24. nóvember 2009
13. nóvember 2009
Allt sem kemur konum til...
Dæmiði sjálfar dömur ;o)
7. nóvember 2009
Ég vil heldur sofa ein takk!
Reikna svosem með að það geti orðið erfitt að sofna í kvöld líka því ég ætla að horfa á hryllingsmyndina The Mist sem á að vera nokkuð svo sjaldgæft sem góð kvikmynd gerð eftir Stephen King bók. Vildi óska að ég hefði munað eftir að kaupa jólabjór, en ég á enn við sama gamla áfengisvandamálið að stríða (gleymi að kaupa áfengi). *andvarp*
21. október 2009
18. október 2009
Haustmyndir
Úti í skógi.
Eitt af litlu vötnunum í nágreninu.
Nágrannarnir eru voða busy þessa dagana :o)
14. október 2009
Ok - ég er áhrifagjörn...
Nennti nú samt ekki að eyða mikilli orku í það í þetta skiptið - langaði að fá meiri liti inn og það tókst allavega! Hins vegar held ég að ég hafi nú oft verið smekklegri... Ég varð uppiskroppa með þolinmæði áður en ég var orðin sátt - kannski ég lagi það seinna. Annars eru helstu fréttir þær að Lappi minn er endanlega dauður 6ára að aldri (er það ekki alveg 150 í tölvuárum?) og ég syrgi hann þrátt fyrir að hann hafi verið orðin óttalegt skar undir lokin. Ég hef aldrei verið fullkomlega sátt við vinnutölvuna - veit ekki hversu mikið það er sjálfri tölvunni að kenna og hversu mikið það er tölvudeild DBC að kenna. Það tekur korter að starta tölvunni upp og svo má maður ekki neitt... Svo ég held ég verði að bjarga geðheilsunni með að kaupa mér nýjan Lappa. Ligg núna yfir vefsíðunum og engist yfir því hvort ég eigi að kaupa litla krúttlega Notebook eða alvöru fartölvu með stóran skerm og hvort ég eigi að láta mig hafa Windows eða hvort ég eigi að kasta mér útí djúpu laugina og fá mér Linux-Lappa!
Decisions, decisions - ég enda örugglega bara með að labba inn í tölvubúð og kaupa mér aðra HP pavillion. Nýja útgáfu af gamla góða Lappa mínum og vona svo að ég verði jafn hamingjusöm með nýja viðhaldinu og ég var með því gamla...
11. október 2009
Verði ljós...
Eitt af því sem ég læt mig dreyma um er að maður geti keypt (eða pantað inn) ljósakrónur frá Next því ég er ekki að fíla það sem IKEA og allar hinar stóru íbúðarkeðjurnar hér eru að bjóða uppá. Og mig vantar loftljós...
Mér til mikillar kátínu kom í ljós í dag þegar ég sýndi dönsku vinkonum mínum ljósin sem ég var að slefa yfir að þeim fannst ég kannski fulldjörf...
Svo ég ákvað að leggja 2 af uppáhöldudum mínum fyrir dómstól og þið megið kjósa hér við hliðina.
Valkostur A er Luna og það er efri krónan með 5 ljósum sem ég er að spá í.
Valkostur B er Kosmos sem ég er voða skotin í en stelpunum fannst full "speisað"
7. október 2009
Best gleymt og grafið?
Anyhoo þið hinar Adam-grúppíurnar (þið vitið hverjar þið eruð) - this is for you!
Þar sem danska sjónvarpið er með eindæmum leiðinlegt þessa dagana lagðist ég í að skoða amerískar sjónvarpssíður til að athuga hvort það væri kannski von á einhverjum áhugaverðum nýjum seríum þaðan á næstu mánuðum. Datt m.a. niður í (ekkert sérlega jákvæða) umfjöllun um seríuna "The Forgotten" sem "skartar" gamla 80's jálknum Christian Slater. Það sem fékk mig til að staldra við var að þarna stóð að Rupert Penry-Jones hefði upphaflega átt að leika hlutverk Slaters og hefði meira að segja leikið í "Pilot" þætti fyrir seríuna. Mín á YouTube og hér er afraksturinn:
Æi þessi elska er ekki alveg að gera sig með Amerískan hreim... ;o)
Og þessi Pilot er bara skelfilegur - ég held að hann hafi bara mátt kalla sig heppinn að vera ekki hluti af þessu! Ég krossa fingur og vona að BBC hafi vit á að koma honum í góða seríu hið snarasta.
