outside
Vil bara láta vita að verður ekki póstað neitt hér fyrr en um helgina - svona svo þið getið sparað ykkur ómakið að tékka á síðunni. Ég er á UNIX/LINUX námskeiði í Hillerød alla daga þessa viku og heilinn er hreinlega bráðnaður þegar ég loksins kem heim!
Ekki skrítið að þessir tölvunördar séu skrítnir - maður verður létt klikkaður af þessu...

23. september 2007
Haustsól
Eftir kalda og hráslagalega viku fengum við þessa líka fínu helgi með mildu veðri og meira að segja sólskin af og til! Enda þaut þessi helgi bara hjá - er búin að vera eins mikið utandyra og ég gat og vildi óska að það hefði samt verið meira. Laufin á trjánum eru byrjuð að taka á sig haustlitina, greinar svigna undan síðustu eplunum, plómunum og kirsuberjunum, svo ekki sé talað um alla berjarunnana. Köben tekur sig bara vel út í haustsólinni...
20. september 2007
Þarfaþing
Tvímælalaust þörf uppfinning: gemsi sem leyfir þér ekki að hringja í kærastann/yfirmanninn/mömmu þína þegar þú ert full/ur Sem aukabónus varar hann líka við að keyra ef prómillið er of hátt...
19. september 2007
Heilsutékk
Ég hljóp um eins og hauslaus hæna allan daginn í vinnunni í gær:
Fyrst var mér skipað að mæta í myndatöku - skellt upp að vegg eins og hverjum öðrum strokufanga og "skotin". Fékk ekki að sjá afraksturinn en get svona ca. ímyndað mér hvað ég er ánægð á svipinn. Og þetta fer á prófílinn minn á Intranetinu okkar - great! Þvínæst lá leiðin niður í kjallara þar sem mér tókst á endanum að finna líkamsræktarsalinn. Mæld, vegin, stungin á hol(blóðprufa) og rekin upp á eina af uppfinningum andskotans (þrekhjól) þar sem ég mátti púla í 10 mínútur á meðan þau mældu breytingar á hjartslætti og skóstærð (eða einhverju - ég var of móð til að heyra hvað þau sögðu). Kemur einhverjum á óvart að ég féll á þrekprófinu? Og fékk ábendingu um að ég mætti nú alveg missa nokkur kíló... Það eina sem kom mér á óvart var að allt annað var í góðu lagi og ég get meira að segja státað af fádæma góðu kólestróltali - svo EITTHVAÐ er ég allavega að gera rétt. Fékk svo fyrirlestur um hvað ég þyrfti nú að gera til að ná þrekinu upp - aðal málið virðist vera að ég geri eitthvað sem fær púlsinn í botn og gerir mig andstutta = það verður Johnny Depp-mynda maraþon hjá mér um helgina :o) Segiði svo að ég hugsi ekki um heilsuna!

18. september 2007
17. september 2007
mánudagsmæða
Það er fátt skemmtilegra en að vera sett í að skrifa leiðbeiningar um eitthvað sem maður skilur ekki sjálfur... Er nú búin að sitja í 20 mínútur og hvessa augun á langan lista af "breytum" í þeirri von að þær brotni undir álaginu og breytist í eitthvað skiljanlegt - bara allt í einu! Enn sem komið er þrjóskast þær við og uppljómunin lætur á sér standa... Ég þoli ekki mánudaga!
16. september 2007
14. september 2007
Lazarus lifir
Eftir 2 daga í flensu mætir maður í vinnunna og manns bíður dagur af uppsöfnuðum mail og fundarhöldum! Næstum nóg til að senda mann beina leið í bólið aftur...
Ætla ekki að segja ykkur hvað ég er fegin að það er föstudagur!
Á hot date með Johnny Depp á morgun - hið 17 ára gamla meistaraverk Cry Baby í bíó! Gleði, gleði!
Góða helgi elskurnar :o)

10. september 2007
eilífðartáningurinn
Ég held svei mér þá að ég sé að endurlifa unglingsárin - með unglingabólum og öllu!
Og enn alveg jafn glórulaus og þá... en er að hafa gaman að ;o)
Liðþjálfinn minn í Amsterdam getur verið stollt af mér í dag...

9. september 2007
Let there be FOO
Let there be FOO
Og meira Foo - Dave nauðgar Stairway to heaven...
Og að lokum - Pity da FOO (sérstaklega fyrir Þórir)

8. september 2007
úps!
Ég var búin að fara yfir planið, allir hlutir voru á sínum stað, og ég var klár í slaginn. Í c.a. 15 mínútur gekk allt eftir áætlun og svo missti ég stjórn á aðstæðum.
Sit núna og klóra mér í kollinum og reyni: a) að átta mig á hvað gerðist og b) komast að því hvort ég er svekkt eða ánægð!
Jafn ringluð og ungabarn á topplausum bar...

7. september 2007
Helv.. paddan
Og á sjálfan partýdaginn lætur flensupaddan (sem ég hef reynt að hundsa alla vikuna) heldur betur á sér kræla. Líður eins og börðum harðfiski og útlitið er ekki mikið betra. Glansandi augu og kaldur nebbi er fínt ef maður er Border-Collie en ekki ef maður er bara lítill íslendingur... Lagt af stað eftir 40 mínútur og það eina sem mig langar til er að skríða undir sæng...
5. september 2007
í víking...
jæja það styttist í fyrstu stóru vinnustaðaveisluna mína.
Samkvæmt e-mail frá starfsmannastjóra hafa 131 vopnfærir menn og konur (en samkvæmt heimildum fáar meyjar segir hann - dóninn!)skráð sig og verður lagt í víking til Hróarskeldu á föstudaginn. Út að sigla víkingaskipi og svo skoðunarferð á eftir, síðan verður skipt um klæði áður en gengið verður til veislu. Ég gæti verið hressari með hópaskipanina en stóla á að það verði frjálst sætaval þegar við borðum. Hugga mig við að ég verð þá búin að sjæna mig til - eftir bestu getu (spurning hvað verður hægt að gera við sjávarsaltað hár og veðurbarið andlit...) ef mér nú skyldi takast að lenda á réttum stað ;o) Sum ykkar vita hvað ég meina og hin verðið bara að giska!
Enívei - Nú stendur fyrir dyrum hin eilífa "OMG - í hverju á ég að vera?" krísa - sem líklega verður fylgt af "OMG - af hverju þarf þessi blússa/kjóll/buxur/whatever akkúrat að vera í óhreinatauinu?!?" krísunni. Maður á sínar föstu rútínur... Á endanum verður gefist upp og gripin sú flík sem hendi er næst og svo verður maður bara að drekka þangað til manni er alveg sama :o) Þetta reddast...
grr... var að heyra að það verður skipað til borðs um kvöldið - BUGGER!
So much for my evil plan...

3. september 2007
sami sakleysinginn...
Enn einn snilldarspádómurinn í mogganum :
Bogmaður: Í dag kemur upp þetta rafmagnaða og fljótandi augnablik þegar þú skyndilega veist allt sem þú þarft að vita. Og svo verðurðu aftur sami sakleysinginn.
Hvaða djö... sadismi er þetta? Einnar sekúndu vitrun og svo aftur auli? Ég er afar ósátt...

28. ágúst 2007
Mad Cat´s disease
Það er alltaf hægt að stóla á Uncyclopediuna ef manni leiðist. kattaeigendur ættu að geta glott að þessari færslu: Mad Cat´s Disease
27. ágúst 2007
Spike!
Fyrir okkur sem elskuðu Spike - viðtal við James Marsters Hann gæti víst alveg hugsað sér hlutverk í Gray's Anatomy (sem byrjar aftur á skjánum hér í kvöld YAY!) - hvað ætli Mc-Aukanafnið hans yrði? McSpikey? ;o)
24. ágúst 2007
23. ágúst 2007
22. ágúst 2007
Engar grensur
Mikið ofboðslega leiðist mér hvað fólk er orðið ónæmt fyrir því hvað á heima á almannafæri og hvað ekki. Sérstaklega er þetta orðið hrein plága í strætó þar sem fólk t.d. ræðir hástöfum einkalíf sitt og annarra í gemsann án þess að skeyta nokkru um hvort restin af farþegunum kærir sig um að vera pínt til að hlusta á þetta.
Í gær sat ég dauðþreytt í strætónum á leiðinni heim og reyndi að blokka úti parið sem sat fyrir aftan mig - eða réttara sagt stelpuna, því strákurinn kom varla inn orði. Ekki veit ég hvað hann hafði gert, en henni fannst fullkomlega eðlilegt að tjá honum og öllum strætónum þau ótal sálrænu og aðferðarlegu vandamál sem henni fannst að hann ætti við að stríða. Mig dauðlangaði að snúa mér við og benda henni á nokkur atferlisvandamál sem hún greinilega sjálf þjáðist af - en var of rög.
Það var hins vegar annar farþegi sem missti þolinmæðina á endanum og bað stelpufíflið að hlífa okkur hinum við þeirra einkamálum - mig langaði mest að klappa og hrópa "Heyr, heyr!" og ég er viss um að ég var ekki sú eina. Og þetta þaggaði niður í henni - allavega þangað til ég slapp út úr vagninum.
Konan sem tók af skarið er hetjan mín - vildi óska að ég væri sjálf duglegari að láta vaða þegar mér misbýður. Ef restin af okkur hættir að þjást í þögn er ég viss um að hægt væri að venja þá málglöðu af þessum andskota!

