Hálf súrealístískt að opna mbl.is og sjá myndir og fréttir af stórrhríð og ófærðum, svona rétt eftir að hafa upplifað fyrsta sólarofnæmiskast ársins. Allir rúllukragabolirnir mínir hanga á þvottasnúrum svo mín álpaðist í vinnu með nokkra sentimetra af nakinni húð á bringunni. Allt sem þurfti var smá sólskin inn um gluggan og þar með var litla vampíran við að bresta í ljósa loga...
Ömurlegt andskotans ofnæmi!
1 ummæli:
ojojoj ekki gaman en varla að maður geti vorkennt þér þegar maður er að staulast hér í viðbjóðs hálku og frosti sem jaðrar við að jafnast á við það sem er á norðurpólnum.
Skrifa ummæli