1. október 2009
Ég er ekki að standa mig ...
Eftir nokkra umhugsun varð fyrir valinu leikari sem mér hefur reyndar aldrei fundist sætur - fyrr en hann fékk mig til að skellihlægja sem vond vampíra! Drengurinn var að fíla sig svo í hlutverkinu að ég gat ekki annað en haldið með honum...
Sem var örugglega ekki meiningin!
Annars sorglega lítið að frétta - minnisstæðasti atburður vikunnar var þegar klósettið mitt breyttist skyndilega í gosbrunn (sem betur fer var lokið á og náði lítið að slettast út fyrir). Við nánari athugun reyndust vera klóakmenn fyrir utan gluggann að vesenast eitthvað í lögnunum. Og þeir voru þarna að dunda sér í fleiri klukkutíma - sem hefði verið í lagi ef ég hefði ekki þurft að pissa...
Á endanum varð ég hreinlega að láta undan blöðrunni, en verð nú að viðurkenna að ég var hálf hrædd um að: a) það kæmi annar gosbrunnur á meðan eða b)ég myndi heyra skaðræðisöskur neðan úr lögnunum þegar einhver óheppinn klóakmaðurinn fengi sendingu í hausinn...
Svona er lífið spennandi í Kúmengarðinum þessa dagana.
21. september 2009
18. september 2009
Óheillakráka
Það eru takmörk fyrir því hvað maður getur höndlað á mánudegi!
Annars lítið að frétta, klikkað að gera í vinnunni og búið að vera hið fallegasta haustveður síðan ég keypti regnkápuna... Helgarplanið er: stórhreingerning (og veitir ekki af) og að njóta veðurblíðunnar því veðurfræðingarnir segja að þetta séu síðustu góðu dagarnir í bili. Spurning um að hoppa upp í lest og fara í óvissuferð bara! Og þó, miðað við heppnina mína þessa dagana er það líklega að storka örlögunum.
Ég sé til hversu huguð ég er á morgun ;o) Góða helgi elskurnar!
6. september 2009
Haust í loftinu
Búið að vera leiðinda skúraveður undanfarna viku eða svo, svo það er ómögulegt að klæða sig eftir aðstæðum (aðstæðurnar breytast stöðugt). Ég hef hins vegar verið afar ánægð með "Kálorminn", nýju rándýru regnkápuna mína. Ef þið furðið ykkur á nafninu getið þið séð hana hér (liturinn á myndinni er samt of daufur). Tek fram að ég keypti hana ekki út á útlitið - það er bara tær snilld að vera í henni því hún er næfurþunn og létt en algjörlega vatnsheld og með loftgötum undir höndunum svo maður sé ekki alveg soðinn. Nú vantar mig bara ný gúmmístígvél og þá er ég klár í danska haustregnið.
Annars lítið að frétta, Árósaferðin var voðalega hugguleg en fullkomlega skandalalaus. Svo er bara klikkað að gera í vinnunni og lítil orka til að hugsa um nokkuð annað. Fór nú samt og sá District 9 í bíó og skemmti mér vel - ekki mynd sem hentar öllum, en skylda fyrir sci-fi aðdáendur.
Vantar núna einhvern til að fara með mér á Inglorious Bastards - SKAL sjá hana í bíó.
Vinnupartý á föstudaginn og ég ætlaði eiginlega ekki að fara en vinnufélagarnir sögðu að þetta rólegheitalíf á mér væri að eyðileggja fyrir þeim glansmyndina af einhleypingjunum sem eru stanslaust að skemmta sér... Andskotans Sex and the City er búið að byggja upp fullkomlega óraunhæfar væntingar til einhleypra kvenna yfir þrítugt! Ég hef hvorki aðstæður eða orku í að djamma hverja helgi - er búin að liggja eins og slytti í sófanum meira og minna alla þessa helgi og ægilega sátt með það bara. Maður er orðinn svo gamall...
25. ágúst 2009
Sauður
OG NÚ ER ÉG SKOLHÆRÐ! Gamli klassíski íslenski sauðaliturinn - AAAARGH!