20. ágúst 2007
Síðasti frídagurinn
Jæja þá er fríið að verða búið!
Eins og flest ykkar hafið eflaust lesið lukum við Dóa ferðinni hennar með Tívolí og svo einum kveðjubjór á Nýhöfn - ég er búin að skella inn nokkrum myndum í viðbót hér.
Nokkrum tímum eftir að Dóa fór kom Sarah vinkona mín í heimsókn frá Árósum og um kvöldið skelltum við okkur út á lífið. Þar sem við vildum gjarnan vera á einhverjum rólegum stað þar sem við gætum setið og spjallað enduðum við á Temple Bar á Nørrebrogade. Þegar eitthvað var liðið á kvöld brá ég mér út fyrir til að fá mér sígarettu (jú reykingabannið er skollið á hér líka). Stóð þarna í mínum eigin þönnkum og það tók nokkrar mínútur að sökkva inn hjá mér að eitthvað var ekki aaaalveg eins og það átti að vera. Sný mér í hina áttina og þar standa 5 óeyrðabílar frá löggunni ásamt sjúkrabíl og á meðan ég stóð þarna og gapti mættu fleiri bílar með blikkandi ljósum og sírenum. Ég drap í sígarettunni og laumaði mér inn aftur í snatri. Það varð fljótlega ljóst að það voru mótmælaaðgerðir í gangi í götunni fyrir ofan - Ungdomshuset enn og einu sinni! Afleiðinginn varð sú að ég og Sarah (og allir aðrir á barnum) vorum föst inni á meðan átökin stóðu yfir. Það var hálf fjarstæðukennt að sitja þarna inni með bjór og horfa á lögreglumenn í fullum herklæðum með risastóra Schaeffer-hunda smala fólki niður götuna og sjá aðra koma sömu leið með handtekið fólk á milli sín. Þegar það versta virtist yfirstaðið tókum við sénsinn og yfirgáfum barinn - lögreglan stóð enn og lokaði veginum báðum megin við okkur en við fengum leyfi til að komast i gegn sem betur fer. Þeim hefur liklega ekki fundist við líklegar til að tilheyra mótmælendunum. Þetta ævintýri okkar jók nú ekki á löngun mína til að búa á Nørrebro - má ég þá heldur biðja um rólegheitin hér í Brønshøj takk! Held að Sarah greyið hafi ekki heldur fengið sérlega góða mynd af Kaupmannahöfn!
Ég var svo varla búin að fylgja Söruh í lestina daginn eftir þegar Kasper vinur minn hringdi og tilkynnti að hann væri í bænum - það þýddi náttúrulega bjór um kvöldið og svo bauð hann mér og Pernille á bátamessu í Tuborg höfn í gær. Ég er svosem engin sérstök bátamanneskja, en það var fróðlegt að sjá hvað maður gæti keypt ef maður ætti svona 20-80 millur sem maður vissi ekki hvað maður ætti að gera við!
Kasper var reyndar líka búinn að finna handa mér norskan skipaerfingja - en daðurkunnátta mín er svo ryðguð að ég reyndi ekki einu sinni að taka hann á löpp.
Ég þarf greinilega að taka mig saman ef ég ætla að verða alvöru "gold-digger" :o)
Ég verð að viðurkenna að þrátt fyrir að það sé búið að vera voða gaman síðustu 2 vikur var líka aaaaaaaaafskaplega ánægjulegt að loksins geta bara skriðið undir sæng með góða bók í gær og bara slappað af - held ég sé búin með félagslífs-skammtinn minn í bili! Svo tekur vinnan við á morgun aftur - ætli það verði ekki hálfgert áfall en maður lifir víst af...

14. ágúst 2007
Örstutt yfirlit
Hæhæ
hér kemur örstutt yfirlit yfir síðustu viku og ef þið gáið vel leynast jafnvel einhverjar myndir. Við bætum kannski við þetta seinna ef við nennum en þetta verður að duga í bili. Góða skemmtun!
Fimmtudagur - þrömmuðum um miðbæinn með hinum túristunum þar til við vorum gengnar uppað öxlum. Dóa varð á endanum að draga mig útaf strikinu þar sem ég veiktist af innkaupavírusnum. Tókum rúntinn á Nýhöfn "for old time's sake". Til að róa mig niður eftir innkaupakastið drukkum við bjór á Kultorvet í góða veðrinu og klukkan var orðin ansi margt áður en við náðum heim aftur.
Föstudagur - fórum i Fields - og ég var enn með svo mikinn móral yfir innkaupaæðinu daginn áður að ég kom tómhent út - örugglega eini íslendingurinn þann daginn sem ekkert verslaði. Út í bjór um kvöldið - voða gaman!
Laugardagur - minna gaman að vakna... Þunnur! Þegar við loksins skreyddumst á lappir og höfðum af að skríða út í kjörbúð lentum við í þrumuveðri og drukknuðum næstum á leiðinni heim (næstum sko). Fórum í bíó um kvöldið og sáum Harry Potter - fínasta mynd bara.
Sunnudagur - tekin stefnan á dýragarðinn. Voða gaman, fullt af ungum og veðrið gott. Enduðum samt með mun meiri göngu en við höfðum reiknað með og vorum alveg búnar á því þegar við vorum loksins komnar heim.
Mánudagur - skelltum okkur yfir Eyrarsund til Malmö - just because we could! :o)
Sætur bær, gargandi hiti og sænski bjórinn er bara alveg ágætur! Af efnahagslegum ástæðum völdum við samt að halda bjórdrykkju áfram sunnan brúar um kvöldið.
Þriðjudagur - Christiania og Christianshavn. Máttum náttúrulega ekki taka myndir í Christianiu, stoppuðum svosem ekki sérlega lengi heldur enda alltof heitt. Maður er þó samt loksins búin að sjá pleisið :o) Það er líka alveg þess virði að rölta um Christianshavn - margir þrælfallegir staðir. Vorum myndaðar i bak og fyrir af einhverjum gauk - komumst að þeirri niðurstöðu að líklega hefði hann verið að mynda hvítustu leggi sem hann hefði nokkurntíman séð (þ.e.a.s. mína). Eyddum kvöldinu í rúminu með Hugh Jackmann :o)
Miðvikudagur - rignig = leti :o)

8. ágúst 2007
Örnin er ... uh ekki lentur
Komin í sumarfrí! Yey! Og veðurspáin bara þolanleg næstu vikuna - vona að það rætist.
Dóan er einhversstaðar yfir Atlantshafinu núna - er búin að fela handjárnin og svipuna, láta hokkýliðið vita að það verður engin orgía í næstu viku og bera tómu áfengisflöskurnar út. Fékk reyndar vægt áfall yfir þvi að afrakstur síðustu 3 mánaða voru: 2 rósavínsflöskur og 2 litlar bjórdósir. Og ég fékk hjálp með að drekka rósavínið! Svona er nú ólifnaðurinn á þessum bæ - þótt ég reikni fastlega með að Dóa hjálpi nú eitthvað með að rétta úr statistikinni á meðan hún er hér :o)
Reikna ekki með að blogga mikið næstu 2 vikur - en það er þó aldrei að vita nema maður finni stund til að setja inn nokkrar myndir, ef ég get lært almennilega á myndavélina...
Ciao!

7. ágúst 2007
Brown-noser
Andartaki áður en ég andast úr hita kemur tölvupóstur um að forstjórinn hafi keypt ís á línuna - ég eeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeelska þennan mann!
Besti boss í heimi - allavega í dag :o)
Besti boss í heimi - allavega í dag :o)
Talið niður...
Síðasti vinnudagur fyrir sumarfrí og ég sver að tíminn stendur í stað!
Búin að vera hér í 3 óendanlega langa tíma og er í hreinskilni sagt bara að bíða eftir að komast heim - hef ekkert að gera og nenni ekki að byrja á neinu nýju verkefni núna!
Hvar er Fast Forward hnappurinn á þessu lífi?

6. ágúst 2007
sól og sumar
Glimrandi veður alla helgina - og ég held svei mér þá að ég hafi náð smá lit!
Ánægjulegt að fá loksins einhver not fyrir sumarfötin mín :o)
Ekki jafn ánægjulegt að sitja á heitri skrifstofu í dag :o(
Tékka reglulega á heimasíðu dönsku veðurstofunnar til að sjá hvernig veðrið verður næstu helgi - en í hvert skipti sem ég kíki hefur spáin breyst! Svo við Dóa verðum bara að bíða og sjá til - vonlaust að reyna að plana nokkuð fyrr en á fimmtudag kannski. Er nú samt að vona að Köben velji að sýna sig frá sinni bestu hlið megnið af dögunum allavega :o) Alltaf jafn bullandi bjartsýn...

2. ágúst 2007
Red Dawn
Á flakki um útnára veraldarvefsins datt ég um þetta og nostalgían helltist yfir mig!
Ég og vinkonur mínar sáum þessa mynd örugglega 15 sinnum og fannst hún ÆÐI!
Einhvern vegin grunar mig samt að það yrði talsvert öðruvísi að sjá hana í dag - held ekki að söguþráður eða frammistaða leikaranna hafi nú verið alveg í hæsta gæðaflokki. En þegar maður var 13 ára og gígaskotin í Charlie Sheen var manni alveg sama :o) Það væri kannski alveg þess virði að taka eina kvöldstund í að þessa mynd aftur - helst með nokkra lítra af bjór innanborðs - og a) sjá hvort maður nær að endurlifa gelgjuna eða b) grenjað úr hlátri yfir því hvað myndin er skelfileg...
En þetta fékk mig allavega til að setjast niður og semja lítinn lista:
8o's táningamyndir sem ég elskaði (og elska enn)- ekki í neinni sérstakri röð:
Better off Dead
The Breakfast Club
The Lost Boys
Say Anything
Back to the Future
Ferris Bueller's Day Off
Girls Just Want to have Fun
Cant Buy Me Love
8o's táningamyndir sem ég elskaði - en efast um að standist tímans tönn...
The Outsiders
Adventures in Babysitting
Just one of the guys
Karate Kid
Teen Wolf
The Heavenly Kid
Það vantar náttúrulega fullt af myndum á báða listana - þetta eru bara nokkur dæmi.
Það er fátt sem afhjúpar kynslóðarbilið jafn mikið og uppáhalds unglingamyndirnar manns!

