27. ágúst 2010

Ugla sat á kvisti

Ég hef alltaf verið svolítið veik fyrir uglum - og ég held að ég sé loksins búin að fatta af hverju. Þær virðast jafn hroðalega morgunstyggar og ég:



þetta er nákvæmlega svipurinn og ég sé í speglinum á hverjum morgni - guð hvað ég skil hana!

19. ágúst 2010

Halelúja!

Ég elska Amazon.co.uk - eeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeelska þessa síðu!
Ekki aðeins hefur hún séð mér fyrir bókum og tónlist síðustu árin - nú bjargar hún
mér frá gúmmístígvélahöfuðverknum.
Í stuttu máli: ég fann styttri útgáfu af stígvélunum flottu (og dýru) á tilboði á Amazon og keypti þau náttúrulega :o) Kostuðu tæplega helmingin af því sem hin stígvélin kostuðu, svo ég er afar sátt með þessa málamiðlun.
Nú bíð ég bara spennt eftir pakkanum mínum (það mun að sjálfsögðu hætta að rigna um leið og ég fæ gúmmístígvél - en þá á ég þau í vor þegar næsta votviðristímabil skellur á)

Hmmm... varð skyndilega ljóst að það er líklega ekki sérlega góðs viti að gúmmístígvél eru það mest spennandi sem ég hef að ræða þessa dagana - mér til afsökunar er ég að vinna upp í 9-10 tíma á dag og hef ekki tíma til að eiga mér líf!
En ég held í vonina...

Hápunktur vikunnar verður að komast í klippingu á laugardaginn - vona að það sé sama stelpan sem þvær hár í þetta skiptið því ég dó næstum af ánægju í stólnum hjá henni síðast (án gríns - ég fékk meira út úr þessum hárþvætti en út úr síðasta... uh þið getið örugglega giskað hvert ég er að fara). En ég verð samt sátt bara ef ég fæ klippingu ;o)

10. ágúst 2010

Fastir liðir eins og venjulega

Einhverjir voru víst að senda pillur um fólk sem er hætt að blogga... ekki tek ég það til mín! Hér hefur svosem ekkert gerst síðan síðast búið að vera mikið að gera í vinnunni og svo asnaðist ég til að kaupa mér líkamsræktarkort. Búin að vera voðalega dugleg að mæta en mikið djöfull er þetta leiðinlegt! Og ekki hjálpar að þeir spila útvarpstöðina "the voice" stanslaust - ekki beinlínis minn tónlistarsmekkur! Eins og það sé ekki nógu slæmt að púla þótt þú þurfir ekki að hlusta á heilalaust danskt RnB (ekki það að það ameríkanska sé mikið skárri)eða óþolandi sumarsmelli. Eftir 40 mínútur er ég farin að íhuga að leggja hausinn á milli lóðanna hjá steratröllunum - heldur að fá heilann klesstan en að hlusta enn einu sinni á þetta t.d.
Ég held ég verði annaðhvort að fara að mæta með eyrnatappa eða kaupa mér einhverskonar hulstur fyrir ipodinn minn svo ég geti haft hann á mér.
Hmmm... hvað annað er að frétta? Jú ég fór og sá Inception og fannst hún bara fínasti sumarsmellur - en ekki neitt stórvirki í kvikmyndasögunni. Fólk sem heldur það horfir of mikið á "mainstream" myndir - það er ekkert í Inception sem hefur ekki sést áður á hvíta tjaldinu.
Og svo er ég búin að búa of lengi í Danmörku - ég uppgötvaði það þegar ég stóð í alvöru og velti fyrir mér hvort ég ætti að blæða tæpum 50.000 íslenskum á gúmmístígvél (af því að þau voru svo kúúúúúl - sjáiði bara)! Ég stóðst freistinguna og vantar enn gúmmístigvél en ætla að kaupa meira normalt par á réttlætanlegu verði.

Annars les ég bara eins og brálæðingur, horfi af og til á imbakassann (búið að vera True Blood maraþon hjá mér undanfarið þar sem ég er bæði að horfa á seríu 1 og 3) og sef voðalega mikið (mig dreymir svo mikið þessa dagana að ég er alveg búin á því þegar ég vakna). Og dagarnir æða bara hjá - og verður komið haust áður en maður veit af.

Meira er víst ekki að frétta af mér - hafið það gott elskurnar.