Sem betur fer átti ég kaldan bjór sem er núna að hjálpa mér að skola niður tárunum.
Er að fara í plokkun á morgun (annar liður í sjálfshjálparátakinu) og er núna alveg sannfærð um að hún muni plokka þar til ég líkist hræddum trúð! Það væri alveg kórónan á verkið.
Er annars að fara til Árósa á fimmtudaginn, í langt helgarfrí - held ég geti lofað að sætu strákarnir í Árósum (háskólabær - alltaf fullt af fallegum ungum mönnum)munu ekki eiga erfitt með að standast mig - því er nú fjandans ver og miður!
Ekkert annað að gera í stöðunni enn að hella sér í bjórinn um helgina - ekki að ég fríkki við það, en mér verður allavega andskotans sama!
Svo ef þið dettið í það um helgina megið þið skála fyrir aulanum í Árósum - kannski mér takist að verða svartur sauður áður en helgin er búin ;o)
17. ágúst 2009
9. ágúst 2009
Verslunarvíkingur
Það er laaaangt síðan ég hef tekið svona syrpu - náði samt að bremsa mig af áður en ég keypti skó líka! Þarf ekki fleiri skó - en var samt næstum komin að kassanum með par af sandölum þegar berserksgangurinn fór að renna af mér.
Annars svosem lítið að frétta, hef lítið nennt að vera úti í hitanum en í staðinn dundað mér við að lesa skáldsögur eins og vindurinn, prjóna (af tómri sjálfspíningahvöt) og jafnvel teiknað aðeins (sem hefur ekki gerst lengi). Helgin fór að miklu leyti í að taka alla seríu 1 af Pushing Daysies (reyndar bara 9 þættir) og var því bara hin ánægjulegasta :o) Hef reyndar lúmskan grun um að allur þessi dugnaður minn í dundinu eigi rætur sínar í stóra pappakassanum með 400.000 ósorteruðum ljósmyndum sem bíður eftir að ég taki mig saman... Það er alveg með ólíkindum hvað maður getur fundið sér að gera ef það bíður eitthvað svona eftir manni.
30. júlí 2009
Andleysi
17. júlí 2009
Flæðirit fyrir þá sem ekki geta haldið sér saman á ögurstundu...
Ég er að spá í að prenta þetta út og afhenda næsta bólfélaga - ef ég kefla hann ekki bara...
Góða helgi ;o)
14. júlí 2009
Ég vissi það!
Þeir nota þetta víst aldrei sín á milli blessaðir. Þar hafiði það svart á hvítu - þú getur kallað þig "eiganda" þar til þú ert blá/r í framan en það er kötturinn sem stýrir leiknum ;o)
Meira hér
Og sjálf vísindagreinin hér
8. júlí 2009
The Bitch is back...
Er annars bara að reyna að höndla grákaldan veruleikann aftur, enda orðin svo ofdekruð eftir fríið að það hálfa væri nóg...
Það bíður mín tonn af þvotti í þvottakörfunni og hellingur af pósti sem á eftir að ganga frá, en mér hefur enn ekki tekist að finna nennuna – og ég er heldur ekki að meika að þurfa aftur að sjá um innkaup og matargerð! Svo það ég hef lifað á Cherioos pakkanum sem ég smyglaði með mér, en nú er hann búinn og ég neyðist víst til að herða mig upp á eftir og versla í matinn (síðasta tilraun endaði með 2 undanrennum – það var allt sem ég hafði ímyndunarafl í!).
Veit einhver um ódýran einkaþjón og kokk?

5. júní 2009
Letihaugur
Ætti að fara út og hreyfa mig eitthvað en það er kalt og skýjað og möguleiki á skúrum, svo kötturinn í mér neitar að setja loppu út fyrir dyr! Í staðinn er ég búin að hanga á Facebook, setja nýtt persónulegt met í Scrabble, hlusta á nýja músík og vaska pínulítið upp (bara pínulítið sko!) og drekka sem svarar til 18 espressóbolla af kaffi! Og ef ég gæti nú bara fundið og þaggað niður í litla leiðinda samviskubitinu sem tuðar einhversstaðar í undirmeðvitundinni væri ég bara alsæl með þetta allt saman. Ótrúlegt hvað maður getur gert sjálfri sér lífið leitt!