1. ágúst 2007
30. júlí 2007
| What color is your soul painted? Yellow Your soul is painted the color yellow, which embodies the characteristics of joy, happiness, optimism, idealism, gold, hope, liberalism, sociability, friendship, death, courage, intellect, confidence, communication, travel, movement, attraction, persuasion, and charm. Yellow is the color of the element Air, and symbolizes the sun, grain, and the power of thought. |
![]() Quizzes and Personality Tests |
Sweeney Todd
Get ekki að því gert - litli bíónördinn í mér hreinlega hoppar upp og niður af kæti yfir því að tökum er lokið á Sweeney Todd - en það verður lööööööng bið fram að frumsýningu í janúar :o/
Og svo er ég með krossaða fingur og tær í von um að þessi orðrómur reynist sannur!
Hmm... sést að það er lítið að gera í vinnunni núna? ;o)

27. júlí 2007
yfirlit vikunnar
Og allt í einu skollinn á föstudagur aftur! Vikan flaug hjá - átti stutt en spennandi fling með síðustu Harry Potter bókina og get nú aftur þvælst um netheima án þess að hafa áhyggjur af spoilerum. Síðustu 2 daga hef ég verið í "starfskynningu" á almenningsbókasafni í Lyngby (sem er eitt af "betri" úthverfunum í nágreni KBH - það er ekki á allra færi að búa þar!) - voða huggulegt :o) Planið fyrir helgina: lestur, útivist ef veður leifir (spáin er þolanleg - miðað við þetta sumar!), og svo held ég að ég neyðist til að þrífa... hef undanfarið rekin augu í óvelkomna gesti hér og þar (íbúðin mín virðist vera sérlega freistandi staður fyrir köngulær :o/) og það er víst komin tími á að gera razziu - enn einu sinni...
Og af einhverjum ástæðum er ALLTAF stór og stæðileg könguló búin að koma sér fyrir utan á skápnum sem ryksugan er í = neyðist til að reyna að fjarlægja hana með handafli svo ég geti ryksugað systur hennar burtu. Sem er ástæðan fyrir að ég hef látið ástandið verða svona slæmt - mig hlakkar ekkert sérlega til að kljást óvopnuð við þetta kvikindi!
Svo krossa fingur fyrir mig elskurnar - og góða helgi.
P.S. Er aftur komin með netsamband heima, svo það er ekki útilokað að ég verði á sveimi á MSN um helgina...

22. júlí 2007
Votur sunnudagur
Sá Oceans 13 í gær - hef ekki guðmund um hvað myndin var um; hormónarnir tóku yfir strax frá fyrstu mínútu - en ég naut bíóferðarinnar allavega ...
Var svo aftur í bíó í dag - sá Planet Terror og skemmti mér konunglega. Vil þó taka fram að til að hafa gaman að þessari mynd þarf maður: a) að vita að hér er verið að hylla verulega vondar myndir (svo myndin er viljandi vond á alla vegu!), b) hafa sterkar taugar fyrir hryllingi því hér er ekki sparað á slím og blóð. You have been warned...
Svo er planið að reyna að koma klónum í Potter á morgun áður en einhver hálfvitinn nær að eyðileggja bókina fyrir mér - þori varla á netið eða opna dagblað fyrr en ég er búin.
En akkúrat núna ætla ég í bólið með hausverkinn minn - er annað hvort að verða lasin eða farin að taka út timburmenn fyrir aðra (ekki vinn ég fyrir þeim sjálf!)
chiao!

20. júlí 2007
Föstudagsfílingur
Er í þvílíkum föstudagsfíling!
Ekki vegna þess að ég sé að fara að gera eitthvað í kvöld - bara leti á planinu (og alveg sátt við það svosem). Hef grun um að það sé hreinlega veðrið sem veldur þessu - eftir 5 votustu vikur sem mælst hafa í Danaveldi höfum við fengið næstum heila viku af ágætisveðri bara, og svei mér þá ef sólin er ekki farin að skila sér út í sálartetrið. Ætla að reyna að fá sem mest út úr veðrinu um helgina - hlaða sólarbatteríin eftir bestu getu því það er víst nýtt rigningartímabil framundan í næstu viku. Ætla að flatmaga með kaldan bjór og góða bók í kvöld (bara rusl og endursýningar í sjónvarpinu). Við Pernille íhugum að "dobbeldeita" Brad og George annað kvöld (loksins, loksins!) og á bókaðan brunch og svo Planet Terror á sunnudaginn - þetta verður fínasta helgi bara held ég! Það hefur sýna kosti að vera einföld sál ... :o) Svo ég ætla að leifa mér að vera í föstudagsfíling - setja upp sólbrillurnar og smæla framan í heiminn...
Góða helgi elskurnar - og hafið það virkilega gott! (þetta er skipun!)

18. júlí 2007
Grindhouse vika
Fór í bíó í gær og sá loksins Death proof - og skemmti mér konunglega! Ætla að taka Grindhouse með stíl og sjá Planet Terror á sunnudaginn og hlakka mikið til :o)
Held reyndar að bíóið í gær : Gloria hljóti að vera eitt minnsta bíó í heimi - vandlega falið í kjallara í miðbæ Köben, en voða kósý samt. En það var eina bíóið sem enn sýndi Death Proof. Annars er ég ekki búin að sjá nema brot af því sem ég ætlaði mér að sjá í bíó í sumar - þetta er náttúrulega engin frammistaða! Ég er enn ekki búin að sjá Oceans 13!!! Ég sem ætlaði svoooo að njóta þess að sjá Brad og George saman á stóóóóóru tjaldi... þetta náttúrulega gengur ekki!
Mónarnir mínir eru búnir að hlakka til svo mánuðum skipti og ég get ekki verið þekkt fyrir að svíkja litlu greyin - þeir fá ekki mikla gleði þessa dagana/vikurnar/mánuðina. Svo er bara löng köld sturta þegar maður kemur heim...

16. júlí 2007
hvað er að ske?
Haldiði ekki að sólin hafi tekið upp á því að skína um helgina? Og af því að það er heill mánuður síðan að maður fékk gott veður rauk maður út eins og asni án sólarvarnar og afleiðingin er sú að ég er (enn og aftur) í dönsku fánalitunum og get hlakkað til að verða litförótt með afbrigðum þegar hættir að rjúka úr brunarústunum. En það var ósköp notalegt að fá smá sumarfíling aftur eftir gráman og bleytuna síðustu 4 vikur - hélt upp á það með að borða ís í sólinni og skoða rósagarðinn í Valby. Lagði í einhverju stundarbrjálæði leið mína á Strikið á laugardaginn og var umsvifalaust minnt á af hverju ég forðast þann stað yfirleitt - allt of mikið af fólki! Sérstaklega var ekki þverfótað fyrir íslendingum í sumarleyfi sem auðvitað ætluðu sér að fá sem mest út úr útsölunum og ef forfeður okkar voru jafn grimmir á svip og einbeittir í sínum "innkaupaferðum" skil ég vel að fólk hafi verið skíthrætt við íslensku víkingana! Ég ákvað allavega fljótt að það væri ekki gott fyrir heilsu mína og líflíkur að standa í vegi fyrir þessum berserkjum og flúði miðbæinn með skottið á milli lappanna. Líklega eini íslendingurinn þann daginn sem ekkert keypti ;o)
Náði svo að sjá eina af litlu frænkunum mínum í gær - hún var hér á ferðalagi með mömmu sinni. Hún var nú hálf skeptísk sú stutta - kannaðist ekkert við þennan undarlega kvenmann þótt hún hefði nú heyrt um "Elvu frænku". Líklega hefur hún haldið að ég væri þjóðsaga eins og Lagarfljótsormurinn - enda álíka sjaldséð og myndast jafn illa líka. En það var nú samt voða gaman að sjá litla skottið enda orðið meira en ár síðan síðast.
En ætli ég verði ekki að fara að gera eitthvað af viti - sendi bara sólarkveðjur (á meðan ég get) og vona að þið hafið það öll gott á klakanum (eða hvar sem þið nú eruð)

10. júlí 2007
Limafundur...
Fékk þetta frá færeyskum vinnufélaga:
http://www.vagaross.com/vagaRidingaFelagBjodarTil.htm
Jafnast ekkert á við limafundi...

9. júlí 2007
And all that Jazz...
Hæhó...
Og enn ein helgin liðin og mánudagur skollinn á eins og blautur sokkur í andlitið!
Hér í bæ hefur verið Jazzhátíð og ég lét mig hafa að mæta á tvo tónleika - fyrir Pernille vinkonu sem fílar þessa tónlist (og skotin í einum af spilurunum ;o). Sem betur fer voru báðir tónleikarnir í jazzstefnu sem ég get haldið út en ég verð að viðurkenna að þetta verður aldrei neitt uppáhald hjá mér - ég er bara ekki fyrir jazz!
Svo var gerð tilraun til að kíkja út á lífið á laugardagskvöldið - en þótt skömm sé að því að viðurkenna það var öll orka þrotin um miðnætti og ég var fullkomlega sátt við að fara bara heim að sofa! Svona er maður orðinn gamall og slitinn...
Sorglegt.

4. júlí 2007
útsölu-timburmenn
Ég álpaðist inn í verslunarmiðstöð í gær... útsölur alls staðar náttúrulega - og ég ætlaði bara aðeins að kíkja eftir þunnri skyrtu eða bol fyrir vinnuna. Endaði náttúrulega með að ég flippaði gjörsamlega út eins og 3 ára barn í sælgætisverslun og kom heim með fullt af dóti sem ég ætlaði alls ekki að kaupa! Sit núna með móralska timburmenn og tómt peningaveski, svo ekki sé minnst á beyglurnar í sjálfsmatinu! Hélt í alvöru talað að ég væri ábyrg fullorðin manneskja sem gæti sko alveg haft hemil á mér og hugsað praktískt en nei...
Það verður víst hafragrautur á matseðlinum næstu 2 vikur ef fjárhagsáætlunin á að halda fyrir mánuðinn - oh joy! En ég er samt drulluskotin í peysukjólnum sem ég keypti mér - svo er bara að sjá hvort ég hef nokkurn tíma hugrekki til að ganga í honum...