Annars lítið að frétta, á bara eina viku eftir í vinnunni fram að fríi. Sem verður reyndar ekki alveg jafn friðsælt og ég hefði kannski getað óskað mér, en það verður samt tilbreyting að vera ekki að vinna. Og svo styttist óðfluga í að ég komist á klakann og ég vona að veðurguðirnir brosi til mín loksins þegar ég kemst heim að sumarlagi. Síðustu 2 vinnudagarnir fara fram á Helsingjaeyri þar sem deildin mín á að halda einhverskonar "teymisdaga" - þar sem ég sit núna í markaðsdeildinni á ég alveg eins von á að þetta verði eitthvað hrikalega amerískt "nú ætlum við öll að kynnast hvort öðru og haldast í hendur" dæmi, en það kemur víst í ljós.
Góða helgi elskurnar - og munið að slappa af!
20. maí 2009
Rafmagnað andrúmsloft
Að lokum smá gleðigjafi svona fyrir frídaginn á morgun - það er komin trailer fyrir Sherlock Holmes myndina hans Guy Ritchie! Því miður þurfum við líklega að bíða fram á næsta ár eftir henni - aargh!
14. maí 2009
Save a horse - Ride a Cowboy
Eftirfarandi atriði úr America's got talent fékk mig ekki bara til að brosa, ég fékk andskotans lagið á heilann í tvo daga! Njótið :o)
7. maí 2009
1. maí 2009
Mr Booth, do you know what the penalty is for an overdue book?
Hann ætti bara að koma til mín (þótt ég geti nú ekki lengur sett hárið upp!)
Ég skal sko sýna honum hver sektin er fyrir að skila of seint :oP
29. apríl 2009
Mubluátak 2
Ég sé hvorteðer ekki fram á að halda sjálfsvirðingunni ef ég enda með að þurfa að banka uppá hjá nágrönnunum til að fá hjálp við að drösla þessu upp.
Keypti mottu á svalirnar sem ég dröslaði sjálf heim í strætó og er komin á sinn stað. Áður en ég setti mottuna á gólfið þurfti ég náttúrulega að sópa svalirnar og hef örugglega náð að gera 100 litlar kóngulær heimililslausar ef eitthvað er að marka alla litlu vefina í hornunum. Er mest hrædd um að næst þegar ég fari út bíði mín hópur af fúlum litlum áttfættum mótmælendum! Í hefndarhug...
24. apríl 2009
Bíó og meira bíó...
22. apríl 2009
Andleysi
Nei ég er ekki dauð - bara andlaus. Búin að vera voðalega þreytt eitthvað síðan ég kom heim aftur eftir Berlínarferðinni. Kem heim úr vinnunni og velt um koll í sófann þar til það er kominn tími til að skríða í bólið aftur. Þið kannist örugglega við þetta.
Anyway - Berlín var sérstök upplifun. Þessi gamla borg er undarleg blanda af fegurð og ljótleika sem bæði tengjast sögu hennar. Borgin er full af glæsilegum gömlum húsum, styttum og minnismerkjum sem vitna um forna farsæld, en líka full af minningum um seinni heimstyrjöldina og kalda stríðið svo maður er stanslaus minntur á hversu skelfilegar afleyðingarnar geta orðið þegar öfgarnar fá að ráða.
Ég á örugglega eftir að fara þarna aftur einhvern tíma.
Annars pínulítið farin að telja niður fram að sumarfríinu - þetta styttist jú!
Hlakka mikið til að koma heim að sumarlagi loksins! Dauðlangar að nota tækifærið og ferðast aðeins innanlands, en á eftir að sjá hvort ég get lokkað einhvern/einhverja með mér í svoleiðis (wink wink, nudge nudge). Ég hef til dæmis aldrei séð Jökulsárlón og það er orðið pínlegt að þurfa að játa það fyrir öllum útlendingunum sem ég hitti sem hafa verið þar! En það verður allt að koma í ljós.
Hafið það gott elskurnar - lofa að reyna að vera duglegri að blogga!
8. apríl 2009
3. apríl 2009
Vampírur á vorin
Það er sólríkur föstudagur, klukkan er 15 og ég nenni ekki að vinna meira! En ég er búin að lofa að vera 20 mínútur og passa notendaþjónustupóstinn. Fólk sem situr inni á föstudagseftirmiðdag og nennir að skrifa kvörtunarpósta á ekki skilið annað svar en : “GET A LIFE!”. Eins og þið sjáið er þjónustulundin að drepa mig :o)
Vorið er brostið á af fullum krafti aftur – hitinn allt í einu komin upp í 2 tölustafi og meira að segja sólskin mest af tímanum. Litla vampíran ég er að berjast við: a) sólarofnæmi, b) augu sem þola illa sterkt ljós og c) húð sem brennur á örfáum mínútum þrátt fyrir sólarvörn í dagkreminu. Ég neita nú samt að láta þetta eyðileggja fyrir mér vorið og ætla bara að redda mér: a) histamíni, b)nýjum sólgleraugum og c) sólkremi með faktor amk. 30. Þetta er verkefnalisti morgundagsins!
Í kvöld er planið að leggjast í páskabjór og nostalgíu með Rikke vinkonu minni – við ætlum að horfa á 80’s klassíkerinn “The Lost Boys”, sem var í miklu uppáhaldi hjá okkur báðum þegar við vorum gelgjur. Ég man bara að ég féll kolflöt fyrir Kiefer Sutherland, bestu vinkonum mínum til mikillar hneikslunar (þeim fannst hann svo hrikalega ljótur) - og að mér fannst soundtrakkið ÆÐI! Hef reyndar grun um tónlistin hafi nú kannski ekki elst jafn vel og Kiefer (sem hefur ekki breyst svo mikið á 23 árum þótt hann verði nú seint talinn fallegur greyið) ;o)
Annars á bara að njóta blíðunnar um helgina – og krossa fingur og vona að góðviðrið sem er í Berlín núna haldist fram yfir páska...
Góða helgi!
23. mars 2009
halelúja!
Hef ekki grænan hvenær þessi kemur út - en bíð spennt!
19. mars 2009
Sambandslaus...
Fjarvera mín frá öllum samskiptaforritum síðustu viku eða svo er sumsé ekki mannfælni að kenna – tæknin er ekki bara að stríða mér heldur pynta mig þessa dagana.
Hlakka til að “sjá” ykkur online – vonandi innan skamms!
9. mars 2009
Fyrir Nathan Fillion aðdáendur
Enjoy!
5. mars 2009
Partýdýrið ógurlega...
Voða gaman í Amsterdam - Cornellinn stóð ekki undir væntingum og verður í skammarkróknum allavega næstu mánuði - jafnvel árin ef hann tekur sig ekki saman!
Reykingabannið í Amsterdam kom mér frekar spánskt fyrir sjónir - skrýtið að vera inni á skemmtistað þar sem verið er að reykja jónur allt í kringum þig en bannað að kveikja í sígarettu! Og svo fer ég "heim" til Árósa eftir vinnu á morgun til að hjálpa Julie vinkonu til að sætta sig við 30 afmælið - fer líklega svona fram: "Hættu þessu væli krakkakrílið þitt og fáðu þér meira í glas!" Neita að hlusta á aldurskompleksa frá unglömbum... ;o)
Góða helgi elskurnar og ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera!
24. febrúar 2009
Hvar er bjórinn?!?
Amsterdam - here I come!
Og að lokum - skoðanakönnun lauk með 4 atkvæðum gegn 2 Manni vikunnar í hag, svo hér með er sá fasti liður endurvakinn - vonandi að þið njótið þess.
21. febrúar 2009
Confessions of a domestic goddess...
Fréttir síðan síðasta blogg? Látum okkur sjá... Myndlistarnámskeið var stórskemmtilegt en erfitt (þess vegna var ekkert þrifið síðustu helgi) - á örugglega eftir að leika mér eitthvað með málningu og pensla hér heima í framtíðinni. Hér er enn hvít jörð, þótt mér skiljist að það gæti farið að rigna á næstunni - er að vona að það þýði að vorið fari að nálgast. Ég nenni ekki að hafa vetur lengur!