2. júlí 2007
Heiladauð
Búin að vera gjörsamlega heiladauð síðustu daga - og veit ekki alveg af hverju. Hausinn fullur af steinsteypu bara og þungur eftir því. Farin að hallast að því að ég sé hreinlega með einhverja leiðindapest þrátt fyrir að ég sé ekki með nein önnur einkenni en þrekleysi og þungan haus. Hvað sem veldur vil ég gjarnan losna við það sem fyrst - hef verið plöguð af skrýtnum draumum sem valda því að ég vakna jafn þreytt og ég sofna. Vaknaði upp kófsveitt og skjálfandi í nótt eftir að hafa dreymt að ég kyssti mann sem mér algjörlega býður við! Þvílík martröð og viðbrögðin voru svipuð og síðasta 1 og 1/2 mínútan af þessu myndbandi
Getið þið ekki séð það fyrir ykkur?
Getið þið ekki séð það fyrir ykkur?
29. júní 2007
28. júní 2007
Berjatími
Það er berjatími í Danaveldi
Hvar sem maður fer standa bakkar með fersk jarðaber, hindber, brómber og kirsuber svo eitthvað sé nefnt (þettar eru uppáhöldin mín svo ég tek ekki eftir neinu öðru). Ég veit ekki hvort það er bara ég - en 3 síðastnefndu berin hafði ég aldrei prófað fersk fyrr en ég flutti hingað. Man ekki hvort ég sá þetta nokkurntíman til sölu heima - ef svo er hefur verðið eflaust verið svo brjálæðislegt að maður hefur ekki leyft sér svona munað. Ekki beinlínis gefið hér - en innan sársaukamarka þó. Og vel þess virði því fersk kirsuber eiga t.d. ekkert skyllt við dísæt kirsuber úr dós eða "kirsuberjabragð" í sælgæti og ís. Ég er allavega orðin háð ferskum berjum á sumrin og er afar ánægð með að berjatíminn kom snemma í ár.
Fékk tilfelli í gær og notaði Pernille vinkonu sem afsökun fyrir að fara á berjaflipp. Bjó til skyrtertu (af allra einföldustu sort) með blönduðum berjum. Þvílík bölvuð snilld!
Dansk/íslenskt eldhús af bestu sort ;o)
Við vorum sammála um að þetta væri sumarið í dessertskál - og bætti fullkomlega upp fyrir þá staðreynd að regnið barði rúðurnar 3. vikuna í röð...

25. júní 2007
mest pirrandi lag...
Gríðarlega ánægð með að sjá að ég var greinilega ekki sú eina sem var komin með æluna upp í kok í fyrra: mest pirrandi lag allra tíma Fæ enn bólur ef ég bara heyri röddina í vesalings manninum! Enn eitt fórnarlamb stjórnlausrar ofspilunar...
Brontë-systur vs. Jane Austen
Eftir 2 mánuði af endalausum endursýningum og andleysi í sjónvarpinu (það er venja hér á sumrin að sýna ekkert af viti), tók DR1 sig saman og byrjaði að sýna Jane Eyre í gær. Ég veit ekki með ykkur, en ég eeeeelska hreinlega svona BBC "period-drama". Og hér er náttúrulega algjörlega klassísk saga á ferðinni svo ekki er það verra. Það er að vísu ár og öld síðan ég las bókina síðast - en þar sem ég sat og horfði á samskipti Jane og Rochester var ég minnt á að ég hef aldrei verið mikill aðdáandi Brontë-systranna. Ekki vegna þess að mér finnist þær ekki skrifa vel - heldur vegna þess að karlhetjurnar í bókunum þeirra hafa aldrei fallið mér í geð. Rochester er þó illskárri en t.d. Heathcliff i Wuthering Heights - en ég er bara ekki nógu mikill masókisti í mér til að fatta af hverju maður ætti að falla fyrir svona þumbaralegum fautum!
Þótt Toby Stephens hafi nú náð að vera mun meira sjarmerandi Rochester en ég hef séð í öðrum útgáfum. Eitthvað minnir mig að hún Anna mín hafi verið veik fyrir þessum leikara forðum...
Það gæti verið athyglivert að gera samanburðarkönnun á sálarlífi kvenna eftir því hvaða klassísku karlhetju (í bókmenntum) þær laðast mest að - og hvort það endurspeglast í ástarlífi þeirra? Kannski ég ætti að setja af stað litla könnun af stað meðal vinkvennanna? ;o)

21. júní 2007
Amsterdam
Legg þennan link sérstaklega inn fyrir Dóu - Dave Barry í Amsterdam...
Á að mæta í grillpartý á ströndinni eftir vinnu - samkvæmt veðurspá verður steypiregn og þrumur... spurning um að mæta á sundbol bara?

20. júní 2007
Internet fróðleikur
Það er alveg með ólíkindum hvað maður getur lært mikið á vefnum!
Hér eru t.d. nokkrar "staðreyndir" sem ég hef rekist á undanfarið:
1. Konur sem lesa ástarsögur fá 2x meira kynlíf en konur sem ekki lesa ástarsögur.
(ég verð að hætta að lesa fantasy og horror - maður fær greinilega ekkert kynlíf út á það...)
2. Í mörgum samfélögum er litið á allar ógiftar konur sem "hreinar meyjar" (jafnvel starfandi vændiskonur). Það er bara í hjónabandi sem maður tapar meydómnum.
( nice little loophole there... svo ég er hvítþvegin...)
3. Læknisfræðilega hugtakið fyrir loðinn rass er "daysypgal"
(nú get ég móðgað menn á latínu - kúl!)
4. Í grikklandi forna var ótrúum körlum stundum refsað með því að hárin á kynfærum hans voru fjarlægð (veit ekki hvernig) og stórri radísu stungið upp í afturendan á honum.
(ég sver að þetta er ekki mín uppfinning - en ef þetta er skáldskapur tek ég ofan fyrir viðkomandi hugmyndaríku (og líklega bitru) konu!)
5. Líkurnar á að deyja við að detta útúr rúminu eru 1 á móti 2.000.000.
(fylgdi ekki með hvort miðað er við standardrúm eða öll rúm (kojur osfrv.) eru með í þessari tölu)
Er ekki upplýsingahraðbrautin dásamleg?
(Allar upplýsingar í þessum pósti eru fengnar frá fullkomlega óáræðanlegum heimildum og ég tek enga ábyrgð á þeim!)

19. júní 2007
Kaldhæðni örlagana
Ég hef í gegnum tíðina margoft verið ásökuð um kaldhæðni - og á það eflaust fyllilega skilið. Og oft hefur það hreinlega bjargað geðheilsunni að geta séð húmorinn í stöðunni hversu svartur sem sá húmor er. Akkúrat núna hins vegar er kímnigáfa mín á þrotum hvað varðar kaldhæðni örlaganna - það hljóta að vera einhver takmörk fyrir því hvað örlögin geta leyft sér! Er að reyna eftir bestu getu að kveða niður fortíðardraug svo ég geti nú einbeitt mér að framtíðinni - en akkúrat núna get ég varla stigið út úr húsi án þess að mæta draugsa! Þetta er einfaldlega ekki sanngjarnt! Í landi með yfir 5.000.000 íbúa ætti maður að geta verið nokkuð viss um að líkurnar á að rekast á eina ákveðna manneskju eru hverfandi, svo ég ætla að leifa mér að vera óhress með þetta.
Stærsta vandamálið við að vera trúlaus er að hafa engu(m) um að kenna þegar lífið hegðar sér undarlega - akkúrat núna vildi ég gjarnan hafa einhvern að kvarta við!
Þótt ég geti ímyndað mér að röðin fyrir framan þann bás sé ansi löng...
Kannski Terry Pratchett hafi rétt fyrir sér: "...gods like to see an atheist around. Gives them something to aim at." (Small Gods)

17. júní 2007
12. júní 2007
(ó)myndarleg
Það er ekkert betra en að vera stillt upp af ljósmyndara í vinnunni og mynduð í bak og fyrir á meðan svitinn drýpur af andlitinu á manni. Enn betra þegar maður veit að þessar myndir verða lagðar út á netið mönnum og margfætlum til gleði!
Hlakka gríííííðarlega til að sjá afraksturinn...

11. júní 2007
Svona eiga forstjórar að vera...
Hitamælirinn inni á skrifstofunni sýnir 30 gráður - og ef ekki væri fyrir litlu viftuna mína væri ég líklega dauð! Elskulegur forstjórinn er greinilega meðvitaður um hitastigið því hann splæsti ís á allt liðið - akkúrat núna er hann uppáhaldsmanneskjan mín í öllum heiminum...
Stjörnuspá dagsins
Stjörnuspáin mín í dag:
Bogmaður: Þú elskar að ferðast og nú skaltu fara til Ástarlandsins yndislega. Þar mun draumar þínir rætast og finna sér stað í raunveruleikanum.
Ég held að sú sem býr til þessar spár ætti aaaaaaaaaðeins að minnka lyfjaskammtinn sinn!

7. júní 2007
og enn ein vikan flogin...
Og allt í einu er enn ein vikan að verða búin - bara sísona! Hvurnig í ósköpunum getur maður verið svona upptekin og samt fundist að maður geri ekki neitt?
Annars er allt gott að frétta - er að reyna að fóta mig í vinnunni með verkefni sem ég hef "erft" frá öðrum og snýst um tækni sem ég hef ekki hundsvit á... Gleði, gleði!
Ekkert annað að gera en að herða sig upp og gera hvað maður getur og vona að það sé nóg... Annars líkar mér afar vel við mig þarna - mórallinn er góður þótt mikið sé að gera. Deildin mín er að fara í "vísindaferð" (þó ekki að hætti HÍ) til Ringsted á morgun, svo við komumst aðeins út í góða veðrið. Annars er hitastigið að verða fullmikið fyrir mig þessa dagana - ef ekki væri fyrir blásturinn sem hefur fylgt með væri ég eflaust að drepast úr hita. Og áður en það rignir yfir mig skömmum fyrir að kvarta yfir góðu veðri - ég held að enginn ykkar myndi njóta þess að sitja við tölvu allan daginn inni á loftlausri skrifstofu í 27 stiga hita og raka! Væri annað ef maður væri á strönd í Portúgal með kaldan bjór í hendinni... Guð hvað mig langar að fara eitthvað í sumarfríinu! Er nú ekki að sjá fram á að fjárhagurinn leyfi það samt. Verð bara að láta mér nægja ströndina á Amager held ég. Gæti jú verið verra ;o)

1. júní 2007
fløskudagur
Ég held ég hljóti að hafa móðgað einhvern fuglaguð.
Ekki nóg með að ég hafi lent í flasinu á risastórum og morgunúrillum SVAN um daginn - í dag var svo gerð á mig loftárás! Heljar gæs sem lét uppsafnað þarmainnhold vaða AKKÚRAT yfir hausnum á mér! Þökk sé eðlisávísun og leiftursnöggum viðbrögðum slapp ég með nokkrar slettur á skónum - en... OJJ BARA!
Ég held að verkefni helgarinnar verði a) að fletta upp mögulegum fuglaguðum á netinu, b) reyna að komast að því hvað ég nú hef gert þeim og c) hvernig maður friðþægir viðkomandi guði. Setur maður skál með regnormum út á fullu tungli? Klæðist maður fjöðrum og hangir í næsta tré? (vona ekki - er jú lofthrædd). Ég er tilbúin að leggja ýmislegt á mig ef ég slepp við frekari árásir frá fiðurfé...

29. maí 2007
post-hvítasunna
Og Hvítasunnuhelgin liðin...
Fékk Julie vinkonu mína í heimsókn yfir helgina og við, ásamt Pernille sem líka býr í Köben, notuðum tækifærið til að leika túrista og bæta upp fyrir allt það stelpuþvaður og dúllerí sem við höfum farið á mis við undanfarna mánuði. Ægilega gaman, þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ekki alltaf verið okkur hliðhollir – karnevalið hefði t.d. notið sín betur ef það hefði ekki verið rigning, rok og skítakuldi. Við notuðum veðrið þá bara sem afsökun fyrir að kemba fata- og skóbúðir miðbæjarins í staðinn og mér tókst loksins að finna mér nýja tösku (sú leit hefur staðið yfir frá áramótum svo þetta er mikill viðburður í mínu lífi – sorglegt, ég veit það!)
Sáum Pirates of the Carribean 3 á sunnudaginn og ég skemmti mér allavega konunglega þrátt fyrir að hitastigið í bíósalnum hafi verið slíkt að fötin mín sátu límd við mig og svitinn lak niður bakið á mér (sérlega sjarmerandi). Er hins vegar enn að spyrja sjálfa mig af hverju Orlando Bloom bara gerir ekkert fyrir mig – er ég bara svona gömul orðin? Eða bliknar hann bara við hliðina á gamla goðinu Depp? Held ég haldi mig bara við þá útskýringu – fellur mér betur í geð en sú fyrri.
Það á svo líklega eftir að taka mig alla vinnuvikuna að jafna mig eftir helgina held ég. Og þar sem helgin hefur haft vægast sagt neikvæð áhrif á skrokkinn er markmiðið nú að lifa eins og dýrðlingur næstu vikur og borða holt og hreyfa sig á hverjum degi – viljið þið veðja um hversu marga daga ég stend við það loforð? En maður getur alltaf reynt...

21. maí 2007
Og helgin flaug hjá...
Alveg er það með ólíkindum hvað helgarnar líða hratt - og hvernig maður getur, þrátt fyrir bestu áform, náð að gera ekkert af því sem maður eiginlega ætlaði sér (taka almennilega til, komast til botns í óhreinatauskörfunni o.s.frv.). Alltaf sama ráðgátan! Átti annars fína helgi - fór í bíó á laugardaginn og sá Pan´s Labyrinth. Myndin er góð - en almáttugur hvað ég hefði þurft að fá aðvörun um ofbeldið í henni! Við vorum í hálfgerðu losti eftir myndina - litla krumpaða sálartetrið mitt var hniprað saman í fósturstellingu bak við miltað! Svo við eyddum restinu af kvöldinu á kaffihúsi og linuðum sjokkið með bjór - var orðin nokkuð "ligeglad" þegar ég kom heim. Sunnudagurinn fór í að reyna að lina höfuðverkinn með frísku lofti og hreyfingu - og þar sem sólarvörnin gleymdist (búið að vera svo mikil rigning undanfarið að maður er komin úr æfingu) er ég í Þórsaralitunum núna (eða kannski er það Dannebrog bara?) Sé fram á enn eitt sumarið þar sem ég verð misflekkótt hér og þar...
18. maí 2007
Allir í fríi... nema ég
Sælar elskurnar
Alein í vinnunni - svona er það að vera eini morgunhaninn. Fyrir ykkur sem nú klórið ykkur í kollinum og veltið fyrir ykkur hvað varð um B-manneskjuna alræmdu, þá er afskaplega einföld ástæða fyrir því að ég er snemma á fótum þessa dagana : það eru engar gardínur í svefnherberginu mínu! Og glugginn vísar í vestur... Sem þýðir að þessa dagana er orðið albjart inni í herberginu um kl. 5.30 og sólin nær að lenda á mér um á fullum styrk c.a. kl. 6. Sama hvursu sybbin maður er þá er ekki hægt að sofa meðan maður er grillaður í rúminu! Það er búið að vera á verkefnalistanum að redda gardínum - vandamálið er að glugginn er í furðulegri stærð og ekki hægt að kaupa tilbúnar gardínur, þarf að láta búa þær til sérstaklega fyrir þennan glugga. Svo ég hef bara mátt sætta mig við að vera á fótum fyrir allar aldir síðustu vikur.
Annars hafa síðustu 2 vikur þotið hjá - náttúrulega tekið svolítið á að vera í nýrri vinnu, og svo ég hef verið dugleg að hreyfa mig (og skoða bæinn í leiðinni) og jafnvel náð að eiga smá félagslíf inni á milli. Fékk Pernille vinkonu mína í heimsókn í gær og við hertum okkur upp í að prófa ofninn á gaseldavélinni - gekk vel, en ég er enn skíthrædd við þetta gasvesen! Venst þessu líklega seint... Á hinn bóginn verð ég að viðurkenna að eldamennskan gengur hraðar á gasvél - maður þarf virkilega að standa yfir pottunum svo ekkert brenni við! Eða kannski er það bara ég sem ekki kann á þetta... Stefnan er að nota tækifærið um helgina og vera utandyra þar sem spáin er þolanleg - það var þvílíkt skítaveður í gær að það var ekki hundi út sigandi. Og svo kíkir maður kannski í bíó - orðið langt síðan síðast.
En nú verð ég held ég að fara að gera eitthvað vitrænt - góða helgi elskurnar!

15. maí 2007
Vírusviðvörun
Ég er enn á lífi - bara brjálað að gera! Lofa að reyna að blogga almennilega bráðum. Í millitíðinni vil ég vara við leiðindavírus sem gengur hér núna og fólk hefur verið að brenna sig illa á. Pósturinn kemur frá adressunni received@postcard.org og hefur innihaldslýsinguna: Subject: You have just received a virtual postcard from a friend !
Þú ert svo beðin um að klikka á link til sem í staðin fyrir að opna e-kort hleður Trójuormi á tölvuna þína... Það versta er að pósturinn lítur mjög traustvekjandi út - ég hefði alveg getað freistast til að klikka á þetta ef blóðmagnið í koffíninu mínu hefði verið of hátt. Svo passa sig börnin mín - heimurinn er fullur af ósvífnum þrjótum, því miður.
Og talandi um koffín - ég held það sé löngu komin tími á fyrsta kaffibollann í dag við sjáumst síðar!