Horfði á The Mummy 3 í gærkvöld og stökk ekki bros í eitt einasta skipti - þetta var svo sorglega vond mynd og eina gleðin sem ég hafði af henni voru þær mínútur sem Brendan Fraser var ber að ofan (ég er það aðþrengd þessa dagana að það þetta var hápunktur kvöldsins!). Aumkunarvert, ég veit! Mér til varnar var gamli bara í þokkalega góðu formi! ;o)
Og fyrst við erum á dónakerlinganótunum : ég var eiginlega búin að ákveða að fylgjast ekki með Óskarnum í ár því að ég er hreinlega orðin of gömul til að höndla að mæta í vinnu á mánudagsmorgni meira og minna ósofin. Hins vegar er Hugh Jackmann kynnir í ár - og ég var að lesa þessa tilvitnun í hann: "One of my favorite moments at the Oscars was when the streaker came across [past] David Niven. And we're upping it a level and we're just going to do most of the show naked. Um, well, there hopefully will be YouTube moments….Drunk and nude, yes. So that's our new fresh approach. It's the Australian way.". Ef ég væri ekki svona viss um að hann hafi að djóka myndi ég svei mér þá fórna nætursvefninum!
13. febrúar 2009
TGIF!
Búin að vinna eins og brjáluð alla vikuna, er alltaf að bíða eftir að það róist en einhvernveginn virðast verkefnin bara hrannast upp. Annars eru þau stórtíðindi frá Danaveldi að í dag var fyrsti heiðskíri dagurinn síðan... ja ég man hreinlega ekki hvenær, en ég er nokkuð viss um að það var fyrir jól! Nóvember jafnvel... Smá föl á jörðinni og skítkalt (spáð 10 gráðu næturfrosti yfir helgina) - en sólin er þess virði! Smeygði mér út fyrir eitt augnablik í dag til að njóta sólarinnar og það var eins óg í vampírumynd bara - sólarofnæmið sló til með það sama og ég mátti flýja inn áður en ég leystist upp í öskubunka. En það náði samt ekki að eyðileggja fyrir mér ánægjuna af birtunni - ég varð bara að njóta hennar út um gluggann.
Er svo að fara á námskeið í akrýlmálun um helgina - ætti að verða voða gaman þótt ég efist stórlega um að það komi nokkuð listaverk út úr því. Hver veit - kannski ég sé næsta undrabarn listaverkaheimsins? Það er "listamaður" hér í landi sem er mest frægur fyrir að hafa pissað í vatnsskúlptur eftir Ólaf Elíasson og kallað það gjörning! Svo það þarf víst ekki mikið til að fá þann titil ;o)
Hef hvorki haft orku né tíma til að finna nýjan brandara vikunnar, svo ég ákvað að gefa lesendum bloggsins færi á að tjá sig í staðinn - segiði svo að það ríki ekki lýðræði hér á síðunni!
En nú ætla ég að fá mér bjór og leggjast í leti - góða helgi elskurnar.
8. febrúar 2009
If I gotta suffer...
Það fer svo alveg eftir ykkur sjálfum hvers kyns þjáning þetta er :o)
Endalaus grámi...
Ég hélt aldrei að ég myndi láta þetta út úr mér - en ég held ég sakni snjósins...
Eða réttara sagt: ég sakna fallegu köldu vetrardagana heima með snjó og sól! Gefðu mér 10 gráðu frost og snjó á jörðu í nokkra daga ef ég bara fæ sól og logn með! Held ég sé komin með D-vítamínskort af hreinu sólarleysi og spáin er svona:
Veit ekki hvort þið náið að sjá að hitastigið hangir mest yfir frostmarkinu svo þetta þýðir slydduógeð sem nær kannski að frjósa í svellbunka yfir nóttina svo það verður glerhált að staulast í vinnuna í grámanum á morgnana. Ojj bara! Og þessi sól á köflum virðist þýða að það gæti sloppið einn geisli í gegnum skýin á nokkurra tíma fresti - maður þarf að vera ansi heppin að vera akkúrat utandyra þær sekúndur sem það varir!
Ég veit að það er bara febrúar en ég er búin að fá nóg af vetrinum og nenni ekki meir! Spurning um að skrifa "Helvítis fokking fokk!" á skilti og mótmæla fyrir utan dönsku veðurstöfuna? Heimta að vorinu verði flýtt eða veturinn að minnsta kosti gerður sólríkari? Maður fengi þá allavega útrás fyrir pirringinn!
Eða kannski bara læra af reynslunni svona til tilbreytingar og plana sólarlandatúr í febrúar á næsta ári...