8. maí 2007
breytingar
Eins og þið kannski tókuð eftir hvarf bakgrunnur og annað þegar ég flutti - ég missti nefnilega heimasvæðið mitt núna og hef enn ekki fengið nýtt geymslusvæði fyrir "netdraslið" mitt. Svo ég skellti upp þessum málamiðlunargrunni - og þið neyðist til að lifa með þessu þar til ég hef tíma og tækifæri til að gera betur. Er að íhuga allsherjar útlitsbreytingu en veit ekki hvort ég nenni að díla við nýtt template sem ég á hvort eðer eftir að tæta í sundur með tímanum...
7. maí 2007
annar örpóstur
Nei ég er ekki dauð - bara andlega fjarverandi. Ég hafði annars ætlað mér að blogga um helgina - en fékk svo "glaðning" frá LÍN fyrir helgi sem sló mig út af laginu. Eyddi megninu af helginni í að vera úti í góða veðrinu og í að reyna að safna sálarþreki og orku í að slá LÍN til baka. Er enn ekki alveg búin að ná mér upp að því marki - en ætli ég verði ekki að bíta á jaxlinn samt og reyna að gera eitthvað, því ég neita að láta þá vaða svona yfir mig! Þessi stofnun á án efa heiðurinn af minnsta kosti helmingnum af gráu hárunum sem ég hef fengið síðustu 3 ár. Og mér finnst hálf kaldhæðið að stofnunin sem hefur að hlutverki að tryggja manni "tækifæri til náms án tillits til efnahags" hefur ítrekað verið orsökin til þess að ég hef verið við að fá magasár af fjárhagsáhyggjum. Ég held að starfsmenn sjóðsins hefðu gott af "endurmenntunarnámskeiði" sem færi fram þannig að þeir þyrftu sjálfir að vera námsmenn í 2 ár að minnsta kosti og lifa eftir skilmálum sjóðsins. Einhvern veginn grunar mig að námsmenn myndu mæta öllu meiri skilningi eftir þessa endurmenntun. Grr...
það var annars ekki ætlunin að þetta yrði skammarpistill - en ég er öskureið og það er líklega betra að ég fái útrás hér en að ég framkvæmi eitthvað af fantasíunum sem ég hef um hefndaraðgerðir... Held ég hætti núna og skrifi ekki aftur fyrr en þessi krísa er liðin hjá - svona svo að þið sleppið við fleiri reiðilestra.
Hafið það gott elskurnar

1. maí 2007
Flutningum lokið
Bara örstuttur póstur til að tilkynna að flutningar gengu vel - ég er búin að koma mér fyrir og hef ekki villst ennþá í höfuðborginni! Afar stollt af því verð ég að segja - en fer heldur ekki út fyrir hússins dyr nema með kort í töskunni. Líst vel á hverfið - og það hjálpar eflaust að akkúrat núna er fallegasti tíminn í danmörku, tré og runnar rétt búin að laufgast og kirsuberja, epla, möndlu og annars slags blómstrandi tré eru enn í blóma. Svo köben skartar sínu fegursta núna. Fyrsti vinnudagurinn á morgun og maginn í örlitlum hnút yfir því - alveg sama hvað maður er gamall er alltaf erfitt að vera "nýja stelpan" ... þið vitið eflaust hvað ég meina.
En ætli það gangi ekki allt saman - er samt voða þakklát fyrir að byrja ekki á mánudegi, notalegt að vita að það er ekki svo langt í helgarfrí og það meira að segja langt helgarfrí því föstudagurinn er Store Bededag. Kannski ég druslist til að blogga almennilega um helgina - maður getur alltaf sett sér markmið ;o)
Chiao elskurnar

27. apríl 2007
25. apríl 2007
flutningar nálgast
3 dagar fram að flutningum og ég er að fara á límingunum
100.000 hlutir sem þurfa að nást á næstu 2 dögum
100.000 hlutir sem geta farið úrskeiðis
Ég veit ég sagði það síðast líka, en í þetta skiptið er mér alvara: næst þegar ég flyt brenni ég heldur allt draslið!
Aaaaargh!

19. apríl 2007
18. apríl 2007
16. apríl 2007
Slepp við að tjalda
Jæja elskurnar
Þá er húsnæðiskrísan leyst - komin með íbúð í Köben! Hún liggur reyndar í útjaðri alheimsins, næstum eins og að búa í Grafarholti í RVK. Munurinn er svo bara að strætókerfi Köben er öllu öflugra en SVR - gengur strætó frá húsinu og niður í miðbæ á nokkurra mínútna fresti alla daga, svo ætli maður lifi ekki af. Þetta er líka rólegt og notalegt hverfi, sem er fínt fyrir mig til að byrja með. Strætóinn heim til mín keyrir gegnum Nørrebro (þar sem óeyrðirnar eru búnar að vera útaf Ungdómshúsinu) og ég verð að segja að ég held að ég hefði fengið svolítið kúltúrsjokk ef ég hefði t.d. ætlað að búa í því kverfi. En þetta er tímabundin leiga til 1. des. svo nú hef ég 7 mánuði til að komast að því hvort/hvernig mér líkar vinnan og stórborgin og svo hef ég meiri yfirsýn og tíma til að velja mér bústað næst. Aukabónus er svo að ég bý á 4. hæð svo ég sé fram á fagurskapaðan afturenda eftir nokkra mánuði ;o) Maður verður jú að sjá björtu hliðarnar...

12. apríl 2007
grrr..
Ég er ekki að eiga góða viku. Haldiði ekki að það hafi loksins dúkkað upp umslag frá skólanum, hélt eitt augnablik að þarna væri loksins komið skírteinið sem ég er búin að vera að bíða eftir í röskar 6 vikur, en nei... Þetta var form sem ég þurfti að fylla út og senda inn svo ég gæti fengið skírteinið mitt. Það sem virkilega gerði mig reiða var að a)ef allir þurfa að fylla út svona form - er þá ekki eðlilegt að maður fái það í hendurnar þegar maður er búin að skila eða í það minnsta fá að vita að maður á að skila svona formi? og b) Allar upplýsingarnar sem ég var beðin um að fylla út (í handskrift) er nákvæmlega þessi skrifstofa með - og það í rafrænu formi. Danir eru ágætis fólk og allt það - en skrifræðið, og þá sérstaklega skrifræðið í stofnunum eins og háskólanum, er hreint með ólíkindum. Eini munurinn á Dönum og Ítölum þegar kemur að skilvirkni er að það er þó hægt að múta Ítölunum til að fá hlutina til að ganga hraðar fyrir sig. Danirnir virðast bara synda hjálparlausir í sjálfsköpuðu pappírsvíti. Grr...
Og íbúðarleitin er ekki að bæta skapið, þetta er eins og að reyna að finna hina frægu nál í heystakknum. Er núna búin að eyða heilmiklum tíma og orku í að redda mér fari og gistingu í köben til að skoða íbúð - en nú næ ég ekki í konubeygluna sem á íbúðina þrátt fyrir að við hefðum samið um að ég myndi hringja í dag til að ákveða tímann. Svo nú veit ég ekki hvort ég hef staðið í öllu þessu til einskis. Meira grrr... Ég er þreytt og stressuð og dauðleið á þessu veseni öllu - langar mest að slá þessu öllu upp í kæruleysi og stinga af á sólarströnd. Vill einhver með?

5. apríl 2007
páskafrí
Fyrsti dagur í páskafríi.
Vakna útsofin, teygi letilega úr mér í rúminu og fyllist gleði yfir tilhugsuninni um að liggja í leti restina af deginum. Horfi á sólargeislana streyma inn um gluggann og lýsa upp ruslið og rykið sem fyllir herbergið... fuck! Það versta við vorið er að birtan neyðir mann til að horfast í augu við hluti sem maður hefur (stundum bókstaflega) sópað undir mottuna - og það er annað hvort að hysja upp um sig sokkabuxurnar og gera hreint fyrir sínum dyrum eða kaupa virkilega dökk sólgleraugu og halda áfram að lifa í afneitun. Ég valdi fyrri kostinn - og tók 5 tíma hreingerningatörn. Ekki alveg það sem ég hafði planað í páskafríinu - en ég verð að segja að það er óskaplega næs að geta núna hreiðrað um sig fyrir framan imbann með geislabauginn hangandi yfir hausnum! Ef ég rannsakaði afkima sálarinnar gæti ég eflaust fundið fleiri hluti sem ég hef vanrækt og ætti að nota tækifærið til að gera eitthvað í, en það eru takmörk fyrir því hversu skynsöm og ábyrgðarfull ég get verið á einum degi - og ég tel mig hafa uppfyllt minn skamt í dag takk!
Sambýlingurinn er í einhverri fjölskylduveislu í myrkasta suðurjótlandi - svo ég hef (skínandi hreina) höllina fyrir mig (og imbakassann) - það eina sem mig vantar er súkkulaðistykki og þá verður lífið ekki mikið betra. Stundum er það kostur að vera einföld sál ;o) Góða Páska elskurnar!

31. mars 2007
"databasekonsulent"
Sælinú
Eins og flest ykkar vitið líklega fór ég í vinnuviðtal í Kaupmannahöfn á fimmtudaginn. Ég var hamrandi taugaóstyrk - að hluta til vegna þess að mig virkilega langaði í þessa vinnu og að hluta til vegna þess að ég þurfti að nýta mér fleiri mismunandi hluta af samgöngukerfi Köben til að komast á leiðarenda. Ég var alveg hreint sannfærð um að ég myndi: a)taka vitlausa strætóa/lestir, b)missa af strætóum/lestum. c)fara út á röngum stað, eða d) ná að gera a,b og c
Ég náði nú samt að komast út í Ballerup og finna réttu götuna og mæta á réttum tíma í viðtalið - ótrúlegt en satt. Viðmælendur mínir reyndust indælis fólk og viðtalið gekk ágætlega, en ég gat samt ekki ráðið við taugarnar og talaði of mikið eins og ég geri alltaf þegar ég er stressuð :o/
Ég var þess vegna ekkert alltof kokhraust þegar ég yfirgaf staðinn - og taugarnar svo hristar að ég gleymdi að setja hljóðið aftur á gemsann. Það var því fyrst á ferjunni milli Sjálands og Jótlands nokkrum tímum seinna að ég uppgötvaði að það hafði einhver reynt að hringja... og skilið eftir skilaboð í talhólfinu mínu. Ég hefði sumsé getað sparað mér nokkra tíma af að engjast í óvissu! Fékk sumsé djobbið - eins og flest ykkar hafið eflaust frétt og nú standa fyrir dyrum flutningar til höfuðborgarinnar í lok apríl. Ég þarf "bara" að finna mér húsnæði og það er ekki eins auðvelt og maður gæti haldið. Ekki ef þú gerir skrýtnar kröfur eins og að: vilja búa ein, vilja hafa eigið eldhús og ekki minnst baðherbergi með sturtu. Það eru ótrúlega margar íbúðir í kaupmannahöfn sem ekki hafa almennilega baðaðstöðu, það er jafnvel ekki óalgengt að "sturtan" sé í eldhúsinu - heillandi tilhugsun ekki satt? Hjálpar heldur ekki að vera ekki í aðstöðu til að skoða íbúðirnar - ég hef hvorki tíma né peninga til að "skreppa" yfir til að tryggja mér að allt sé í lagi :o( Svo ég byrja á að leita mér að tímabundinni framleigu svo ég hafi bæði tíma til að læra á stórborgina og þurfi ekki að borga morðfjár (sem ég ekki hef) í tryggingu og fyrirframleigu. Og ef ég enda í einhverri fjandans holu get ég þá huggað mig við að það er bara tímabundið ;o)
Svo ef það verður ekki bloggað mikið í apríl er það vegna þess að ég er önnum kafin við að pakka niður og leita að nýrri íbúð :o) Þið megið gjarnan krossa fingur fyrir mig aftur elskurnar - það svínvirkaði allavega á fimmtudaginn!