28. janúar 2009
Flugvélamatur
Það fylgir sögunni að Branson hafi seinna hringt í bréfritarann og boðið honum að koma í eldhúsið til að hjálpa við að velja nýjan matseðil - sel það ekki dýrara en ég keypti það!

22. janúar 2009
18. janúar 2009
Hey Big Spender!

17. janúar 2009
Fjésið
Hef hvorki tíma né þolinmæði fyrir spurningakannanirnar og veit ekki hvað í ósköpunum maður á að gera við allt hitt "dótið" sem veltur inn - eini tilgangur þess virðist vera að senda það áfram! Eða er ég að misskilja eitthvað?
Verra er að ég veit hreinlega ekki hvað ég á að gera við skilaboð frá fólki sem ég var með í barnaskóla fyrir 100 árum síðan og man eiginlega ekki eftir! Getur einhver útskýrt fyrir mér hvað fær fólk til að setjast niður með gamla bekkjarlista og grafa upp fólk sem það þekkti sem börn? Ég er ekki að hæðast að neinum eða skammast út í þetta - mig langar í alvöru bara að skilja þetta!
Það er eitthvað svo víðs fjarri mér að elta uppi fólk sem ég hef ekki haft neitt samband við síðan ég var krakki. (Fyrir utan náttúrulega að ég man hvorki nöfn né andlit sérlega vel - svo ég myndi ekki vita hvar ég ætti að byrja!).
Kannski er það bara vegna þess að ég gekk í 4 barnaskóla og náði eiginlega ekki að mynda nein sterk bönd við bekkjarfélaga fyrr en á unglingsárunum - en persónulega verð ég að segja að ég hef ekki grænan hvað maður á að tala um við einhvern sem maður var í bekk með fyrir meira en 20 árum síðan! Fyrir utan að ég er svo hroðalega minnislaus að ég sé fyrir mér að allar tilraunir til samræðna fari eitthvað á þessa leið:
S: "Mannstu eftir ...(bekkjarfélögum/kennara/atburðum/einhverju)..."?
E: "Öhh.. nei"
Endurtakist eftir þörfum þar til samræður enda í vandræðalegri þögn.
Er ég illgjörn ef ég get ekki varist þeim grun að það sé kannski keppnin um að hafa sem flesta "vini" á Fjésinu sem fær fólk til að leita uppi alla sem þeir hafa nokkurn tíman hitt? Eða er ég bara síðasta andfélagslega risaeðlan í samfélagi sem er orðið "hyper-social"? Ég veit allavega að ef ég hefði verið að fara að skrifa mastersverkefnið mitt núna hefði ég örugglega kastað mér yfir "vinsældakeppnina" sem virðist krauma undir í öllum félagslegum forritum sem hafa slegið í gegn síðustu ár á vefnum. Kannski ég ætti að skella mér í doktorinn bara? ;o)
10. janúar 2009
Latur laugardagur
4. janúar 2009
Gleðilegt ár og allt það
Notaði daginn í gær til að taka til og þrífa íbúðina - bara til að rústa eldhúsinu aftur í dag. Vaknaði með brjálaða fyrirtíðarspennu og ákvað að virkja hana í eitthvað gagnlegt svona einu sinni svo ég henti mér í að mála í eldhúsinu. Er núna að bíða eftir að umferð 2 þorni svo ég geti tekið umferð 3 (sé fram á að það þurfi 4 umferðir ef ég á að verða sæmilega sátt). Næ líklega ekki að klára alveg í dag - en það verður þá létt verk að rumpa restinni af næstu helgi :o)
Hundfegin að vera komin í gang með þetta - það hefði verið alveg eftir mér að fresta þessu og fresta mánuðum saman - og það verður voða næs að vera búin að þessu. Og þá fær fína nýja eldhúsið jú líka loksins að njóta sín til fulls!
Og ég get farið að takast á við vandamálið með undarlegu stofuna mína (sem er svo asnaleg í laginu að ég get ómögulega fundið út úr hvernig ég á að innrétta hana).
En fyrst: umferð 3! Kannski ég ætti samt að finna mér hárteygju fyrst - mér tókst að sletta málningu í hárið á mér áðan og ég má bara ekki við fleíri hvítum hárum...