22. mars 2007
21. mars 2007
Ahoy!
Varð að deila þessu með ykkur - gladdist eins og lítil stelpa þegar ég sá að ekki bara var búið að klára heimasíðuna fyrir Pirates of the Caribbean 3, það eru líka komnir riiiiiiiiiiiisastórir HD trailerar! Tók mig eilífð að hlaða þeim niður - en hey! Hvað leggur maður ekki á sig fyrir Johnny?
14. mars 2007
12. mars 2007
Halló heimur
Þetta er nú ekki einleikið með tímann - ég hefði getað svarið að ég hefði bloggað bara fyrir nokkrum dögum... Búið að vera klikkað að gera á öllum vígstöðvum - finnst ég vera að reyna að lifa mörgum lífum samtímis :o/
Annars allt gott að frétta bara - vorið er farið að gera vart við sig hér og maður er farin að fá smá sól í hjartað þótt sólin sé nú ekki mikið að sýna sig. Tók félagslífstörn um helgina, fór í leikhús, spilaði Airhockey, pool og dart (og stóð mig óeðlilega vel í fyrstu 2 greinum - loksins farin að njóta góðs af því að vera óheppin í ástum). Stelpnapartý og tónleikar með dansk/íslensku bandi sem ég hef aldrei heyrt um áður... og vona að ég heyri aldrei um aftur. Það eina sem er verra en Oasis er band sem stælir Oasis. Söngvarinn var svo heltekin af að reyna að vera Liam Gallagher að ég gat ekki látið vera að spá í hvort hárið á milli augnabrúnanna (eða miðjan á þeirri einu sem hann hafði) væri ekta eða hvort hann hefði límt punghár á ennið á sér...
Og ég þurfti að þrauka þetta edrú...
Svo stendur til "menningarferð" til Køben um næstu helgi! Ég hef ekki verið í höfuðstaðnum síðan jólin 2005 svo það er komin tími til. Fer með Helle og Söruh svo þetta ætti að geta orðið áhugaverður túr - ef ég þekki Helle rétt eigum við eftir að enda í undarlegustu aðstæðum...

4. mars 2007
Og svo kom einkunn
Og allt í einu er kominn mars - bara sísona! Hrikalega líður tíminn hratt...
Ef það fór fram hjá einhverjum þá fékk ég loksins einkunn - prófskírteinið er enn ekki komið en allavega orðið ljóst að ég hef unnið fyrir því :o)
Fór út á lífið á föstudaginn og skálaði kannski full oft fyrir einkunninni því ég var bara ónýt i gær - ég held að það sé að verða komin tími á að ég viðurkenni að ég get bara ekki drukkið eins mikinn bjór og í gamla daga - ekki án þess að borga það dýru verði daginn eftir allavega.
Annars bara allt við það sama - enn ekki komin með nýja vinnu og aftur er farið að styttast ískyggilega í atvinnuleysi og óvissa framtíð. Ég verð að viðurkenna að ég er farin að hlakka mikið til að þeirrar stundar þegar ég VEIT hvað bíður mín - þótt það væri ekki nema bara næstu 6 mánuði. Það er farið að taka ansi mikið á að ganga aftur og aftur í gegnum svona óvissutímabil og að geta ekki planað nokkurn skapaðan hlut meira en 2 vikur fram í tímann. Og á þeim nótunum yfirgef ég ykkur - til að kemba atvinnuauglýsingarnar...

22. febrúar 2007
lasarus í leti
Sælinú
ekkert að frétta annað en að partýið gekk tíðindalaust fyrir sig - og ég meina algjörlega tíðindalaust... Spilaði kannski inn í að ég var hálfslöpp, enda vaknaði ég með bullandi hita og ógeð á sunnudeginum og hef meira og minna legið flöt í flensu síðan. Svo ég hef svosem ekkert að segja nema þið viljið fá nákvæmar sjúkdómslýsingar og annað álíka spennandi! Eins og þið hafið kannski heyrt snjóar nú í Danaveldi og ef maður tæki mark á fjölmiðlunum hér er þetta bara eins og ný ísöld, umferð er lömuð (enda allir á sumardekkjum), fólk treystir sér ekki út úr húsi og ætla mætti að heimsendir væri í nánd. Ég held að ykkur yrði nú skemmt ef þið sæjuð snjómagnið sem um er að ræða - allavega ykkur frá norður- og austurlandi. Ég er nú að vona að þetta standi ekki lengi samt þar sem ég er a) búin að sjá nægan snjó fyrir lífstíð b) búin að ákveða að það sé að koma vor. Mér er alveg sama hvað stendur á dagatalinu - mér finnst komið nóg af vetri og lýsi hér með yfir vori hvað sem allri snjókomu líður! Þetta er allt bara spurning um hugarástand...

17. febrúar 2007
Paging Jack Sparrow
þá er partýdagurinn mikli runninn upp - og ég vaknaði hálfköfnuð af kvefi! Frábært alveg - akkúrat það sem mig vantaði. Annars get ég frætt þá sem ekki vita að ég fer sem sjóræningjapía og þar sem mig langaði meira að líkjast Jack Sparrow en lifandi dauðu áhöfninni á Svörtu Perlunni ákvað mín að nota brúnkukrem til að slá á súrmjólkurlitinn. Eins og við var að búast er ég nú flekkótt eins og hlébarði, hugga mig við að sjóræningjapíur voru eflaust flekkóttar af skít hvorteðer svo þetta gerir bara gerfið eðlilegra. Á hinn bóginn lét ég loksins verða af því að fara í klippingu og litun - lagði útlit mit og framtíð algjörlega í hendur hárgreiðslukonunnar og ótrúlegt en satt er ég alsæl með árángurinn. Ég er allt önnur Elva :o) Er hins vegar afar stolt yfir að hafa náð að halda grímunni þegar ég heyrði upphæðina sem ég þurfti að borga fyrir - tókst að halda aftur af þessu.
Oh well - þetta er í fyrsta skiptið í næstum 4 ár sem ég er bæði lituð og klipt á stofu, hlýt að eiga inni að fá alvöru yfirhalningu.
Annars á ég erfitt með að æsa mig upp yfir þessu blessaða partýi í kvöld - hef einhvernvegin lúmskan grun um að ekkert eigi eftir að ganga eftir áætlun. Það hefur kannski eitthvað að gera með að Helle heldur um stjórnartaumana - sem þýðir að þótt við endum eflaust pöddufullar er ekki víst að það verði á réttum stað eða tíma (sem getur verið vandræðalegt ef maður er í grímubúning skiljiði). Svo þið megið gjarnan krossa fingur fyrir mig - ég þarf á allri góðri orku að halda...

13. febrúar 2007
og klár í næsta skandal...
Og er að verða klár í annan skandal um næstu helgi :o) Held ég sé loksins komin með búning - sýndi Kasper og miðað við skelfingarsvipin á honum er ég í góðum málum bara... Ætla að prófa þá kenningu að ef brjóstaskoran er nægilega mikið til sýnis tekur engin eftir bjórvömbinni... Læt ykkur vita ef það virkar!
óþekktarangi
náði loksins því háleita markmiði mínu að skandalisera um helgina - datt almennilega í það, endaði óvænt í eftirpartýi með vinsælustu hljómsveit danaveldis (er hærri en söngvarinn!) Og það voru fleiri áhugaverðir músikantar í partýinu...
Skemmti mér konunglega - nú þarf ég bara að ná að eyða myndunum í símanum hennar Helle...

8. febrúar 2007
fashion victim
Ég sleit sambandi um jólin. Eftir næstum 18 mánuði saman neyddist ég til að viðurkenna að ég og hvíta H&M skyrtan mín pössuðum ekki saman lengur og að það var komin tími til að leiðir skyldust. Þetta var ekki auðveld ákvörðun - ég var enn hrifin, en þetta gekk bara ekki... Svo ég hef (eftir nokkrar vikur af að syrgja) mátað 100 hvítar skyrtur undanfarið án þess að finna HINA EINU RÉTTU. Þ.e.a.s. þar til í gær. Álpaðist inn i Vila og þarna hékk hvít skyrta með rétta hálsmálið og ermarnar og sniðið... mátaði, féll flöt og keypti. Og nú veltið þið eflaust fyrir ykkur af hvurju í andskotanum ég er að eyða tíma ykkar í þetta bull - og ég spyr til baka: eru einhverjar líkur á að það sé ekki eitthvað bogið við skyrtuna fyrst ég fjárfesti í henni? Ég kom sumsé heim lukkuleg með fengin, en um leið og ég tek hana upp úr pokanum sé ég að brjóstvasarnir eru bæði misstórir og misháir! Hvernig það fór fram hjá mér meðan ég mátaði hana er mér hulin ráðgáta - en þetta er ekki bara spurning um millimetra : það er eins og Picasso hafi hannað vasana! Og þar liggur hundurinn nebbilega grafin - ég varla þori að storma inn í Vila og kvarta því ég sé alveg fyrir mér uppstrílaðar afgreiðslukonurnar stara á mig með blöndu af vorkun og fyrirlitningu áður en þær útskýra að þetta á að vera svona... Nýjasta tíska? Hvað veit ég?
5. febrúar 2007
Fastelavn...
Hjáááálp!
Drakk of mikið á laugardagskvöldið og samþykkti í ölæðinu að mæta í fastelavnspartý með BP-liðinu! (BP = Beautiful People, hef minnst á þau áður - ekki alveg minn uppáhaldsselskapur...). Svo nú hef ég 2 vikur til að finna upp á búning AARGH! Eins og staðan er í dag hef ég eftirfarandi valkosti: Djöfull, Norn, Sígauni eða Katólsk skólastelpa. Veit ekki hvað í andsk... ég á að velja. Kannski bara brúnan pappírspoka á hausinn? Annars er ég á leið í andlitsmeðferð á morgun og er með krossaða fingur að greyið manneskjan geti framkvæmt kraftaverk. Og er að spá í að panta mér tíma á hárgreiðslustofu og athuga hvort hægt er að gera einhverjar umbætur á fuglahreiðrinu á hausnum á mér. Ef þið hafið ekki náð að lesa á milli línanna er sjálfmyndin ekki upp á sitt besta þessa dagana - svo tilhugsunin um að eyða kvöldi innan um súperegóin í BP er bara SCARY! Kannski ég ætti bara að fara sem uppvakningur - þá þarf ég ekki einu sinni að mála mig...

2. febrúar 2007
its alive
Var að uppgötva að ég hef víst ekki bloggað í ár og öld - sorrý
Af einhverjum ástæðum flýgur tíminn bara áfram núna. Myndi kannski skilja það ef ég væri að gera eitthvað sérstakt, en ég vinn og sef... og stressa mig yfir framtíðinni, en annars er nákvæmlega ekkert að ske hjá mér!
Tók afar nærri mér að þegar loksins kom að því að ég fékk að sjá Íslenska landsliðið spila á HM voru það eintómir tapleikir - littla krumpaða þjóðarsálin mín mátti ekki við þessu. Ef það er einhver huggun fyrir landann er rostinn í dönunum öllu lægri eftir leikinn við pólverja í gær - fengu smá "reality check" eftir að vera í huganum komnir með bikarinn í hendurnar. Svo góðir eru þeir ekki greyin - ef ég á að vera alveg hreinskilin.
Yfirmennirnir mínir buðu mér að vera mánuð í viðbót og ég ætla að taka því boði - ekki sérlega erfitt að velja á milli þess að vera atvinnulaus eða hafa tekjur. Allavega ekki fyrir mig... Svo ég er með vinnu út mars núna. Og nei það er ekkert komið í ljós hvað verður eftir það.
Ég hef enn ekki náð að standa við áramótaheitið um meira félagslíf - en mér til varnaðar strandar mest á því að nú eru það allir aðrir sem eru of uppteknir/andfélagslegir til að gera nokkurn skapaðan hlut. Ég er t.d. að fara "út" í fyrsta skiptið á laugardagskvöldi síðan ég veit ekki hvenær - og vitið þið hvað ég er að fara að gera? Spila með stelpunum. Svona er ég nú búin að kasta mér í spillinguna og djammið. Hmm... þetta er hrikalega neikvæður póstur eitthvað, það var ekki meiningin. Held að rigningin sé að fara í skapið á mér - eða bara að það sé orðið of mikið blóð í koffínstraumnum. Þið verðið bara að afsaka þetta.
Og stóru plönin fyrir kvöldið í kvöld... Ég og Johnny... alein...
Þar sem skandinavísku sjónvarpstöðvarnar eru klárlega búnar að ratta sig saman með bareigendum og sýna ekkert annað en leiðindi á föstudagskvöldum er ekkert annað um að velja en að slökkva á imbanum og róta í dótinu sem leynist á tölvunni. Fann 2 fyrstu þættina af 21 Jump Street og ætla að skemmta mér yfir þeim í kvöld. Gerast 15 ára á ný og slefa yfir skelfilega ungum Johnny Depp og láta lélegan leik og vond plott mig engu skipta...
Chiao elskurnar - ég held á vit nostalgíunnar...

22. janúar 2007
mánudagur
Mánudagur - veturinn loksins kominn til Árósa og ég er ekki að nenna að vera í vinnunni...
Í því tilefni fáið þið lista yfir 15 bestu afsakanir (raunverulegar) fyrir að mæta ekki í vinnuna - valdar af starfsmannastjórum í USA
1. Employee was poisoned by his mother-in-law.
2. A buffalo escaped from the game reserve and kept charging the employee every time she tried to go to her car from her house.
3. Employee was feeling all the symptoms of his expecting wife.
4. Employee called from his cell phone, saying that he was accidentally locked in a restroom stall and that no one was around to let him out.
5. Employee broke his leg snowboarding off his roof while drunk.
6. Employee's wife said he couldn't come into work because he had a lot of chores to do around the house.
7. One of the walls in the employee's home fell off the night before.
8. Employee's mother was in jail.
9. A skunk got into the employee's house and sprayed all of his uniforms.
10. Employee had a bad case of hiccups.
11. Employee blew his nose so hard, his back went out.
12. Employee's horses got loose and were running down the highway.
13. Employee was hit by a bus while walking.
14. Employee's dog swallowed her bus pass.
15. Employee was sad.
Er að spá í að prófa þessa með Buffalóinn á morgun!

13. janúar 2007
Einstein
Einstein fer á útsölu...
Snillingurinn ég ákvað að stytta mér leið gegnum verslunarmiðstöð um daginn (til að forðast rigningu). Var búin að gleyma útsölunum og brjálæðinu sem því fylgir, en lenti mitt inn í hóp af innkaupaóðu kvenfólki og barst hjálparlaus með straumnum inn í Vera Moda. Rak augun í hvíta peysu og, smituð af útsölubrjálæðinu sem lá í loftinu ákvað ég að skella mér á hana þar sem hún kostaði bara 600 kall. Reyfarakaup fannst mér og var afar stollt af þessari snjöllu fjárfestingu. Fór svo í peysuna í fyrsta skipti í dag og það liðu c.a. 10 sekúndur þar til ég reif hana af mér aftur - þegar ég kíki svo á miðann í hálsmálinu stendur 89% kasmír og 11% mohair = ull blönduð með ... meiri ull. Og hver er með brjálað ullarofnæmi? Svo snillingurinn þarf nú að fjárfesta í þykkum rúllukragabol ef hún ætlar að nota þessa peysu - og þarf sem lífið er óréttlátt mun rúllukragabolurinn líklega kosta meira en peysan! Svona fer þegar Einstein reynir að spara...

12. janúar 2007
lífsmark
Bara smá lífsmark í framhjáhlaupum - ekkert að frétta annað en vinna og vinna og vinna... Árósarbúar eru umvörpum að leggjast í flensu, hef sloppið hingað til en líst nú ekki vel á stöðuna þegar það liggur eitt fárveikt stykki í íbúðinni minni. Ég NENNI ekki að verða lasin - og sérstaklega ekki af einhverri ömurlegri kvefpest! Svo nú er að sjá hvort ég slepp af þrjósku einni saman.
Sá the Prestige um helgina - og var bara ánægð, fínasta afþreying og ekki skaðaði Hugh...
Engin plön fyrir helgina enda fæ ég ekki útborgað fyrr en á mánudag og á ekki bót fyrir boruna á mér - ætli ég reyni ekki að vera skynsöm og nota tímann í að skrifa atvinnuumsóknir? Tíminn er jú að líða skelfilega hratt og tilhugsunin um að standa uppi atvinnu- og tekjulaus ekki heillandi. ARGH - hvað ég væri bara til í að liggja á einhverri pálmaströnd næstu 3-4 vikur og bara slappa af í áhyggjuleysi...

4. janúar 2007
Gleðilegt nýtt ár
Gleðilegt nýtt ár elskurnar!

er að stelast til að blogga - alein í vinnunni... Lappi minn er nefnilega veikur (var nægilega tillitsamur til að bíða eftir að ég var búin með ritgerðina áður en hann gafst upp), svo það verður ekki bloggað að heiman á næstunni... Þarf að fara með hann í viðgerð og síðast þegar það gerðist liðu 8 vikur þar til ég fékk hann aftur! :o(
En nóg um það - jólafrí gekk fínt, leti og át bara - enda ber ég þess merki... hvernig getur maður fitnað svona hratt?!? Þetta er engan vegin sanngjarnt!
Aarhus Universitet ákvað svo að bjarga mér frá janúarútsölunum með að borga mér ekki laun fyrr en 15. janúar - ef reynsla fyrri ára endurtekur sig verður ekkert eftir á útsölunum þá nema furðuleg föt í stærð XS. Hrmpf! Og í millitíðinni verður lifað á rúgbrauði og hafragraut... kosturinn við það er náttúrulega að eitthvað af jólamörnum gæti mögulega bráðnað. Segiði svo að ég sjái ekki björtu hliðarnar.
Náði að fara tvisvar í bíó um jólin - sá Ilminn og Happy Feet. Sú fyrri var góð - fylgdi bókinni næstum fullkomlega, en ekki alltaf "þægileg" að horfa á - bókin var jú heldur ekki "þægileg" að lesa... Varð hins vegar fyrir vonbrigðum með Happy Feet - flott grafík en það vantaði bara eitthvað í söguna... eða persónusköpunina ... eða eitthvað. Ætla svo á the Prestige um leið og ég fæ pening! Er að bæta upp fyrir lélega bíósókn síðustu 2 ár.
En vinnan kallar - mun reyna að uppfæra allavega einu sinni í viku - en það fer eitthvað eftir tíma og tölvuaðgengi er ég hrædd um. Ég vona að þið hafið öll komið heilu og höldnu gegnum áramótafagnaðinn og að nýja árið sé að fara vel með ykkur.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)